Morgunblaðið - 12.06.1947, Page 6
6
MORGUNBLAÐIL
Fimmtudagur 12. júní 1947
Eimskip
. AÐALFUNDUR Eimskipa-
fjelags íslands var haldinn s.í.
laugardag. Morgunblaðið birtir
hjer nokkur helstu atriðin úr
árskýrslu fjelagsins:
HAGNAÐUR á rekstri Eim-
skipaf jelagsins á síðastliðnu
ári hefur orðið kr. 2.543.337,23
Er útkoman mjög svipuð og ár
ið áður, en þá var hún kr.
2.387.638,03. En með því að af
skrift á e.s „Reykjafoss" var þá
kr. 355.000,00 hærri en nú, er
brúttóhagnaður síðastliðins árs
um 200 þús. kr. lægri én árið
1945. Hagnaðurinn nemur að-
eins 5,90% af brúttótekjum
fjelagsins.
Eins og reikningurinn sýnir
hefur enn orðið tap á rekstri
eigin skipa f jelagsins, sem nem
ur kr. 1,715.178,54. Tapið hefur
þó minnkað allmikið frá því ár-
ið 1945, er það nam kr. 3.154,-
386,98. Þó hafa útgjöld skip-
anna orðið nokkru hærri en ár-
ið áður, sem aðallega stafar af
því, að e.s. ,,Reykjafoss“ var
þá í eigu fjelagsins aðeins frá
1. ágúst það ár, en fram að
þeim tíma taldist skipið til leigu
skipa fjelagsins. En það sem
meiru munar er, að tekjur skip
anna hafa aukist um kr. 2.859.
226,85, og stafar þessi auking
teknanna af því að skipin fara
nú fleiri ferðir milli landa
vegna hinna styttu siglingaleiða
eftir að ferðir hófust til Evrópu
landa. Skipin geta því tekið
farm oftar, enda hafa vöruflutn
ingar orðið allmiklu meiri á ár
inu sem leið, en árið 1945. Eink
um varð útflutningurinn miklu
meiri, eða nærri þrefaldur mið
að við árið á undan.
SIGLINGAR SKIPANNA
Á síðastlionu ári hjeldu skip
fjelagsins og leiguskip uppi
nokkuð reglubundnum sigling-
um til ýmissa hafna í Evrópu,
og fóru um 10 ferðum fleira
milli landa en árið aður. Á síð-
ara hluta ársins þótti rjett að
gera tilraun um samningu ferða
áætlunar fyrir a. m. k. nokkrar
leiðirnar, þó vitanlegt væri, að
erfitt mundi verða að halda á-
ætlunina meðan sú óvissa ríkti í
öllum viðskiftamálum landsins,
sem raun var á. Ferðaáætlunin
var gefin út í lok ágústmánað-
ar fyrir mánuðina september-
desember, og voru megindrætt
irnir í henni þessir: Ferðum
var haldið uppi frá Antwerpen,
Hull og Leith til Reykjavíkur,
þannig að skip fór frá hverri
af þessum höfnum með 14 daga
millibili. í ferðum frá Antwerp
en komu skipin við í Hull og
voru þrjú skip höfð í þeim ferð
um. í ferðum frá Leith voru
tvö skip, og fór annað þeirra
skipa vestur og norður, en hitt
aðeins til Vestfjarða, og kom
þá einnig við á Austfjörðum á
útleið. Tvö af skipunum, sem
voru í Antwerpen-Hull ferðum,
fóru til Vestur- og Norðurlands
Erfitt reyndist að halda þessa
áætlun, og liggja til þess ýmsar
ástæður. Ein var sú, að af-
greiðsla í erlendum höfnum
gekk oft talsvert seinna en við
hafði verið búist. Ennfremur
þurfti venjulega að koma við á
miklu fleiri höfnum hjer innan-
lands, en gert var ráð fyrir,
tapaði 1,7 milj. d eigin
Úr ársskýrslu fjelagsins
vegna útflutningsvöru, sem
þurfti að ferma, og töfðust skip
in oft af þeirri ástæðu. Loks
var farmurinn, sem tekinn var
alloft sendur á aðrar hafnir er-
lendis en þær, sem skipið átti
að koma við á samkvæmt áætl
uninni og á þetta einkum við
um þau skip, sem fluttu frystan
fisk. Allt þetta varð til þess að
ýmsar breytingar varð að gera,
sem urðu þess valdandi, að skip
in gátu ekki að öllu leyti hald-
ið áætlunina.
