Morgunblaðið - 02.07.1947, Side 1
S4. árgangur
Ísaloldarprentsmiðja h.l.
145. tbl. — Miðvikudagur 2. júlí 1947
s
Komm unistar svívirða vinaþjóð Islendinga:
S yttc Snorra fór
aftur til Noregs
Kaffiskammiurbin 95 grömm á mánuðí
KAUPMANNAHÖL N í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Moigunblaðsins.
VEGNA erfiðs gjaldeyrisástands, var í dag enn hert á vöru-
skömmtunmni í Danmörku. Gerir stjórnin sjer vonir um að
bæta verslunarjöfnuðinn um 75 milljón krónur, en auk ofan-
greindra ráðstafana, er almennt biíist við því, að innflutningur
verði minnkaður til muna.
Minna kaffi.
Samkvæmt vöruskömmtunar-
ákvæðunum nýju verður kaffi-
skammturinri minnkaður niður
í 95 grömm á mánuði, en te-
skammturinn í 38 grömm.
I’ynnri rjómi.
í stað helmings. hins venju-
lega smjörskammts verður nú
látið jafnmikið margaríni frans
brauðsskammturinn minnkaður
um helming og tóbaksnotkun
næstu þrjá mánuði minnkuð
um 40 prósent. Þá verður öl og
benzínskammtur og minkaður,
en ennþá ekki ákveðið um hvað
mikið.
*
Rjómi verður framvegis
þynnri, e'n meira byggi blandað
í brauðið.
Tillögur um herdyrk
Sameinuðu
þjóðanna
New York í gær.
SAMKVÆMT beiðni öryggis
ráðsins, hafa Bretar, Banda-
ríkjamenn og Frakkar nú kom-
ið fram með tillögur um vænt-
anlegan herstyrk Sameinuðu
þjóðanna.
Tillögur Breta fela í sjer
minnstan herstyrk, en tillögur
Bandaríkjamanna mestan. Vilja
Bretar að S. Þ. hafi 1200 flug-
vjelar, 6 til 8 herdeildir og um
120 herskip. Bandaríkin fara
hins vegar fram á yfir 3,000
flugvjelar og 20 herdeildir.
Engar tillögur hafa borist frá
Rússum. — Reuter.
ttast m !íf sitt
Budap'est í gærkvöldi.
DESZO SULYOK, leiðtogi
ungverska þjóðþingsflokksins
gekk af fundi í þinginu í dag,
eftir að hafa sagt: „Jeg er ekki
lengur öruggur um líf mitt. Þið
ætlið að gefa Rússum tækifæri
til að handataka mig“.
Mikill hávaði varð í þinginu,
er hann rjeðist á þriggja ára
efnahagsáætlun stjórnarinnar,
en í ræðu sinni hjelt hann því
fram, að hún grundvallaðist á
algeru ófrelsi.
Matarskorfur háir
Ruhrframleiðsl-
unni
Berlín í gær.
PAKENHAM lávarður, her-
námsmálaráðherra Breta, sagði
í Köln í gær, að verkamenn á
bresk-bandaríska hernámssvæð
inu í Þýskalandi gætu ekki bú-
ist við auknum matarskammti,
fyr en ráðstefnu utanríkisráð-
herra þríveldanna í París væri
lokið.
Lávarðurinn ljet þess getið
að hjá því gæti ekki farið, að
ráðherrarnir tækju vandamál
Þýskalands til meðferðar. Þá
lýsti hann því og yfir, að ekki
mundi mögulegt að auka fram-
leiðsluna í Ruhr fyr en matar-
skammtur almennings þar yrði
aukinn. — Reuter.
FLÓTTAMENN FRÁ
HERNÁMSSVÆÐI RÚSSA.
Frankfurt: — Þúsundum sam-
an flykkjast nú menn frá hernáms
svæði Sovjetríkjanna yfir á her-
námssvæði Bandaríkjanna. Þeir
hafa þá sögu að segja7 að þeir
hafi verið þvingaðir til að vinna
í uraniunámunum, samkvmt
skipun, sem gefin hefur verið út
til þýskrá uppgjafahermanna.
ÞJÓÐVERJAR HEIMSÆKJA
TRUMAN.
Washington: — Hópur þýskra
manna úr þýsk-ameríska fjelag-
inu, undir forystu formanns
Steuben-fjelagsskaparins og Otto
Hauser, formanns þýskalands-
hjálparinnar, mun heimsækja Tru
man á næstunni og biðjast skýr-
inga á tillögum Hoovers til við-
reisnar Þýskalandi. Hauser segir,
að skjót viðreisn sje nauðsynleg
til að stemma stigu fyrir komm-
únismanum í Þýskalandi.
Drottning og
Elizabeth Englandsdrottning og
dóttir hennar, Margareth prins-
essa, heimsóttu nýlega vörusýn-
ingu í London. Á myndinni sjest
prinsessan vera aö horfa í smá-
sjá, en móöir hennar stendur
fyrir aftan hana.
Mðlolov fær 24 klst.
fresl
París í gærkvöldi.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Breta og Frakka gáfu Molotov
í dag 24 klukkustunda frest, til
þess að hafna eða samþykkja
tillögur þeirra um aðstoðartil-
boð Bandaríkjanna.
