Morgunblaðið - 11.06.1947, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.06.1947, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: HÆG suðaustan átt. —• Þyknar upp. „JEG GIFTIST DRYKKJU- MANNI“. SíSari grein. — Sjá bls. 9* ~ Virðuleg útför Carðars Þorsteinssonar ÚTFÖR Garðars Þorsteins- sonar, alþingismanns, fór fram í gær að viðstöddu miklu fjöl- menni. Hófst athöfnin með hús- kveðju á 'heimili hins látna á Vesturgötu 19, en jarðsungið var frá Dómkirkjunni. í kirkju báru alþingismenn kistuna, en Oddíellowar stóðu þar heiðurs- vörð og báru kistuna úr kirkju. í kirkjugarð báru fyrst þing- menn úr Sjálfstæðisflokknum, síðan meðlimir úr Lögmanna- fjeiagi íslands og síðasta spöl- inn bekkjarbræður og samstú- dentar hins látna. Athöfnin fór fram með mikl- um virðuleik og kom glöggt í Ijós, hve miklum vinsældum htnn látni þingmaður átti að fagna. Þá barst mikill fjöldi blóma og kransa. Ssbdingar hafa skotið saman U miljónum kr. til erlendra frjóða FRAMLÖG íslendinga til nauðstaddra erlendis frá byrj- un heimsstyrjaldarinnar fram i apríl s.l. munu nema hátt á 24. miljón kr. og skiftast sem næst þessu: (Samkv. upplýsing um frá Lúðvík Guðmundssyni, skólastjóra): Finnlandssöfnunin 170.000.00 Síðari safnanir til Finnlands .... 50.000.00 Noregssöfnunin 1.740.000.00 Rússlandssöfnunin 80.000.00 Frakklandssöfnunin 300.000.00 Barnasöfnunin 1944 450.000.00 Danmerkursöfnunin (til flóttafólks) 650.000.00 Landssöfnun 1945 4.500.000.00 Mið-Evrópusöfnun- in R. K, í. 1948 1.200.000.00 Þýskalandssöfn- unin......... 1.250.000.00 Evrópusöfnunin 1946—1947 .... 500.000.00 Ungver j alandssöf n- unin 1946—1947 15.000.00 Ymsar aðrar safnan ir peningar, mat- væli, hjúkr.gögn og fatn.) sent fyrir millig. einst. manna nefnda og fjel. m.a. R. K. .Í...... 1.000.000.00 Gjafab., aðall. frá einstaklingum . . 2.500.000.00 Framl. íslendinga til UNRRA.......... 9.198.000.00 Framlög íslend- inga alls kr. 23.603.000.00 Nemur þetta um 183.00 kr. § hvern íslending, ef reiknað ev með tölu landsmanna á iniðju ári 1945 (ca 129 þús.) 128. tbl. — Miðvikudagur 11. júní 1947 Amertsk flotadeild í Miðjarðarhafi STÓR AMERISK FLOTADEILD hefir undanfarið verið á siglingu í Miðjarðarhaíi og heimsótt ýjnsar hafnir við Miðjarðarhaf. Meðal annars kom hún til Egyptalands fyrir skömmu. A myndinni sjest flugvjelamóðurskipið „Leyte“, í höfninni í Alexandríu. Knattspyrnumót íslands ú hefjast KNATTSPYRNUMÓT íslands hef st á Iþróttavellinum n.k. föstudag. Fimm f jelög taka þátt j í mótinu að þessu sinni. Það eruj Reykjavíkurfjelögin fjögur, — Fram, KR, Valur og Víkingurj og ennfremur íþróttabandalag Akraness (ÍA). Fyrsti leíkurinn á föstudags- kvöld verður milli Fram og Vík ings, en annar leikur mótsins fer fram á sunnudag. Keppa þá Akurnesingar við Val. Fjekk 63 hákarla í einm VJELBATURINN Huginn II. frá Isafirði fór nýlega í tvær hákarlaveiðiferðir og í þeirri síðarj úeiddust 63 hákarlar. Þeir voru frekar lifrarlitlir. I fyrri veiðiferðinni var ekki sótt langt og veiddust þá að- eins nokkrir hákarlar, en nokk uð af flyðru. í seinni ferðinni fór Huginn vestur á Græn- landshaf, þar til hann átti eft- ir um 30 mílur til Grænlands- strandar og þá veiddust 63 hákarlar í fjórum iögnum. Skipstjóri á Huginn II. er Guðbjartur Jónsson, Bíll velfur í Eyja- fjarðará Akureyri, laugardag. S.L. SUNNUDAGSKVÖLD var jeppabíll að koma norðan Svalbarðsstrandarveginn á leið til Akureyrar. Er hann fór vestur þjóðveginn, sem liggur skamt innan við bæinn, yfir hólmana í Eyjafjarðará, vildi það slys til, er bíllinn Jcom að' vestustu brúnni, að hann fór út af veginum, og fjell í ária og þeir, sem í bílnum voru. í bílnum voru auk bílstjór- ans: Sr. Þorvarður G. Þormar, prestur 1 Laufási, kona hans og soriur þeirra og önnur kona. Björguðust þau öil, og voru flutt tií Akureyrar. Frú Þormar handleggsbrotn- aði og var flutt í sjúkrahús. En j aðrir þeir, er í bílnum voru munu ekki hafa slasast. ' — H. Vald. LONDON: — Samkomulag hefu'r orðið um það, að Bretar fái á næstunni frá Ungverja- landi alifugla, flesk og egg. ] sfeypuröri ÞAÐ BAR við