Morgunblaðið - 15.07.1947, Qupperneq 1
16 síður
34. árgangur
155. tbl. — ÞriSjiuIagur 15. júlí 1947.
íaafoldarprentsmiðja h.f.
........ >
Lofthiti fer vaxandi um
allan heim
Skógar aukasl, jðhlar minka
STOKKHÓLMUR.
PRÓFESSOR Ilans Ahlmanrt, þektur sænskur landfræð-
ingur og jöklafræðingur, sem er nýkominn heim til Stokk-
hólms úr fyrirlestraför um Bandaríkin, segir, að lofthiti í
heiminum, jafnvel í hitabeltinu, fari stöðugt hækkandi.
Jöklarnir mitinka
Hann bendir á það, að jökl-
arnir í heimskautslöndunum
bráðni stöðugt og sjórinn hitni.
Þetta valdi því, að ýmsar fisk-
tegundir leggja leiðir sínar norð
ar en liingað til. Rekísinn nái
ekki yfir jafn stórt svæði og á
undanförnum árum. Þannig sje
nú hægt að skipa kolum út í
Spitzbergen 200 daga á ári
hverju, en ekki nema 95 daga í
byrjun þessarar aldar.
Skógar vaxa.
Þetta batnandi veðurfar hafi
einnig valdið því, að skógar sjeu
farnir að vaxa á svæðum, sem
áður voru skóglaus. Og upp-
skera sje orðin góð á breiddar-
gráðum, þar sem áður fjekkst
ekki ne'ma ljeleg uppskera. Veð-
urfarið hafi einnig breytst með
svipuðum hætti í hitabeltislönd-
únum, enda þótt menn taki þar
ekki eins mikið eftir því, að
hitinn fari vaxandi.
Árni Helgason frá
Chicago kominn
ÁRNI HELGASON verk-
smiðjueigandi í Chicago, frú
Kristín kona hans, uppeldisdótt
ir þeirra hjóna, ungfrú Eileen
Jóhannsson og ungfrú Velma
Peterson, komu hingað til lands
s.l. föstudag með flugvjel frá
Ameríku.
Þau ætla að dvelja hjer á
landi og ferðast um landið fram
undir 20. ágúst.
indverska sprn-
lagaþingið kemur
saman
New Dehli í gær.
INDVERSKA stjórnlagaþing
ið kom saman til fyrsta fundar
síns í tvo og hálfan mánuð í
New Dehli í dag. Áttatíu nýir
þingmenn unnu embættiseið
sinn, en þingið mun nú að nýju
hefja umræður um stjórnarskrá
Óeirðir*halda enn áfram víða
í Indlandi. Voru í dag átta
ihenn drepnir en þrír særðir í
árás á þorp nokurt um 80 míl-
um frá Lahore, en í þeirri borg
fundust í dag lík tveggja manna
sem myrtir höfðu verið í húsi
sínu. — Reuter.
París í gærkvöldi.
STÖRFUM Parísarráðstefn-
unnar hefur miðað svo vel á-
fram, að jafnvel er búist við að
Bevin utanríkisráðlierra, full-
trúi Breta, muni sjá sjer fært
að hverfa heim á morgun
(þriðjudag) eða miðvikudag.
Fjórar nefndir hafa verið skip
aðar á ráðstefnunni til að
kynna sjer efnahagsmál
Evrópulanda. Starfar ein að
rannsóknum matvæla og land
búnaðarmála, önnur fjallar
um stál og járnframleiðslu, sú
þriðja um flutninga og loks sú
fjórða um kol og raforku.
— Reuter.
_ _ 0
Fresia verkfallinu
enn
París í gærkvöldi. ,
STJETTARSAMTÖK starfs-
manna rikis og bæja í Frakk-
landi ákváðu í kvöld á fundi að
láta ekki að svo stöddu koma til
verkfalls þess, sem vofað hefur
yfir undanfarna daga og hefj-
ast átti á morgun (þriðjudag).
Ef til verkfalls þessa kemur
— sem nú verður að minnsta
kosti ekki fyrstu þrjá til fjóra
dagana — munu að minnsta
kosti milljón manns leggja nið
ur vinnu. — Reuter.
Laumuðusf fil
Bandaríkjanna
í flugvjel
New York í gærkvöldi.
TVEIR sænskir unglingspilt
ar, sem komust sem leynifar-
þegar í flugvjel til Bandaríkj-
anna fyrsta júli s.l., voru 1 dag
sendir af stað flugleiðis til baka
til Stokkhólms.
Piltarnir hafa verið í haldi
á Ellis Islandi tíma þann, sem
þeir hafa dvalið í Bandaríkjun
um. Þeir sögðu blaðamönnum
að þeim þætti leitt að þurfa að
fara svona snemma, en það ótt
uðust þeir mest, sögðu þeir lolcs
að flugfjelagið, sem þeir voru
leynifarþegar hjá, kynni að
krefja þá of hárrar borgunar
fyrir flugferðina. — Reuter.
Ný skæruliðaárás í Norð-
ur Grikklandi á sunnudag
56.090 gesfur Landbúnaðarsýningarinnar
Þessi mynd er tekin er Kristjón Kristjónsson framkvæmdar-
stjóri Landbúnaðarsýningarinnar afhendir 50.000 gesti sýning-
arinnar, Erlendi Árnasyni bónda að Skíðbakka í Landeyjum,
kassa með hinum vandaðasta silfurborðbúnaði í, fyrir sex manns.
