Morgunblaðið - 10.05.1947, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.05.1947, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIt) Laugardagur 10. maí 1947 - SÍÐA S. U. S. — „Sjálfsfæðisbaráfla" kommúnisfa Framh. af bls. 7 únista. Þar fer mest fyrir heila- spuna um ímyndaða Sovjethags muni. Þannig er alt gaspur komm- únista um Keflavík og Hval- fjörð! Allur sá hræsnisvefur vefst að þeim sjálfum, f jötrandi skynsemi þeirra og heilbrigða hugsun. En sjálfar hinar kom- múnistisku hetjur í hinni „nýju sjálfstæðisbaráttu“ verða að við undrum í augum þjóðarinnar. Það er inntakið í hinni „Þjóð- legu“ baráttu kommúnistanna að einangra sjálfa sig frá sinni eigin þjóð. Það verða einu afrek komm- únista í sjálfstæðisbaráttu íslendinga. — Skemdarsfarf kommúnisfa Framh. af bls. 7 sem þeir ljetu í veðri. vaka, að taka ætti ákvarðanir í þessum málum, en var aðeins haldinn til að æsa upp verkamenn þar Sem þeir ljetu málalið sitt ausa SKIÞAIlTGCRÐ RIKISINS Súðin samkvæmt áætlun vestur og norður til Akureyrar miðviku- daginn 14. þ. m. Vörumóttaka árdegis í dag óg árdegis á mánu dag. — Pantaðir farseðlar ósk- ast sóttir samtímis. úr skálum reiði sinnar yfir rík isstjórnina. En allar ákvarðan ir um allsherjaratkvæðagreiðsl una voru teknar löngu fyrir fundinn. Kommúnistar voru því mjög bjartsýnir með úr- slitin. En þrátt fyrir allan sinn undirbúning og bolabrögð gagn vart verkamönnum fá þeir ekki nærri þriðjung fjelags- manna til að greiða atkvæði með uppsögn samninganna Og litlu færri greiddu atkvæði gegn uppsögn þeirra. Þetta sýndi að verkamann láta ekki hina rússnesku „agenta“ hafa sig að fótaþurku. Nú hrópa konlmúnistar að þeim verkamönnum, sem greiddu atkvæði gegn þeim eða sátu heirna við atkvæðagreiðsl una og tala um verkfallsbrjóta. Þetta er dómur þessara snápa um þá menn er láta stjórnast af heilbrygðri skynsemi og setja íslenska hagsmuni ofar er lendum hagsmunum. Verka- menn munu svara þessum ó- lánsmönnum á viðeigandi hátt. Kommúnistar hafa nú sagt þjóðinni stríð á hendur. Þeir vilja auka dýrtíðina. Hækka framleiðslukostnað afurðanna, sem nú þegar eru orðnar óselj anlegar á erlendum markaði, vegna þess hvað dýrar þær eru Þeir vilja stöðva framleiðsluna og skapa atvinnuleysi. Þetta vilja þeir til þess að hjer hrynji alt í rúst, svo að þeir geti þegar nóg er sorfið að þjóðinni tekið völdin og kúgað fólkið. Gert verkamenn að þrælum, eins og í Rússlandi. Þetta má enginn láta afskifta laust, hvar sem menn eru í flokki. Elskir þú frelsið, land þitt og þjóð þína, verður þú þegar að snúast til varnar gegn þessum vágestum og hindra ó- happamennina áður en það er orðið um seinan og þeir eru búnir að steypa þjóðinni í glöt un. Fimm mínúfna krossgátan \ 2 } 4 6 9 ■ U 12 r* Á " mm L ■ IÞ J7 ■ 18 ) SKÝRINGAR Lárjett: — 1 hrópa — 6 þjálfa —- elskaði — 10 fjöldi •— 12 ungvýði — 14 fangamark — 15 guð — 16 frekar — 18 sauð. Lóðrjett: — í rúmi — 3 tveir samhljóðar — 4 nýung — 5 gortum — 7 hótaði — 9 þrír eins — *11 reiðihljóð — 13 skemtun — 16 verkfæri — 17 tónn. Lausn á síðustu krossgátu. Lárjett: — 1 stara — 6 ipa — 8 ost — 10 sko — 12 stork- ur — 14 aó — 15 L. G. — 16 egg — 18 skellir. Lóðrjett: — 2 Tito — 3 an — 4 Rask — 5 gosans — 7 korg- ur — 9 stó — 11 kul — 13 rugl — 16 ee — 17 G. L. Ástralíumenn hjálpa Brelum eftir megni London í gærkvÖldi. CHIEFLEY, forsætisráð- herra Ástralíu, lýsti því yfir í gær, að Ástralíumenn myndu senda Bretum öll þau mat- væli, sem þeir gætu án verið. Sagði hann, að rikisstjórninni hefðu stöðugt borist upplýsing a-r frá Biesley, sendiherra Ástralíu í London, um mat- vælaástandið í Bretlandi. — Chiefley sagði enrrfremur, að það væri hin herfilegasta firra og illmælgi, að fólk í bresku samveldislöndunum væri hálf- sveltandi. — I Sidney hefur verið stofnaður sjóður í því skyni að senda til Bretlands 100 þúsund smálestir af kjöti. Ávarp hefur og verið birt, þar sem