Morgunblaðið - 16.07.1947, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ'
Miðvikudagur 16. júlí 1942]
Bræðslnsíldarverðið var ákveðið
með fiskábyrgðarlögum
Áka Jakobssonar
Bræðslusíldarverðið í sumar
var ákveðið með fiskábyrgðar-
lögum Áka Jakobssonar, fyr-
verandi atvinnumálaráðherra.
í 6. gr. þeirra laga segir svo:
„Til þess að standast þau út-
gjöld, sem kann að leiða af
ábyrgðum samkv. 2.—4. gr.,
skal ríkisstjórnin halda eftir og
'leggja í sjerstakan tryggingar-
«jóð þann hluta af söluverði
síldarafurða 1947, sem er um-
fram hrásíldarverð eins og það
var 1946, að viðbæitri hækkun,
er svarar til fiskverðshækkun-
ar samkv. 1. gr. og vinnslu-
kostnaði.
Nú verður afgangur af fje
tryggingarsjóðs, og skal hann
jþá greiðast útvegsmönnum og
sjómörinum að tiltölu við síld-
arafla hvers skips.“
Hækkun sú á fiskverðinu,
sem umræðir í þessari laga-
grein nam 30% af fiskverðinu.
Hækkunin á bræðslusíldar-
verðinu á skv. lögunum að vera
;sú sama þ. e. 30% eða úr kr.
31,00 upp í kr. 40,30 málið.
Uppbót gréiðist því aðeins að
afgangur verði áf fje trygging-
arsjóðs, en til þess eru litlar
líkur.
Horfur eru á að fje það, sem
greitt vei'ður af bræðslusíldar-
afurðum í tryggingarsjóð muni
ekki hrökkva neitt svipað því
fyrir þeim útgj.öídum, sem ríkis
sjóður verður fyrir vegna á-
byrgðarinnar á fiskverðinu og
því muni ekki verða lim neina
uppbót á bræðslusíldarverðinu
að ræða.
Til þess að nokkur afgangur
verði á bræðslusíldarafurðun-
um, er geti runnið í trygging-
arsjóð fiskverðsins, verður
bræðslusíldaraflinn að vera
meiri en hann hefir mestur orð-
ið áður þ. e. 1650 þúsund mál.
Áki Jakobsson, fyrverandi
atvinnumálaráðherra flutti frv.
iim fiskábyrgðina á Alþingi
/yrir jól s. 1. vetur. Þóttist
kommúnistaflokkurinn leggja
svo mikið upp úr samþykt lag-
anna að tilkynnt var með miklu
yfirlæti, að þeir myndu draga
ráðherra sína úr stjórninni ef
ábyrgðin væri ekki samþykt
fyrir áramót. Þeir voru nú
reyndar búnir að segja af sjer
út af flugvallarmálinu, en nú
átti að fara strax, ef ekki væri
brugðið við.
Talið var sennilegt að fisk-
ábyrgðin myndi kosta ríkissjóð
ívo eða þrjá milljónatugi króna.
Skv. frumvarpi Áka átti hvergi
að taka peningana
Slík ábyrgð á fiskverðinu
hefði vérið markleysa.
Á fundi Landssambands út-
vegsmanna, sem haldinn var í
desember í Reykjavík skýrði
Lúðvík Jósefsson, alþingismað-
ur frá því, að samkomulag væri
orðið milli stuðningsflokka fyrr
verandi ríkisstjórnar um ábyrgð
áj fiskverðinu gegn verðjöfn-
wn á bræðslusíldarafurðir sbr.
6. grein laganna.
Þegar til kom sviku flokks-
menn þessa alþingismanns þó
samkomulagið og framsókn var
á móti þessari leið til að afla
fjár til að standa straum af
ábyrgðinni. — Úrslit á Alþingi
urðu því tvísýn og leit út fyr-
ir, að frumvarpið myndi falla.
Á síðustu stundu lánuðu komm
ar Hermann Guðmundsson til
þess að fleyta 6. greininni í
gegn til þess ríkissjóður fengi
tekjuvon í bræðslusíldarafurð-
unum, ef vel gengi til þess að
mæta útgjöldum, er hann yrði
fyrir vegna fiskábvrgðarinnar.
