Morgunblaðið - 08.07.1947, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.07.1947, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 8. júlí 1947 ^ Niðurstaðan iyrir kommúnista er hin hraklegasta i — Sjómenn tóku af þeim ráðin Þeir verða að samþykkja miðlun Þorseins M. Jónssonar í Þróttardeilunni Dagsbrúnarmenn vsrða eiíf cg hálft fiS nái. 3 <ér með óbreySfu verðiagi að vinna opp afvinnu- tjón vinnusíeðvunarinn ar. ÞÁ llK verkfalla-alda kommúnista hjöðnuð eftir að hafa staðið jrúmar fjórar vikur. Henni var ætlað að ná hátt og fara víða. ,'En umfram alt átti hún að fleyta kommúnistum til valda á ný. - SAMNINGARNIR Alt hefir þetta farið öðru vísi en ætlað var. Verkföllin .tiafa að vísu valdið miklu tjóni. .Bitnar það á öllum landslýð en «j harðast á þeim, er trúðu kommúnistum best, og sjálfir liafa þeir aldrei verið fjær því en nú að ryðjast til vaída á íslandi. Sjómannaverkfallinu töpuðu fkommúnistar hreinlega. Þar aeyddu sjómenn sjálfir þá til að falla frá öllum þeim kröf- um, sem nokkru máli skiftu. Aðalkrafa. kommúnista þar var sú að heimta a. m. k. 50 króna verð fyrir málið af bræðslu- síld. Með þessu átti að kippa grundvellinum undan fisk- ábyrgðarlögunum á þann hátt að svifta ríkið tekjunum, sem ætlaðar voru til að standa straum af ábyrgðinni Tilætlun- :;n var sú að kúga Alþingi og ríkisstjórn á óþingræðislegan inátt til að breyta rjettum lands lögum. Sú tilraun mistókst :neð öllu-og mun lengi ver^a minst, sem eirfs mesta vindhöggs kom múnista. Þróttardeilan á Siglufirði hef iir einnig orðið kommúnistum til megnustu armæðu. . Eftir smargra vikna verkfall er nú orði til orðs samið þar um sömu ikjör og hjeraðssáttasemjarinn, iÞorsteinn M. Jónsson, stakk upp á fyrir rjettum mánuði. Þá þótti kommúnistum svo mikið við !íiggja, að þeir vörnuðu mönn- um að taka þátt í löglegri at- jsvæðagreiðslu um tillöguna, og efndu sjálfir til annarar at- jkvæðagreiðslu, þar sem sam- pyktar voru þær freklegu kröf ur, sem kommúnistar þá þótt- ust ætla að standa á vegna sigl- firskra verkamanna. Allan tímann, sem síðan er liðinn, hafa kommúnistar haldið uppi látlausum rógi um Þor- stein M. Jónsson fvrir það, að hann þoldi þeim ekki ólög þeirra. Nú semja þeir um það dáginn áður eri fjelagsdómur átti að kveðast upp, þar sem skorið skyldi úr lögmæti að- gerða sáttasemjara, að fallast í einu og öllu á tillögur þær, sem hann bar fram. I því sambandi settu þeir að- eins eitt skilyrði. Málið fyrir fjelagsdómi varð að hefja, svo að úrskurður rjettarins sæist ekki. Þeir vita auðsjáanlega upp á sig skömmina en finst það nokkur sárabót, að henni sjc ekki lýst yfir með dóms- orði. Úr því sem komið er, skift ir þetta ekki máli. Atferli kommúnista dæmir sig sjálft og sökin er skráð á enni þeirra, hvar sem þeir fara. Þeir bera sinn dóm með sjer. Korskur sjómaður stekkur úrbát og drukknar í GÆRMORGUN vildi það slys til hjer í höfninni að norsk • ur sjómaður, skipverji af e s. Banan drukknaði. Slysið varð um kl. 10 er ver- ið var að flytja skipið inn á innri höfnina. Maður þessi var ásamt fjelaga sínum niðri í björgunarbát skipsins, því gerð hafði verið tilraun til að taka bátinn upp í skipið, en vegna veðurs tókst það ekki. Þegar Banan var komið á móts við Faxagarð, þurfti að láta skipið reka lítið eitt, til þess að ná því upp að hafnargarðinum. — Skömmu eftir að skipið er tek- ið að reka, stekkur annar þeirra er í björgunarbátnum var, fyrir borð. — Honum skaut fljótlegá upp aftur og tók til sundtak- anna og synti undan veðri í átt- ina að togarabryggjunni. Er hann átti skammt eftir sáu menn hvar hann sökk skyndi- lega, og sást ekki meir. Kunnugir telja, að er skipið tók að reka, hafi hræðsla við að björgunarbáturinn myndi lenda undir afturstefni skipsins og í skrúfuna, gripið manninn