Morgunblaðið - 20.06.1947, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.06.1947, Blaðsíða 7
Föstudagur 20. júní 1947 liöRGUNBL AÐIÐ pfTfW^fF'P!1 f' Magnús A. Sæmundsson Minningarorð 1 DAG verður til moldar borinn frá heimili sínu á Grett isgötu 83, hjer í bænum, Magnús Á. Sæmundsson, mál; arameistari, sem andaðist á St. Jóseps sjúkrahúsinu 11. þ. m., eftir tveggja mánaða kvala- fvdla sjúkdómslegu, aðeins 35 ára gamall. Magnús heitinn var óvenju- lega listelskur maður, og gekk að starfi sínu með þeirri elju og samviskusemi, sem einkenn ir þá eina, sem elska starf sitt. Hugur hans stóð þó áreiðanlega til hinna æðri viðfangsefna, því í tómstundum sinum mun hann hafa fengist þó nokkuð yið að mála ýmsar myndir, einkum landslag. Fagurri tón- list unni Magnús mjög og naut hennar með miklum skilningi. Magnús var mjög ástsæll af öllum sem kynntust honum, og það er margt fólk, sem á ó- gleymanlegar minningar frá mörgum samverustundum á heimili hans og utan þess, því hinn dagfarsprúði maður var jafnan hrókur alls fagnaðar og hafði einstakt lag á því að skapa gleði og ánægju þar sem skemmtun var um hönd höfð. Þungur harmur er nú kveð- inn að eftirlifandi konu hans, Jódísi Sigurðardóttur og litla drengnum þeirra. Minningin Um hinn ástríka eiginmann og umhyggjusama hehhilisföður mun þó megna að græða harma sárin, og hjálpa þeim á ókomn- um ævistundum. Guð blessi þig, vinur, og annist ástvini þína alla. E. Ó. G. „Drotlningin" fer meSvörurnar úl aftur M.S. Dronning Alexandrine kom hingað til Reykjavíkur um klukkan tvö í gærdag. -— Með skipinu voru 157 farþegar og fjöldi íslendinga meðal þeirra. Á leiðinni hingað heim minntust fslendingarnir þjóðhá tíðarinnar 17. júní með ræðum, söng og öðrum gleðskap. Skipið var með dálítinn slatta af allskonar vörum, þó ekki matvöru og fara þær aftur út með skipinu. Þá var með því um það bil y2 smálest af pósti, en honum var skipað í land aí póstmönnum sjálfum. í kvöld klukkan 11 fer skip- ið hjeðan og eru með því um 130 farþegar. 17. júní mólið: Finnbjörn setti íslandsmet í100 m. og vann „Konungsbikarinn" Á frjálsiþróttamótinu 17. júní setti Finnbjörn Þorvalds- son, iR, nýtt Islandsmet í 100 m. hlaupi, hljóp á 10,7 sek., og vann ennfremur „Konungs- bikarinn" fyrir besta afrek mótsins. Þá setti boðhlaupssveit fR nýtt Islandsmet í 1000 m. boðhlaupi, og bætti það fyrra um 1,6 sek. 1 öðrum greinum náðist einnig yfirleitt góður árangur. Erlendur Ó. Pjetursson setti mótið eftir að iþróttamenn höfðu gengið fylktu liði inn á völlinn. Áhoi'fendur skiptu þúsundum, en á meðal þeirra var forseti Islands. 10,7 — 11,0 — 11,1 — 11,3. 1 100 m. hlaupi hefur aldrei á nokkru móti hjerlendis náðst eins góður árangur og að þessu sinni. I úrslitin komust þrir iR-ingar, Finnbjörn Þorvalds- son, Haukur Clausen og örn Clausen, og Ásmundur Bjarna- son, KR. Hlupu þeir allir mjög vel. Finnbjörn náði for- ystunni þegar i upphafi og vann öruggt á nýju íslensku meti, 10,7 sek., en fyrra metið, sem hann átti sjálfur, var 10,8 sek. Flaukur varð annar á 11,0 sek., sem er sami tími og drengjametið, er hann setti í undanrás á mánudaginn. örn hljóp á 11,1 sek., sem er per- sónulegt met og Ásmundur á 11,3, sem fyrir tveimur árum hefði þótt vel boðlegur tími fyrir fyrsta mann í 100 metr- um. Hástökk. Skúli Guðmundsson, KR, vann hástökkið, eins og vitað var, en náði ekki að stökkva l, 90, eins og á KR-mótinu, en það mun mikið hafa stafað af því, hve mikill dráttur varð á keppninni og óþarfa truflanir, þannig að hann var orðinn þreyttur, er mest á reyndi. — örn Ciausen kom aftur á móti mjög á óvart í hástökkinu með því að stökkva 1,80 m. rjett á eftir hinni hörðu keppni í 100 m. hlaupinu. Er þessi árangur Arnar aðeins 2 cm. lakari en drengjamet Skúla Guðmunds- sonar. Kúluvarp. Fluseby vann kúluvarpið eins og vænta mátti. — Hann náði ekki eins góðum árangri og á KR-mótinu, en kastaði þó vel. Vilhjálmur Vilmundarson, KR, var með 13,99 m. og vann nii Sigfús frá Selfossi í barátt- unni um annað sætið. Óskar vann 800 metrana. Það var ekki fyrr en við þriðju tilraun að 800 m. hlaup- ararnir legðu af stað. Fyrst var þjóístartað (sem er sjaldgæft í MetílOOOm. boðhlaupi Erlendur Pjetursson afhendir Finnhirni Þorvaldssyni verð- laun sín eftir 100 m. hlaupið. Haukur Clausen er lengst til vinstri, en Örn Clausen til hægri. 