Morgunblaðið - 08.07.1947, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.07.1947, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIt Þriðjudagur 8. júlí 1947 Jón Pálmason: KOSNINGAR OG KJÖRDÆMASKIPUN Á SÍÐASTA degi Alþingis í vor var samþykt þingsálykt- unartillaga um skipun milli- þinganefndar til að undirbúa breytingar á stjórnarskrá Is- lands. Var hin fjölmenna stjórn arskrárnefnd, sem til hefur verið á undanförnum árum, þar með lögð í gröfina þegjandi og hljóðalaust. Mun og tæplega hafa verið gert ráð fyrir, að hún skilaði áliti fyrst um sinn, enda þó hún hefði viðað að sjer miklum fróðleik um stjórnar- skrár annara ríkja og fleira. — Var það Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, sem á sínum tíma vann aðallega að því, að fá þenna fróðleik. Hvprt hin nýja nefnd, er vafal. verður bráðlega skipuð, verð- ur fljótvirkari í þessum efnum, er náttúrlega óvíst. Úr því fær reynslan skorið. Má þó ætla, að gerð verði tilraun til að fá samþyktar stjórnarskrár breyt- ingar fyrir næstu alþingiskosn- ingar. Ber margt til þess, eins og kunnugt er, að það verður að telja nauðsynlegt. Þó er það eitt mál í sambandi við stjórnarskrána; sem þing- menn og flokkar hika nokkuð við vegna ‘þeirra æsinga, sem því eru jafnan samfara, en það er breytingar á kjördæmaskip- un og kosningafyrirkomulagi landsins. Um það mál hafa ver- ið háðar harðá'r deilur á síðari árum, og svo mun verða. hve nær, sem við því verður hreift. Að taka til meðferðar í sam- bandi við endurskoðun stjórn- arskárinnar, komast menn þó ekki hjá, því ástandið í þess- um efnum er fjarri því, að vera gott. Þetta hefir reynslan sann að. Við þær breytingar, sem síð- ast hafa verið gerðar þ. e. 1933 og 1942, var það eitt höfuð sjón armið, sem mestu rjeði. Það var, að tryggja það nokkurn veginn, að þingmannatala stjórnmálaflokkanna yrði í sam ræmi við atkvæðafylgi þeirra við almennar kosningar. Þess- um tilgangi hefir tekist að ná að mestu við tvennar síðustu kosningar. Nokkuð skortir þó á, því í bæði skifti hefir Fram- sóknarflokkurinn nokkru færri atkvæði á þingmann en hinir flokkarnir. Þó stóð svo nærri við kosningarnar 18. og 19. okt. 1942, að ef rúmir 20 kjósend- ur hefðu kosið gagnstætt í því kjördæmi, sem síðast var talið 1 N.-Múlasýslu og Sveinn á Eg ilsstöðum komst að í stað Páls Zophoníassonar, þá hefði þing- mönnum fækkað um tvo. Það hefði með öðrum orðum þytt það, að 9 uppbótarþingmenn hefðu nægt til þess að jafna milli flokka og 10. og 11. land- kjörinn þingmaður hefðu fall- ið úr. í síðustu -kosningum munaði nokkru meira, og nokkurn glundroða gerði það þá, að Frarhsóknarflokkurinn gekk þá skiftur til kosninga í tveimur kjördæmum. í bæði skiftin stappaði þó svo nærri því, að þetta takmark næðist, að eng- inn hefur verulega ástæðu til umkvörtunar af þeim sökum. En með því er vissulega ekki alt fengið, því margt fleira kem ur til greina, sem vert er að taka með í reikninginn. — Eitt m. a. er það, að uppbótarsæta kerfið, sem nú gildir, hefir gef- ist illa á ýmsa lund. M. a. hefir reynslan leitt það í ljós að upp bótarþingmennirnir, sem bera heitið landkjörnir þingmenn, hafa ekki öðrum fremur skoðað sig sem þingmenn alþjóðar. ■—• Flestir þeirra hafa nánast starf að sem fulltrúar þeirra kjós- enda, em þá hafa kosið, og því reynst uppbótarmenn þeirra hjeraða, sem þeir hafa boðið sið fram í. Hefir þetta stundum haft í för með sjer hinn leið- inlegasta skrípaleik, og átti»það sjer einkum stað á fyrstu árum þessa skipulag. , Nokkrar heiðarlega undan- tekningar eru til frá þessari að alreglu og helst þannig, að ein stakir flokksforingjar hafa „spekúlerað“ í uppbótarþing- sætum og þó ekki orðið bein- línis bundnir hagsmunum við- komandi kjördæmis. Hve rík sú skoðun er í mörg- um, að uppbótarmennirnir sjeu fulltrúar viðkomandi kjördæma má m. a. marka af því, að í Reykjavík hjeldu allir flokk- arnir, sem þar hafa von um þingmenn fram sömu rökvill- unni fyrir síðustu