og því hafi hann stokkið fyrir borð. Framh. af bls. 1 risið hafði, milli útvegsmanna og sjómanna um síldveiðikjörin. En ósamið var þá við síldveiði- menn á nokkrum stöðum, aem kunnugt er. Hinar miklu kröfur, sem haldið hafði verið fram frá hendi fulltrúa sjómanna á þess um stöðum, voru nú orðnar lítil vægar. Samningar tókust á skömmum tíma. Enda höfðu sjómenn í Ólafsfirði þá sagt skilið við Alþýðusamband Norð urlands og samið fyrir sig. Kaup trygging sú sem nú var samið um var hin sama, og áður hafði verið gengið að í Vestmanna- eyjum. Brjef til aðila. Það var á miðvikudagsmorg- un þ. 2. júlí að gengið var frá samningum um síldveiðikjörin. En í sambandi við þá samninga komu aðilar sjer saman um, að skrifa deiluaðilum í þeim kaup deilum sem óleystar voru, og fara þess á leit við þá, að þeir gengust fyrir því, að þegar í stað yrði reynt að komast^að samkomulagi í þeim deilum. Því samkomulagið um síld- veiðikjörin kæmu að litlu gagni nema hinar deilurnar leystust líka. Segir í brjefi þessu er aðilar undirrituðu á þá leið að Landssamband ísl. útvegsmanna og Alþýðusam- bandið leggi áherslu á, að einskis verði látið ófreistað að leysa allar vinnudeilurnar sem fyrst því þjóðarhagur sje í veði. Brjef þetta var sent stjórn Vinnuveitendafjelagsins, borg- arstjóra, stjórn Síldarverk- smiðja ríkisins og stjórn Al- þýðusambands Norðurlands. Eftir að það var skrifað, sendi stjórn Alþýðusambandsins brjef til stjórnar Vinnuveitenda fjelagsins þar sem segir m. a., að Alþýðusambandsstjórnin muni vilja beita sjer fyrir því, að vinnudeilurnar leysist allar í einu og sem fyrst. Er hjer var komið sneri for- maður Vinnuveitendafjelagsins sjer til sáttasemjara, og bað hann að gangast fyrir því að kallaður yrði saman samninga- fundur sem fyrst. Á samningafundum. Sáttasemjari ríkisins Torfi Hjartarson kallaði síðan fund saman kl. 8V2 á fimtudags- kvöld. Þessir voru á þeim fundi: Framkvæmdaráð Vinnuveit- endafjelags íslands, Kjartan Thors form. fjelagsins, Guð- mundur Vilhjálmsson, Helgi Bergs, Eggert.Kristjánsson og Sveinn Guðmundsson forstjóri f Hjeðni. Ennfremur Eggert Claessen framkv.stj. fjelags- ins. — Fyrir Reykjavíkurbæ voru þar borgarstjóri Gunnar Thoroddsen og Tómas Jónsson borgarritari. Fulltrúi fyrir stjórn Síldarverksmiðja ríkis- ins, var þar Sveinn Benedikts- son, fyrir Dagverðareyrarverk- smiðjuna Ólafur Einarsson for- stjóri í Hafnarfirði og Guð- mundur Guðlaugsson fyrir verksmiðju Akureyrarbæjar í Krossanesi. Þrír voru þar fulltrúar Al- þýðusantbands íslands, Guðgeir Jónsson, Jón Rafnsson og Stefán Ögmundsson. Frá Dagsbrúnar- stjórninni voru þeir Sigurður Guðnason, Edvarð Sigurðsson og Hannes Stephensen og Gunn ar Jóhannesson frá Þrótti á Siglufirði. Síðar komu þeir Friðrik Kristjánsson, írá verka lýðsfjelagi Glæsibæjarhrepps og Björn J.ónsson frá Alþýðu- sambandi Norðurlands. , Sáttanefndin, sem útnefnd hafði verið, til þess að koma sættum á í Dagsbrúnardeilunni sjerstaklega, var að sjálfsögðu ekki á þessum fundum. Vegna þess að hjer var um fleiri deilu mál að ræða, og í þeirri nefnd var Gunnlaugur Bíiem skrif- stofustjóri, en hann er einn af dómendum í Fjelagsdómi, sem kunnugt er, og varð því að vera utanvið samninga sem snertu deilu Þróttar á Siglufirði. Samningarnir hófust, eins og fyrr segir, kl. 8V2 á fimtudags- kvöld. Hjelt sá fundur viðstöðu laust áfram til kl. 1. miðdegis á föstudag. Síðan hófst fundur aftur kl. 8V2 á föstudagskvöld. Hjelt hann áfram þar til kl. 9 á laugardagskvöld með nokkru hlje um hádegi á laugardag. En þá var komið að þeirri niður- stöðu, sem fyrr greinir, enda þótt samningarnir gengju ekki í gildi fyrr en að afloknum Dags bi>únarfundinum á sunnudags- morgun. Einstök atriði samninganna. Aðalbreytingin á kaupi Dags brúnarmanna var sem fyrr