Þrátt fyrir þessa annmarka,
hefur fjelagið gefið út ferðaá-
ætlun einnig fyrir þetta ár, og
mun reynt að stefna að því, að
skipin geti haldið áætlunina eft
ir því sem unnt er. En meðan
fjelagið verður að reka mikið
af siglingum sínum með leigu-
skipum, sem sjaldnast er hægt
að vita hvort fást leigð áfram,
þegar hvert leigutímabil er á
enda, getur þetta verið allmikl
um erfiðleikum bundið.
E.S. „BRÚARFOSS“.
Eins og frá var skýrt í síð-
ustu ársskýrslu fjelagsstjórnar
innar var skipið leigt bresku
stjórninni. til flutnings á fryst-
um fiski til Engl. allt árið 1945.
Leigumálinn hjelst til mars
byrjunar s.l. ár. Fór skipið tvær
ferðir til Bretlands á þeim tíma
Síðan fór það eina ferð til New
York með frystan fisk, og aðra
í árslok, og var í þeirri ferð
um síðustu áramót. Þá fór skip
ið eina ferð til Hull og þrjár
ferðir til Leningrad, með fryst
an fisk, og kom þá við í Leith
og Kaupmannahöfn í hverri
ferð. í sambandi við þessar ferð
ir fór skipið jafnan á allmarg-
ar hafnir úti á landi. Alls fór
skipið 7 j/2 ferð milli landa og
8 ferðir út á land.
E.S. „FJALLFOSS“ fór alls 5
ferðir milli landa. Fór skipið
tvær ferðir til Bretlands, en á
seinni hluta ársins hóf það á-
ætlunarferðir til Antwerpen
njeð viðkomu í Hull á heimleið,
og fór 3 slíkar ferðir. Auk þess
fór skipið 9 ferðir út á land, til
Vestf jarða og Norðurlanda, 2 af
þeim ferðum voru hringferðir,
og kom skipið þá einnig við á
Austurlandi.
E.s. „Lagarfoss“ var allt ár-
ið í ferðum til Kaupmannahafn
ar og Gautaborgar, og fór 7%
ferð milli íslands og Norður-
landa. í öllum þessum ferðum
kom skipið við í Leith á útleið
til þess að taka kol, en auk þess
kom það við í norskum höfnum
í -tveim ferðum. Eftir hverja
íerð fór skipið út á land, alls 7
ferðir.
E.s. „Reykjafoss“ var í ferð-
um til Englands og Belgíu og
fór 9^/2 ferð á árinu. Til Ant-
werpen fór skipið 6 ferðir og
kom venjulega við í Leith á
heimleið og stundum einnig í
Hull. í einni af ferðum þessum
kom skipið við í Hamborg á út-
leið. Til Bretlands fór það 3 ferð
ir. Ennfremur fór skipið 5 ferð
ir út á land. Síðara hluta ársins
sigldi skipið samkvæmt áætlun.
þeirri, er gerð var fyrir mánuð
ina september-desember.
E.s. „Selfoss“ var í viðgerð í
Skotlandi fyrstu fjóra mánuði
ársins, og eítir að skipið kom
úr þeirri viðgerð varð það í
strandsiglingum, þangað til það
tók upp siglingar samkvæmt
áætlun, aðallega milli Leith og
Reykjavíkur, en eina ferð fór
skipið til Antwerpen. Alls fór
skipið 5 ferðir milli landa, og
um áramótin var það á leið til
Stockholms með síldarfarm. —
Skipið fór 9 ferðir út á land.
Viðkomur á höfnum úti um
land hafa aukist úr 364 í 619
á árinu sem leið, þegar leigu-
skip f jelagsins eru talin með. Er
þetta 70% aukning frá fyrra
ári, en meira en 100% aukning
miðáð við árið 1944. Með þessu
telur fjelagsstjórnin sig hafa
gert það, sem í hennar valdi
stendur, til þess að sjá „dreif-
býlinu“ fyrir samgöngum, eftir
því sem ástæður hafa leyft, og
að talsverðu leyti efnt það fyrir
heit, sem gefið var í brjefi því
til „Verslunarmannafjelags Ak-
ureyrar“, sem prentað var með
skýrslu fjelagsstjórnarinnar í
fyrra. En með þeim ófullnægj-
andi skipakosti, sem fjelagið
enn hefur yfir að ráða, er tæp-
lega hægt að gera höfnunum
úti á landi betri skil um viðkom
ur, en nú hefur verið gert.
