Morgunblaðið - 15.07.1947, Page 2

Morgunblaðið - 15.07.1947, Page 2
2 MOKGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 15. júlí 1947 J STEINUNN FRÍMANNSDÓTTIR í DAG fer fram kveðjúathöfn hjer í Reykjavík vegna andláts frú Steinunnar Frímannsdótt- ur og brottflutninngs jarð- neskra leifa hennar til Akur- eyrar, þar sem þær verða jarð- settar í gröf hjá líkkistu manns hannar, Stefáns skólameistara Stefánssonar, hins frábæra kennara og ágæta leiðtoga, er Norðlendingar munu lengi minnast. Viðskilnaður frú Steinunnar .mun engum hafa komið á óvart. Hún var orðin Ráöldruð þegar hún ljest, nær hálfníræðu. Og hún hafði tekið ólæknandi sótt, er hún bar eins og hetja til hinstu stundar. All an ævidaginn hafði hún unnið af sjaldgæfum styrk og áhuga, :frá því að hún horfði hinum jhreinu bláu barnsaugum yfir llelgavatn og þangað til lífs- orkan fjaraði svo, að hún gat ekki lengur vérið á fótum og haít verk í hendi Líf hennar var framkvæmd og þrekmann leg útlegging orðanna alkunnu: Vinnum meðan dagur er; nótt- :ln kemur, þá enginn getur unnið. ★ Þegar frú Steinunn varð átt ::æð, 1943, skrifaði Sigurður prófessor Nordal grein um aana og leyfi jeg mjer að taka hjer upp það, sem liann segir ,im ætt, uppruna og menntun hennar í greininni: „Steinunn er fædd að Helga- vatni í Vatnsdal 12. maí 1863 Þar bjó Frímann faðir hennah, en báðir foreldrar hans voru Eyfirðingar að ætt og uppruna Olafur Jónsson, Arinbjarnar- sonar, og Sigríður Guðmunds- dóttir frá Fornhaga, systir Vatnsenda-Rósu. Ólafur var um langt skeið ráðsmaður hjá Stefáni amtmanni Þórarinssyni á Möðruvöllum í Hörgárdal en fluttist þaðan vestur í Húna- vatnssýslu og bjó siðast á Gils- stöðum í Vatnsdal. Kona Frí- manns Ólafssonar og móðir Steinunnar, var Jórunn, dóttir Magnúsar Pálssonar og Odd- rúnar Jónsdóttur. Magnús var sonarsonur Þórðar Pjetursson- ar kembara og bjó í Holti í Þingholtum í Reykjavík, þar sem nú er Ingólfsstræti. Mikill frændbálkur stendur að frú Steinunni á báða vegu og margt af tápmiklu fólki, þótt hjer verði það ekki rakið. Steinunn fór seytján ára gömul til Reykjavíkur og var þrjá vetur á heimili Jóns rekt ors Þorkelssonar. Sigríður Jóns dóttir rektorsfrú var annáluð myndarhúsfreyja og þótti heim ::li þeirra hinn besti skóli fyrir angar stúlkur. Síðar dvaldist Steinunn í Kaupmannahöfn 1886—’87 og nam þar enn mat reiðslu hannyrðir og aðrar kven legar listir. Munu fáar íslensk ar bændadætur á þeim tíma hafa notið betri menntunar“. ★ Tutíugu og fimm ára gömul giftist frú Steinunn Stefáni Stefánssyni, kennara við gagn- fræðaskólann á Möðruvöllum í Hörgárdal. Næsta ár tóku þau Stóru-Brekku til ábúðar, en áttu þó heima á Möðruvöllum og þar fóru þau að búa á hálfri jörðinni 1890, en höfðu þá jafn framt afnot af Heiðarhúsajörð MINNINGARORÐ á Þelamörk. Seinna fengu þau Möðruvelli alla til ábúðar og næstu jörð, Björg. að auki. Eft ir brunan mikla á Möðruvöll- um 1902, var skólinn fluttur til Akureyrar og sex árum seinna var Stefán kennari Stefánsson