Morgunblaðið - 16.04.1947, Side 2

Morgunblaðið - 16.04.1947, Side 2
1 MORGUNBLAÐIÐ 'Miðvikudagur 16. apríl 19471 íslenskir náttúrufræðingar - úrvalsmenn til rannsókna segir iiels lielsen PRÓFESSORARNIR dönsku, Niels Nielsen og Noe Nygaard fóru heimleiðis í gær. Mestan tímann, sem þeir dvöldu hjer á landi, voru þeir austur við Heklu, til þess að athuga eldsum- brotin. Er tíðindamaður frá blaðinu hitti þá áður en þeir fóru, vora þeir sammála um að ferð þessi, og það, sem þeir hafa sjeð af Heklugosinu, væri hið stórfenglegasta, og merkilegasta, sem ívrir þá hefir borið. Dalton bjartsýnn um ijárhag fireta London í gærkvöldi. HUGH DALTÖN, fjármálaráðherra Breta, hjelt þriggja klukkii stunda ræðu, er hann lagði fram fjárlagafrumvarp stjórn- arinnar á þingi í dag. Þingmenn verkamannaflokksins fögnuðu ræðumanni ákaflega, er hann tilkynti að tekjuafgangur af fjárlög unum næmi 248 miljón sterlingspundum. - é> Nielsen prófessor komst m. a. áð orði á þessa leið: Auk þess, sem gosið hefir verið mjer ó- gleymanlegur viðburður, sem járðfræðing, hefir það og verið mjer óblandið ánægjuefni að sjá hvernig hinir íslensku nátt- úrufræðingar hafa skipulagt rannsóknir sínar á gosinu, og hve vel þeim hefir tekist að fylgja þeim rannsóknum, sem þeir í upphafi settu sjer. : Jeg þykist hafa leyfi til að segja þetta af fullkomnum kunnleika, því jeg hefi s.l. 25 ar, haft tækifæri til að fylgjast rrieð íslenskum náttúrufræðing- pfn, að þeir urðu að vinna eins og einsetumenn hver í sínu horni. A síðustu árum hefir vax ið upp hinn álitlegasti hópur ís~ lénskra náttúrufræðinga. Hefi jeg þekt þá alla ,að heita má, alt frá því þeir hófu nám sitt. Jeg hefi haft tækifæri til þess að ferðast með þeim, og fylgj- ast með störfum þeirra. - Það er mjer mikið gleðiefni að sjá nú þessa menn taka rarin sóknarefni eins og Heklugosið, með svo miklum og eldheitum áhuga vísindamannanna, sem raun er á. Jeg þori að segja, að ehgin Norðurlandaþjóðin mun nú hafa öðru eins úrvalsliði á að skipa sem íslendingar, til þess að taka upp og framfylgia rannsóknum á Heklugosinu. — Þetta er þeim mun merkilegra, sem Islendingar eru svo lang- samlega fámennasta Norður- lándaþjóðin. Síðan bars talið að starfsemi Dansk-íslenska fjelagsins, en Nielsen prófessor hefir verið í stjórn þess fjelags, nokkur und anfamn ár. Var hann varafor- maður þess, þangað til sr. Arne Möller dó, en hefir gegnt for- mannsstörfum síðan. Fjelagsmenn* sagði Nielsen, eru yfir 1000 víðsvegar um Dan mörku. Starfsemi fjelagsins er margþætt. Haldnar eru sam- komur tvisvar á ári með fyrír- lestrum o. þessh. Fjelagsstjórn- in leiðbeinir íslendingum, sem til Danmerkur koma og gefur út Árbók og aðrar bækur, nú síðast hina ítarlegu og merki- legu bók Th. Krabbe, um verk- legar frámfarir á íslandi. Fluttir éru fyrirlestrar á veg- um fjelagsins um íslensk efni á samkomum gg í fjelögum og skólum víðsvegar um landið. — Meðan á styrjöldinni stóð, ann- aðist fjelagsstjórnin miðlun frjet.ta frá íslandi til danskra blaða. Það er innileg ósk min, sagði Nielsen prófessor að lokum, að góð vinátta fái að njóta sín á milli íslendinga og Dana, og þessar skyldu þjóðir læri á kom andi tímum að hafa samskifti á þann hátt, að báðar þjóðir hafi af því gagn og ánægju. Vegalögin lögfes! Hjer verður getið nokkurra mála, sem Alþingi hefir haft til meðferðar síðustu dagana. Vegalögin. Frv. til vegalaga var í gær afgreitt sem lög. Meða lögum þessum verður lengd nýrra þjóð vega rúmlega 700 km. Fyrir Alþingi liggur og frv. til brúar- laga, þar sem lagt er til að 44 nýjar brýr verði teknar