Morgunblaðið - 22.08.1947, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. águst 194/ ,
Hjáip Rauða krossins til
íslendinga í Þýskalandi
viltœk og þðrf
f
I
UTANRIKISRAÐUNEYTINU hefur fyrir nokkru borist
skýrsla frá Arna Siemsen stórkaupmanni, sem er fulltrúi Rauða
Kross Islands og framkvæmdastjóri fjelags Islendinga í Þýska-
landi. Lætur hann þar í ljós mikið þakklæti Islendinga fyrir hina
miklu hjálparstarfsemi Rauða Kross íslands, er hófst síðari hluta
ársins 1945.
Fram að hernámi Danmerk-
ur önnuðust danskir ræðismenn
fyrirsvar og vernd Islendinga í
Þýskalandi, en frá þeim tíma og
til ófriðarloka ræðismenn og
fulltrúar Svía. Bæði hinir
dönsku og hinir sænsku ræð-
’ ismenn sýndu málefnum Is-
lendinga mikinn áhuga og
höfðu jafnan góða samvinnu
við fjelag Islendinga um öll
vandamál.
Ýmsir örðugleikar.
í ófriðarlok hættu hinir
sænsku ræðismenn að annast
jíslensk málefni, og var þá ekk-
ert fyrirsvar lengur af hálfu
Islendinga í Þýskalandi. — En
bæði danskir og sænskir ræð-
ismenn hjeldu áfram að gera
íslendingafjelaginu marghátt-
aða greiða, einnig sænski,
danski og norski Rauði Kross-
inn og aðrir norrænir aðilar.
f Liibeck, þar sem Árni Siem-
sen er búsettur og á öðrum
stöðum í Norður-Þýskalandi,
þar sem flestir íslendingar búa,
gerðist brátt þröngt fyrir dyr-
um, þegar flóttafólk fór að
streyma þangað úr öllum átt-
um. Var það ósjaldan fyrir
hreina tilviljun, að íslenskt
flóttafólk gat náð sambandi við
Arna. Oft var örðugt að greiða
fyrir fólki þessu, en honum
tókst jafnan að greiða götu þess
með þolinmæði og dugnaði.
Safnað upplýsingum um
um íslendinga.
Stuðningur Rauða Kross ís-
lands hófst með sendiför Lúð-
vígs Guðmundssonar skóla-
stjóra til Þýskalands síðari
hluta sumars 1945. Safnaði
hann upplýsingum um íslend-
inga í Þýskalandi og
tókst að ná sambandi við
állflesta þeirra. Næsta skrefið
var það, að Rauði Krossinn tók
að senda matarböggla til íslend
inga. Veitti Árni Siemsen þeim
flestum móttöku og sendi þá
áfram, en Einar óperusöngvari
Kristjánsson tók að sjer að
greiða fyrir bögglunum til Ham
hoi'gar og nágrennis. Þá var
ekki um símasamband að ræða
við Kaupmannahöfn nema frá
Hamborg, og er ekki enn kom-
ið símasamband við Lúbeck,
enda þótt Árni eigi von á því
á næstunni, að fá leyfi til sím-
tala úr úr landinu.
Matur og fatnaður.
Af matarbögglunum fær
hver Islendingur einn böggul
á mánuði, og eru bögglarnir af
sajna tagi og þeir, sem aðrir
Norðurlandaíbúar fá, innihald
flest það, sem mest skortir á
íæðuna, svo sem feitmeti, grjón
og sykur.
Fyrir jólin 1945 voru föt send
S>--------------------------------
i
fra Islandi ,en vegna sam-
gönguerfiðleika kom sendingin
ekki fram fyrr en snemma í
mars 1946. Síðan hafa sam-
göngur batnað mjög, enda fá
nú allmargir landar einnig
reglubundnar bögglasendingar
að heiman.
— Þessar sendingar eru
einnig afgreiddar fyrir milli-
göngu Rauða Krossins,’ enda er
samgöngukerfi hans og úthlut-
unar hið besta sem völ er á.
Frjettir um ættingja og vini.
