Morgunblaðið - 19.11.1946, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. nóv. 1946
—Frá Hudson til
Hisslsippi
Framhald af bls. 9.
ingarlaus og syngja, on finna
svitann renna niður leggina
ofan í sokka og skó, seytla
ofan í augun og niður háls-
inn, streyma niður handlegg
ina og drjúpa fram af fingur-
gómunum og þykjast heyra
dropana detta í gólfið. Á nótt
unni sofa menn noktir með
eitt lak ofan á sjer í mesta
lagi, og samt eru rúmfötin
blaut á morgnana, — af svita
vitaskuld. Og þó er komið
fram að veturnóttum! Þrátt
fyrir allan hitann og svitann
halda allir góðri heilsu og
una hag sínum hið besta. Við
drekkum mikið af svala
drykkjum og borðum ósköp-
in öll af ávöxtum alls konar
betur að eitthvað af þeim
væri komið í munnana á þeim
heima.
MARGIR SPYRJA, hvað-
an við sjeum úr veröldinn þeg
ar þeir heyra á málinu, að út-
lendingar eru á ferð. Flestir
þykjast sjá að við sjeum
Skandinavar, aðrir halda að
við sjeum Rússar. aðrir Þjóð-
verjar. Þegar þeir heyra, að
ísland sje til, vita sumir, hvar
það er, aðrir spyrja, hvort
það sje í Bandaríkjunum,
nokkrir hafa aldrei heyrt það
nefnt á nafn. Við reyhum eft-
ir bestu getu að upplýsa fólk
um þetta skringilega klaka-
stykki, þar sem menskir mcnn
hafast við og lifa góðu lífi.
Flest sæmilega upplýst fólk
veit þó nok.kur deili á landinu
ekki síst vegna setu ameríska
liðsins. Enn fleiri spyrja,
hvaða mál við tölum og undr
ast, er þeim er sagt, að svo
fámenn þjcð skuli tala sjer-
staka tungu, lítt breytta frá
grárri forneskju. Yfirleitt má
fullyrða, að þessi söngför
hafi orðið og muni verða til
þess að auka að miklum mun
kynni Bandaríkjamanna af
íslandi og íslendingum, enda
til þess eins farin.
Sverrir Pálsson.
VERKSTÆÐISVJELAR
afgreiddar af lager. Leo Mad-
sen, Bergergade 10, Köben-
havn K. Símnefni: Weldon.
Sig. Skjaidberg
stórkaopmaður
fimtugur
Sigurður Skjaldberg stór-
kaupmaður á fimtugsafmæli í
dag. Hann kom hingað til bæj-
arins 24 ára gamall lítt efnum
búinn vestan úr Dölum til þess
að leita sjer fjár og frama eins
og þar stendur. Og þó hann í
upphafi hefði ekki nema tvær
hendur tómar, þá tókst honum
eins og fleirum að vinna það
með áhuga og dugnaði, sem
hann ætlaði sjer.
Sigurður er frá Leikskálum
í Haukadal, sonur Þorvarðar
Bergþórssonar bónda þar.
Skömmu eftir að hann kom
hingað til bæjarins gekk hann
í þjónustu Guðjóns Jónssonar
kaupmanns á Hverfisgötu.
Vann hann þar í 8 ár og fjekk
þar þá undirstöðu, til að reka
sjálfstæða verslun, er til þurfti.
Síðan stofnaði hann smá-
söluverslun og skömmu síðar
heildverslun, er hann hefir
rekið með frábærum dugnaði.
Hann var skeið formaður í Fje-
lagi matvörukaupmanna. Og í
stjórn Innflytjendasambands-
ins hefir hann verið frá stofn-
un þess.
Sigurður Skjaldberg er hag-
sýnn maður með afbrigðum.
Hann berst lítið á, en fylgir því
jafnan fast fram, er hann hefir
ákveðið að fá framgengnt.
Hann er traustur maður í við-
skiftur, enda hefir hann með
því aflað sjer vinsælda meðal
viðskiftamannanna alment, og
álits meðal stjettarbræðra
sinna.