Aðstoð Hermanns Guðmunds
sonar reið baggamuninn og frv.
Áka var samþykkt með þessari
breytingu.
. Síðan tók Áki ábyrgð á lög-
unum með því að undirrita þau
sem atvinnumálaráðherra, sbr.
stjórnartíðindi 1946 A. 5. bls.
246.
Það kemur því úr hörðustu
átt, þegar málgagn þessa fyrrv.
ráðherra, eða hann sjálfur,
ræðst að stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins fyrir að fara eft
ir lögum, sem hann ber stjprn-
skipulaga ábyrgð á að sett
voru.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkis
ins hefur aldrei ákveðið síld-
arverðið. Það hefur, þar til í
ár, verið ákveðið af atvinnu-
málaráðherra skv. tillögum
verksmiðjustj órnarinnar.
Verðið í sumar var ákveðið
með fiskábyrgðarlögum Áka
Jakobssonar.
Núverandi atvinnumálaráð-
herra skýrskotaði til þeirra
laga um ákvörðun bræðslusíld-
arverðsins í sumar.
Framkvæmdarstjóri SR á-
ætlaði, að kr. 4,00 á mál yrði
afgangs til að leggjast í trygg-
ingarsjóð skv. 1. nr. 97/1946,
ef SR fengju eina milljón mála,
en það er sama magn og áætl-
að var í fyrra. Sú áætlun var
samþykkt af Áka Jakobssyni og
Þóroddi Guðmundssyni.
í fyrrá bárust SR ekki nema
um 437 þúsund mál og 155 í
hitteðfyrra og mest hafa SR
tekið á móti 920 þús. málum á
einni vertíð.
Þóroddur Guðmundsson, full-
trúi kommúnista í stjórn SR,
barmar sjer mjög yfir því að
hafa ekki verið kvaddur til að
ræða um rekstursáætlun Síld-
arverksmiðja ríkisins í sumar.
Um það bil sem verkföllin
voru að hefjast tilkynnti Þór-
oddur, að hann gæti ekki mætt
á fundum verksmiðjustjórnar-
innar fyrst um sinn og sagðist
hafa tilkvatt varamann sinn.
Varamaður Þórodds, Harald-
ur Guðmundsson skipstjóri,
Isafirði, mætti á tveim fundum,
en sagðist síðan verða að fara
til að búa skip sitt á veiðar.
Formaður stjórnar SR óskaði
síðan margsinnis eftir við Þór-
odd, að hann kæmi á fundi í
verksmiðjustjórninni, en Þór-
oddur mátti ekki vera að því
hann færastan manna til að sjá
um að þau hjeldu áfram, svo
verksmiðjurnar yrðu í sem
mestu ólagi í vertíðarbyrjun.
Þegar fulltrúi kommúnista
veit* ekki hvað gerst hefir í
verksmiðjustjórninni í fjarveru
hans, hefur hann aðeins flokk
sinn um að saka,. því að fyrir
ímyndaða hagsmuni kommún-
istaflokksins en síst til hags-
bóta fyrir Síldarverksmiðjur
ríkisins var hann að vinna
meðan brotthlaup hans úr
stjórn SR stóð, en því hlaupi
lauk um leið og verkföllunum.
RM —
myndlis! heitir
nýtt límarif
RM — Ritlist og myndlist
heitir nýtt tímarit sem hafið
hefir göngu sína. Ritstjóri þess
er Gils Guðmundhson.