(Ljósm.: Morgunblaðið).
Fjöldi skipa bíða eftir löndun
Sölfun héfsf um miðnætfi í nóff
FRÁ ÞVÍ á laugardagskvöld fram til seinni hluta dagsins í
gær komu 115 skip til Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði
flest með fullfermi. Yfir 50 þúsund mál hafa komið á land á
Siglufirði og 21 þús. á Hjalteyri. —- Mörg skip bíða löndunar,
enda þótt stanslaust sje unnið.
SÖLTUN HAFIN. «>
Yfir helgina var öll síld settj
í bræðslu, en um miðnætti í nótt
var síldarsöltun hafin.
Síldin hefur veiðst mest fyrir
vestan Skugga, en annars er
hún alls staöar fyrir vestan
Eyjafjörð, hefur veður á mið-
um verið gott og er útlit fyrir
að það haldist.
HJALTEYRI.
Á Hjalteyri hafa þessi skip
laridað. Sindri 1494 mál, Sædís
1092, Alden 1026, R'ifsnes 1454,
Fell 1382, Ólafur Bjarnason
1431, Álsey 1389, Sæfell 1852,
Hvítá 912, Súlan 950, Sverrir
939, Fagriklettur 925, Arin-
björn 625, Ingólfur 570 og síð->
ast Eldborg með 1287 mál.
Forsætisráðh&rra
Aibaníu í Moskva
Moskva í gær.
F0RSÆTISRÁDHERRA Al-
baníu kom flugleiðis til Moskva
í dag. Þeir Molotov og Vishin-
sky tóku á móti honum á flug-
vellinum.
Ofsóknir í Rúmeníu
London í gærkvöldi.
HECTOR McNeil, innanrík
isráðherra Breta skýrði frá því
í dag, að breska stjórnin væri
að athuga, hvað hún gæti gert
til þess að koma í veg fyrir of-
sóknir rúmenskra stjórnarvalda
á hendur þeim rúmenskum
borgurum sem starfa fyrir
bresk olíufjelög í Rúmeníu.
McNeil sagði, að Rúmeníu-
stjórn beitti einkum þeim að-
ferðum að saka fólk þetta um
skemdarstarfsemi og „ólýðræð-
islegt athæfi“ og flæma það að
því loknu úr húsum sínum og
íbúðum. — Reuter.
Madame Lupescu
Rio de Janeiro í gærkvöldi.
MAGDA Lupescu, sem ný-
lega giftist Carol, fyxverandi
Rúmeníukonungi, og hefur um
hríð legið alvarlega veik í Rio
de Janeiro, er nú af læknum
talin úr hættu. Hefur henni
batnað vel siðustu daga.
— Reuter.
Árásamenn komu
frá Albaníu
Aþenu í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter,
GRÍSKA utanríkisráðuneytið
tilkynti í dag, að þúsund manna
lið hafi í gær ráðist frá Alban-
íu inn í Grikkland og gert árás
á borgina Koritsa. Skæruliðar
þessir, sem verið munu hafa
bæði grískir og albanskir, kom-
ust þó aldrei inn í borgina, og
þegar síðast frjettist, var hún
úr hættu, en árásarmennirnir
höfðu hörfað undan yfir brú
nokkra um sex mílum frá Kor-
itsa. Stjórnarhersveitir hjeldu
þar uppi stöðugri skothríð á
árásarmennina.
Meiri handtökur.
Opinber grísk frjettastofa til-
kynnir í þessu sambandi, að
gríska stjórnin hafi skýrt sendi-
herra Bandaríkjanna í Aþenu
frá ofangreindum atburðum. —
Handtökum heldur hins vegar
áfram í höfuðborginni grísku,
og munu um 1,500 manns hafa
verið handteknir um helgina. Er
þetta til viðbótar þeim 2,500,
sem áður höfðu verið teknir,
og er frá því skýrt, að Grikkja-
stjórn hafi hafið undirbúning
jafnvel öflugri ráðstafana, ef
kommúnistar skyldu reyna að
efna til uppþota, eða skæruliðar
gera tilraun til að stofnsetja
,,frjálsa“ stjórn í norðurhluta
landsins.
Gríska stjórnin kom saman
til aukafundar í dag, til þess að
ræða atburðina undanfarna
daga.
Balkannefndin.
Balkannefnd Sameinuðu þjóð-
anna, sem stödd var í Saloniki,
lagði í dag af stað flugleiðis til
albönsku landamæranna. Mun
hún rannsaka bardagana þar og
leggja áherslu á að kynna sjer,
hvort erlendir menn hafi tekið
þátt í árás skæruliðanna í gær.
SíðusSu frjeftlr
Síðustu fregnir herma, að
2500 skæruliðar hafi snemma í
/
morgun ráðist frá Albaníú inn
yfir grísku landamærin og gert
árás á bæ nokkurn andspænis
eyjunni Corfu. Gríski forsætis-
ráðherrann hefur í sambandi við
þessa nýju árás átt skyndifund
með hinum þremur hervarnar-
ráðherrum stjórnarinnar.
WINDSOR, ONTARIO — Tólf
manns fórust nýlega, er 7,000
tonna skip sökk á Lake Superi-
or, Kanada.