á Baróns stígnum í gærdag, að lítill snáði, 3—4 ára, festist með annan fótinn í steypuröri og varð að brjóta rörið til að losa fót hans. Skúli Sveinsson lög- regluþjónn var á ferðinni þarna, er maður kailaði tii hans og bað hann að koma íil aðstoðar litlum dreng, sem væri í vanda. — Sá litli hafði verið að fikta við að stinga öðrum fætinum ofan í niðurfalls rör frá húsrennu og fest sig. Hann bar sig þó vel og þegar búið var að losa hann úr klemmunni, sem var þó hreint ekki svo auð velt, gat hann sagt til nafns síns og að hann ætti heima á Lindargötu 63. Meðal fjölda áhorfenda, sem þarna voru, var mað- ur, sem kannaðist við drenginn og fór með hann heim til hans. Hátíðahöld á Akureyri á Sjómannadaginn ----:--- | Ti! sfyrkfar Dvalarheimili sjómanna Akureyri í gær. Frá frjettaritara vorum. Á AKUREYRI fóru fram mikil hátíðahöld í sambandi við Sjómannadaginn. Á laugardagskvöld var keppt í kappróðri. í kappróðri karla tóku þátt 6 sveitir, í kappróðri kvenna kepptu 4 sveitir. Þá kepptu og tvær drengjasveitir. í kappróðri karla sigraði Vjelstjórafjelag Akureyrar á 4 mín. 15,7 sek. Vega- lengdin var 1000 metrar og vann sveitin farandbikar. — I kappróðri kvenna varð hlutskörpust Slysavarnadeild Akur- eyrar á 2 mín. 7,2 sek. Vegalengdin var 500 metrar. Veðbanki var starfræktur í sambandi við kappróðurinn. Á sunnudaginn hófust há-'®' tíðahöldin kl. 10 með hópgöngu sjómanna undir fána frá Torfunesbryggju og þaðan um bæinn og til kirkju. — Sjera Pjetur Sigurgeirsson flutti sjó- mannamessu. Lúðrasveit Akur eyrar ljek lög meðan hópgang- an fór fram. Kl. 4 hófst útiskemmtun við sundlaugina og á túnunum surinan sundlaugarinnar. Keppt var í stakkásundi, 30 m. björg- unarsupd, 30 m., reipdrætti, tunnu- og pokahlaupi. Fyrstur í stakkasundi varð Hilmar Ás- grímsson á 46,9 sek., í björg- unarsundi Jón Andrjesson á m.s. Rifsnesi. Tími hans var 37,2 sek. Atlasstöngina, sem gefin er af Vjelsmiðjunni Atli fyrir hæsta samanlagða stiga- tölu í íþróttum dagsins hlaut Alfreð Finnbogason með 44 stigum. í reipdrætti kepptu 3 sveit- ir. Frá Skipstjórafjelagi Norð- lendinga, Vjelstjórafjelagi Ak- ureyrar og Sjómannafjelagi Akureyrar. Sigurvegari varð Skipstjórafjelag Norðlendinga og hlaut að launum faVandbik- ar KEA. í reipdrætti kvenna tóku þátt Slysavarnadeild kvenna og sveit kvenna úr Glerárþorpi. Sigraði sveit Slysa .varnafjelagsins. Einnig tóku þær þátt í tunnu- og poka- hlaupi. Um kvöldið voru haldnir dansleikir í samkomuhúsi bæj- arins og að Hótel Norðurland. Þar var útbýtt verðlaunum dagsins. Merki dagsins voru seld á göt.unum og Sjómanna- blaðið sömuleiðis. — Ágóðinn rennur til Dvalarheimilis aldr- aðra sjómanna. Nýi Alliance togar- inn kominn TOGARINN, sem Alliance keypti í Englandi og sagt hefur verið frá í blaðinu áður, er kom inn til landsins. — Hann hlaut nafnið ,,Kári“. Kári er nýlegt skip og hið fríðasta far að öllu leyti. Hann ligguf nú hjer í höfn í Reykja- vík. í KVÖLD kl. 8 hefst síðasíí leikur „Queens Park Rangers" við Isíendinga. Verður það „úr- valsliðið“ endurnýjað, sem mæt ir Bretunum að þessu sinni. í keppninni við Dani í fyrra komu íslensku knattspyrnu mennirnir á óvart í síðasta leiknum með því að vinna glæsi lega, og eru margir sem gera 18124 kom upp, er dregið var í bif- reiðarhappdrætti K. R. í gær. Mr. Victor Rae. ráð fyrir harðari mótspyrnu af hálfu íslendinga í kvöld en ver- ið hefur á hinum leikjunum við Q. P. R. — Breski knattspyrnu- dómarinn Mr. Victor Rae dæm- ir leikinn. Að leiknum loknum í kvöld, eða um kl. 11, heldur móttöku- neíndin skemtun í Sjálfstæðis- húsinu, þar sem Bretunum verð ur boðið. Prófsprengingar vi Sogið fyrirhugaðar BÆJARRÁÐIÐ hefur faiið rafmagnsstjóra' að láta fram- kvæma prófsprengingu fyrir undirgöngum í sambandi við fyrirhugaða viðbótarvirkjun Sogsins. Ennfremur hefir bæjarráðið samþykt að heimila rafmagns- stjóra að ráða A. B. Berdal verkfræðing, sem ráðunaut virkjunarinnar, en hann hefir starfað hjá Rafveitunni um tíma. Er liklegt að prófsprenging- arnar hefjist innan skamms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.