LEIGUSKIP FJELAGSINS.
Þessi skýrsla um siglingar
skipa fjelagsins getur ekki tal-
ist fullnægjandi, nema að
nokkru sje getið sjerstaklega
leiguskipa þeirra, sem sigla að
staðaldri á vegum fjelagsins,
með því að áætlunarferðunum
var að talsverðu leyti haldið
uppi með leiguskipum.
Um áramótin 1945 og 1946
þótti sýnt, að erfiðleikar gætu
orðið á útflutningi hraðfrysts
fiskjar, ef ekki tækist að útvega
frystiskip á leigu til þeirra
flutninga, en augljóst var, að
„Brúarfoss" einn gæti ekki ann
að þeim útflutningi nema að
litlu leyti. Að vísu var þá allt
óráðið um sölu fiskjarins, en
samt sem áður hófst fjelagið
handa um útvegun frystiskipa.
Frystiskip af þeirri tegund og
stærð, sem hentar oss, eru mjög
vandfengin á heimsmarkaðin-
um. Flest eru þau of stór fyrir
íslenskar hafnir, en eins og
kunnugt er, þurfa skipin að
geta tekið farm á svo að segja
hverri höfn á landinu, þar sem
hraðfrystihús eru. Auk þess
eru erfiðleikar á því að fá skip,
sem geta náð nægilegri fryst-
ingu, til þess að unnt sje að
flytja hraðfrystan fisk með
þeim, a. m. k. þegar heitast er
í veðri. Loks er afarmikil eftir-
spurn eftir frystiskipum, og leig
an því há. Samt tókst að út-
vega þrjú frystiskip, þ. e. tvö
pólsk „Lech“ og „Lublin", og
ennfremur breska skipið
„Horsa“, sem hefur nokkurt
frystirúm, þó eigi eins mikið og
hin tvö; Þegar ferðaáætlunin
var gerð, voru þessi skip svo
sett í áætlun, en eins og vænta
mátti, gekk ekki vel að halda
áætlunina fyrir. þessi skip, af
þeim ástæðum sem áður greinir.
SKIPABYGGINGA RNAR.
1 síðustu ársskýrslu fjelags-
stjórnarinnar var skýrt frá
samningum þeim, sem gerðir
höfðu verið við Burmeister &
Wain í Kaupmannahöfn um
smíði fjögurra skipa fyrir fje-
lagið. Var þar skýrt frá hve-
nær vænta mætti, að hin nýju
skip yrðu tilbúin, en þess getið,
að nokkur dráttur myndi samt
verða á afhendingu skipanna
vegna verkfalla o. fl. Nú er
fyrirsjáanlegt, að þessi dráttur
verður allmiklu meiri en nokk
urntíma hafði verið búist við.
Út af tilmælum fjelagsins ný
lega um að reynt yrði að hraða
smíði skipanna sem mest, hefur
Burmeister & Wain skýrt frá
helstu ástæðum fyrir töfum
þeim, sem hafa orðið við bygg-
ingu skipanna, og jafnframt
gert áætlun um, hvenær þeir
geri ráð fyrir að skipin verði
tilbúin. Tafirnar stafa fyrst og
fremst af skorti á faglærðum
mönnum í iðnaðinum, en auk
þess urðu kuldarnir í Danmörku
í vetur þess valdandi, að eigi
var hægt að vinna útivinnu
nema að litlu leyti, og sjerstak
lega kom þetta niður á skipa-
smíðum, þar eð ekki'má vinna
að logsuðu þegar frost er. Þá
stendur einnig oft á ýmsu, sem
aðrar verksmiðjur eiga að af-
greiða, og kenna þær sömuleið-
is skorti á vinnuafli um, að þær
geta ekki staðið við loforð sín
um afhendingu.
Kjölur var lagður að fyrsta
skipinu hinn 14. ágúst 1946, og
að öðru skipinu hinn 6. des-
ember 1946. Áætla B. & W., að
fyrsta skipið geti hlaupið af
stokkunum í septembermánuði
næstkomandi, og að afhending
skipsins geti farið fram í febrú
ar 1948. Upphaflega var gert
ráð fyrir í samningi um skipa-
smíðina, að það yrði tilbúið í
nóvember 1946, svo að skipið
verður um 15 mánuðum á eftir
áætlun. Öðru skipinu gerir B. &
W. ráð fyrir að geta hleypt af
stokkunum í júlí 1948, og mið-
að við, að álíka langur tími fari
til þess að fullgera það og
fyrsta skipið, ætti afhending
þess að geta farið fram í des-
ember 1948, en það er 22 mán
uðum síðar en ráðgert var í
samningi. Kjölur að þriðja skip
inu verður væntanlega lagður í
október 1947, eftir að fyrsta
skipinu hefur verið hleypt af
stokkunum, og er gert ráð fyrir
að því skipi verði hleypt af
stokkunum í október 1948.
