Morgunblaðið - 18.07.1947, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.07.1947, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 18. júlí 194/, J 12 Lítíl afköst nfu verksmiðjanna HIN nýja síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði, hefur nú brætt sild síðan í s.l. viku og hafa meðalafköst hennar ver- ið rúmlega 3800 mál á sólar- hring, eða tæplega Vz fullra afkasta. Á miðvikudag vann verksmiðjan úr 2600 málum, en í gær úr 5700 málum. Sam- kvæmt uppl. bygginganefndar síldarverksmiðjunnar eiga full afköst að vera 12000 mál. Hinni nýju síldarverksmiðju á Skagaströnd hafa borist um 18000 mál síldar, en hafði í gærmorgun unnið úr aðeins 3500 málum, eða tæplega 1400 mála afköst á sólarhring. En jþað er um 1/5 af áætluðum af- köstum verksmiðjunnar. Meginhluti af síldarmjöli því, sem framleitt hefur verið í nýju verksmiðjunum á Skagaströnd og Siglufirði, er mjög fitumikið, lþar eð fituprósentan er milli 12 og 15, en má ekki í 1. flokks mjöli fara yfir 11%. :i34 þús. mál. SR 30 og SRP verksmiðjurn- ar á Siglufirði hafa unnið með S0—70% af fullum afköstum. Stafar ólag það sem á verksmiðj unum er, af töfum við undirbún íng reksturs þeirra, er hlutust verkfallinu. Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði hafa borist 134 þús- und mál. Unnið hefur verið úr 74 þús. málum, en um 60 þús- und eru í þróm verksmiðjanna. Á Snorriiáfíðiiia um Kaldadal FERÐASKRIFSTOFA ríkis- :ins efnir til ferða á Snorrahá- ííðina og verður farið bæði á laugardag og sunnudag. Á laugardag verður farið með Ibílum um Kaldadal til Reyk- holts. Lagt af stað hjeðan klukk an 3 e. h., en farið frá Reyk- holti á sunnudagskvöld og þá ekið til Reykjavíkur um Hval- fjörð. Enn er hægt að bæta við fólki í þessar ferðir. Á sunnudag gengst Ferða- skrifstofan einnig fyrir Reyk- holtsferðum og verður þá farið sjóleiðis til Akraness um morg- uninn og með bílum þaðan, en svo heim sömu leið um kvöldið. Mun enn vera hægt að fá far í þessum ferðum, en fólk skal var að við að fara sjóleiðina til .Akraness án þess að hafa keypt sjer far með bílum til Reyk- holts. Nýr uppdráffur af Indlandi VERIÐ er að ljúka við að gera nýjan uppdrátt af Indlandi, og verður hann sniðinn eftir breytingum þeim, sem gerðar verða á ríkjaskipun í landinu, er stofnuð verða tvö Sjálfstæð ríki, Pakistan og Indland. — Breska stjórnin og varakonung- ufinn leggja áherslu á það, að atlur ágreiningur, og þá ekki sjst ágreiningur um landamæri ríkjanna, verði úr sögunni, er endanlega verður gengið frá valdaafsali Breta í Indlandi, 15. ágúst næstkomandi. — Reuter. Noregsför ungmennafjelagnnmi íslendingarnir í skrúðgöngunni í Bergen. MÁNUDAGINN 2. júní var .Tvilde, formaður íþróttafjelags mjer sagt í flugturninum á, ins, tók á móti okkur og bað Sola-flugvellinum við Stavang fyrir sjerstakar kveðjur til KR er, að von væri á flugvjel frá inganna, sem komu þangað Islandi þá um daginn, en eftir j 1946. Við hjeldum til í iþrótta henni hafði jeg beðið siðan á húsinu. Um kvöldið átti að sunnudag. Enginn vissi þó, !vera sýning á iþróttavellinum hvaða farþega þessi flugvjel | en vegna rigningar gat ekki a'f var með, en varðstjórinn lof-1 því orðið og fór hún fram í aði að re^’na að ná sambandi húsi ungmennafjelagsins, sem við flugvjelina, og er hún var, var þjettskipað áhorfendum. yfir Færeyjum tókst það. Með Sýningin gekk ágætlega Bænda henni voru íslenskir íþrótta- menn. Flugvjelin- lenti kl., 20,30. Piltarnir voru í besta skapi og fararstjórinn, sr. Eiríkur Eiríks son, kvað ferðina hafa gengið ágætlega. Bíll frá norská flugfr- fjelaginu var á staðnum og fór með oklcur til Stavanger til Victoria Hotel. Þar var borðað ur lax, sem nú er þar dagleg fæða. Þar sem ekki reyndist hægt að fá gistingu i Stavanger eða nágrenni, var strax lagt af stað til Bexgen með