Morgunblaðið - 07.03.1947, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 7. mars 1947
- FRAMSÖGURÆÐA ‘BORGARSTJÓRA
Framh. af bls. 1
bú, sem á að undirbúa þátttöku
íslands í Olympíuleikjunum
næsta ár, fái 25.000 kr. styrk í
ár, er verði fyrri hluti styrk-
upphæðarinnar.
Kannsóknirnar í Hengli.
Þá leggja Sjálístæðismenn til
að lagðar -.'írði fram 500.000
kr. til jarðhitarannsókna í
Hengli, og til kaupa á jarðbor,
eftir ákvörðun bæjarráðs og
gegn jafnmiklu framlagi úr rík-
issjóði.
Skýrt hefir verið frá þessum
rannsóknum áður, en nefnd
er skipuð af Rafmagnseft-
irliti ríkisins, bæjarstjórnum
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar,
er hefir þetta mál með hönd-
um. Hefir nefndin skilað ítar-
legu áliti, og leggur til að fram-
lag bæjarins í ár verði ein milj.
króna, gegn jafnháu framlagi
ríkisins. Sjálfsteeðismenn telja,
að það verði að komast af með
1 milj. samt. 1 ár til þessara
rannsókna, en af þeirri fjár-
hæð fer 700,000 kr í kaup á
jarðbor. Jeg hefi talað við land
búnaðarmálaráðh., sagði borg-
arstjóri, og raur. hann beita sjer
fyrir því, að ríkissjóðsframlagið
fáist.
Heiðmerkurgirðingin.
Þá leggja Sjálístæðismenn til
að'veittar verð'i 60.000 kr. til
girðingar um Heiðmörk. Kvaðst
borgarstjóri hafa rætt við
stjórn Skógræktarfjel. Rvíkur
um þetta mál, og fengið hjá
henni ítarlega greinargerð.
Skógræktarfjelagið efndi til
fjársöfnunar á árinu 1938, til
þess að standa straum af girð-
ingu um bett.a fyrirhugaða
friðland ag skemtanásvæði
Reykvíkinga. Söfnuðust 25.000
kr. í þessu skyni, er fjelagið
lagði fram cil kaupa á girðing-
arefni, sem er fyrir hendi, þeg-
ar hafist verður handa við girð-
iriguna. En bærirm þarf að eign
ast nokkurn híuta af landi
jreirra jarða, sem að Heiðmörk
liggja. Verður nú hafist handa
um kaupsamninga á þessum
löndum. Takist þeir ekki, verð-
ur leitað eignarnámsheimildar.
Eignarnámsheimild hefir þeg-
ar fengist fyrír Iandspildu úr
Vatnsendalandi, er verður inn-
an girðingarinnar. Borgarstjóri
skýrði frá, að það væri skoðun
kunnugra manna, að þegar
Heiðmörkin sje friðuð, munu
fljótlega vera hægt að koma
þar upp vísi að myndarlegum
skógi.
Flutti borgarstjóri svohlj. til-
lögu:
Bæjarstjórnin ályktar að
gera nú þegar ráðstafanir til
þess að Heiðmöik verði frið-
land og skemtigarður Reyk-
víkinga. í því skyni felur bæj
arstjórnin bæjarráði og borg
arstjóra að leita samninga
um kaup á Hólmshrauni sunn
an Suðurár, Vatnsendalandi
eunnán Hjall'a, beitilandi úr
Garða-torfu á Álftanesi og
hluta af Vífilsstaðalandi. Ná-
4st samningar ekki, sje leitað
til Alþingis um eignárnáms-
heimild. Jafnframt ákveður
hæjarstjórn að girða Heið-
mörk þegar er bærinn hefur
fengið umráð þes.sara landa,
og að íáta gera áætlanir um
framkvæmdir á Heiðmörk og
afnot hennar, í samráði við
Skógræktarfjelag Reykjavík-
ur.
Grund.
Ennfremur leggur Sjálfstæð-
isflokkurinn til, að Elliheimil-
inu Grund verði veittar 200.000
kr. til að stækka bygginguna,
enda sje fjárveitingin bundin
skilyrðum, er bæjarráð setur.
Sje þetta fyrri greiðsla af
tveim. , ;
Biðskýli.
Til biðskýla á viðkomustöð-
um strætisvagiia verði veittar
100,000 kr. af tekjum strætis-
vagnanna.
