Morgunblaðið - 11.06.1947, Page 1
16 síður
34. árgangnr
128. tbl. — Miðvikudagur 11. júní 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Ramadier telur ástandið
9
mjög alvarlegt
aliiS ógnar öEiit hagkerfi Fra' ’
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FRANSKI forsætisráðherrann Ramadier skýrði frá því í
dag í þinginu, að verkfall jámbrautarstarfsmanna væri nú
komið á það stig, að hagkerfi Frakklands væri alvarleg
hætta búin. Lýsti hann því jafnframt yfir, að stjórnin mundi
ekki láta neinn bilbug á sjer finna, þrátt fyrir verkfallshót-
anir opinberra starfsmanna.
KOLAV ANDRÆÐI
EINKUM BAGALEG.
Ráðherrann neitaði því, að
þjer væri verið að reyna, hvort
sterkara væri ríkisvaldið eða
verklýðssamtökin. Hann sagði:
,,Jeg skírskota til skilnings
verkamannanna á þessari hættu
legu stundu“. Hann taldi kola-
vandræðin vera orðin mjög al-
varleg í ýmsum verksmiðjum og
skýrði frá því a hann hefði átt
viðræður við forustumenn!
frönsku verklýðssamtakanna.
'þeir hafi ekki viljað taka á sig
ábyrgðina á afleiðingum verk-
fallsins, en hann hafi þá sagt
þeim, að enginn gæti verið hlut
laus áhorfandi að því, sem væri
'að gerast.
VERKFALLSMENN RÆÐA
VIÐ FRAKKLANDS-
FORSE.TA.
Verkfall járnbrautarverka-
rnanna er nú algert, nema að
því, er snertir" þá, er matvæli
flytja, og það breiöist út til
starfsmanna við gas- og rrif-
magnsstöðvar. Ramadier bauð
seinni hluta dags í gær forustu-
mönum CGT, þeim Leon Johaux
og Bendit Frachon til fundar
við sig til að ræða um hin pólit-
isku vandamál, er skapast hafa
vegna verkfallsins. Samhand
járnbrautarverkamanna hefur
á hinn bóginn lýst því yfir, að
það hafi farið þess á leit við
forseta Erakklands Vincent
Auriol, að hann ætti viðræður
við foringja ■ sambandsins og
hafa gefið í skyn, að þær við-
ræður kynnu að leiða til sam-
komulags, þannig að vinna gæti
hafist innan nokkurra klukku-
stunda.
Ætiuðu að kngja
broltnumdu
Kviknar í sænsku
skipi
SKIPSMENN af bandaríska
skipinu „Mathew J. O’Brien"
eru nú komnir um borð í 2000
tonna sænskt skip, sem yfir-
gefið hafði verið, eftir að eld-
ur kom upp í því. Skip þetta,
sem heitir „Lena Brodin“, er
undan Burmuda.
„Mathew J. O’Brien" er nú á
leið með hið brennandi skip til
Bermuda, en breskt flotaskip
er farið fil aðstoðar.
Jerusalem í gærkvöldi.
I KVÖLD var skýrt frá því
hjer í Jerúsalem, að ofbeldis-
menn þeir, sem rændu bresku
lögregiumönnunum tveimur í
gær í sundlaug í Tel Aviv,
hefðu tilkynt þeim, að þeir
múndu verða hengdir, ef nokk-
ur þeirra firnm Gyðinga, sem
sakaðir eru um þátttöku í á-
rásinni á Acre fangel^ið á dög-
unum, yrði tekinn af lífi.
Svo kann að fara, að ofan-
greindir fimm menn verði líf-
látnir af Bretum, en í fangelsis-
árásinni komst f jöldi fanga und
an, auk þess sem nokkrir ljetu
lífið.
Lögreglumennirnir tveir
sluppu frá ofbeldismönnunum
2Q mínútum eftir að breskir
hermenn höfðu umkring Gyð-
ingahverfi í námunda við Tel
Aviv. Seinna fanst hengingar-
ól í húsi því, sem mennirnir
voru hafðir í haldi.
námi Þýskalands
Kaupmannahöfn.
í FYRSTU vímunni eftir
frelsun Danmerkur lofuðu Dan
ir að senda 11,000 menn til að
taka þátt í hernámi Þýskalands.
Síðar, þegar tími vanst til að
athuga málið nánar, rjenaði
nokkuð áhuginn á málinu. Það
var því fyrst í vikunni sem leið,
að fyrstu hermennirnir voru
sendir, en þeir voru aðeins 4000.
í „Gallup" atkvæðagreiðslu,
sem hjer fór nýlega fram, kom
í ljós, að 56% þjóðarinnar er
mótfallin allri þátttöku í her-
námi Þýskalands. Þessi and-
staða er talin byggjast á því að-
allega, að Bretar neituðu að
lána nauðsynlegan útbúnað til
hernámsins, en heimtuðu í þess
stað 3,500,000 pund fyrir tæki
þau, sem þeir töldu sig mega
missa. — Kemsley.
Bretar vilja kaupa fisk til Þýskalands
Sigraður
íingi
<■ eok'i •
KANJI ISIIIHARA, japansk-
ur hershöfðingi, var yfirmað-
ur hers Japana ,í Kvaníung. —
Har.n hefur veiið dreginn fyr-
ir stríðsglæparjeííihn í Tokíó,
en má fara ferða sinna í tak-
mörkuðu hverfi í borginn. Á
myndinni sjest hann í einskon
ir rúllustói.