skipaður skólameistari við gagnfræðaskólann þar, er Jón Hjaltaíín ljet af skólastjórn. Búinu á Möðruvöllum hjeldu þau hjónin eigi að síður til árs ins 1910. Eftir það höfðu þau á Akureyri aðeins nokkur jarð arafnot sjer til heimilisþarfa. Stefán skólameistari andað- ist árið 1921. Eftir það dvaldist frú Steinunn fyrst um sinn á Akureyri, en seinna lengst af hjá dóttur sinni, frú Huldu á Þingeyrum, en stundum hjá syni sínum, Valtý ritstjóra. Eft ir að frú Hulda tók að sjer for- stöðu Húsmæðraskólans í Reykjavík settist frú Steinunn að hjer að fullu og öllu. Hún andaðist fimmtudaginn 10. júlí síðastliðinn. Sigurður prófessor Nordal segir í áðurnefndri gfein, að frú Steir.unn hafi tvímælalaust verið ein af bestu búkonum landsins um sína daga og myndi hafa gert hvern garð frægan með umsýslu sinni og myndarskap. Þeir, sem til þekkja vita vel, að þetta er ekki ofmælt. ★ Eins og kunnugt er,' höfðu þau Stefán kennari og frú Steinunn stórbú á Möðruvöll- um. Staðurinn var skóla- og kirkjusetur og stóð í þjóðbraut. Heimilisfólk var um 25—30 manns, og gestaönn var mikil. Á sumrum var kaupstaðarbörn um komið þangað til dvalar, en á vetrum þurfti að annast um mötuneyti skólapilta. Bústörf og heimilisverk kröfðust því sterkrar stjórnar og mikillar fyrirhyggju, sem hvorttveggja fjell að mildu leyti í hlut frú Steinunnar. Bóndi hennar, Stefán kennari, varð löngum að vera fjarverándi á sumrum vegna grasafræðirannsókna, þingsetu eða annarra starfa er alþjóð varðaði. Það kom sjer þess vegna vel fyrir þetta stóra heimili, hve frábærlega stjórn- söm frú Steinunn var. Þegar eitthv-að þurfti að framkvæma varðandi búskapinn og heimilis störfin, virtist hún hafa ger- hugsað-verkið áður en það var hafið. Það lá jafnan opið fyrir henni, hversu störfum skyldi haga, hvort sem þau voru utan húss eða innan, og hún ljet vinna þau af svó mikilli fyrir- hyggju og hagsýrri að ekki varð á betra kosið. Sjálf var hún til þrifamikil, bráðskörp og ósjer lilífin við öll verk. Þorsteinn hjet ráðsmaður þeirra hjóna. Hann var ötull og hreinlyndur heiðursmaður sem öllum á Möðruvöllum var vel við, hollur og trúr þeim hjón- um I hvterri grein. Var frú Steinunni mikil hjálp að hafa slíkan verkstjóra, sem hann var. ★ Fyrir meira en hálfum Stcinunn Frímannsdóttir. fimmta tug ára, þegar Þorsteinn var ráðsmaður á Möðruvöllum, var jeg sumarlangt kaupamað- ur þar. Þetta sumar var Stefán kennari sama og ekkert heima. Tún jarðarinnar er geysistórt, sljett að mestu og víða fljót- slegið. Þegar þerrir kom eftir þurkle%sur, var hart á því, að vinnufólkið gæti komið því af, að setja allt hey, sem þornaði, upp í bólstra eða inn í hlöður. En þegar svo bar undir, kom frú Steinunn stundum út á völl- inn, og það munaði um hana. Ilún gekk með fumlausum fasta tökum að samantekningu heyj- anna, og það hygg jeg, að eng- inn hafi þar unnið skarplegar en hún. Og auðsætt var, að glaðlyndi hennar og vinnuáhugi fjörgaði og hvatti allan hóp- inn. Um önnur vinnubrögð frú Steinunnar er mjer