skorað er á borgarbúa að láta sjóðnum í tje þá kjöt- skömmtunarseðla, sem menn geta án verið, svo að nægileg- ar innkaupaheimildir fáist fyr ir þessu kjötmagni. — Reuter. BEST AÐ AUGLÝSA' I MORGUNBLAÐINU Vjelbátur til sölu 29 rúmlesta vjelbátur í góðu ásigkomulagi til sölu. — Upplýsingar gefur Lúðvík Kristjánsson, sími 5661 og 1 3864. — Minningarorð um Eyjólf Kristjánsson I DAG er til moldar borinn Eyjólfur Kristjánsson, spari- sjóðsgjaldkeri í Hafnarfirði. Hann var fæddur 18. janúar 1902 og var því aðeins 45 ára, þegar hann ljest. Árið 1924 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Guðlínu Jóhannesdóttur, og úttu þau hjón fjögur efni- leg börn. Eru þrjú þeirra, Guðný, Björg og Reynir á lífi, en Einar fórst af togaranum Maí í janúar s. 1. Árið 1927 flutti Eyjólfur til Hafnarfjarðar og hefir dvalið þar síðan. Lengst af vann hann við verslunarstörf, en fyrir tveim árum tók hann við gjald- kérastarfi við Sparisjóð Hafn- arfjarðar. Eyjólfur tók mikinn tátt í fje'lagslífi. Var m. a. um skeið formaður Verslunarmannafjel- agsins og gjaldkeri Rauða kross ins í Hafnarfirði. Hann var traustur og góður Sjálfstæðis- maður og tók mikinn þátt í starfi flokksins þar í bæ, gegndi fyrir hann trúnaðarstörfum og gekk þar, sem annars staðar, heill og hiklaus til starfa. Kynni mín af Eyjólfi Kristj- ánssyni voru ekki löng, en þau voru á einn veg. Hann var ávalt hinn sami,.jafn við alla, hreinn og beinn. Þar var heilan vin að hitta. Jafnan var gestkvæmt á heimili þéirra hjóna, enda tóku þau öllum, sem að garði bar, opnum örmum. Fyrst eft- ir að jeg flutti til Hafnarfjarð- ar átti jeg mörg spor á heimili þeirra, því þá fannst mjer jeg vera kominn heim. Þungur harmuiv var kveðinn að heimili Eyjólfs og Guðlínar, þegar Einar sonur þeirra fórst, svo sviplega, og á ný er heimilið harmi lostið við missi hins ást- ríka heimilisföður, er var svo ungur að árum og ungur í anda, stoð og stytta heimilis síns. Sorg aðstandenda og annarra vina er sár. En við höfum eign ast dýrmætan fjársjóð, þar sem er minningin um okkar horfna samfjelaga, minningin um sterkan, trúaðan og góðan mann. Sú minning verður okk- ur, sem til þekkum, ávalt hvatning til að vinna vel, hik- laust og ötullega að öllu því, sem leiðir til blessunar fyrir land og lýð. Guð blessi þig og þína. Vertu sæll, vinur minn. P. V. D. — íslendingasögurnar Framh. af bls. 6 Jeg óska þess heitt, að atvik- in hagi því svo, að við Islend ingar þurfum aldrei að þola þau örlög, sem þessum vesa- lings minjasafnsverði voru búin. Við syngjum með nokkru stolti um landnema „hetjur af konungakyni1 ‘. Það er enganveginn vanda- nje áhyggjulaust að vera í ná- inni frændsemi við tign, snilld og frægð. Á annan í páskum 1947. ísak Jónsson. Sjö meðlimir Brönd- um-klíkunnar líf- látnir Kaupmannahöfn í gærkvöldi. — Einka- skeyti til Mbl. SJÖ meðlimir Bröndum- klíkunn^r alræmdu voru tekn- ir af lífi í dag. Hafa þá 14 skósveinar Þjóðvei ja verið líf- látnir frá því, er Danmörk varð aftur frjáls. —- Meðlimir Bröndum-klíkunnar voru dæmdir til dauða fyrir mann- dráp og sprengingar bygginga og járnbrauta. Hafði klíkan alls grandað 146 mannslífum. £ £ £ £ £ Eflir Roberl Slorm HOÍ HO! I CAN’T BELIEVE I KILLEDA AtAN - EVEN 1F 1 f TME D.A. BEL1EVE5 ( rr—gr v.'ANT'S to-.he's ON THE ^POT-iF HE FIND5 VOU; VOU'RE <SC0D A5 !N TME HEA7 ^ 79ERE'$ A REA^ONABLE Y iFI CO\iLD DGUBT ABOUT Y0UR GUILT, / ONLV REMEM&ER- BUT TME D.A. NEEOe A / REAIEMBEK.,, BUT Corrigan: — Nei, jeg fæ mig ekki til að trúa því, að jeg hafi drepið mann. Og það þó jeg muni ekki neitt. — Kalli: Ákærandinn lítur svo á — eða vill það að minnsta kosti. — Corrigan: Ef jeg gæti að- eins munað eitthvað. — Kalli: Lögreglunni er ekk- ert sjerléga vel við mig. Mjer væri það mjög á móti skapi, ef lögreglán finndi þig hjer. — Corrigan: Þú ætlar þjer varla að koma upp um mig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.