Morgunblaðið - 20.06.1947, Side 10
10
MORGUNBLAÐIB
Föstudagur 20. júní 1947
A FARTINNI
dhe^niití^ree^iuíaeju eftir f-^eter (Sheuneu
Bókhaldari
Stórt fyrirtæki vantar góðan bókhaldara strax. Hátt
kaup. Framtíðaratvinna.
iTilboð, merkt: „Bókhaldari“, sendist afgreiðslu Mbk,
fyrir 22. þ. m.
37. dagur
„Þetta líkar mjer að heyra“,
segi jeg. „En mig langar til að
leggja fleiri spurningar fyrir
yður. Kannist þjer við stúlku,
sem heitir Dodo Malendas?“
Hún kinkar kolli. „Já, jeg
kannast við hana“, segir hún.
„Einhver sendi hana hingað og
ljet Jiana taka sjer mitt nafn.
Hún komst inn á Schribner í
því augnamiði að fá að vita
hvar Júlía er niður komin. En
það er eins og þetta hafi farið
í handaskolum fyrir henni, eða
hvað“. Hún brosir.
„Vitið þjer hvar þessi Dodo
Malendas er núna?“ segi jeg.
Hún hristir höfuðið. „Hvern
Sg ætti jeg að vita það?“ segir
hún.. „Jeg hefi aldrei sjeð
hana“.
Jeg stend á fætur.
„Vitið þjer svo ekki meira?“
segi jeg.
„Jeg hefi sagt yður alt,
Lemmy“, segir hún. „Nú veit
jeg ekki meira en þjer. Eigum
við að hjálpast að?“
Jeg kinka kolli.
„Sjálfsagt, Tamara“, segi
3eg- iií’jer látið mig vita hvar
Júlía er og þjer sjáið svo um
að jeg geti klófest Rudy Zimm
an og fjelaga hans. Svo skal
jeg hjálpa yður. Jeg skal sjá
um það að enginn geti gert
yður neitt mein. Jeg skal út-
vega yður far og vegabrjef til
Bandáríkjanna. Og jeg skal sjá
um að þjer komist ekki í neitt
klandur við lögregluna þar.
Hvernig líst yður á það?“ Og
jeg horfi einbeittlega-á hana.
Hún stendur á fætur. Hún
gengur til mín og segir:
„Jeg er ánægð með þetta. Á
jeg að segja yður það, Lemmy,
að í fyrsta skifti, sem jeg sá
yður — það var í New York
að einhver sagði mjer að það
væruð þjer — þá varð jeg bál-
skotin í yður. Og það hefir
ekki breyst síðan“.
Hún leggur hendurnar um
hálsinn á mjer og kyssir mig.
Og jeg segi ykkur satt að hún
gæti vel sett námskeið í því
hvernig á að kyssa. Svo slepp-
ir hún mjer og segir:
„Nú erum við sátt. Þjer lát-
Si miS vita hvar jeg get fundið
yður“.
Jeg segi henni það. Jeg segi
henni númerið á húsinu í Jer-
myn stræti og símanúmerið.
Jeg segi henni að biðja hús-
vörð fyrir skilaboð ef jeg verði
ekki heima. Hún segir henni
að biðja húsvörð fyrir skilaboð
fe jeg verði ekki heima. Hún
segir að það sje gott. Svo fylg-
Sr hún mjer til dyra, og rjett-
Sr mjer hattinn minn. Hún
segir:
„Lemmy, það er ekki víst að
jeg eigi hægt með að koma
heim til yðar. Væri ekki betra
að við tækjum til annan stað
*— þar sem það er ekki eins
ábejrandi?“
„Hvaða staður ætti það svo
sem að vera?“ segi jeg.
„Við getum hist í húsinu
hans Schribners“, segir hún.
„Það er enginn þar núna, en
jeg hefi lyklana. Jeg skal lána
yður þá. Það er ágætt fyrir okk
ur að hittast þar ef við þurfum
á að halda“.
„Sama er mjer“, segi jeg.
„En hvað er um Schribner?
Hvað er hann að gera? Er hann
ekki heima?“
Hún hristir höfuðið.