Mun ritið bæði flytja innlent
og erlent efni og koma út ann
an hvern mánuð. Efni þessa
fýrsta heftis er sem hjer segir:
Ávarpsorð útgefenda, Auðunar
þáttur vestfirska, Um Auðun-
ar þátt, eftir Einar Gl. Sveins-
son. Smámunir, smásaga eftir
Hjalmar Rergman, Ölafur hlíð
an, kvæði eftir Jón úr Vör, Lif
andi vatn, eftir James Hanley,
Hamskipti, saga eftir Anton
Tsékoff, Flugur, smásaga eftir
Þóri Rergsson, Tvö kvæði, eft-
ir Andrjes Rjörnsson, grein um
Pahlo Picasso með myndum
af verkum hans, Munir, eftir
D. H. Lawrence, Jörðin Dagur
inn, Nióttin — jeg, saga eftir
William Saroyan, Mannslát,
saga eftir Wladyslaw Reymont
Gamalt hrjef, eftir Reiner
Maria Rilke, Helgisaga, eftir
Gottfried Keller, Rænastund,
eftir Albert Engström, Spænski
Arfurinn, eftir Margrjetu af
Navarra og Rankaviðskifti mín
eftir Stephen Leacock. — Enn
fremur fylgja teikningar flest
um greinum ritsins.
Indlandsfrumvarpið
staðfes! á fösiudag
London í gærkveldi.
FRUMVARPIÐ um sjálf-
stjórn Indlands var til síðustu
umræðu í neðri málstofu breska
þingsins í dag, Fullkomin ein-
ing var um málið. Við umræð-
una tók Sir Stafford Cripps til
máls, og lýsti þýðingu sjálf-
stjómar Indverja. Við lok um-
ræðunnar flutti Attlee forsætis-
ráðherra stutfa ræðu. Þakkaði
hann stjórnarandstæðingum
einhug þeirra og skilning á
nauðsyn fljótrar afgreiðslu
málsins. — Á morgun fer frum-
varpið til lávarðardeildarinnar,
og er þess vænst, að það geti
orðið afgreitt þar svo fljótt, að
hægt verði að leggja það fyrir
vegna verkfallanna á Siglu- konung til staðfestingar á föstu
firði, því flokkur hans taldi | daginn. — Reuter.
Snerrir var með full-
fermi er hann sökk
-'s*
Skipstjóri og stýrimaðurvita ekki ástæðuna
SKIPSTJÖRI og stýrimaður á ms. Snerrir, er sökk á Skaga-*
grunn s.l. laugardagskvöld, gáfu Sjórjetti skýrslu sína í gær,
Hvorugur þeirra gat gefið nokkra sjerstaka skýringu á því,
hvað það var er varð þess valdandi að skipið sökk.
Sjórjettur tók til starfa klukk
an 2 í gær og klukkan sex í
gærkvöldi var rjettarhöldum
frestaö til kl. 10. árd. í dag.
Fyrir rjetti í gær mættu að*
eins skipstjórinn, Jón Sigurðs*
son og bróðir hans, Vilhelm
Sigurður Sigurðson, er var
stýrimaður á Snerri.
Það sem fram kom við rjetí
ar höldin í gær, var meðal anrí
ars það, að skipið var með því.
nær fullfermi um 1200 mál
síldar. Þá skýrðu þeir svo frá
að er byrjað var að háfa upp
úr síðasta kasti, sem var um
300 mála kast, hafi skipið verið
farið að gerast all óstöðugt.
Hvorugur þeirra taldi að áfram
haldandi háfun úr þessu síðasta
kasti myndi hafa neina hættu
í för með sjer. En þegar nokk
ur slatti var eftir í nótinni, tók
skipið að hallast enn meira yf
ir á stjórnborðshlið, en við hana
var nótin. Var sjór þá komhm
inn á lágdekkið frá hálfdekki
fram að háfunargrindinni, sem
var á miðju fordekki eins og
stýrimaðurinn kallaði þessi þih
för.
Aðalfundur B.Í.S.
AUKA-aðalfundur Randalags
ísl. skáta var haldinn dagana
4.-7. júlí. Sóttu hann 33 full
trúar frá skátafjelögunum auk
stjórnarinnar. Fundurinn var
settur að kvöldi föstudags í
Skátaheimilinum við Hring-
braut í Reykjavík en næsta dag
fóru þátttakendur austur að
Ulfljótsvatni til að vera þar
viðstaddir hátíðahöld kvenskáta
í tilefni af aldarfjórðungs af-
mæli þeirra. Var umræðufurid
um haldið þar áfram á sunnu
dag en lokið við aðalfundar-
störfin í Skátaheimilinu á
mánudagskvöld.