kosinngar, bæði á fundum, blöðum og í út varpi. Hún var sú, að telja það listasæti baráttusæti, sem von var um 'u.ppbótarsæti á. Allir, sem til þektu vissu að raun- verulega baráttusætið var 5. sæti á Sjálfstæðislista og 3. sæti á Sósíalistalista. En marg- ir Sjálfstæðismenn töldu Bjarna Benediktsson í baráttusæti, sem var 6. maður á listanum. Sósíal- istar töldu Katrínu Thoroddsen í baráttusæti og fylgdu sömu villunni. — Alþýðuflokkurinn skaut þó það næst yfir markið, að hann taldi inn 3. mann, Har ald Guðmundsson í baráttusæti þann mann, er kunnugir vissu að kom ekki einu sinni til greina sem uppbótarþingmað- ur. Þetta sýnir, að margir líta á uppbótarþingmennina úr Rvík sem þingmenn Reykja- víkur, enda starfa þeir oftast sem slíkir. Væri það miklu nær að ákveða Rvík 11 þingmenn næst, þegar stjórnarskránni verður breytt og að uppbótar- þingsæti komi ekki til greina þaðan. Frá þessu sama sjónarmiði er svartasta dæmið um galla þessa skipulags augljóst frá úr slitum síoustu -kosninga, það, að úr báðum fámennustu kjördæm unum, Seyðisfirði og A.Skafta- fellssýslu komu uppbótarþing- menn. Á Seyðisfirði voru þá 511 á kjörskrá og í A.-Skafta- fellssýslu 745. Þetta þýðir það að 1256 kjósendur á kjörskrá hafa samkv. framansögðu fjóra menn á Alþingi nú. Það sem einna mest stingur í stúf að hinu leytinu, eins og nú er, felst í því, að S.-Þingeyjarsýsla með 2395 á kjörskrár kjósend- ur, hefir 1 þingmann. í hlutfalli við hin kjördæmin ætti h’ún að hafa 7. Þetta sann- ar, að skipulaginu þarf að breyta. Hvernig sú breyting á að verða, er hinn mikli vandi, og seint munu menn verða sam mála í því efni. Hætt er og við að ekkert fyrirkomulag sje hægt að finna, sem ekki hefir verulega galla í för með sjer. Þrent er það einkum, er ynenn hafa orðað sem framtíðar skipu lag: 1. Landið alt eitt kjördæmi og almenn hlutfallskosning. 2. Landinu skift í einmenn- ingskjördæmi eingöngu. Ohlut- bundnar kosningar allsstaðar. Engir uppbótarþingmenn. 3. Landinu skift í 6—8 kjör- dæmi. Hlutfallskosning í öll- um. Engir uppbótarmenn, eða örfáir. Allar þessar aðferðir hafa þann kost, að það er í þeim samræmi frá vissu sjónarmiði. Osamræmi núv. skipulags væri útilokað með hvorri aðferðinni sem er. En allar hafa þær mikla vankanta og tæplega kemur til að þær verði lögfestar fyrst um ! sinn að minsta kosti, hvað sem síðar verður. Landið eitt kjördæmi er fyr- irkomulag, sem sveitahjeruðin geta aldrei felt sig við. Valdið yrði með því lagt í hendur Rvíkur og flokksstjórnanna fyr ir fult og alt. Persónuleg áhrif einstakra manna utan höfuð- borgarinnar hefðu lítið að segja. Hætt er þá líka við, að hagsmunamál strjálbygðarinn- ar sætu á hakanum. Landinu skift í eintóm cin- menningskjördæmi er fullkom in andstaða við hitt, að því leyti, að með því væri persónu fylgi og persónulegt sjálfstæði þingmanna einna öruggast. Þó hefir reynslan sýnt, að undar- legustu fyrirbrigði geta komið fram við áhrif slíks skipulags jafnvel þó það sje ekki útfært að fullu. Minnihl. flokkar hjá þjóðarheildinni getur með slíku skipulagi náð meirihl. þing- manna ef hann er nægilega sniðugur í blekkingum og bralli. Þetta sannar dæmið frá 1931. Að gera landið að 6—8 kjör- dæmum hefir mesta kosti og minsta annmarka, af þeim þrem ur tillögum, sem hjer að fram- an eru nefndar. Þar í eru minst ar öfgar og fult samræmi gæti fengist á þann hátt. Hinsvegar mundi þessl leið auka mjög mikið vald höfuðborgarinnar og flokksstjórnanna og minka til muna áhrif persónulegra vinsælda frambjóðenda og um leið rýra um of persónulegt sjálfstæði alþingismanna. Auk þess er svo það, að margir menn mundu fella sig illa við svo .mikla samsteypu á kjör- dæmurn, sem þessi leið hefir í för með sjer, enda þó ýmislegt sje hægt að færa fram henni til meðmæla. Jeg hygg að flestir geti felt sig best við þær endurbætur á skipan þessara mála, sem minst ar breytingar hafa í för með sjer frá núv. skipulagi. Flestir munu sammála um, að það