„Þjer skuluð ekki hafa nein-
ar áhyggjur út af Schribner“,
segir hún. „Hann er úr leik.
Hann hefir fengið nóg af þessu.
Hann er glópur, en þykist vera
slægur — og er máske altof
slægur“.
Jeg kveiki í vindling.
„Jeg skil“, segi jeg. „Þið haf
ið sparkað Schribner. Hvað hef
ir orðið um hann? Rudy hefir
þó ekki kálað honum?“
Hún brosir íbygnislega. Jeg
þykist sjá á henni að það muni
hafa kastast í kekki milli þeirra
Rudy og Zimman.
„Jeg veit það ekki“, segir
hún. „En við skulum sleppa
Schribner. Hann er úr sögunni
og bjer þurfir ekki að hugsa
um hann“.
„Jæja. þetta er víst góður
staður“, segi jeg og glotti. „Að
minsta kosti er hann miðstöð
í ríki Rudy Zimman. Látið mig
fá lyklana“.
Hún fer þar niður í skáp-
skúffu og dregur þar upp stóra
lyklakippu og rjettir mjer.
„Þarna hafið þjer þá,
Lemmy“, segir hún og brosir
blítt við mjer. „En hvað jeg
hlakka til að eiga launfund
með yður. Þjer hafið heillað
mig_, Lemmy“.
Jeg segi ekkert. Jeg er að
hugsa um hvað jeg mundi gera
við þessa stúlku ef jeg hefði
hana á valdi mínu. Jeg er
hræddur um að það yrði ekk-
ert ástúðlegt.
„Góða nótt, ljúfurinn“, seg-
ir hún. „Og gleymið því ekki
að nú er jeg á yðar snærum.
Jeg ætla að hjálpa yður“.
„Það þykir mjer vænt um“,
segi jeg. „Góða nótt, Tamara“.
Jeg loka hurðinni á eftir
mjer og jeg þorði ekki að hlæja
i fyr en jeg var kominn út á
götu. Svo fer jeg þangað sem
bíllinn er, sest upp í hann og
nú er ferðinni heitið til Leat-
ehrhead aftur. Jeg ek hratt, því
að enn á jeg mikið ógert í nótt,
og jeg er þegar orðinn svo
þreyttur og syfjaður, að jeg
held að jeg gæti sofið í mörg
ár án þess að snúa mjer.
Og margt hefi jeg nú um að
hugsa. Þetta sem Tamara sagði
mjer hefir kveikt í mjer. Sum
ir ykkar halda nú máske að
henni sje alvara með aftur-
hvarfið. Jæja, jeg hefi ekki ann
að ráð að gefa ykkur og mjer
en að við skulum vera við öllu
búnir.
Jeg býst við því að hún hafi
sagt mjer hæfilega mikið satt
til bess að jeg þurfi að vera
vel á verði. Hún Tamara er
enginn glópur.
En það sem mjer þykir ein-
kennilegast er þetta með hann
Schribner. Þið munið að hún
sagði að hann væri úr leik.
Hvers vegna? Ef Schribner var
nógu góður til þess að vera
með í leiknum frá upphafi —
hvers vegna er honum þá varp
að f.yrir borð núna? Það getur
verið að jeg finni svarið við því
á morgun — ef jeg verð þá lif-
andi.
Svo er það Nikolls. Hann er
eitthvað blendinn í þessu. En
jeg held að jeg viti nú hvernig
því er farið. Mjer hefir dottið
ýmislegt í hug. Sumar tilgátur
mínar kunna að reynast rang-
ar, en allar benda þær þó í
sömu átt. og jeg ætla að kom-
ast að því hvort þær eru rjett-
ar. En hvernig sem um það
fer, þá verður gaman að fást
við þetta.
Jeg fleygi vindlingsbút út
um gluggann og kveiki í nýj-
um vindling. Jeg er að hugsa
um það hvernig þessi Júlía
Wayles muni vera í hátt, ef
maður skyldi einhvern tíma
rekast á hana, og þó hefi jeg
ekki hugmynd um hvernig hún
er. —
Þegar hjer er komið -er jeg
kominn fram hjá Fulham og
inn á Wimbledon veginn. Þeg-
ra ieg kem að vegamótunum
stöðva jeg bílinn.
