Morgunblaðið - 12.11.1946, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginn 12. íióv. 1.946.
— Landsamband íslenskra útvegsmanna —
............. Raddir útvegsmanna ..... Ritnefnd L. í. Ú. *.
Ölaíur Jönsson, Sandgerði.
STABREYNDIR UM
FulltrúaráSsfundur L.Í.Ú.
I gær hófst hjer í Reykjavík
fulltrúafundur útvegsmanna
víðsvegar af landinu og mun
hann stnda yfir í nokkra daga.
Mættir eru fulltrúar frá flest
um fjelagsdeildum innan Lands
sambands íslenskra útvegs-
manna. Munu sitja fundinn um
70—80 útgerðarmenn og full-
trúar þeirra.
Fudur þessi er fyrst og fremst
boðaður til þess að ræða vanda
mál þau, sem nú steðja að út-
vegi landsmanna og mun reynt
að finna úrræði, sem leitt gætu
til þess að hægt yrði að hefja
veiðar á komandi ári og ef unnt
er að varanlegur grundvöllur
gæti skapast fyrir viðunandi
rekstri útgerðarinnar í framtíð
inni.
Sem eðlilegt er, eru útgerð-
armehn mjög áhyggjufullir yf-
ir framtíðarhorfunum, þar sem
sjáanlegt er að þorskveiðar
verða ekki stundaðar á kom-
andi vertíð nema með mjög
miklum hallarekstri, ef ekki
rætist verulega úr með sölu af-
urðanna fram yíir það, sem nú
liggur fyrir að hægt sje að ná,
eða þá að sjerstakar ráðstaf-
anir verða gerðar innanlands,
ef tryggi útgerðinni betri og ör-
uggari starfsskilyrði en nú virð
ast, fyrir hendi.
Útgerðarnlenn munu því
leggja sig í líma til þess að
finna leiðir út úr öngþveiti því,
sem atvinnuvegur þeirra er nú
kominn í og neyta allrar þeirr-
ar orku og ráða, sem samtök
þeirra valda til þess að vinna
bót á því meini, sem hjer um
ræðir og varðar hag allra lands
manna.
Okunnugleiki almennings á
málefnum sjávarútvegsins.
Þar sem vart hefir orðið við
að landsmenn almennt geri sjer
ekki ljóst hvernig hag útgerð-
arinnar er nú komið og hvað
virðist framundan í þeim efn-
um, þykir rjett að birta almenn
ingi nokkrar staðreyndir í því
efni.
Samkvæmt ósk „Hagfræð-
inganefndarinnar“, sem stjórn-
málaflokkarnir kusu sjer ný-
lega til aðstoðar við lausn
,,stjórnarkreppunnar“, sem hjer
ríkir, Ijet stjórn L.Í.Ú. þeim í
tje yfirlit og áætlanir um rekst
ur vjelbáta og togara, byggt á
þeim aðstæðum, sem nú eru
fyrir hendi.
Birtist hjer á eftir 2 þessara
áætlana í heild, önnur um rekst
ur rúml. 50 smál vjelbáts, er
gerður yrði út á Hnuveiðar í
Faxaflóa á komandi vertíð, og
hin um eina ísfiskferð togara
til Englands. Auk þessa er get-
ið um niðurstöðu talna úr öðr-
um áætlunum. sem sendar voru
og ennfremur pokkurra atriða
úr greinargerð, sem fylgdi fram
angreindu:
Nýr vjelbátur 53 tonn byggður á íslandi kostaði kr. 550.000,00.
Hann hefir ekki komist í Stofnlánasjóð. Skuldir hans eru:
Fiskiveiðasjóður íslands kr. 150.000,00 ársv. 4% = kr. 6.000,00.
Víxlar kr. 150.000,00 ársv. 5Yz% = kr. 8.250,00.
Vaxtalaust lán úr Styrktarsjóði kr. 100.000,00.
Framlag eigenda kr. 150.000,00 ársv. 5% = 7.500,00.
Báturinn er vátryggður fyrir kr. 450.000,00 ársiðgj 7% kr.
31.500,00.
í vertíðarbyrjun fær hann kr. 100.00,00 rekstrarlán vextir 6%
p. á.
Áætlun um rekstrarafkomu vertíðina 1947:
Verð á slægðum fiski með haus 0,50 pr. kg = kr 250,00, skip-
pund, 'verð á lifur 1,2’0 pr. líter og hrogn 0,50 pr. lítir.
