Morgunblaðið - 24.12.1946, Side 8

Morgunblaðið - 24.12.1946, Side 8
Þriðjudagur 24. des. 1946 8 MORGUNBLAÐIÐ Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Ausrurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10.00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. I lausasðlu 50 aura eiiitakið, 60 aura með Lesbók. Jólin 1946 HINUM umfangsmikla undirbúningi jólanna er lokið. Jólahátíðin sjálf er runnin upp. Um allan hinn kristna heim er hátíð haldin. Ys og þys hins daglega lífs hljóðnar um skeið og fólkið leitar til heimilanna og nýtur þar frið- ar og birtu. ★ Aldrei verður það eins ljóst eins og um jólin, hvers virði heimilin eru öllum mönnum. Þau eru hin helgu vje einstaklinganna. Heimilisræktin er þessvegna hverri þjóð mikill styrkur. Fögur og smekkleg heimili eru órækari vottur en flest annað um sanna menningu. En sköpun fagurra heimila þarf ekki alltaf að byggjast á miklum íburði eða auðlegð, enda þótt góður efnahagur skapi bætta möguleika til þess að koma upp góðum húsakynnum og til þess að prýða þau. Smekkvísi og samheldni fjölskyld- unnar ræður miklu um það, hvort heimilið er vistlegt og notalegt. ★ Efnahagur íslendinga hefir batnað mjög á síðustu ára- tugum. Hefir það ekki hvað síst lýst sjer í stórbreyttum húsakynnum til hins betri vegar. En híbýlamenning vor er ennþá ung og lítt þroskuð þótt einnig hafi merkileg þróun orðið á því sviði. Það er vel við eigandi, að minnast á þessi mál um jólin, hátíð heimilanna og barnanna. Upp- tldisáhrif umhverfisins eru mikil og varanleg. Fagurt heimili á ríkan þátt í að móta skapgerð æskunnar til góðs ''-egar. Smekklegur og hóflegur jólaviðbúnaður hefir djúp- tæk áhrif á börnin, sem alast upp við hann og gleðjast við hann. Allt óhóf í þessum efnum verkar hinsvegar illa. Og það er í algerri andstæðu við eðli jólahátíðarinnar sjálfrar. Boðskapur hennar er einfaldur og látlaus en fag- ur og lýsandi. Gildi jólanna felst ekki fyrst og fremst í dýrum gjöfum eða íburðarmiklu skrauti, heldur í þeim friði, sem þau boða. ★ ÚR DAGLEGA LÍFINU ENN EINU SINNI halda kristnir menn jólahátíð og friður og velþóknun er með mönnunum. Jólin eru dásam- leg hátíð. Þau gera mennina svo góða. Við hugsum með hlý- hug til meðbræðra okkar og systra. — Sögur eru sagðar í sambandi við jólin um hörku- tól, sem urðu bljúg eins og börn. — Gamallri reiði var eytt, gamlar skuldir hugans greiddar. Á þessari miklu kær- leikshátíð urðu gamlir menn börn. Fyrirgáfu og elskuðu ó- vini sína. Undursamlegur máttur fylg- ir orðinu jól. Því hefir verið lýst hvernig hermenn á víg- vellinum lögðu niður vopn sín og fjendur sameinuðust í söng jólasálma. — Við höldum heilög jól til minningar um Hann, sem kendi okkur um- burðarlyndi, þolinmæði. Hann, sem kendi að mennirnir ættu að elska óvini sína. — Á slíkri hátíð þarf mannkynið að halda, ekki einu sinni á ári, heldur hvern einasta dag, sem Guð gefur. • Friður á jörðu. í RÚMLEGA 1900 ár hefir fagnaðarboðskapur jólanna verið boðaður meðal mann- anna. — En samt eru nú að- eins tvenn jól liðin síðan frið- ur komst á eftir ægilega heims- styrjöld, þar sem bræður börð- ust og urðu hver öðrum að bana. — Og enn er langt frá því, að fullur friður sje kom- inn á í heiminum. Núna, á þess um jólum, falla menn fyrir vopnum. Víða í heiminum ber- ast menn á banaspjót. Meiri útbreiðslu hefir fagnaðarerind- ið ekki náð í raun og veru. Háleitasa takmark allra manna hvort sem þeir eru hvítir, svartir eða gulir á hörundslit er, að friður megi ríkja. En samt er barist og samt er deilt um lítilfjörlega veraldlega hluti. Ef jólaboðskapur- inn ríkti. MIKIÐ VÆRI mannkynið