800 m.!), en byssp ræsisins „klikkaði“ í það næsta. — Árni Kristjánsson, Á, tók for- ystuna í byrjun og leiddi fyrri hringinn, en þá tók Óskar Jónsson, iR, við forystunni og | er um 300 m. voru eftir var Kjartan Jóhannsson, lR, orð- inn annar. Eftir það háðu þeir fjelagar harða baráttu um fyrsta sætið, en Kjartani tókst ekki að vinna upp það forskot, sem Óskar var búinn að ná. Hörður Hafliðason,Á, varð þriðji. Fór hann fram úr Árna er um 200 m. voru eftir. Langstökk. Langstökkskeppnin var núna ekki eins hörð og skemmtileg og á KR-mótinu, og árangur ekki eins góður. — Finnbjörn vann ljett, en þó háði það honum, að keppt var í spjót- kasti samtimis og þar var hann einnig meðal þátttakenda. — Sama er að segja um Halldór Sigurgeirsson. Ármann vann „Kaldals- bikarinn“. 1 5000 m. hlaupi var bæði einmenningskeppni og sveita- keppni (þriggja manna Sveitir) ! um nýjan biKar. sem ÍR hefur gefið og kennt við Jón Kaldal, methafa og frægasta 5000 m. hlaupara, sem Islendingar hafa átt. Ármann var eina fjelagið, sem sendi þriggja manna sveit í hlaupið að þessu sinni og vann því bikarinn. — 1 hlaup- inu var mjög hörð keppni um fyrsta sætið á milli Þórðar Þor- geirssonar, KR og Sigurgeirs Ársælssonar, Á. Þórður leiddi hlaupið fyrst framan af, en síðan tók Sigurgeir við og reynd að hlaupa Þórð af sjer, en það tókst ekki, og er um 300 m. voru eftir greikkar Þórður sporið og vann örugglega. Þingeyingur vann spjótkastið, 1 spjótkastinu urðu þau ó- væntu úrslit að ungur Þingey- ingur, Hjálmar F. Torfason, bar þar sigur úr býtum. Virð- ist hann öruggur 50 m. maður og bar af keppinautum sínum. Finnbjörn Þorvaldsson varð annar. Misheppnuðust honum öll sin köst. — Sigurvegurun um í öllum greinum voru af- hent verðlaun sín á vellinum á þar til gerðum palli strax að keppni lokinni — nema í spjót kastinu. Ekki trúi jeg þó, að hinn ungi Þingeyingur, eða hinir, sem þar hlutu verðlaun, hafi verið ver að þeim komnir en sigurvegarar í öðrum grein um. Voru þetta mjög leið mis- tök. íslandsmct í 1000 ni. boðhluupi. I 1000 m. boðhlaupi (100, 200, 300 og 400 m.) bar A sveit iR af og bætti íslands- metið um 1,6 sek. Leiddi sveit- in frá byrjun. Finnbjörn hljóp 100 m., örn Clausen 200, Haukur 300 og Kjartan 400. KR-sveitin var örugg í öðru sæti, en um þriðja sætið háði B-sveit IR harða keppni við sveit Ármanns. B-sveit lR var | á undan við siðustu skiptingu, en Guðmundur Sigurðsson, sem hljóp 400 m. fyrir Ármann, fór fram úr óskari Jónssyni, er hljóp fyrir IR, strax eftir Framh. á bls. 8 Af sjerstökum ástæðum er nýtt Kús lil sölu Húsið er 3 herbergi og eld* |j hús. auk kjallara og erfða % festulands. Húsið fæst fyr §.; ir gott verð ef samið er |! strax. — Semja ber við § j Olaf Benediktsson Digranesblett 120 I i 3 I a I Reikrsingshald & endurskoðun. onar ^JJjartar jJjeturóá Ca nd. oacnn 8/tió?«træt) 6 — ötmi 3023 imruDinuimtMiiiMHiMiimmimiitiHiiHMiiiM Faliegur Skautbúningur óskast keyptur. Uppl. í síma 5780 kl. 10—12 f.m. í dag og á morgun. Til sölu járnvarinn timburskúr 80Q m. að flatm. 240 sm. undir loft. Raflýstur,- hentugur fyrir iðnað eða sem vörugeymsla. Leiga kemur til greina. Tilboð merkt: „Iðnaður — 1210“ sendist afgr. Mbl. fyrir kl. 12 á laugardag 21. þ. m. Húseigendur Takið eftir! — Hver vkkar vill leigja hjónum með eitt barn, 1-—2 her- bergi og eldhús, nú þegar eða í haust. Nokkur fyrir- framgreiðsla eða húshjálp í boði. Tilboð sendist MbJ. fyrir n.k. mánudagskvöld, merkt: „Iðnaðarmaður — 972“. Unglingsstúlka j óskast til Magnúsar Jóns 1 sonar, prófessors, Laufás | veg 63, sími 3877. | nUf^u % oriaciuó | hæstarjettarlögmaður Gæfa fylgir trúlofunar bringunuin frá S1GURÞÓR Hafnarstr. 4 Reykjavík. Margar gerÖir. Sendir gegn póstkröfu hveil — Sendiff nákvwmt mál — ó land sem er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.