upp á brúarlögin. Almann atr yggingar. Frv. Steingríms Aðalsteins- sonar um breytingar á lögun- um um almannatryggingar, var felt í Ed. með 11:1 atkv. Hafði frv. verið sent Tryggingarstofn un ríkisins til umsagnar. Lagði tryggingarráð til að ekki yrðu gerðar veigamiklar breytingar á lögunum fyrr en fengin. er nokkur reynsla af framkvæmd þeirra. Framfærslulög. Frv. til framfærslulaga var til 2. umr. í Nd. í gær. — Frá meiri hl. fjelagsmálanefndar lágu nokkrar brtt., aðallega um að tekin skuli upp í frv. ættar- framfærsla, að börn skuli fram- færa foreldra sína, ef þau eru til þess fær, og á sama hátt skuli foreldrar framfæra börn sín, 16 ára ogeldri. Þessi ákvæði voru feld burt; er frumvarpið var samið, en tekin aftur upp nú. Frv. fór síðan til 3. umr. Alurðasölumálin. Frv. um framleiðsluráð land- búnaðarins hefir verið til 1. umræðu undanfarið, og sætt nokkurri gagnrýni. Jón Pálma- son hefir gagnrýnt frv. allmjög, en kveðst mundi gera frekar. grein fyrir áliti sínu í landbún- aðarnefnd. Kommúnistar hafa hamast gegn því, að Sjómannafjelag Reykjavíkur tilnefndi einn full trúa af hálfu neytenda í hina nýju sexmanna-nefnd, sem lagt er til að verði komið á samlcv. frumvarpinu. Fyrstu umræðu var lokið í gær og málinu vísað til 2. umr. og landbúnaðarnefndar. MADRID: — Margir menn voru handteknir í Saragossa á Spáni nýlega, er upp komst um það, að í undirbúningi var að sprengja upp kolanámur í Ut- rilla. Söngskemlun Þor- sleins Hannessonar ÞORSTEINN HANNESSON tenórsöngvari hjelt sþngskemt- un í Tripolileikhúsinu síðast- liðið sunnudagskvöld við góða aðsókn og mjög mikla hrifn- ingu áheyrenda. Þorsteinn hefir tekið svo stór feldum framförum upp á síð- kastíð(/ að undrum sætir. Rödd- in, sem er mikil og fögur, er nú þjálli og frjálsari á háum tópum en áður og ekki ■ eins klemmd, og hljómaði hún nú oft glæsilega og tindrandi út í salinn, þótt raunar gætti lítils- háttar þreytu í lok tónleikanna, en efnisskráin var mjög erfið Auðheyrt er, að Þorsteinn hefir haft góða kennara og kunnað vel að notfæra sjer kennsluna, en_þar vill stundum á bresta. En hann er líka'ó- venjugáfaður söngvári, alvöru- gefinn og auðmjúkur gagnvart listinni, og kom það best í ljós í' „Dichterliebe" Schumanns, sem var sungið af djúpum skiln ingi og stílfestu. Þetta fagra verk (16 lög alls) hins mesta rómantiska tónskálds, sem uppi hefir verið, naut sín framúr- skarandi vel í meðförum Þor- steins. Hann flutti það af þeim einfaldleik hjartans, sem gerir söng hans oft svo töfrandi. Síðari hluti efnisskrárinnar var helgaður íslenskum tón- skáldum og svo Puccini og Wagner. íslensku lögin voru nokkuð misjafnari í meðferð Þorsteins, eins og stundum vill brenna við hjá söngvurum vor- um. Þannig naut ,,Gígjan“ sín miður vel, en „Sverrir konung- ur“ aftur á móti alveg framúr- skarandi; einnig ágætlega „í dag skein sól“ og „Fuglinn í fjörunni“. Um óperuaríurnar er það að segja, svona yfirleitt, að þær njóta sín aldrei til fulls nema með hljómsveitarundirleik. Þær eru vanalega svo háspenntar og reyna svo mjög á raddþolið að líkja má við líkamlegt ofbeldi á söngvurunum að bjóða þeim slíkt (þetta kalla menn drama- tik!). En hljómsveitin ber alt uppi á sínum breiðu brjóstum, einnig söngvarann. Fyrsta arían eftir Puccini „Recondita armonia“ var nú of þvinguð á köflum, en ,E lucivan le stelle“ aftur á móti prýðileg, og sama má einnig segja um ;,Lohengrin“-aríuna, sem er mjög erfið viðfangs. Þorsteinn Hannesson er þeg- ar orðinn mjög glæsilegur söngv ari. Það sem virðist fyrst og fremst vaka fyrir honum er að vera listinni trúr fram í dauð- ann, ef svo mætti að orði kveða, og er það eins og vera ber. En mjer minnst hann þó stundum draga sjálfan sig full mikið í hlje. Blóðrík list krefst blóð- ríks elskhuga. En það fellst mikið á bak við söng Þorsteins, og öll list er borin uppi af því, sem á bak við býr. Dr. Urbantschitsch átti sinn mikla þátt í þessari söng- skemmtun með sínum „kúlti- veraða“ og fína undirleik. P. í. Tisso dæmdur til dauða Monsignor Josef Tisso Prag í gær. Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. MONSIGNOR JOSEF TISSO (Faðir Tisso), quislingur og for seti Slóvakíu þann tíma, sem Þjóðverjar hernámu landið, yar í dag dæmdur til dauða, með hengingu. — Utanríkisráðherra. hans, dr. Ferdinand Durcansky var pinnig dæmdur til dauða með hengingu, Þriðji ráðherr- ann, Alexander Mach, var ekki dæmdur í dag; eins og búist hafði verið við, þar sem hann I hefir þjáðst af lungnasjúkdómi undanfarið. Tisso tók dómi sínum með rósemi að því er virtist. Hann játaði í rjettarhöldunum'að hafa veitt Þjóðverjum hernaðarlega aðstoð, en neitaði því að hann hefði nokkru sinni undirritað stríðsyfirlýsingu gegn Bretum og Frökkum. HERSHÖFÐINGJAR ÁKÆRÐIR LONDON: — Fjóriri þýskir hershöfðingjar verða á næst- unni dregnir fyrir rjett í Wup- pertal, sakaðir' um að hafa lát- ið mvrða 31 stríðsfanga banda- manna. VERSLUNARSAMNINGAR RÆDDIR LONDON: — Sænsk sendi- nefnd er komin til London, til að ræða um framlengingu nú- verandi verslunarsamnings Breta og Svía. Dalton sagði, að á erlenduirí vettvangi ættu Bretar við erf- jðleika að stríða; en hvað snerti fjárhaginn innanlands mætti heimurinn gjarna taka eftir því, að hann væri góður. Stórhækkun á tóbaki. Það, sem almenningur í Brct landi mun taka mest eftir, er hin gífurlega hækkun, senu verður á tóbaki. 20 stykkja sí- garettupakki hækkar úr 2 sh. og 2 pence í 3 shillings og 4 pence og ætlast fjármálaráð- herrann til þess að þessi verð- hækkun verði til þess, að tó- baksnetkun landsmanna minki um (4 á þessu ári. — Hann skýrði frá því, að um 80% af tóbaki Breta kæmi frá Banda- ríkjunum og í kaup á því færu dollarar, sem Bretar mættu illa missa. Onnur atriði í ræðu Daltons, sem vöktu athygli var m. a. að Bretar ætla að draga úr; kostnaði við landvarnir 46% af því, sem eytt Var s.l. ár og er; kostnaður áætlaður 899 miljóií sterlingspund. 'Eden lítið hrifinn. Anthony Eden hafði orð fyr- ir stjórnarandstöðunni. Hann sagði m. a. að tekjuafgangur sá, sem Dalton talaði um væri ekki raunverulegur tekjuaf- gangur, sem sýndi batnandi hag breska ríkisins, heláur væri um að ræða afgang vegna sölu á' afgangstækjum frá hernum og af öðrum óeðlilegum ástæðum. Það væri þess vegna því miður engin ástæða til fagnaðarláta. Baksi hefir rjelf lil að skora á Joe Louis London í gærkveldú JOE BAKSI, hnefaleikarl frá Bandaríkjunum sigraði | kvöld Bruce Woodcoclq Evrópumeistara í hnefaleik, og hefir þar með rjett til aðj skora á Joe Louis til að verjai heimsmeistaratitilinn fyrii) sjer. Hnefaleikakeppnin fór framí í Harringay leikvelli að við-* stöddu fjölmenni. Dómarintf stöðvaði leikinn eftir sjö lot~< ur er sjeð var að Woodcock! var orðinn svo aðframkom.-* inn, að ekki var forsvaranlegti að láta þá halda áfram aði berjast, en upphaflega var á-* kveðið að þeir reyndu meðj sjer í 10 lotum. — Reuter. . FRÍMERKI ELIZABETH ] PRINSESSU. LONDON: Ástralska stjórn- in hefir sótt um leyfi til að notai mynd af Elizabeth prinsessu á frímerkjum, sem gefa á út I sambandi við 21 árs afmælis- dag. prinsessunnar 21. apríl. \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.