V. St.
Ný tillaga um
Menfaskólann
JÓNAS JÓNSSON flytur í
sameinuðu þingi tillögu um
eignarnám á lóðum vegna
Menntaskólans í Reykjavík,
svohljóðandi: „Alþingi álykt-
ar að skora á ríkisstjórnina að
undirbúa löggjöf um eignar-
nám á lóðum og húsum á
landspildu þeirri, sem er
austanvert við Menntaskól-
ann í Reykjavík, milli Amt-
mannsstígs, Bókhlöðustígs og
Þingholtsstrætis. Skal land
þetta og húseignir síðan látið
til afnota fyri nemendur og
kennara Menntaskólans".
Segir flm. í greinagerðinni,
að þegar hin nýja skólalög-
gjöf komi til framkvæmda
verði Menntaskólinn í Reykja
vík a.m.k. að taka á móti 1000
nemendum. Áformað var að
byggja nýjan menntaskóla á
landinu milli Laugamess og
Kleppsspítala, en þegar til
kom hafði Reykjavíkurbær
orðið að taka land þetta til
þarfa útgerðarmanna í bæn-
um. Er þá sýnilegt, að ekki
muni verða úr flutningi skól-
ans, enda voru gamlir nem-
endur, og þeir voru margir
áhrifamenn, mjög mótfallnir
umræddri breytingu, sem auk
þess hefði orðið mjög kostn-
aðarsöm fyrir nemendur og
aðstandendur þeirra í bæn-
um.
Flm. gat þess í framsögu-
ræðu, að uppi væru tillögur
um að byggja skólann á Golf-
skálahæðinni, en hann kvaðsí
álíta að ekki bæri að flytja
skólann úr bænum, án þess að
leitað yrði vilja Alþingis í því
efni.
Máiinu var vísað til fjár-
veitingarnefndar.
Olympíunðftid sæk-
ir um sfyrk
OLYMPIUNEFND íslands
hefur sent bæjarráði umsókn
um fjárveitingu til undirbún-
ing§ og þátttöku íslendinga í
olympiskuleikjunum sem
fram eiga að fara í London
árið 1948.
Umsókn þessi var lögð fram
á fundi bæjarráðs í fyrradag.
S mánaða (angelsl
fyrír að verða
manni að bana
HÆSTIRJETTUR hefur
kveðið upp dóm í málinu
Rjettvísin gegn Kristjáni
Bjarnasyni, bifreiðarstjóra, í
Borgarnesi. Hæstirjettur stað
festi dóm undirrjettar, er
dæmdi Kristján í 8 mánaða
varðhald. Þá var honum gert
að greiða allan áfrýjunar-
kostnað, þar með talin laun
sækjanda og verjanda fyrir
Hæstarjettí, 700 krónur til
hvors.
Málavextir eru þeir, að
sunnudagsmorguninn 20. des.
1945 kom til ryskinga milli
Kristjáns Bjarnasonar og
Garðars Stefánssonar, frá
Vestmannaeyjum, í húsi einu
í Borgarnesi. í ryskingunum
veitti Kristján Bjarnason
Garðari Stefánssyni nokkur
höfuðhögg, er urðu honum að
bana.
í forsendum hins staðfesta
dóms segir m.a. svo, að sam-
kvæmt því, sem komið hefur
fram við rannsókn málsins og
rjettarkrufningu, verði rjett-
urinn að telja það sannað, að
ákærður hafi orðið Gunnari
Stefánssyni að bana, með
höggum þeim er hann greiddi
honum.
Fjarstætt er að ætla, að það
hafi verið ásetningur ákærða
að bana Garðari með höggum
þessum, enda virðast þati eigi
hafa verið þyngri en oft eru
greidd manna á millum í
slagsmálum.
MIKILL kuldi r nú víða í
Svíþjóð og óhmju snjókoma
í Oslo. Frá þssu var sagt í
Osloarútvarpi í gærdag. Við
Vsturbotn í Svíþjóð var 2
stiga gaddur og í Stokkhólmi
var 6 stiga frost.