Hyggingamálin,
Liðinn til húsbygginga leggja
Sjálfstæðismenn til að hækk-
aður verði úr 3,3 miljónum í
3,5 miljónir.
Því næst ræddi borgarstjóri
um ályktunartiliögur Sjálfstæð
isflokksins og vjek fyrst að till.
í húsnæðismálum. Hann komst
m. a. að orði á þessa leið:
Húsnæðismálin eru að sjálf-
sögðu aðalviðfangsefni okkar.
Blandast engum hugur um, að
gífurleg þörf er fyrir stóraukn-
ar framkvæmdir á því sviði, en
örðugt er að gera sjer grein fyr
ir tölu nýrra íbúa, sem nauðsyn
lcgt er að koma upp.
Húsnæðiseklan stafar vitan-
lega fyrst og fremst af mann-
fjölguninni í bænum, er orðið
hefir 10.000 á síðustu 5 árum.
Hve mikið aðstreymið verður á
næstu árum, fer vitanlega eftir
atvinnu og afkomu landsmanna
annars staðar á landinu.
Rvík og landið.
Oft hefir verið talað um ráð
til að stöðva aðstreymið tjl bæj
arins og þá jafnvel minst á svo
óviðfeldna. tilhögun sem átt-
hagafjötra, enda mundi erfitt,
að setja slík höít á menn.
Ýmsar ráðstafanir hafa verið
gerðar t. d. hafa mönnum verið
sett þau skilyrði, er fá leigu-
lóðir, að þeir seidu ekki utan-
bæjarmönnum hús þau, sem þar
eru bygð, án samþykkis bæjar-
ráðs. En dæmi eru til, að farið
hafi verið í .^ringum þessi
ákvæði.
Jeg er á þeirri skoðun, að að-
alráðið til að draga úr að-
streymi til bæjarins, sje að gera
sem lífvænlegast annarsst'aðar.
á landinu. Það er því hagsmuna
mál okkar Reyk.víkinga, að í
kauptúnum og sjávarplássum
fái menn sern best og mest at-
vinnutæki, svo fólkið haldist
þar kyrt. Kemur þar fram sem
víða annarstaðar, hve hagsmun
ir Reykvíkinga og annara lands
manna eru nátengdir.
Heilsuspillandi íbúðir.
Með rannsókn á bragga -og
kjallaraíbúðum, er gerð var í
fyrra, var reynt að gera sjer
grein fyrir. íbúðaþörfinni. Hefir
verið samin um það ítarleg
skýrsla, er hjetaðslæknir hefir
athugað. Af henni er þegar kom
ið í ljós, að athugaðar hafa verið
650 íbúðir í kjöllurum og brögg
um, er hjeraðslæknir telur
heilsuspillaridi, en auk þess
verður að taka tillit til þess
fólks, sem vegna íbúðarskorts,
hafa orðið að slíta upp heimili
sín. .
900 íbúðir í smíðum.
Jeg hefi í dag fengið skýrslu
frá byggingafulltrúanum, hve
margar íbúðir verði í þeim hús-
um, sem nú eru í byggingu hjer
í bænum, en ekki eru enn þá
teknar til afnota. Eru þær 900,
er ættu að koma til afnota í ár
og á næsta án.
En telja má víst, að mikið
af því fátæka íólki, sem býr
í hinum heilsuspillandi íbúðum
komist ekki, sökum efnaskorts,
í nýju íbúðirnar, en margt af
því ætti að get'i komist í þær
íbúðir, sem fólk yfirgefur, þeg-
ar það tekur nýju íbúðirnar til
afnota.
Bærinn hefir nú í smíðum
rúml. 100 íbúðir. 72 við Skúla-
götu, er koma til afnota á þessu
ári, og 32 við Miklubraut, er
koma til afnota í árslok 1947 og
á næsta ári.
Lögin um ríkisaðsfoð.
Á síðasta ári voru samþykt
lög um opinbera aðstoð við
byggingar til þess að útrýma
mætti heilsuspillandi íbúðum á
næstu fjórum árum. Það er ó-
gerningur að ákyeða, og verður
matsatriði, hve margar íbúðir
þurfi að byggja hjer í bænum
frá gildistöku þessara laga, til
þess að því marki verði náð.