Hver veit nema þetta verði
góð nótt eftir alt saman.
X. KAFLI
Klukkan er rúmlega fimm
jeg kem til Leatherhead. Jeg
skil bílinn eftir á sama stað og
áður og jeg geng yfir brúna og
heim að húsinu. Það er þoka
þarna og hálf hráslagalegt. Nú
hefði maður haft gott af því
að fá sjer einn sterkan. Jeg
laumast á bak við húsið og
hlera. En jeg heyri ekkert. Jeg
fer því inn sömu leið og áður.
Jeg geng upp stigann og
laumast eftir ganginum þang-
að sem jeg skildi við þrælinn
áður. Jeg opna skápinn og
bregð upp ljósi. Honum líður
vel. Hann er í sömu skorðum
og jeg skildi við hann, nema
hvað hann gefur mjer nú horn
auga. Og mjer sýnist á augna-
tillitinu að honum sje ekkert
vel við mig.
„Jæja, fjelagi“, segi jeg.
„Hvernig gengur? Það getur
vel verið að jeg leysi yður eft-
ir dálitla stund og þá skuluð
þjer svei mjer fá að tala“.
„Hver á að yfirheyra mig?“
segir hann.
„Jeg ætla að gera það“, segi
jeg. „Og látið yður ekki detta
í hug að jeg muni taka með
silkihönskum á yður“.
Svo loka jeg skápnum hljóð-
lega og laumast svo að dyrun-
um á klefa þeim, þar sem jeg
skildi við Nikolls. Jeg gægist
þar inn. Nikolls liggur enn í
dái en honum er ekki jafn
þungt um andardráttinn. Jeg
hugsa að hann hafi nú unnið
bug á svefnlyfinu. sem þeir
gáfu honum, og sofi eðlilegum
svefni. En svo kippist jeg við
af ánægju, því að þarna við
hliðina á honum liggur Dodo
Malendas. Hún er með bönd á
höndum og fótum eins og hún
hafi verið fjötruð.
TRÓÐ
getum við útvegað beint frá
verksmiðju, af öllum gerðum
og með góðu verði. Leitið til-
boða.
Novoplastics
Oehlenschlægersgade 21,
Köbenhavn V.
Einbýlishús
% í Kleppsholti, 3 herbergi og eldhús, hefi jeg til sölu.
1 Baldvin Jón-sson, hdl., Vesturgötu 17, sími 5545. — %
Síldarstúlkur
Nokkrar vanar síldarstúlkur geta fengið pláss á söltun-
arstöð vorri á Siglufirði í sumar.
Upplýsingar í síma 3589, Reykjavík.
Pólstjarnan h.f.
Siglufirði.
Brjefritari
(Correspondent), karl eða kona, óskast til heildsölu-
fyrirtækis frá næstu mánaðarmótum. — Þarf að geta
samið og skrifað verslunarhrjef á ensku og einhverju
Norðurlandamálanna. Upplýsingar í skrifstofu V. R.,
Vonarstræti 4.
3 til 5 herbergja
íbúð
Tilboð óskast í 3 til 5 herbergja íbúð. Tilgreinið verð
og greiðsluskilmála. Tilboð, merkt: „Ibúð í júlí“, send- |>
ist Mbl., fyrir mánudagskvöld.
Húsgögn óskast
Setustofsett, litið notað, óskast. Uppl. í síma 9151.
Til sölu
hásing ásamt fjöðrum og bremsum í Ford 1942, einnig t
grind í Ford vörubil.
BílaverkstæSi Hafnarfjarðar h.f.
VJELAR
Hef fyrirliggjandi á lager í Osló nýja og notaða Gufu-
katla, Gufuvjelar, Þrýstisuðupotta, Dieselmótora,
Ljósavjela-samstæður, Rafmagnsmótora, Vinnuvjelar
(verkfæravjelar), Dælur, Grjótmulningsvjelar, Steypu-
hrærivjelar, Loftpressur. Allt til byggingaframkvæmda
og fleira.
2)ipi- ^3ncj. ÍÍjorten <33lachnarl
Oslo, Postboks 2412. Símnefni: „Sildolje“.