Morgunblaðið - 12.01.1947, Side 14

Morgunblaðið - 12.01.1947, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 12. jan. 1947 GRÍPTU ÚLFINN CfUr J-tlíu CL arterió Að jarðarmiðju Eftir EDGAR RICE BURROGHSt 62 Þó kom að því, að jeg komst niður að strönd eyjar- innar, en jeg hlýt að hafa gengið langa vegalengd, þvi jeg borðaði fjórum sinnum og lagðist tvívegis til svefns, áður en jeg komst á áfangastað. En þó komst jeg þetta, og ekki dró það úr kæti minni, að jeg rakst á eintrján- ing, sem falinn hafði verið í runnum þeim, sem jeg gekk í gegnum, rjett áður en jeg komst að enda eyjarinnar. Ekki þarf að taka það fram, að jeg var fljótur að draga fleytuna niður að vatninu og ýta frá landi. Ja hafði fært mjer heim sanninn um, að ef jeg ætlaði mjer að stela eintrjáning, mátti jeg ekki vera seinn á mjer, en kom- ast sem lengst frá eigandanum, eins skjótt og auðið væri. Jeg hlýt að hafa lagt út frá öðrum enda eyjarinnar en þeim, sem við Ja lentum við, því að meginlandið var hvergi sjáanlegt. Jeg rjeri langa stund meðfram eyj- unni — en hjelt mjer þó vel frá landi — áður en jeg kom auga á meginlandið í fjarska. Jeg lagði strax af stað í áttina til þess, því jeg hafði fyrir löngu síðan tekið þá ákvörðun, að snúa aftur til Phútra og gefa mig fram, svo jeg gæti á ný hitt Perry og Ghak hinn loðna. Mjer fannst jeg hafa komið fíflslega fram, er jeg reyndi einn að flýja, og þá sjerstaklega er tillit var til þess tek- ið, að við höfðum í sameiningu lagt drögin að því, að komast undan. Jég gerði mjer auðvitað ljóst, að mögu- leikar okkar til undankomu voru sáralitlir, en jeg vissi, að jeg mundi aldrei njóta frelsis míns einn, og að mjer tækist að bjarga gamla manninum meðan jeg var frjáls maður, þótti mjer harla ólíklegt. Ef Perry hefði verið dáinn, hefði jeg með glöðu geði haldið uppi baráttu minni gegn þeim frumstæða og misk- unarlausa heimi, sem jeg var staddur í. Jeg hefði getað hfað lífi einsetumannsins í einhverjum hellinum, þar til jeg hefði lokið við að búa mig hinum ljelegu vopnum steinaldarmannsins, og lagt síðan land undir fót í leit minni að stúlkunni, sem mig dreymdi um jafnt vakandi sem sofandi. En eftir því sem jeg best vissi, var Perry ennþá á lífi, og það var skylda mín og heitasta ósk, að finna hann aftur, svo að við gætum í sameiningu mætt hættum þessa einkennilega heims, sem við höfðum fundið. Og ekki mátti gleyma Ghak. Þessi stóri, úfni maður var orðinn okkur báðum kær, því segja mátti að hann væri bæði karlmaður og konungur í orðsins fylstu merkingu. Því verður ef til vill ekki neitað, að vmsir mundu nú á 7. dagur — Heimskingi! sagði Bittle. Hjelduð þjer að jeg hefði unnið mig upp úr skítnum án þess að hafa gáfur? Hjelduð þjer, að sá maður, sem hefir leikið á snjöll ustu fjármálamenn í London, láti stelpukrakka leika á sig? Svei! Nú hafið þjer reitt mig til reiði, þótt jeg vildi það ekki. Við skulum hætta þessu. Jeg hefi sagt yður skýrt og skil- merkilega hvað jeg vil. Annað- hvort giftist þjer mjer, eða jeg stefni frænku yðar. Kjósið þjer nú og sleppum öllum geðshrær ingum. — Nei, sleppum þeim ekki, sagði Helgi og stökk inn í her- bergið. Patricia þekti hann undir eins. Bittle stökk á fætur og háböívaði. Hann var sótrauður í framan, Helgi stóð brosandi með hendur í vösum. -=-• Sir, hreytti Bittle úr sjer og svo stóð í honum. — Yðar þjónustu reiðubú- inn, sagði Helgi kurteislega. Gott kvöld, Pat. Trufla jeg ykkur? Og svo leit hann á þau til skiftist með góðmannlegu brosi. Patricia færði sig ósjálf- rátt nær honum. Þá brosti hann enn hlýrra og rjetti henni höndina. Bittle barðist við það að ná valdi yfir sjálfum sjer og að lokum tókst honum það. — Jeg minnist þess ekki, Mr. Templar, að jeg hafi