Eina málið sem aðalfundur
þessi tók til meðferðar voru til
lögur til nýrra laga fyrir banda
lagið, enda hafði sjerstaklega
verið til hans boðað í því skyni
eftir ákvörðun reglulegs aðal-
fundar á síðaslliðnu voru. All-
miklar umræður urðu um til-
lögurnar og var nefnd kosin til
að athuga þær og samræma
milli umræðufunda. Hlutu nið
urstöður nefndarinnar sam-
þykki með lítilsháttar breyting
um. Hjer má bæta því við, að
lögin ganga þá fyrst í gildi, er
næsti aðalfundur hefur aftur
samþjkkt þau óbreytt.
Hin nýju lög fela í sjer all
viðtækar breytingar á skipulagi
og yfirstjórn skátahreyfingar-
innar hjer á landi og eru þær
í fullu samræmi við útbreiðslu
hennar og framsækni á síðustu
árum.
I setningarræðu sinni minnt
ist skátahöfðinginn Rrynju
Hlíðar, kvenskátaforingja frá
Akureyri, er fórst á hinn svip
lega hátt í flugslysinu mikla
við Hjeðinsfjörð.
Bresku hermennimir
ófundnir
Haifa í gærkvöldi.
BRESKU hernaðaryfirvöldin
í Palestinu hafa nú framkvæmt
þá hótun sína að setja þorpið
Nathania undir hernaðareftir-
lit, þar sem ofbeldisflokkur Gyð
inga hefur ekki látið lausa þá
tvo breska hermenn, sem rænt
var í þorpinu á , laugardags-
kvöld. Hafa ofþeldismenn getið
þess, að hermennirnir hafi ver
ið teknir sem gislar fyrir þá
þrjá Gyðinga, sem dæmdir
hafa verið til dauða fyrir árás
ina á Aka-fangelsið, sem er tmd
ir stjórn Breta. — Bresldr her
menn og lögregla leita nú að
hermönnunum á allstóru
svæði umhverfis Nathania. All
margir Gyðingar hafa verið
handteknir í sambandi við leit
ina. Talið er, að tveir leiðtog
ar ofbeldisflokksins Irgun Zwai
Leumi sjeu meðal þeirra. —
Björgunartilraunir
árangu rlau sai*.
Gerðar voru tilraunir til þess
að rjetta Snerri við. Fagriklett
ur setti tóg í hið sökkvandi skip
en þær tilraunir báru ekki ár-
angur. Hjelt skipið nú áfram
að hallast yfir á stjórnborðsíðxs
og lagðist á hliðina svo að möst:
ur og yfirbyggíng námu við>
vatnsfjötinn. Skipsmenn vora
þá allir komnir í nótabátana og
rjett á eftir seig skipið niður að>
aftan og sölck.
Þar sem skipið liggur er 8Cjí
faðma dýpi.
Ekki um mishleðslu að raiða,.
Stýrimaður var að því spurS
ur, hvort hann teldi að mis-
hleðsla gæti hafá orsakað slys-
ið. Þessu svaraði Vilhelm net-
andi og sagðist hafa fullvissaS
sig um að svo vari ekki
skömmu áður en skipið sökk.
Hinsvegar skýrði stýrimaðurt
svo frá að skipið hefði verið
dautt undir farmi, þ.e.a.s. afi
aldan hreyfði skipið lítið. Sjór*
var þó ládauður. Þá skýrði
hann einnig frá því, að er 8
til. 900 mál hafi verið komin
í skipið varð það vangæft og
eftir það varð að gæta fyllstu',
varúðar við háfunina.
Ekkert athugavert.
Þá skýrðu þeir skipstjóri og
stýrimaður svo frá, að er þeir
tóku yið skipinu hafi þeir ekki
fundið neitt athugavert við það„
Nokkiar breytingar höfðu ver
ið gerðar á því áður en það hói:
síldveiðar, en ekki höfðu |>eir
neitt við þær að athuga.
Eins og fyr segir þá hefjasí
rjettarhöld að nýju í dag og
munu þá vjelstjórar gefa
skýrslu. Gert er ráð fyrir að
prófum í máli þessu verði lols
ið áfimmtuclag. j