Bidault, franski utanríkisráð-
herrann, lagði fram tillögur um
hjálpartilboðið, sem nálguðust
að ýmsu leyti tillögur Molotovs
um sama efni. Bað rússneski
utanríkisráðherrann þá um
frest til kl. 3 á morgun (mið-
vikudag), til þess að kynna sjer
frönsku tillögurnar.
. Frakkar munu líta svo á, að
Evrópulöndin verði nauðsyn-
lega að leggja fram skrá yfir
nauðsynjar þær, sem þau helst
skortir, auk þess sem gerð verði
áætlun um framleiðslumögu-
leika hvers einstaks lands.
Ráðherrarnir munu aftur
koma saman til fundar á morg-
un (miðvikudag). — Reuter.
Einn fersf í flug-
slysi
Lousiana í gærkvöldi.
EINN' maður mun hafa látið
lífið, en fjögurra er saknað, eft-
ir að flugvjel hrapaði til jarðar
í dag, fimm kílómetrum fyrir
sunnan Sibley í Lousiana.
Lögreglan á staðnum segist
ekki ennþá vita deili á flugvjel-
inni, en líklegt er talið, að hún
hafi tilheyrt bandaríska flug-
hernum. — Reuter.
Stjórn Dagsbrúnar hindraði mú
ofbeídishótunum ú styttan
kæmi á land hjer
HÖGGMYNDIN af Snorra Sturlusyni, sem norska þjóðin gaf
íslendingum og sem Olav ríkisarfi Norðmanna ætlaði að af-
hjúpa í Reykholti á Snorrahátíðinni þann 20. júlí næstkom-
andi, fjekkst ekki sett á land hjer fyrir ofbeldishótunum
kommúnista og fór Lyra, sem kom með styttuna, aftur til Noregs
í gær með hana. tlafa kommúnistar í Dagsbrún á fádæma
fruntalegan hátt sýnt frændþjóð vorri, Norðmönnum, lítilsvirð-
ingu, sem meginþorri íslensku þjóðarinnar mun kunna þeim
litlar þakkir fyrir heldur fordæma.
Er nú ekki hægt að vita nema, að Snorrahátíðin, sem
fyrirhuguð var í Reykholti fari út Um þúfur, en á þeirri
hátíð ætluðu um 80 Norðmenn, sem hver um sig standa
framarlega í norsku þjóðlífi, að heiðra íslcnsku þjóðina
með nærveru sinni og æðstu menn Norðmanna, krón-
prinsinn, Gerhardsen forsætisráðherra, Langc utanríkis-
ráðherra, þingforsetar norska Stórþingsins höfðu tilkynt
komu sína hingað.
Hótuðu afgreiðslubanni á Lyru.
Nokkrum dögum áður en Lyra kom fór Guðlaugur Rosinkranz,
sem er framkvæmdarstjóri íslensku Snorranefndarinnar þess
á leit við Dagsbrúnárstjórnina, að skipa mætti styttu Snorra
hjer á land þrátt fyrir verkfallið með tilliti til þess, að hjer
væri um að ræða gjöf frá einni vinaþjóð til íslensku þjóðar-
innar og gæti því ekki verið að það skapaði fordæmi, að styttan
yrði sett hjer á land, eða gæti á annan hátt haft nein áhrif á
vinnudeiluna.
Dagsbrúnarstjórnin svaraði þá, að nægur tími væri að tala
um þetta eftir að skipið væri komið.
En í gær gaf Dagsbrúnarstjórnin svar sitt, sem var á þá
leið að hún þverneitaði að skipa mætti styttunni á land og
hótaði jafnframt, að sett yrði afgreiðslubann á Lyru í fram-
tíðinni og skeyti yrði sent til Noregs með tilmælum um, að
afgreiðslubann yrði einnig sett á skipið þar, ef nokkur hlutur
yrði hreyfður í skipinu til að setja hjer á land eða annarsstaðar
í landinu.
Skipstjóranum skrifað hrjef.
Dagsbrúnarstjórnin skrifaði skipstjóra Lyru frekt hótunar-
brjef, þar sem honum var tilkynt það, sem hjer að framan
greinir, hótaði með ofbeldi, ef ekki yrði farið að fyrirmælum
Dagsbrúnarstjórnar. Afrjeð skipstjórinn því að halda áætlun
skipsins og fór úr höfn um 6 leytið í gærdag.
Skömmu áður en skipið lagði úr höfn fór Guðlaugur Rosin-
krinz um borð til skipstjórans á Lyru og bað hann að afhenda
Shetelig prófessor í Bergen pappírana yfir styttuna aftur. Það
mun hafa verið um það leyti, sem hingað til landsins barst
frjett um það frá Noregi, að Shetelig prófessor hefði gengist
fyrir því ásamt norska sendiherranum á íslandi, að norsk söfn
gæfu hingað góðar gjafir til Þjóðminjasafnsbyggingarinnar.
Kom ekki verkfallinu við.
Þetta ofbeldisvérk kommúnista í Dagsbrún mun lengi í minn-
um haft. Það er greinilegt, að það gat ekki komið vinnudeilunni
við þótt stytta Snorra Sturlusonar kæmi hjer á land.
Það hefir verið haft við orð, að verkfall kommúnista væri
pólitískt og hefir nú fengist fyrir því sönnun, því ekki gat það
á neinn hátt sakað hagsmuni verkamanna, að höggmyndin
kæmi á landi í Reykjavík. ,