Á síðasta hausti fór bæjar-
stjórnin fram á, að Skúlagötu-
húsin kæmu undir framkvæmd
þessara laga, en samkvæmt
þeim á ríkissjóður að veita lán;
sem nemur 35% af byggingar-
kostnaði. Sje 75% veitt til 50
ára með 3% vöxtum, en 10%
vaxtalaust fyrstu árin. Samkv.
því þarf bærinn ekki að leggja
fram nema 15% af byggingar-
kostriaðinum. Ríkisstjórnin hef
ir fallist á, að þessi lög næðu
til Skúlagötuhúsanna, en bær-
inn hefir hingað til orðið að
greiða allan byggingarkostnað-
inn, sem nú er orðinn hátt í 4
milj. og verður líklega nálægt
6 milj., áður en líkur.
Komi þessi lög um útrýming
heilsuspillandi íbúða til fram-
kvæmda, hefir bæjarstjórnin
að sjálfsögðu fullan hug á því,
að halda áfram byggingum, en
byggingamálin verða að sjálf-
sögðu ekki leyst, nema með ná-
inni samvinnu bæjarstjórnar og
ríkisstjórnar.
Mismunandi leiðir.
Þegar ákveðið verður, hvern-
ig á að haga þessum íbúðahúsa
byggingum í framtíðiinni, koma
fleiri leiðir til greina. 1) Að
byggja fjögra til fimm hæða
hús, eins og gert hefir verið.
2) Að byggja átta til tíu hæða
hús, sem þá verða að sjálf-
sögðu með lengr bili á milli og
leikvöHum og þessháttar.
3) Að byggja íbúðarhús með
svipuðum slíl og Höfðaborg,
nema vandaðri en þau hú^, en
þá dreifist byggingin um stærra
svæði, svo gatna og holræsagerð
verður dýrari. í fjórða lagi, að
bæjarstjórnin reyni að hjálpa
einstaklingum til að koma yfir
sig húsum, en sú aðferð hefir
verið notuð víða annars staðar.
Ályktunartillaga Sjálfstæðis-
flokksins í húsnæðismálunum
er svohljóðandi'
Bæjarstjórn hefur í smíðum
72 eins og tveggja herbergja
íbúðir við Skúlagötp, sem
væntanlega verða allar full-
gerðar á þessu ári, og 32 íbúð
ir við Miklubraut, sem á að
verða lokið á þessu og næsta
ári.
Bæjarstjórninni er Ijóst, að
til þess að útrýma sem fyrst
heilsuspillandi íbúðum í bæn
um, verður bæjarfjelagið að
halda áfram byggingum íbúð
arhúsa í stórum stíl. Telur
hún sjerstaklega brýna þörf á
tveggja herbergja íbúðum og
ákveður að hefja nú þegar
undirbúning að byggingu 300
slíkra ibúða, er byggðar sjeu
sapikv. III. kafla laga nr. 44
frá 1946 um opinbera aðstoð
við byggingar íbúðarhúsa.
Skorar bæjarstjórnin á rík
isstjórn, Alþingi og væntan-
legt fjárhagsráð að gera þess-
ar framkvæmSir mögulegar
með því að ríkið standi við
skuldbindingar fyrrgreindra
laga um lánveitingaf og með
því að veita forgangsrjett um
nauðsynlegt efni til bygging-
anna.
Sparnað í rekstri.
Talað hefir verið um sparn-
að, er fram mætti koma í rekstri
ýmsra bæjarfyrirtækja, svo sem
um fyrirkomulag. á innheimtu.
Jeg hefi, sagði borgarstjóri, beð
ið rafmagnsstjóra, hitaveitu-
stjóra og gasstöðvarstj. um álit
þeirra á þessum málum. — Á
grundvelli greinargerðar þeirra
mætti síðan heí'ja umbætur. í
svo víðfeðmum rekstri sem bær
inn hefur, má alltaf búast við,
að hægt sje að færa eitt og
annað í sparnaðarátt. í þessu
skyni flytja Sjálfstæðismenn
svohlj. ályktunartillogu:
Bæjarstjórn ályktar að fela
hagfræðingi bæjarins og for-
stöðumanni endurskoðunar-
skrifstofunnar að gera tillög-
ur um endurbætur og s'parn-
að í rekstri bæjar og bæjar-
stofnana, í samráði við for-
ráðamenn hverrar starfsgrein
ar.