Afli: 1000 skippund fiskur á kr. 250,00 ....... kr. 250.000,00
31700 lítrar lifur á kr. 1,20 ........... — 38.040,00
15400 lítrar hrogn á kr. 0,50 ........... — 7.700,00
Afli samtals kr. 295.740,00
Sameiginlegur kostnaður er:
Olíur ...........................
350 tn. af síld á 140,00 ........
Akstur á fiski og keypt vinna . .
Viðlegugjöld.....................
Hafnargjöld og vígtun á fiski . . ..
Bjóðageymsla ....................
Aukahlutir sjómanna............. .
kr. 12.750,00
— 49.000,00
— 12.500.00
— 4.500 00
— 1.800,00
— 1.600,00
— 1.500,00 kr 83.650,00
Til að skipta í 25 staði .... kr. 212.090,00
eða kr.' 8.483,60 í hlut, skipv. éiga 14 hluti .... — 118.770,40
Báturinn fær 11 hluti........................ kr. 93.319,60
Kostnaður sem útgerðin greiðir ein:
Orlofsfje skipverja 2% ........ kr. 2.375,40
Aukaþóknun 2. vjelstj.......... — 870,00
Vátrygging af bát í Y2 ár...... ■— 15.750,00
Slysa- og stríðstrygging í 4% m. .. — 2.700,00
Framkvstj. og bóknald............ — 6.000,00
Veiðarfæri ......................... — 40.000 00
Viðgerðir og viðhald í Y2 ár . . — 35.000.00
Laun vegna veikindaforfalla skipv. — 5.000,00
Útsvar, vitagjald og ýmislegt .. — 7.000,00
Afskrift af vjel og bát í V2 ár.... — 40.200,00
Vextir af Fiskveiðasjóði % ár .... — 3.000,00
Vexiir af víxlum Yz ár ............. — 4.125,00
Vextir af framl. eigenda Vi ár . . — 3.750,00
Vextir af rekstrarláni ............. — 2.000,00
Tap.............................................. kr.
74.450,80
kr. 167.770,40 kr. 167.770,40
Til þess að þessi bátur beri sig á vertíðinni, þarf fiskverðið að
vera kr. 0,85 pr. kg., ef aðrir Iiðir haldast óbreyttir.
Áætlun um útgerðarkostnað togara af meðalstærð.
24 daga veiðiferð.
Kaup áhafnar 23.600,00
Orlof . — 944,00
Fæði . — 10.000,00
Til vjela 2.000,00
Veiðarfæri 10.000,00
Slysatrygging . — 3.000,00
Vátrygging skips 7.000,00
ís 4.000,00
Viðhald — 40.000,00
Hafnargjöld . — 1.000,00
Vinna í landi . — 12.000,00
Framkvstj. skrifstofuhald 0. fl. . . — 6.000.00
Útsvar . — 5.000,00
Útflutningsgjald . — 1.191,00
Löndun og sölul. erlendis . — 17.847.00
Tollur í Bretlandi . — 12.625,00
Kol 12.500,00
Aflaverðlaun og áhættuþ — 23.333,49
Sala í Bretlandi £
Mismundur (tap) . .
5.692 ....................... kr. 148.529,31
............................. — 43.510,00
kr. 192.040,49 kr. 192.040,49
Eins og að framanritað kostn-
aðaryfirlit sýnir er togari af
meðalstærð gerður út á ísfisk-
veiðar nú með verulegu tapi,
þegar selt er fyrir núgildandi
hámarksverð i Bretlandi,miðað
við eðlilegan veiðitíma og vejnu
legt magn af fiski í skipunum.
í sambandi við yfirlit þetta
teljum vjer rjett að taka fram
eftirfarandi:
1. Kekstrarreikningar nokkra
skipa hafa verið rannsakaðir,
og er hægt, ef þess er óskað,
að leggja fram sundurliðaða
reigninga til sönnunar framan-
skráðu.
2. Um viðhaldskostnaðinn, þ.
e. 40 þúsund krónur, er rjett að
geta þess til skýringar, að þar
er talið, með hinu venjulega
viðhaldi og viðgerðum — hin
lögboðna 4 ára clössun á skip-
unum, og henni deilt niður á ár
og mánuði.
3. Söluupphæðin miðast við
venjulegt magn í meðalskipi og
skiptingu fisktegunda eftir því,
sem algengast er.
4. I áætluninni er ekki tekið
fram um verðmæti lifrar vegna
þess, að algengast er að sú lif-
ur, sem fæst úr hverri veiði-
ferð, stendur ekki undir þeim
kostnaði að greiða lifrarhlut
skipverja samkvæmt gildandi
samningum, enda er þá lifrar-
hlutnum einnig sleppt í út-
gjaldaliðnum.
