Morgunblaðið - 22.08.1947, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.08.1947, Blaðsíða 1
34. árgangur Ísftíoldarprentsmiðja h.f. 188. tbl. — Föstudagur 22. ágúst 1947 Bandalag rómanskra Gyðingum við Port de Bouc settir úrslitakostir Spánverjar éhugasamaslir um iijlöpur Pérons í þá ált MADRID. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Kemsley. MEÐL stjórnmálamanna er mikið talað um að stefnt sje til myndunar bandalags allra rómanskra þjóða. F.r það Peron hershöfðingi, forseti Argentínu, sem hefur frumkvæðið í til- raunum í þá átt. — Heimsókn Evu Peron til Evrópu er talin hafa verið mikið meira en skemtiferð og það er sjerkennilegt, að bæði í Madrid og Lissabon hefur orðrómurinn um rómanskt handalag blossað upp. Heimsókn hennar er talin^ standa að einhverju leyti í| sambandi við orðsendingu, sem j argentínski sendiherrann í j Mádrid flutti Franco hers- höfðingja snemma á árinu. Því hefur verið lýst yfir op- inberlega, að frú Peron muni heimsækja Brasilíu á heim- leiðinni, þegar hún snýr við eftir Evrópuferð sína. Einnig er búist við að húr. korni við i Uruguay. Pólitískt samband Randalag rómanskra þjóða, ef til þess kæmi mundi verða fjárhagslegt og efnahagslegt á ytra borði, en í rauninni yrði sambandið einnig pólitískt, því að ef öll þau ríki mynduðu bandalag, yrðu þau í samein- ingu sterkt heimsveidi. Spánverjar ákafastír Að sjálfsögðu vekur hin svo kallaða Peron-áætlun mesta eft irtekt í Madrid, því að Spánn er nærri útilokaður frá öllum alþjóðamálum og eina rikið,! sem þorir að sýna stjórn Franco vináttu, er Argentína. Á Italíu eru margir fylgjandi bandalagi rómanskra þjóða, þvi, að fólk vonar, að þá muni að einhverju greiðast úr erfiðleik- um þjóðarinnar. Kasla sjer í fallhlíf- um yfir Palestínu París í gærkvöldi. TUTTUGU og einn Gyðingur allir ungir og framkvæmdasam ir menn, eru nú að ráðgera að fara með flugvjel að næturlagi yfir Palestínu og kasta sjer þar út í fallhlíf. Ef tilraun sú tækist vel og fallhlífafólkið slyppi und an vörðum Breta í landinu, get ur verið að þetta sje byrjun að miklum flugflutningum til lands ins, sem yrðu'kostaðir af sterk- um bandarískum Gyðingafjelög um. Engin leynd hvílir yfir þess um áætlunum þeirra, og ekki er að vita, hvaða gagnráðstafana Bretar efna til. — Reuter. Siglufirði í gærkv. SILDAR verður enn vart á sömu slóðum, þ. e. a. s. norð- vestur af Rauðunúpum, en veiðin mjög lítil og aðeins ein- staka skip hafa fengið lítil köst. Flugvjel er var að leita síld- ar sá síld við Dalátanga og fóru þangað þegar hin stærri síld- veiðiskip. Þegar þau voru kom in á miðin var þar komin vind ur, svo ekki gátu skipin veitt neitt í gær. Nú bíða þau þess að veður lagist. Þá bárust og frjettir um að síld hefði sjest vaða á Norðfirði, en þegar gætt var betur kom í Ijós að torf- urnar voru sílatorfur. Nokkur skip hafa komið til Siglufjarðar og hefur afli þeirra farið til söltunar. Skipin eru Hvanney, með 400 tunnur, Gunnvör 250, Sæmundur 150, Dagný og Fylkir, einnig með 150, Esther 200 og Siglunes 100 tunnur. Hjalteyri. í gær komu til Hjalteyrar 2 skip, símar frjetaritari Morgbl. í gærkvöldi. Skipin voru Ald- en með 53 tunnur og Olafur Bjarnason. Enga samvinnu við de Gaulle París í gærkvöldi. FRANSKI sósíalistaflokkur- inn gaf út tilkynningu um það í dag að ef einhver fulltrúi flokksins ætti nokkra samvinnu við fylgismenn De Gaulle-hreyf ingarinnar væri hann þar með af sjálfu sjer rekinn úr flokkn um. Var það tekið fram að De Gaulle væri svarnasti andstæð ingur hagsmuna sósialistaflokks ins og að þess vegna gæti það ekki samrýmst reglum flokksins að hefja samstarf við hann að nokkru leyti. •—- Reuter. Boral effir ®\m í Verða þeir fluttir til Hamborgar? MARSEILLE í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. GYÐINGAFLÖTTAMENNIRNIR sem eru á þremur bresk um flutningaskipum við Port de Bouc hafa fengið úrslitakosti frá bresku stjórninni. Fór