ekki kunn- ugt af eigin sjón. En um það hefi jeg bestu heimildir, að hún hafi gengið að allri vinnu með sama áhuga og myndarbrag og samantekningunni forðum. Og hún Ijet sjer ekki nægja bú- stjórnina eina og heyvinnu til ígripa, heldur gekk hispurslaust að hvers konar útivinnu, sem aðkallandi'var. Henni var mjög ógeðfellt að sjá fólk vinna með hangandi hendi og gat ekki sætt sig við það, að amboð og ill verkfæri stælu úr vinnu manna. Þess vegna varð hún frurnkvöð ull þess, að Sveinbjörn Jóns- son byggingameistari gerði hríf ur úr alúminíum og að alúmín- um hrífugerð var stofnuð 1932. Það er því henni fyrst og fremst að þakka að sveitafólkið hefir um allmörg undanfarin ár haft traustari og ótafsamari verk- færi til rakstrar. Frú Steinunn var og mikill vinur blóma og trjágróðurs, og liinn fagri garður sunnan og austan við menntaskólann á Akureyri naut hennar handa og umönnunar fyrstu árin, sem þar festu rætur laufviðir, barr- trje og blóm. Við þessa gróðuriðju var hún á sumrum, þegar búsannir leyfðu og eftir að hún flutti til Akureyrar, en á vetrum var hún meðal annars við tóvinnu, sem mikið orð fór af. Var slík vinna henni mikil dægradvöl eftir að hún tók að eldast og haföi minna um að hugsa. Hefár mjer verið sagt að tóvinna henn ar hafi verið svo mikið afbragð að vart verði til hennar jafnað. Og svo var vinnugleði hennar mikil og áhugi óslökkvandi, að hún prjónaði á þriðja par af leistum síðasta daginn, sem hún var á fótum eða sex dögum áð- ur en hún andaðist. Þegar land- búnaðarsýningin var opnuð, hafði hún mikinn hug á að sjá hana, einkum tóvinnu og fleira, sem henni var hugleikið, og tók hún þá að æfa sig á því að ganga hratt upp og niður stiga með sömu einbeittni og óvork- unlæti við sjálfa sig og venju- legt var, til þess að venja sig I við árcynsluna áður en hún ■ færi á sýninguna næstu daga. ( En ekki má sköpum renna. Ef j til vill hafði hún ofreynt sig. i Sjúkdómurinn lagði hana í rúm ið og hún sá aldrei sýninguna. * Frú Steinunn var í hærra lagi, íturvaxin, teinrjett og bar sig vel, glaðleg og sköruleg í framgöngu. Hún var fríð sýn- um, en mesta athygli vöktu og sjaldgæfust voru augun: ÞaU voru heiðblá og úr þeim skein svo mikil einlægni og hrein- skilni, að slíkt mætir manni örsjaldan, nema í augum ó- | spiltra barna. Þessi hreinskilnis legu augu lofuðu heldur ekki öðru en því, sem viðkynningin við frú Steinunni efndi og stað- festi. Einum þeirra manna, sem best hafa þekkt hana, fórst' meðal annars orð um hana hjer um bil á þessa leið: Hún átti heilsteypta og und- ansláttarlausa skapgerð og var svo hreinskilin og hreinskiftin við alla menn, að jeg hefi naum ast þekkt annað eins. Ef hún var sannfærð um að einhver hefði sýnt henni vinsemd eða gert á hluta hennar, þá varð hún að segja viðkomandi frá þökk sinni eða vanþóknun við fyrsta tækifæri. Og þótt tæki- færið gæfist ekki fyrr en tug- um ára seinna, þá mundi hún allt, sem henni þótti vansagt og ljet það þá í ljós. Hún átti í ríkum mæli skapeinkenni sem