5. Að sjálfsögðu er ekki gert
ráð fyrir sköttum, þar sem skip
ið er rekið með tapi
Þá var og send áætlun yfir
þorskveiðar með línu á notuð-
um bát, 60 smál., sem kostaði
kr. 373.000,00 og hafði hann
fengið lán úr Stofnlánasjóði
sjávarútvegsins að upphæð kr.
235.000,00 með 2 Y?% vöxtum
pr. a. Gert var ráð fyrir sama
aflam. (1.000 skp.) og aðrir
kostnaðarliðir svipaðir nema
þeir, sem leiða af lægri stofn-
kostnaði, vöxtum og vátrygg-
ingarupphæð skipsins.
Niðurstaða þessarar áætlun-
ar sýndi tap kr. 53.118,30. Til
þess að slíkur bátur bæri sig,
þyrfti því fiskverðið að vera
kr. 0.76 pr. kg. af sl. fiski, að
öllu öðru óbreyttu.
Þá voru og sendar áætlanir
um síldveiðar framangreindra
báta, var miðað við núverandi
aðstæður og verðlag s. 1. sumar.
Gert var ráð fyrir að bátarnir
öfluðu hver um sig:
5.000 mál síldar í bræðslu á
kr. 31,00.
| 1.000 tunur síldar í salt á kr.
; 54,00.
j Þetta er að vísu ekki mikið
' aflamagn, en þó um 50% yfir
meðalafla s. 1. sumars og einnig
mun hærra en meðalafli áranria
1930 íil 1946.
60 tonna báturinn (sá ódýr-
ari) sýndi tap kr. 42.259,50.
Þarf því að fást kr. 40,60 fyrír
síldarmálið og kr. 71,00 fyrir
síldartunnuna til þess að hann
geti borið sig að óbreyttum öðr-
um aðstæðum.
| 53 tonna báturinn (sá dýrari
og með óhagstæðari áhvílandi
lánum sýndi tap kr. 63.591,00.
Þarf því að fá kr. 48,00 fyrir
síldarmálið og kr. 80,00 fyrir
ríldartunnuna, að öðrum að-
stæðum óbreyttum, svo að síld
veiðar hans beri sig.
Þá var og sent yfirlit yfir
saltfiskveiðar togara í einn
mánuð. Var aflinn áætlaður
1.000 skp. af ufsa og verðið kr.
1,75 pr. kg. fob. pakkað, en það
mun um 50% hærra verð held-
ur en nú er fáanlegt fyrir ufsa.
Samt sem áður sýndi yfirlit
þetta nokkurt tap — að vísu
lítið —, en verðið er heldur
ekki fyrir hendi.
í greinargerð, sem send var
með áætlunum, sagði m. a.: , .
,,Það skal tekið fram, að með
fylgjandi áætlanir um þorsk-
veiðar með línu eru miðaðar við
staðhætti og aflabrögð við Faxa
flóa á síðustu árum, en afli á
þeim árum hefir verið 60%
hærri en hann var þar á árun-
um 1935—1939.
Aflafengur er óvíða jafn-
mikill og við Faxaflóa og út-
koma á línuveiðum þessvegna
allt öðruvísi annarsstaðar á
landinu. T. d. eru stórar ver-
stöðvar á Vestfjörðum, þar sem
aflabestu bátar eru langt undir
meðalafla báta við Faxaflóa.
Flestir útgjaldaliðir eru þó svip
aðir á þessum stöðum. Verður
því afkoma vestfirsku línuút-
gerðarinnar mun mikið lakari.
Svipuðu máli gegnir uft Vest-
mannaeyjar, Hornafjörð og
Breiðafjörð. En frá framan-
greindum stöðum er aðal-Hnu-
útgerð landsmanna á vetrar-
vertíð rekin.
Línuútgerð á öðrum tímum
árs, er rekin í mun smærri stíl.
Er aflafengur þá yfirleitt langt-
um minni en á vetrarvertíð, en
útgerðarkostnaður er þá og
einnig oftast lægri. Mun þó hlut
fallið þar p. milli síst vera út-
gerðinni í hag miðað við útgerð
á vetrarvertíð.
Fjárhagsafkoma þeirra
manna, sem stunda línuútgerð
frá öðrum stöðum á landinu
en Faxaflóa mun bví yfirleitt
vera hlutfallslega lakari, en
áætlanir þær bera með sjer, sem
hjer fylgja.
Áætlanir þær um síldveiðar
Framh. á bls. 7.