VJ
fyrir rúm 11 þés.
pund
HINN NÝI togari Akureyrar-
bæjar, Kaldbakur, seldi afla
sinn í fyrsta sinn í Bretlandi í
gær. Seldi hann íyrir 11,309
pund, sem er mun betri sala en
íslensku togararnir hafa gert
núna að undanförnu.
Kaldbakur seldi í Grimsby.
Hafa snúið sjer til
íslands um það efni
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
VERA MÁ, að bresku hernámsyfirvöldin i Þýskalandi
neyðist til að stækka þýska fiskiflotann, ef orðsendingar
þær, sem sendar hafa verið ríkisstjórnum Noregs, Dan-
merkur, Svíþjóðar, Islands, Belgíu og Hollands, bera engan
árangur. I orðsendingunum, sem afhentar voru ríkisstjórn-
um ofangreindra sex landa síðastliðinn mánuð, er spurst
fyrir um það, hvort þau geti sent með lánskjörum til Þýska-
lands þann fisk, sem þau megi sjálf án vera.
nyjum
kosningum í
Ungverj landi
Budapest í gærkvöldi.
ÞESS er nú almennt vænst,
að nýjar kosningar verði látn-
ar fara fram í Ungverjalandi í j
haust, er kornmúnistar og sós-
íalistar telja sig örugga um sig-
ur.
Þegar hefur verið ákveðið, að
þeir menn, sem fangelsaðir L'iía
verið vegna „pólitískra afbrota*
verði sviptir kosningarjetti. Þá
er og kveðið.svo á, að þeir, sem
dvalið hafa í sömu húsum og
ofangreindir menn, fái ekki að
neyta atkvæðisrjettar síns.
Hinn nýji forsætisráðherra
Ungverjalands mótmælti því á
þingi í dag, að stjórn hans hefði
komist til valda á ólýðræðis-
legan hátt. Sagði hann að frið-
ur ríkti nú í landinu, en stjórnin
virti rjett borgaranna. Hann
gat þess að lokum, að Ungverj-
ar vildu vináttu Breta og Banda
ríkjamanna, en þó mest Rússa.
^EKKERT SVAR.
Breska stjórnin hefur nú
nokkrar áhyggjur af því, að
ekkert svar hefur ennþá borist
við orðsendingunum. Þegar hef-
ur þó þótt ljóst, að hollenska
stjórnin að minsta kosti dr ólík-
leg til að verða við tilmælum
Breta. Hefur hollenska útvarp-
ið þegar látið þá skoðun í ljós,
að Hollendingar hafi ofrað
nógu miklu í styrjöldinni.
ÁHYGGJUR VEGNA AUKN-
INGAR FISKIFLOTANS.
Opinberir embættismenn í
Bretlandi gera sjer hins vegar
ljóst, að sumum af löndum þeim
sem orðsendingar voru send-
ar til, mundi als ekki falla
það í geð, ef Bretar gripu til
þeirra ráða, að auka fiskiflota
Þjóðverja. Er á það bent, að
Noregur hefur þegar látið í ljós
nokkrar áh.yggjur út af aðgerð-
um þýskra fiskimanna.
fiia
Títo vil! kljúfa Make-
doníu frá Grikklandi
Aþenu í gær.
GRÍSKA herforingjaráðið lítur nú svo á, að Tito mar-
skálkur, stefni að því að koma á fót sjerstöku ríki í grísku
Makedoniu, og hafa borgina Florina sem höfuðborg. Margir
grískir embættismenn fallast á þessa skoðun herforingja-
ráðsins. .
SKÆRULIÐAÁRÁS.
Alment er litið svo á, að árás
sú, sem 1500 skæruliðar fyrir
skömmu gerðu á Florina, hafi
verið hluti af vandlega undir-
búinni tilraun til að ná yfirráð-
um yfir stórum hluta af Norð-
ur-Grikklandi, sem síðan hafi
átt að lýsa ,,frjálst“ landsvæði.
Tilraun skæruliðanna mis-
tókst með ölíu og talið er mjög
ólíklegt, að hún verði endurtek-
in.
Herstyrkur grísku stjórnar-
innar í Norður-Grikklandi er
nú töluverður, og búist er við
að }aukin hergögn berist innan
skamms. (Kemsley).
sjúkdóma
Washington í gær.
EINN íslenskur fulltrúi mun
mæta á ráðstefnu, sem haldin
verður í New York dagana 14.
til 17. júlí, og á að fjalla um
barnasjúkdóma.
Sextíu og tveimur löndum
hefur verið boðið að senda full-
trúa á ráðstefnu þessa, en til-
gangur hennar er meðal annars
sá, að skiptast á upplýsingum
um nýungar við meöferð ýmis-
konar barnasjúkdóma.
Kjötskömtun lekin
upp í Danmörku
Kaupmannahöfn.
DANSKA stjórnin hefur nú
ákveðið að hefja skömtun á
kjöti frá 1. júlí.
Skamturinn verður 8 lóð af
nautakjöti eða kálfakjöti á
viku, og að auki 10 lóð af fiski.
Lambakjöt, kindakjöt og ali-
fuglakjöt verður ekki skamtað.
Kemsley.