strandferðaskip inu „Kong Olav" með viðkomu í Karmey, Haugasund og Stord. Lárus Salomonsson gat ekki hugsað sjer að yfirgefa bæinn án þess að koma við á lögreglu stöðinni og fór -þangað með all an hópinn. Var honum siðan ekið þaðan að skipshlið í „Svörtu Maríu'1. Til Bergen komum við á þriðjudag kl. rúmlega 2, þar sem fulltrúar frá fimleikasam- bandi Bergen með Fadnes í broddi fylkingar tók á móti okkur. Daginn eftir var elcið með okkur um Bergen og nágrenni. Meðal annars komið við í Fan toft kirkjuna, heimili Edward Griegs, Trollhaugen og heimili Chr. Michelsens, Gamlehaugen Um kvöldið kl. 8 var svo fyrsta sýningin haldin í Víking-höll- inni. Því miður var húsið ekki fullskipað, vegna þess að knatt spyrnukeppni fór fram það sama kvöld, en áhorfendur voru samt margir. Eiríkur Ei- ríkson þakkaði íyrir góðar mót- tökur, eftir að flokkurinn hafði verið boðinn velkominn. Undir strikaði hann í ræðu sinni hina góðu samvinnu milli Norð- manna og Islendinga. Sýning- unni var vel tekið og vakti hrifningu meðal áhorfcnda. En þar sem þetta var fyrsta sýn- ingin og flokkurinn ekki vel samstæður, var hún einna lak asta sýningin i Noregi. Á fimmtudagsmorgun fór- um við til Voss, þar sem Jon glíman vakti mesta athygli. Að sýningunni lokinni var haldinn dansleikur og norskar stúlkur og piltar úr „Leikaring“ sýndu okkur þjóðdansa. Á föstudag bauð Öystein Eskeland flokknum til morgun verðar. Meiri gestrisni en Eske land og frú sýndu, er varla hægt að hugsa sjer. Þau hjón in höföu orðið fyrir þeim mikla harmi, að missa tvo syni sýna sem voru stúdentar í snjóflóði um síðustu páska. Um hádegi var farið með járnbraut til Grayin í Hardang er og þaðan áfram með bíl til Norheimsund, sem er mjög falleg leið. Eftir að hafa snætt í Norheimsund lijeldum við á- fram til lýðháskólans í Fram- nesi. Sandvoll skólastjóri tók á móti okkur, og vorum við gest ir hans. Kl. 8 um kvöldið var þriðja sýningin haldin í Noregi fyrir fullu húsi. Eftir sýning- una var okkur boðið til kvöld verðar, þar sem stúlkur úr ung mennafjelaginu gengu um beina. Piltarnir þökkuðu með söng. Framnes-skólinn liggur á skaga, sem gengur fram í Harð angursfjörð, og er einn fegursti staður í Noregi. Morguninn eftir snæddum við hjá Sandvoll skólastjóra, sem hjelt þar ræðu, þar sem hann mirmtist tslands og þakk aði flokknum fyrir heimsókn- ina. Sjera Eiríkur þakkaði hina frábæru gestrisni, sem Islend- ingarnir hefðu notið. Ennfrem ur kvað hann nú röðina komna að íslendingum að bjóða Norð mönnum heim. Áætlunarbíllinn varð að bíða eftir okkur, en við höfðum sjer bíl og þar að auki besta bil- stjóra heimsins! Vetrarskólan- um lauk í apríl, en nú var þar skóli fyrir ungar stúlkur. Þær stóðu allar, 60 að tölu, og veif uðu okkur í kveðjuskyni, er við lögðum af stað. Islendingarnir kvöddu með söng. Ferðinni var heitið til Bergen. Dásamleg leið yfir Taakafjell framhjá Bratta foss og Hvammsskogen. Um kvöldið var okkur haldið sam- sæti í ungmennafjelagshúsinu á „Gimle“, þar sem margir Is- landsvinir voru mættir. Á sunnudaginn fói’um við til Lysekloster og annarra staða í nágrenni Bergen og áfram til Arna. Við áttum að halda sýn ingu þar á iþróttavellinum, en hann var ónothæfur til slíks. Kl. var 8, en samkomuhúsið var upptekið eftir kl. 9. Nú varð að hafa hraðan á. Farið var þangað og sýning hóst strax. Húsið fylltist á svip- stundu og mar'gir urðu að láta sjer nægja að horfa á í gegn- um gluggana. Sýningin gekk prýðilega — amerískur hraði — og var tekið með miklum fögnuði. Um kvöldið var farið aftur til Bergen. Mánudaginn 7. júní var íþróttadagur haldin í Bergen. Við höfðum lofað að vera með í skrúðgöngunni og sýna Möhlenprisleikvanginum. Flokkurinn gekk næstur á eftir fánaborginni og drengirnir sómdu sjer vel þar. Þátttakend ur voru alls 1800. Lárus stjórn aði flokknum