hafa haldið íslensku þjóðinni lifandi gegnum hörmungar lið inna alda: Sterka sjál fsvitund, sjálfsbjargarhvöt og sjálfstæðis kennd, sem aldrerhvarflaði frá. Framh. á bls. 7 Halldéra Bjamadótlin Nokkur kveðjuorð HJER er merk kona horfin af landi lifenda. Steinunn Frímannsdóttir var fædd og uppalin í Vatnsdaln- um okkar fagra og frjósama í fríðum systrahóp, og æfinlega fannst mjer hún bera þess merki í framgöngu og fasi. Hún var'glöð og hress jafnan, elsk- aði alt fagurt og frjálsmann- legt enda sjálf falleg og smekk kona hin mesta. Jeg gleymi ekki fyrstu samfundum okkar Steinunnar. Það var hjá Jóni rektor Þorkellssyni. Hún var þá nýkomin frá Danmörku brosmild og fríð, vel búin eins og ætíð síðan. Jeg var þá barn að aldri, en hún í blóma lífsins. Og eiginlega hefir Steinunn jafnan staðið mjer þannig fyrir hugskotssjónum eins og þarna hjá rektor: framkoman prúð og glæst. Næstu samfundir okkar voru 1899 á Möðruvöllum í Hörgár- dal. Þá var Steinunn þar hús- freyja við hlið síns ástkæra eiginmanns Stefáns Stefáns- sonar kennara, og stjórnaði á- samt honum umfangsmiklu og mannmörgu heimili með hin- um mesta skörungsskap. Jeg dvaldi aðeins einn fagr- an sumardag á þessu glæsilega heimili, gleými aldrei þeirri hlýju, og samúð, sem mjer var sýnd. — Enn liðu árin og við skiftum báðar um verustaði og urðum um mörg ár samtíða á Akureyri. Heimili þeirra góðu lijóna var mjer á þeim árum hinn ágætasti og öruggasti bak- hjarl í skólastjórastarfi mínu. Hjá þeim naut jeg jafnan stuðn- ings og hollra ráða. Enn gerði Steinunn garðinn frægan. Hið fagra skólameist- araheimili varð víðfrægt fyrir greiðasémi og glæsibrag í hví- vetna. Og munu þeir margir sem minnast heimilisins frá þessum árum og hinar sköru- legu húsbænda sem með gest- risni, gleði og virðuleik urðu gestunum hugstæð og kær. •—- Steinunn stóð við hlið hins á- gæta og áslsæla eiginmannss síns með hinni mestu alúð og prýði í hvívetna. Blómaskrúðið inni og úti bar húsfreyjunni fagurt vitni og tóvinnan prýði- lega þá ekki síður, hvorttveggja bar af svo fágætt var. Alt ljek í lyndi. Húsfreyjan var glöð og sterk og naut lífsins með góð- um vinum. En þegar langvar andi sjúkdómar steðjuðu að og síðar dauði elskulegs eigin- manns sýndi sig best hið mikla þrek og stilling Steinunnar. Enginn sá henni bregða, húrs ljet ekki bugast, brá sjer hvorkj við sár nje bana, þrátt fyrir næmar og sterkar tilfinningar. í ekkjudómi sínum var Stein- unn í skjóli barna sinna og naut ástríkis þeirra. En hún mun í rauninni hafa álitið að lífs- starfi sínu væri lokið með frá- falli hins elskaða maka. Jeg þakka kærlega margra ára vin- áttu og tryggð sem aldrei brást. Steinunn var með afbrigðum trygglynd, hún var ekki eitt I dag og annað á morgun, hún kastaði ekki utan á sig tilfinn- ingum sínum og ljet ekki smá- óþægindi lífsins á sig fá. Hún var dul í skapi en jafnan glöð og reif í vinahóp. Hún var sterk í blíðu og stríðu. Hún var sann ur Islendingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.