seg- ir að grunnkaupið er hækkað um 15 aura í fjórum kaupflokk unum, en um 10 aura í einum þeirra. Tímakaupið var sem hjer segir: í 1. fl. kr. 2,65 hækkun 15 aur. í 2. fl. kr. 2,90 hækkun 15 aur. í 3. fl. kr. 3,00 hækkun 15 aur. í 4 fl. kr. 3,30 hækkun 10 aur. í 5. fl. kr. 3,60 hækkun 15 aur. Mánaðarkaup hækkar sem segir: Kr. 500 hækkar í kr. 530. Kr. 550 hækkar í kr. 580. Kr. 575- hækkar í kr. 605. Er hjer alstaðar að sjálfsögðu miðað við grunnkaup. Kaup varðmanna sem höfðu kr. 34 fyrir 12 klst. vöku, var ekki hækkað. En kaup við upp- skipun á saltfiski sem alment var í öðrum flokki hækkar í kr. 3,05 og vinna við stein- steypu hækkar á sama hátt. Enda mun það víða hafa tíðk- ast án samninga. Samið var um nokkrar til- færslur á milli flokka í bæjar- vinnunni sem skifta litlu máli. Samningur þessi gildir til 15. okt. næstkomandi og sje hann uppsegjanlegur með mánaðar fyrirvara. En hann framlengist um 6 mánuði sje honum ekki sagt upp fyrir 15. sept. „Þróttur“ fjckk ckkert. Engin breyting var gerð á samningi þeim, sem stjórn Síld- arverksmiðja ríkisins gerði við stjór’n verkamannafjelagsins Þróttar á Siglufirði, sem komm únistar þar á staðnum hafa kröftuglegast mótmælt. En hjer aðssáttasemjari, Þorsteinn M. Jónsson, hafði gert að tillögu sinni, að báðir aðilar hefðu í gildi. Var atkvæðagreiðsla um þá tillögu hans, er kommúnist- ar reyndu að ónýta með ofbeldi. En sú tillaga var samþykt. Og síðan skotið til Fjelagsdóms. hvort sú atkvæðagreiðsla skyldj| ekki standa og væri lögleg. Fjelagsdómur var ekki upp-> kveðinn í því máli, því stjóm Þróttar og Alþýðusambandsins settu sem skilyrði ,að það mál yrði hafið til þess að sættum yrði komið á. En útkoman fyrir verkamenn á Siglufirði, er verið hafa í verk falli, er sú, að þeir fá ekkert í aðra hönd upp í tjónið a£ vinnustöðvuninni. Samkvæmt hinum nýju samri ingum skulu verkamenn við Síldarverksmiðjur ríkisins á Raufarhöfn og Skagaströnd og Húsavík hafa sama kaup og Þróttarmenn á Siglufirði, og eins við Krossaness og Dag- verðareyrarverksmiðju. Kemst þar á sú samræming kaups sem við var búist. \ Tjón verkamanna. Dagsbrúnarverkfallið stóð y£ ir í 25 vinnudaga. Kauphækk- un sú sem Dagsbrúnarmenn hafa fcngið nemur frá 3—5,6%. Svo hver verkamaður þarf aíS vinna frá 18—33 daga með hinu nýja kaupi til þess að vinna upp eitt dagkaup með hækkun- inni, eða samtals frá 425—825 daga til þess að hafa unnið upþ alt atvinnutjónið af vinnu- stöðvuninni síðaii verkfallið hófst. VEGNA ítrekaðra ummæla i Mbl. (sbr. pistla Víkverja og grein eftir Sig. Björnsson frá Veðramóti) um aðgerðaleysi stúdenta í „Snorra-málinu“ skal þessa getið: Þegar er okkur varð það kunnugt, að e.s. Lyra hefði snú- ið aftur til Noregs með styttu Snorra Sturlusonar — þar eð stjórn Dagsbrúnar synjaði leyf- is til þhss að styttunni yrði skipí að hjer í land •— ákváðum við að boða til sameiginlegs fundar með stjórnum þeirra stúdenta- samtaka, er við veitum forstöðu, til þess að ræða með þeim máí þetta og væntanlegar tillögur til ályktana. En áður gn til þessat fundar kæmi, barst okkur vit- neskja um þá ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að láta varðskipiíjj Ægi sækja styttuna og flytjá hana aftur hingað til lands. — Sáum við þá engar frekari á- stæður til aðgerða eða ályktana, af hálfu stúdentasamtakanna. Reykjavík 7. júlí 1947. LUDVIG GUÐMUNDSSON varaform. Stúdentasambands íslands. PÁLL S. PÁLSSON form. Stúdentafjel. Rvíkur. GEIR HALLGRÍMSSON form. Stúdentaráðs Háskóla íslands. Lonaort: — Ríkisstjórn ÁstraluJ hefur óskað eftir því,-að menn flytt- ust til Ástralíu sökum skorts á vinnu- afli þar. Nýlega flutti stórt breskt skip 4000 menn. af óströlskum og breskum ættum frá Indlandi til Ástraliu. ___i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.