geti, ekki haldist óbreytt til lengdar og þá er að leita samkomulags um það, hvað koma skal. Raun- ar þykist jeg viss um að ekkert fyrirkomulag er unt að finna sem ekki hefir fleiri eða færri galla og því síður nokkuð, sem allir væru sammála um. Jeg ætla nú hjer að hreifa einni uppástungu um afgreiðslu þessa sem verið gæti umræðu grundvöllur, svo eigi sje sterk- ara að orði kveðið. Hún er í að- al atriðum bygð á því ,að miða kjördæmin við hin gömlu lög- sagnarumdæmi. Þau hafa enn meiri sameiginlega hagsmuni innbyrðis, en á sjer stað um önnur fjarlægari hjeruð, og með því móti eru hvergi sjerlega stór kjördæmi og örðug yfir- ferðar. Þessi tillaga er þannig um skiftingu: 1. Reykjavík 11 þm. 2. Gullbringu og Kjósarsýsla og' Hafnarfjörður 4 þm. 3. Borgarfjarðarsýsla og Mýrasýsla 2 þm. 4. Snæfellsness- og Hnappa- dalssýsla og Dalasýsla 2 þm.. 5. Barðastrandasýsla og Strandasýsla 2 þm. 6. ísafjarðarsýslur og ísafjarð arkaupstaður 3 þm. 7. Húnavatnssýslur 2 þm. 8. Skagafjarðarsýsla 2 þm. 9. Eyjafjarðarsýsla, Akureyri og Siglufjörður 5 þm. 10. Þingeyjarsýslur 3 þm. 11. N.-Múlasýsla með Seyð- isfirði 2 þm. 12. S.-Múlasýsla með Nes- kaupstað 2 þm. 13. Skaftafellssýslur 2 þm. 14. Rangárvallasýsla 2 þm. 15. Vestmannaeyjar 2 þm. 16. Árnessýsla 2 þm. Alls 48 þingmenn. Hlutfallskosning sje í öllum kjördæmum og um leið vara- þingmenn. Nú eru varaþingm. fyrir 31 þingmann, en engir varamenn fyrir 21 þingmann. Er í því óeðlilegt og óheppilegt ósamræmi. Með þessu skipulagi ætti enga uppbótarþinm. að hafa. Rjettur flokka yrði mjög jafn og best er að sleppa við upp- bótarsæta regluna alveg. — Ef menn vildu eigi sætta sig við það, mættu ugpbótarþingmenn í hæsta lagi vera 4 og þá yrðu þeir að koma inn af landslistum flokka, þar sem þá eina mætti bjóða fram, sem hvergi væru frambjóðendur í kjördæmum. Annars væri best að binda sig eingöngu við eina kosningaað- ferð. Um þingmannatölu kjördæma verður náttúrlega altaf ágrein ingur. Með þessu móti eru til- tölulega litlar breytingar í því efni en útilokað svo 'gífurlegt ósamræmi, sem nú er milli hjeraða. Uppbótarmennina verð ur að svifta þeirri aðstöðu og freistni að skoða sig sem kjör- dæma þingmenn. Ætla má, að helsta m ítbáran gegn þessu fyrirkomuia i verði sú, að kjördæmin sjeu of lítil til þess að hlutfallskosning njóti sín. Til þess að halda því fram, hafa þeir þó einna versta aðstöðu, sem komið hafa því í lög, að viðhafa hlutfallskosning ar til sýslunefnda um land alt, þar sem þó er ekki kosinn nema einn maður í stað. Því komu þeir á 1936 Framsóknarmenn og Alþýðuflokkurinn og hefir það gilt síðan og mjög víða verið notað, þó eigi sje það ófrávíkjanleg skylda. Vera kann, að einhverja furði á því að ætla Vestmanna eyjakaupstað 2 þm., en því er til að svara, að hann er nokk- uð sjerstæður og verður tæp- lega sameinaður öðrum hjer- uðum. Kjósendafjöldi er nokk- uru meiri en í Rangárvalla- sýslu nú, og fer þó bilið að lík- um vaxandi. Hann mundi og verða líkur og N.-Múlasýslu, með Seyðisfirði og hærri en í báðum Skaftafellssýslum. Auk þess má á það benda ,að síðan uppbótarsæta kerfið var lög- leitt, hefir altaf verið uppbótar þingmaður úr Vestm.-eyjum. Jeg slæ þessari tillögu fram til þess að koma hreyfingu á máíið. Mjög almenn óánægja er með núv. skipan og fyrst taka á stjórnarskrá Islands til gagngerðrar endurskoðunar, þá er nauðsyn á að þetta við- kvæma mál sje rætt af hóf- semi og stillingu óður en það er tekið til afgreiðslu. — Komi margar tillögur fram, er úr meiru að velja fyrir Alþingi og að líkum betri úrlausnar von. - Akri, 24. júní 1947. Jón Pálmason. Hús og einstakar íbúðir í bænuxn og utan við bæinn, höfum .við til sölu. FASTEIGNASÖLUMIÐSTÖÐÍN Lækjargötu 10 B. Sími 6530 Síldarstúlkur, Nokkrar síldarstúlkur vantar á Söltunarstöð Jóns Hjalta líns á Siglufirði í sumar. Upplýsingar hjá Jöni Halldórssyni í sima 9127 og Gunn I ari Ásgeirssyni, síma 9437. BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.