boðið yður hingað í kvöld, sagði hann. — Jeg minnist þess ekki heldur, sagði Helgi vinalega. Er það ekki skrítið? Bittle dæsti. Hann var fjúk- andi reiður og hann grunaði, að Helgi hefði staðið á hleri. Hann íhugaði líka hvernig fara mundi ef til átaka kæmi. Helgi var hár vexti, en þótt hann væri ekki þrekinn, þá mátti sjá, að hann var mjög stæltur, og ekki árennilegt að fást við hann. Og svo var einhver ó- hugnanlegur glampi í augum hans, svo að Bittle hraus hug- ur við. — Eigum við ekki að tala eins og maður við mann, Mr. Templar. Jeg þarf víst varla að taka það fram, að hin skyndi- lega hingað koma yðar skeði á óheppilegum tíma, sagði Bittle. Helgi hleypti brúnum. — Það skil jeg ekki. Bittle ypti öxlum, gekk að borði þar sem stóðu glös og flöskur. — Má bjóða yður whisky, Mr. Templar? \ — Þakka yður fyrir, sagði Helgi, en jeg fæ mjer whisky þegar jeg kem heim. Jeg drekk ekki með hverjum sem vera skal. Einu sinni átti jeg vin, sem var mjög skeytingarlaus um það, og einn góðan veður- d»g var lík hahs slætt upp úr skurðinum hjá Suraboya. Jeg kæri mig ekki um að láta fara þannig með skrokkinn á mjer. — Til þess að sýna, að jeg hefi ekki ilt í huga .... — Ef jeg drekk whisky yð- ar, fjelagi, sagði Helgi, þá verður það bara til þess, að við höfum báðir ilt í huga. Bittle gekk aftur á sama stað og sló öskuna nú vindli sínum. Hann horfði á Helga og aftur fór hálfgerður kuldahrollur um hann. En Helgi hafði altaf staðið kyr í sömu sporum, og það var eins og honum fyndist alt eins og það ætti að vera og honum lægi ekkert á. ■ Þetta fanst Bittle alveg óþolandi. — Þjer hagið yður ekki eins og gentlemaður, sagði hann. — Nei, það geri jeg ekki, sagði Helgi, og jeg þakka guði fyrir það að jeg er ekki gentle- maður. Þeir eru allir vindhan- ar og höfðingjasleikjur. Gentle mennirnir hjerna vilja til dæm is ekkert hafa saman við yður að sælda, að mjer er sagt. En þannig er jeg ekki. Jeg held að okkur geti komið ágætlega saman, og að þessi kynning verði upphaf að löngum kunn- ingskap, báðum til gagns og gleði. — Þjer gefið mjer ekkert undanfæri, Mr. Templar, sagði Bittle og hringdi bjöllu. Helga brá ekki hið minsta og hann stóð kyr í sömu spor- um. Svo var barið að dyrum og inn kom þjónn, stór og digur eins og hnefaleikamaður. — Fylgið Mr. Templar til dyra, mælti Bittle. -— En hvað þjer eruð gest- risinn, mælti Helgi og öllum til undrunar gekk hann rakleitt fram að dyrunum og fylgdist út með þjóninum. Bittle stóð og glápti forviða á eftir honum. Hann hafði ekki búist við því, að svo auðvelt yrði að losna við hann. Svo hristi hann sig og sagði: — Jeg kann nú tökin á svona peium! En ánægja hans varð skammær, því í sama bili heyrðist mikill hlunkur v og hurðaskellur. Bittle rak upp stór augu og í því kom Helgi aftur. — Hvað, hvað? hvæsti Bittle og um leið opnaðist hurðin aft- ur og þjónninn ruddist inn með miklu fasi. Hann var allur af sjer genginn og engu líkara en að hann hefði barist við hrúta. Blóð rann úr nefi hans og munni, og augnaráðið benti til alls annars en friðar á jörðu og velþóknunar á mönnunum. — Þetta kalla jeg að hlaupa í skarðið, ha? eins og Algy mundi segja, sagði Helgi. — Látið mig ná í þrælinn, urraði þjónninn og færði sig nær. Helgi stóð brosandi með hendur í vösum. . — Þjer reynduð að hrinda mjer ofan tröppurnar, sagði hann, en þjer renduð yður þar óvart. niður á hausnum. Jeg skal ekki segja hvað fyrir yður kemur ef þjer ætlið að ráðast á mig aftur. Bittle gekk á milli þeirra. Svo hvesti hann augun á þjón- inn og benti honum á dyrnar. Þjónnin:: drattaðist út og bölvaði í Sand og ösku. En Bittle sneri sjer að Helga og mælti: — Má jeg biðja um skýr- ingu? — Já, biðjið þjer bara, svar- aði Helgi. Það brann