sælt, ef jólaboðskapurinn ríkti ávalt í hjörtum mannanna. — Ekki aðeins tvo, þrjá daga árs ins, heldur alt árið, hvern ein- asta dag. — Vilja menn ekki hugleiða þetta. — Það er ekki nóg að halda kærleikshátíð einu sinni á ári hverju, lofa Drottinn og fara að hans boði þann eina dag. — Hið sanna og rjetta hugarfar verður að ríkja alt árið. • I döprum hjörtum. „í DAG ER glatt, í döprum hjörtum“, segir í jólasálminum og víst veita jólin gleði í hjörtu margra, sem áður voru daprir. En það eru líka margir, sem ekki geat fylgst með hátíða- höldunum þessi jól. Það eru þeir, sem mist hafa ástvini sína rjett fyrir jólin. •— Þeim verð- ur litið í auða sætið við jóla- borðið og hugsa daprir til þess er það áður fylti. Og það eru þeir, sem af ýms- um ástæðum geta ekki veitt sjer þá jólagleði, sem keypt er fyrir fje. Reynt hefir verið að hjálpa með gjöfum. Það hefir verið hugsað til margra, sem bágt áttu. En víða verða enn döpur jól í þessum heimi. Jafn- vel einnig hjer á íslandi, þar sem þjóðin hefir átt meiri efna legri velmegun að fagna en nokkru sinni fyr. Til þess fólks ættum við að hugsa, sem höfum allt til alls og njótum jólanna í hamingju- sömum og heilum hóp ástvina okkar. — • Þeir, sem vinna skyldustörfin. UM JÓLIN eigum við líka að hugsa til þeirra fjölda mörgu, sem ekki gefa sjer tíma til að halda jólin á þann ver- aldlega hátt með mat og drykk, eins og flestir aðrir. Það eru þeir, karlar og konur, sem gegna skyldustörfum sínum í landi og á hafinu. Það eru margir, sem ekki fá tækifæri til að halda hátíð. Það eru þeir, sem gæta þess, að við hin höfum ljós og yl. Það eru þeir, sem gæta símans, lögreglan, varðmenn og fjöldi annarra. — A hafinu eru sjómennirnir að sínum skyldustörfum. — Þeir hugsa heim til ástvina sinna og það er hugsað til þeirra. • Misjöfn hátíð. OG VIÐ HIN, sem getum gert það við tímann, sem okk- ur sýnist þessa næstu hátíðis- daga, þurfum ekki að hafa á- hyggjur af daglegum störfum, notum hátíðina misjafnlega. — Sumir nota tímann til að hvíla sig eftir erfiði jólaundirbún- ingsins. Aðrir hafa magann fyr ir sinn guð eða blóta Bakkusi og koma þreyttari til vinnu að hátíðinni lokinni, en er þeir fóru heim á aðfangadag. En flestum er fyrirgefið og men segja: „Jólin koma ekki nema einu sinni á ári“. Því skyldu menn ekki gera það, sem þeim sýnist best? Þannig vill hátíðin verða misjöfn hjá mörgum. • Gleðileg jól. í KVÖLD BJÓÐUM við hver öðrum gleðileg jól. Við höf- um reynt að viða að okkur ein- hverju smáu eða stóru eftir at- vikum til að gleðja vini okkar. Við gleðjumst með börnunum, því jólin hafa verið og verða lengst af hátíð barnanna fyrst og fremst. í jólagleði barnanna finnum við hina sönnu og hreinu gleði og ánægju og mörg okkar verða aftur börn og minnast jólanna í æsku okkar. Og þeir, sem njóta jólanna eins og börnin, þeir hafa gleði- leg jól. — Megi sem flestir njóta þeirra þannig. Þessa er holt að minnast á þeim óróasömu tímum, er vjer nú lifum. Mannkynið hefir um mörg ár skort frið og það skortir hann enn, þótt heimsstyrjöld sje lokið. — Óvissa og örðugleikar setja um allan heim svip á líf fólksins. ★ Oss, hjer á íslandi, líður á þessum jólum, betur en oft- ast áður, þótt einnig hjer sjeu ýmsir örðugleikar fram- undan. Lífsbarátta íslendinga hefir á liðnum öldum verið hörð og hlýtur í framtíðinni að verða það, þótt hún hafi ljest til.mikilla muna. En allt líf er barátta og starf. Þess verðum vjer að minnast. Því aðeins höldum vjer í dag jól, við að mörgu leyti góðar aðstæður, að forfeður vorir ruddu framförum og lífsþægindum brautina með þraut- seigu og ötulu starfi. ★ Baráttan gegn