prýðilega og sýn ing hans, sem aðeins stóð í 8 minútur, var ágæt. Samtímis var hnefaleikasýning, en áhorf endur sýndu glímumönnunum miklu meiri áhuga. Dagurinn hafði verið ágætur og „Bergen Tidende“ birti næsta dag mynd af Islendingunum á forsíðu. Leikvangurinn var þjettsetinn áhorfendum og mörg þúsund horfði á gönguna um götur bæj arins. Þetta var seiirasta sýningin. Menn fóru að hugsa xxm heim ferðina og vinnuna, sem þar beið. Loks vil jeg taka það fram að flokkurinn kom allsstaðar fram sem góður fulltrúi Islands og að sjálfsögðu á fararstjór- inn. sr. Eiríkur Eiríksson og stjórnandinn, Lárús Salómons- son, mikinn þátt í því hve giftusamlega ferðin tókst. Vinir okkar í Noregi biðja fyrir kveðjur til Islands um leið og þeir óska þess að sjá íþrótta menn frá íslandi sem fyrst aftur. Oslo 17. jún 1947. Gunnar Akselson. SAMVINNA VIÐ ÞÝSKALAND GENF: — Efnahagsráð Evrópu hefur á þingi sínu í Genf ákveðið að stuðla að samvinnu ráðsins við hernámsyfirvöld bandamanna í Þýskalandi. Fundur skéiasljóra FUNDUR skólastjóra Kvennai skólans í Reykjavík og skóla- stjóra hjeraðs- og gagnfræða- skóla var haldinn í hátíðasal Mentaskólans í Reykjavík dag- ana 1.—5. júlí s.l. Auk skólastjóranna sat Helgi Elíasson fræðslumálastjóri fund inn, en þangað komu einnig: Ey steinn Jónsson mentamálaráð- herra, Pálmi Hannesson rektor, Jakob Jónsson prestur, Þorst. Einarsson íþróttafulltrúi og landsprófsnefndarmenn. Fundarstjórar voru Bjarni Bjarnason og Þorsteinn M. Jóns- son, en fundarritarar Benedikt Tómasson og Guðmundur Gísla- son. ’ Þrjár nefndir voru kosnar, og fjallaði ein um nám-sefni, námsskrár og námsbækur, önn- ur um fjelagsmál og hin þriðja um fjármál. Allar nefndirnar skiluðu áliti. Umræður urðu miklar á fund- inum. Snerust þær fyrst nokkuð um fjármál skólanna, en síðan jöfnum höndum um fræðslu og uppeldi í slcólum. Voru fundar- menn sammála um það, að síst bæri að leggja minni áherslu á hina uppeldislegu hlið skóla- starfsins en á fræðsluna. Álit allra var, að heppilegra væri að gera hóflegar kröfur til náms- efnis, en ganga því ríkara eftir að það væri vandlega numið og temja nemendum með því vand- virkni og nákvæmni. Nokkuð var rætt um móður- málskenslu, og voru allir, er til máls tóku, sammála um, að of lítil rækt væri lögð við bók- mentalestur og ritgeröir, meö því að mestum hluta námstím- ans væri varið til kenslu í al- mennri málfræði, stafsetningu og greinamerkjasetningu. Afleið ing þessa væri sú, að þorri nem- enda hefði orðaforða af mjög skornum skamti og skildi jafn- vel ekki algeng orð og hugtök. Var einróma samþykt tillaga þess efnis, að brýna nauðsynt bæri til að endurskoða kröfur um íslenskukunnáttu í skólum, Fjármálanefnd lagði fram til- lögu, þar sem skorað er á Al- þingi að tryggja það, að hjeruð og bæir eigi kost á hagkvæmum lánum til skólabygginga. Var til lagan samþykt einróma. Þá var samþykt tillaga um, að nemendum í væntanlegumt verknámsdeildum skólanna skyldi tryggður skemmri náms- tími í iðnskólum. Að lokum voru kosnar þrjáít nefndir, er skyldu starfa að loknum fundi. Námsbókanefnd var falíð —* í samráði við fræðslumálastjóra; — að leita hæfra manna un?. samningu námsbóka í þeim greinum, er mest nauðsyn þykir á. í þá nefnd voru kosnir Bene- dikt Tómasson, Ingimar Jónsson og Pálmi Hannesson. Verknámsnefnd var falið að’ gera tillögur um tilhögun verk- náms í verknámsdeildum. í þá nefnd voru kosnir Bjarni Bjarna son, Guðbrandur Magnússon og Hannibal Valdimarsson. •Síra Jakob Jónsson mæltist til að kosin yrði nefnd, sem tæki til athugunar, frá hálfu skólanna, hvernig haga skyldi kenslu £ kristnum fræðum. í þá nefnci voru kosnir Benedikt Tómassor. og Guðni Jónsson, og skyldu þeir gera tillögur um þessi mál ásamt síra Jakob Jónssyni,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.