eldur' úr augum Bittle. — Það er óþarfi að eyða tímanum í fíflalæti, sagði hann. — Rjett segið þjer, .mælti Helgi, og það var gott að þjer mintuð mig á það. Og, góði vinur, af því að gestrisni yðar er dálítið undarleg, þá ætla jeg að leyfa mjer að íylgja ungfrú Holm heim. Verið þjer sælir. Svo tók hann í hönd Pat- riciu og leiddi hana út að ver- andarhurðinni, en Bittle var svo forviða, að hann stóð og glápti. En í dyrunum sneri Helgi sjer við, eins og hann hefði gleymt einhverju og sagði: — Vel á minst, Bittle, þjer voruð þarna með einhver skjöl áðan, var ekki svo? Bittle svaraði engu, en Helgi mælti enn: — Afheijdið mjer þessi skjöl og jeg skal gefa yður ávísun fyrir upphæðinni. — Nei, hvæsti auðkýfingur- inn. — Eins og yður þóknast, sagði Helgi. Jeg er að vísu ekki fróður í lögum, en jeg held að þjer getið ekki neitað þessu, nema með því að afsala yður öllu tilkalli til skuldarinnar. Jeg ætla að minsta kosti að biðja lögfræðing minn að senda yður ávísun, og sjáum svo hvað gerist. Svo snaraðist hann út og rakst á Patriciu í myrkrinu. Hann greip hana í faðm sjer svo að hún dytti ekki. Hann fann þá að hún skalf af hræðslu. Og ástæðan kom brátt' í ljós, því að hann heyrði hunda urra og gelta úti í garð- inum. í hendingskasti dró hann stúlkuna með sjér inn í stof- una aftur og lokaði dyrunum. Þar staðnæmdist hann og hafði Patriciu að baki sjer. — Hm — eins og Orace mundi sagt hafa, sagði hann. Viljið þjer gera svo vel að leika trúðurinn á meðan jeg held sýningu á mexikanskri hnífskutlan? Bittle sá glampa á stál í mexikanskri hnífskutlan? Bittle sá glampa á stál i hendi hans, og hann ljet síga marghleypuna, sem hann hafði á lofti. IV. í klípu. — Nei, sagði Helgi og hristi höfuðið, jeg get ekki fengið mig til þess. Fyrst og fremst tökum við þetta alt af alvar- lega, og jeg veit að yður er illa við það. I öðru lagi höfum við farið vitlaust að. Yður vant ai^ æfingu — jeg hefi aldrei s.ieð meinleysislegri þorpara en yður á þessari stundu. Jeg vil að við jöfnum þetta. Hvað seg- ið þjer um það, að'við sláum öllu á frest og hittumst aftur eftir svo sem tvo mánuði. A þeim tíma get.ið þier safnað skeggi og verið óþekkjanleg- ur .... REST * i i * v > tM Maður ræfilslega til fara stöðvaði vel klæddan rnann á götu og bað hann um að gefa sjer aura fyrir einni máltíð. „Hversvegna farið þjer ekki til fátækrahjálparinnar, sem hefir matstofu þarna við göt- una, og fáið - að borða þar?“ spurði maðurinn. „Fáið þjer aldrei löngun til þess að borða úti?“ spurði þá hinn fátæki. Hann fjekk einn dollar. ★ Ung móðir vár að segja syni sínum frá því, hvernig bprn yrðu til. Hún hafði ekki komist hjá því að svara þeirri spurn- ingu hans. Hún fór öll hjá sjer á meðan á frásögninni stóð, en fanst það samt skylda sín að bæta við: ,,Ef það er eitthvað meira, sem þig langar til þess að vita, þá spurðu bara. Þú veist að þú getur alltaf komið til mömmu og spurt ‘hana“. Drengurinn hugsaði sig um og móðirin varð hrædd um að ‘ nú kæmi eitthvað, sem hún ætti prfitt' með að svara. „Heyrðu, mamma, mig langar tii að spyrja að einu: — Hvern ig eru múrsteiriárnir búnir til?“ ★ Konur eru eins og krókudíl- ar, þegar þær ætla að krækja sjer í mann, gráta þær, og þeg- ar þær eru búnar og góma hann, gleypa þær hann með húð og hári. — ítalskt spak- mæli. ★ Yfir tvær miljónir stúdenta stunda nú nám við 1749 mentaskóla og háskóla í Banda ríkjunum. Hefir þeim fjölgað um 50 prósent síðan 1939. 667.000 stúdentanna eru stúlk- ur. ★ — Jeg verð alltaf brjálaður, þegar jeg sje fallega'stúlku. — Því trúi jeg, annars vær- irðu ekki normal. ★ -— Alla langar til þess að lifa lengi, en enginn vill verða gamall. ★

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.