skortinum heldur áfram. Vjer eigum enn langt í land til fullkomins sigurs yfir honum. Vjer viljum að birta og gleði ríki á hverju einasta íslensku heimili á jólum framtíðarinnar. Vjer stefnum að því að eyða skugga fátæktarinnar, sem svo lengi hefir grúft yfir ís- lenskum heimilum. Með þessa ákvörðun í huga, skulum vjer íslendingar halda jólahátíð nú. En minnumst þeirra, sem ekkert jólaljós eiga, þeirra, sem bera harm í hjarta eða dvelja einmana fjarri heimilum og ástvinum. Minn- umst sjómanna vorra og farmanna, sem halda jólin er- lendis eða á höfum úti. Vjer óskum, að þeir komi heilir í höfn og sendum þeim jólaóskir, hvar sem starf þeirra stendur. Morgunblaðið óskar öllum lesendum sínum og allri þjóðinni 'ola I MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Jarðskjálffabörnin. Jarðskjálftarnir. Á síðastliðnu hausti voru, sem kunnugt er, liðin 50 ár frá því jarðskjálftarnir miklu dundu yfir sveitirnar á Suður- landssundirlendinu. Allir sem þá voru lifandi, og komnir til vits og ára, minn- ast þeirra atburða með skelf- ingu, er jörðin gekk í bylgjum hvað eftir annað, og torfbæ- irnir hvolfdust víða við, svo grjótið, sem var neðst í veggj- unum meðan þeir voru uppi- standandi, var komið ofan á moldarbyng rústanna, þegar jarðskjálftakippirnir voru úti. Menn undrast í dag, hvernig fólkið komst af yfir veturinn, þar sem öll, eða flest bæjar- húsin hrundu. En það varð jarðskjálftabændum mikið happ, hve haustið var góð- viðrasamt, og því hægt að vinna óvenjulega lengi að húsa bótum. . Samskotin er. efnt var til, handa hinu nauðstadda fólki á jarðskjálftasvæðinu, urðu mik- il, eftir þeirra tíma mæli- kvarða, og komu áreiðarilega að góðu gagni. Einnig sú hjálp, sem fólkinu var veitt, með því að börnum frá þeim bæjum, sem hrundu til grunna, var komið fyrir í fóstur hjer í Reykjavík og víðar. Sumt af þessum börnum ílentust hjá fósturforeldrunum enda þekkja allir Reykvíkingar það, að þeg ar talað er um borgara bæjar- ins karla og konur, þá er sagt að þessi eða hinn sje „Jarð- skjálftabarn“, þegar um er að ræða einhverja þá, sem komu hingað til Reykjavíkur af jarð- skjálftasvæðinu haustið 1896 til veturvistar, en urðu hjer á- fram hjá fólki því, sem tók þessi börn að sjer. Árið 1896 voru íbúar Reykja víkur nokkuð á 5. þúsund manns. Um „Jarðskjálftabörnin“ seg ir í ísafold í janúar 1897: Þau urðu 116 alls, börnin sem tekin voru í haust úr land- skjálftasveitunum til dvalar hjer syðra, flest til fáeinna vikna, meðan verið var að koma upp skýlum á heimilum þeirra til vetrarins, en nokkur vetrarlangt. Eigi að síður varð þó niður- staðan sú, þegar til kastanna kom, að ekki fór nema þriðj- ungur barnanna heim aftur í haust eða fyrri part vetrar, en hinum (77) veitt dvöl til vors. Þessi, sem heim fpru aftur, voru flest úr Ölfusinu .... Upphaflega var ekki hugsað lengra, en láta hjálp þessa ná aðeins til næstu sveitar, Ölf- usins með því að þaðan var svo hægt um flutninga barnanna í vagni. En er undirtektir voru margfalt betri en við var búist í upphafi, voru færðar það út kvíarnar, að bætt var við frek- lega öðru eins úr öðrum sveit- um. Komu 57 börn úr Ölfus- inu, en 59 lengra að, 36 úr Hraungerðis- og Sandvíkur- hreppum, og voru þau einnig sótt hjeðan í vagni, en hin úr Landsveit 10, af Skeiðum 7, úr Áshreppi 5, Holtamannahreppi 3, og Gnúpverjahreppi 2. Það eru alt einstakir húsráð- endur, er þetta góðverk hafa gert, flestallir með því að taka börnin á heimili sín, en fáeinir með því að koma þeim fyrir annarsstaðar hjá góðu fólki og gefa með þeim, nema hvað Fraamb á b!s. 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.