Er tvéim starfsmönnum bæj
arins, sem báðir eru prýðilegir
hæfileikamenn, falið að at-
huga þessi mál, enda hafa þeir
vegna stöðu sinnar, ítarlega
þekkingu á bæjarrekstrinum.
Skólarnir.
Síðan vjek borgarstjóri að
skólabyggingamálunum. —
Kvaðst hann nýlega hafa feng
ið ítarlega greinargerð um þau
mál frá fræðslufulltrúa bæjar-
ins, þar sem fulltrúinn meðal
annars skýrir frá hversu á-
hyggjur foreldra eru miklar út
af því hvernig þeir geti kom-
ið börnum sínum til framhalds
náms. Um gagnfræðaskólana
þarf að sækja með fongum fyr-
irvara, í Menntaskólann kom-
ast ekki nema fáir á ári. Kvaðst
•fulltrúinn fá daglegar fyrir-
spurnir um það, hvar verði
hægt að koma 13 ára börnu'm
til náms næsta haust. Hann
gerir grein fyrir þörfinni fyrir
skólabyggingar og hvar sje
hagkvæmast að reisa skólana.
Þar kemur fram stefnubreyí
ing, því hann leggur til, að
framvegis verði ekki reistir
stórir skólar, að hver skóli
verði ekki stærri en svo, að
skólastjóri geti þekt hvern ein-
asta nemanda. Með því mótl
verði náms- og uppeldisskil-
yrðin betri en í stóru skólun-
um. Hann leggur til, að reistir
verði þrír nýir barnaskólar,
einn á Kleppsholtí, annar fyr-
ir Sogamýri, Elliðaárhverfi,
Blesugróf og Fossvog og sá
þriðji fyrir Holtin og Hlíðarn-
ar. Gagnfræðaskólar verði
þrír, í vesturbænum, á Skóla-
vörðuholti og í Laugarnes-
hverfi, en þegar litlu barna-
skólarnir verða komnir upp,
verður hægt að nota nokkuð
af Laugarnesskólanum fyrir
gagnfræðakenslu. Nokkurri
gagnfræðakenslu verður líká
hægt að koma fyrir í Melaskól-
anum, en hve skólaþörfin eykst
ört, sjest best á því, að börnum
á skólaskyldualdri mun fjölga
hjer í bænum næstu þrjú árin
um 1600. Sjálfstæðismenn
leggja til, að til byggingu í-
búðarhúsa, skóla og dagheim-
ila sje varið þrem og hálfrl
miljón, eins og áður er sagt,
en viðvíkjandi skólabygging-
unum gerir flokkurinn svohlj.
ályktunartillögur:
Bæjarstjórn ákveður að
haga framkvæmdum og und-
irbúningi skólabygginga á'
þessu ári sem hjer segir:
1. Ljúka byggingu Melaskóla
og Laugarnesskóla.
2. Hefja þegár undirbúning
undir byggingu nýrra
barnaskóla fyrir Langholts
hveTfi, Sogamýri, Elliaðaáij
hverfi, Fossvog, Rauðarár-
holt og Hlíðahverfi, og
hraða framkvæmdum sem
mest til þess að á næsta*
skólaári verði a.m.k. einn
þessara nýju skóla tilbúinn
til afnota.
3. Vinna að því, að hraðað
verði eftir föngum bygg-
ingu gagnfræðaskólans £
í Reykjavík og iðnskóla.
4. Hefja smíði á viðbótarhús*
næði fyrir húsmæðraskól-1
ann.
5. Að öðru leyti felur bæjar-
stjórn fræðsluráði að gera
sem fyrst áætlun um skólai
þörf næstu ára, miðað við
það, að lögin um barna-i
fræðslu og gagnfræðanám
komi sem fyrst til fram-
kvæmda.
Ákaflega brýn nauðsyn er S
því, að auka við byggingu hús
mæðraskólans á Sólvöllum og
leggja Sjálfstæðismenn til, að
byrjað verði á þeirri viðbótar-
byggingu í ór. j
r ’ T|
Fávitahæli.
Borgarstjóri bar fram
svohljóðandi ályktunartillögu
um fávitahæli:
Bæjarstjórn Reykjavíkun
skorar eindregið á Alþingi að
veita í fjárlögum þessa árð
nægilegt fje til byggingar fá-
vitahælis, eins og lög nr. 18
frá 1936 um fávitahæli gera
ráð fyrir.
Fyrir ellefu árum voru sam-
Framh. á bls. 8 ;