í Oslo var fannfergið svo
mikið í gær, að lögregla og
slökkvilið þurfti til aðstoða
við bifreiðar er sátu fastar í
snjó. Vegna þessa urðu 15 bíl-
slys í borginni í gærdag. Þar
var 3 stiga frost.
Júgóslsfar vilja ekhi
skila breskum her-
mönnum
London í gærkveldi.
JUGOSLAVAR halda enn
fjórum breskum hermönnum
sem þeir handtóku á landa-
mærum Austurríkis og Jugo-
slaviu fyrir fjórum mánuðum
síðan. Þetta var tilkynt af
breskum hernámsyfirvöldum
í Vínarborg. í dag
Hafa Bretar kvað eftir ann-
að krafist þess að mennimir
verði afhentir, en Jugoslavar
hafa ekki svarað því og þver-
kallast enn við að skila mönn
unum aftur. — Reuter.
Osióarnefnd efnir lil
kvöldskemfunar
OSLOARNEFNDIN (þ. e.
nefnd sú, sem undirbjó för ísl.
íþróttamanna á Evróumeistara-
mótið í frjálsum íþróttum á s.
1. sumri) efnir til kvöldfagnað-
ar í Sjálfstæðishúsinu næstk.
miðvikudag 20. þ. m. til heið-
urs Oslóarförunum. Á skemt-
uninni verða m. a. sýndar í-
þróttakvikmyndir og Lárus Ing
ólfsson leikari syngur gaman-
vísur. Þarf ekki að draga í efa,
að íþróttamenn og íþróttaunn-
endur fjölmenr.i mjög til þess
að skemta sjer eina kvöldstund
með hinum fræknu Oslóarför-
um.
— Tiiiap f@i£d
Frh. af bls. 1
varð fyrir svörum af hálfu
stjórnarinnar og sagði að til-
lagan væri bæði mjög óheppi
leg og ekkert væri hæfþ í á-
sökunum þeim, sem fram
kæmi í henni á hendur Bev-
ins og stjórnarinnar. Sagði
hann að Bevin nyti óskor-
aðs trausts ríkisstjórnarinnar
og alls almennings, og Bretar
vildu alls ekki styðja nein
ríkjasambönd, heldur að eins
hinar sameinuðu þjóðir. Full
trúi íhaldsflokksins andmælti
einnig tillögunni og lýsti yfir
að allir íhaldsmenn myndu
greiða atkvæði gegn henni,
sem og varð. Síðan var til-
lagan felld, sem fyrr segir.
■———nn ii n iii i»»m»iiwin ■ iiiiwiim—wfiniiMiwi'iiiiBiwitKwiiiHiiininMHini— ?»HCT,.mHiii«t«imrii«MBaBaM»WBiaB«w!>«HwiHiiHiiiiii«iiiinwiiifffwiiiii«iitnHii3«iimnimn»inmniir<«iiiH»iiii»i!i»iiniiiiiiiiiKi«nniwi
X-? & £t a £t a Eflk Roberf Sfonn
I 5EE.„ D0
YOU KNOW OF
ANyONE EL5E
'Wl’Tb A (ViUPDER
AIOTIVE?
X-9: Hvað kemur yður til að halda, að Sligg
málaflutningsmaður hafi myrt fóscra yðar? —
Sherry: Hann hefir verið að reyna að klófesta pen-
ingana hans síðan hann hvarf fyrir ári. Og svo hef-
ir hann beðið mín hvað ofan í annað. — X-9: Jeg
lái honum það ekki, þjer eruð inndæl stúlka.
Sherry: Hann sagðist geta náð peningunum eins og
skot, ef jeg giftist honum. — X-9: Einmitt. Vitið
þjer af nokkrum öðrum, sem hefði getað haft á-
fr-
stæðu til þess að myrða Krater? — Sherry: Margir
höfuðu hann. John O’Garr var einn. Hann var líf-
vörður fóstra. — X-9: O-Garr lögreglumaður. —
(Hugsar) Og hann var á morðstaðnum líka.