breski ræðismaðurinn í Marseille í dag um borð í eitt þeirra og las upp boðskap bresku stjórnarinn ar þar sem segir að nú sje um tvo kosti að velja fyrir þá. ------------------------<» DANSKIR verkfræðingar eru að gera tilraunir til að bora eft- ir olíu við Ilolstebro í Dan- mörku. í þeim tiígangi hafa þeir reist þenna stóra olíubor, sem hjer sjest á myndinni. Rússar mófmæla Rússnsska neilunar- enn New York í gærkvöldi. RÚSSAR beittu enn einu sinni neitunarvaldi sínu í Öryggisráði í dag er umsóknir fimm ríkja um upptöku í Sameinuðu þjóð- irnar var til umræðu. Greiddi rússneski fulltrúinn atkvæði gegn því, að umsókn ítalíu yrði samþykkt, en Bretar og Banda- ríkjamenn voru henni ákveðið fylgjandi. Hin ríkin, sem sótt hafa um upptöku, eru Austurríki, Rúmen ía, Búlgaría og Ungverjaland. Umsókn Ungverjalands hefur i þegar verið vísað á bug. Fulltrúi Bandaríkjanna lagðist gegn því að hún yrði tekin til greina, full trúi Sýrlands var upptökuum- sókninni meðmæltur en hinir níu fulltrúarnir greiddu ekki at- kvæði. — Reuter. Rússneska stjórnin hefur bor ið fram mótmæli vegna ráð- stefnu þeirrar, sem hefjast á í London á morgun (föstudag) um framleiðslu Þýskalands. Bret ar, Bandaríkjamenn og Frakkar taka þátt í ráðstefnunni, en Rúss ar halda því fram, að þeir hefðu einnig átt að vera þátttakendur. Stjórnmálafregnritarar telja að ekki komi til mála að fresta ráðsteínunni. — Reuter. Korsku stórþings- mennirnir jiakka NORSKU stórþingsmennirnir sem voru á íslandi frá 27. júlí — 3. ágúst, í tilefni af móti hins Sprongjuárás á mslun Jerúsalem í gær. AÐVÖRUNARMERKI voru gefin hjer í Jerúsalem í dag er sprengjuárás var gerð á verslun í borginni miðri. Framhluti vepslunarinnar gereyðilagðist, en enginn maður mun hafa r.ieiðst. Vitað er, að Arabar höfðu fyr ir skömmu varað eiganda vérsl unarinnar við að eiga viðskipti við Gyðinga. — Reuter. Þorp brenna á iava norræna þingmannasambands, hafa beðið um, fyrir milligöngu formanns síns fyrverandi ráð- herra Sven Nielsen að flytja sín ar hjartanlegustu þakkir til allra fyrir þá miklu gestrisrd og vinsemd sem þeim var sýnd hjer á meðan þeir dvöldu hjer á ís- landi. Batavia í gærkvöldi. IJOLLENDINGAR tilkynna hjer í Batavia að komið hafi til átaka milli hollenskra hersveita og Indonesa á mið og austur- Java. Kveikt hefur verið í fimm þorpum um 30 mílum fyrir aust an Batavíu og ein af stærstu teverksmiðjum heimsins breimd til grunna. — Reuter. Annaðhvort að þýðast boð frönsku stjórnarinnar um að ganga á land eða að Bretar taki til sinna ráða, sigla skipunum með alla þú 4400 Gyðinga, sem innanborð eru til hernámssvæðis síns í Þýskalandi. Gaf breska stjórnin gyðingun um frest til ki. 17,00 eftir Green wich tíma á morgun. Ef þeir hafa ekki gefið jásvar sitt fyrir þann tíma, segjast Bretar muni sigla skipinu af stað á mínút- unni. Tilmæli til Gyðinga- stofnunarinnar. Bretar hafa sent Gyðingastofn uninni tilmæli um að hún fari þess á leit við skipsmenn, að þeir gangi á land í Frakklandi, en Gyðingastofnunin hefur svarað að hún muni aldrei láta nota sig sem verkfæri til að koma í veg fyrir að Gyðingar komist til hins fyrirheitna lands og neitað til- mælunum. Fara þeir í land? Litlar líkur virðast vera á að Gyðingar gangi á land, því að meðan breski ræðismaðurinn var að lesa upp boðskapinn köll uðu þeir ókvæðisorðum til hans og æptu, að þeir skyldu aldrei fara eftir fyrirskipunum frá Bretum. Bretar ætla sjer áreiðanlega ekki að framlengja frestinn. Verður vinnutíminn aukinn aílur! London í gærkvöldi. ENGIN ákvörðun hefur enn þá verið tekin um það, 'hvort vinnutími breskra námumanna verði lengdur á ný. í dag var þó í ráði að forystumenn námu manna ræddu við fulltrúa stjórn arinnar, svo búast má við á- kvörðun um þetta efni innan skamms. Um 2,80Q Pólverjar vinna nú í breskum námum, en 3,800 hafa þegar verið þjálfaðir til starfsins. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.