Mætti þá búast við afhendingu
þess í marsmánuði 1949 og er
það 16 mánuðum eftir þann
tíma, sem ráðgert hafði verið.
Eftir að þessu skipi hefur ver-
ið hleypt af stokkunum, verður
kjölur lagður að fjórða skipinu,
farþegaskipinu, væntanlega þá
í nóvembermánuði 1948, en of
snemmt er að ráðgera frekar
skipum
um afhendingu þess. Fyrirsjáan
legt er þó, að afhending geti
ekki farið fram fyrr en á fyrra
hluta ársins 1950.
Eins og gefur að skilja, er
þetta mjög bagalegt fyrir fje-
lagið, með því að á meðan svona
er ástatt, verður fiað að notast
við leiguskip að miklu leyti, til
þess að geta haldið uppi nauð-
synlegum siglingum, en eins og
þegar hefur verið bent á, eru
fjölmargir erfiðleikar í sam-
bandi við það. Einkum er þetta
óheppilegt vegna útflutnings á
frystum fiski, ekki síst þar sem
eina frystiskipið, sem til er í
landinu, e.s. „Brúarfoss", hefur
nú í nokkra mánuði verið í
flokkunarviðgerð, og enn óvíst
hvenær þeirri viðgerð verður
lokið. Þá er ekki síður bagalegt
hve smíði farþegaskipsins
dregst, en ómögulegt hefur
reynst að leigja eða kaupa far-
þegaskip. Það gæti sýnst auð-
velt, að haga byggingu skip-
anna þannig, að farþegaskipið
væri byggt á undan þriðja vöru
flutningaskipinu, en þá koma
til greina aðstæður, sem gera
það ókleift. Eins og kunnugt er
hefur stálið í skipinu verið feng
ið frá Englandi, en vegna erfið
leikanna þar á síðastliðnum
vetri, hefur stálframleiðslan
minnkað mjög mikið, svo að af
hending stálsins dregst fram á
fyrra helming ársins 1948, en
skipasmíðastöðin væntir þess,
eins og áður segir, að geta lagt
kjölinn að þriðja skipinu í októ
ber 1947.
SIGLINGAR A ÞESSU ÁRI.
Eins og áður er getið, var
gerð tilraun til þess að gefa út
ferðaáætlun fyrir siglingarnar
síðustu fjóra mánuði fyrra árs.
Þótt erfitt væri að halda áætlun
ina, af þeim ástæðum, sem þeg
ar eru greindar, þótti rjett að
gefa út áætlun fyrir fyrra helm
ing þessa árs. Var þá bætt á
áætlunina siglingum frá Kaup-
mannahöfn og Gautaborg. Eins
og 1 hinni fyrri áætlun, varð að
setja sum leiguskipin á þessa
árs áætlun. Hefur það þó reynst
erfitt, þareð sum þessara skipa
hafa verið tekin af fjelaginu á
miðju tímabilinu, og önnur orð
ið að koma í staðinn. Þrátt fyr
ir nokkur frávik frá áætluninni
sem ómögulegt er að komast
hjá, ætlar fjelagið að halda á-
fram að gefa út ferðaáætlanir
fyrir skipin um siglingar á síð-
ara helming þessa árs, í þeirri
von, að unnt verði að halda
hana.
KAUP Á SKIPI TIL
AMERÍKUFERÐA.
Nokkur undanfarin ár hefur
fjelagið haft á leigu ýms araer
ísk vöruflutningaskip, af sömu
gerð og t. d. „Salmon Knot“,
sem lengi hefur verið í förum
hingað.
Fyrir nokkru hefur fengist
vitneskja um, að skip þessi, sem
eru eign Bandaríkjastjórnar,
væru til sölu fyrir allmiklu
lægra verð en byggingarkostn-
aður þeirra nam, þrátt fyrir
það, þó þau sjeu svo að segja
nýbyggð, og sum mjög lítið not
uð.
Skipin, sem fjelagið hefur
Framh. á bls. 10