Árni Siemsen getur þess og
með þakklæti, að Rauði Kross-
inn hefir greitt mjög fyrir send
ingu frjetta og upplýsinga um
skyldfólk, og hafa nú yfir 400
orðsendingar Islendinga verið
afgreiddar til vandamanna á
íslandi. Fyrir þessum sending-
um greiðir einnig danski aðal-
ræðismaðurinn í Hamborg. Eft-
ir að póstsamgöngur komust í
lag, dró að sjálfsögðu úr þess-
ari starfsemi, en til viðbótar
henni hefur komið fyrir-
greiðsla með aðstoð sendiráðs
íslands í Kaupmannahöfn, á als
konar plöggum, svo sem um-
sóknum um dvalarleyfi, um-
ferðaleyfi, vegabrjefsáritanir o.
fl.
Það er Ijóst af skýrslu Árna
Siemsen, að áhugasamir íslensk
ir sjálfboðaliðar hafa leyst af
höndum mikið og nytsamt starf
fyrir þjóð sína og notið til þess
aðstoðar opinberra stofnana ís-
lands og annara Norðurlanda.
HátíðahöM Hinriúa
15. ágúsi
New Dehli.
ÞANN 15. ágúst n.k. verður
fáni hindúaríkisins í Indlandi
dreginn að hún, í viðurvist
landstjórans og indverskra her
sveita. Búist er við ,að 100.000
manns safnist saman við þessa
hátíðlegu athöfn.
Tveimur dögum síðar fer
fram kveðjuathöfn fyrir bresk-
ar liðssveitir, sem eru að fara
frá Indlandi fyrir fullt og allt.
Indverska sambandsþingið
mun koma saman 14. ágúst og
samþykkja að lýsa yfir sjálf-
stæði landsins á miðnætti. —
Monuntbatten lávarður út-
nefndur landstjóri og mun hann
vinna eið að stjórnarskránni og
að því búnu mun ríkisstjórnin
undir forsæti Pandit Nehru,
einnig vinna eið að stjórnar-
skránni.
■—Kemsley.
Skemtir í Reykjavík-
urfcabarettinum
REYKJAVIKURKABAR-
ETTINN hefir nú haft þrjár
kvöldskemtanir í Sjálfstæðis-
húsinu við ágætustu undirtekt
ir, en næstu kvöld er Sjálf-
stæðishúsið lofað fyrir aðrar
skemtanir og verður kabarett-
slcemtun þar ekki fyr en á
sunndagskvöld.
í kvöld hefir Kabarettinn
skemtun í Bæjarbíó í H'afnar-
firði, þar sem hinir útlendu
listamenn sýna. Hefir valið á
þeim þótt takast ágætlega.
!
Nýtt skemtiatriði.
í fyrrakvöld bættist nýtt
skemtiatriði í dagskrá kabar-
ettsins. Gamanleikari, sem heit
ir Johan Thiersen og er hann
svo gamansamur, að áheyrend-
ur veltast um af hlátri að hon-
um. Hann leikur heilt leikrit
með því einu að blístra og er
það tilhugalíf hjá næturgölum.
Þykir sá þáttur vera með því
besta sem sjest hefir hjer á
því sviði.
Myndin hjer að ofan er af
Johan Thiersen.
íslendingur á siofn-
fundi alþjóffasam-
bands kennara
STEINGRÍMUR ARASON
kennari er nýkominn heim frá
Skotlandi. Þar sat hann skóla-
fund Alþjóðasambands kennara
sem fulltrúi íslenskra kennara.
Var stofnfundur sambandsins og
þing haldið í Glasgow dagana 7.
—13. ágúst. Voru þar mættir
fulltrúar frá 15 löndum, sem
þegar hafa gengið í sambandið,
eða ætla að ganga í það.
Fjelagsskapur þessi, sem á
ensku nefnist World Organiza-
tion of Teaching Profession
(WOTP) hefir það að markmiði
sínu að koma á alþjóðasamvinnu
í uppeldis og mentamálum og
ala hvern ungling upp í vináttu
til nágranna sinna og c-fla al-
þjóðaþekkingu milli þjóðanna.
Var undirbúningsfundur hald
inn í New York í fyrra til að
koma þessum fjelagsskap á
stofn. í viðtali við Morgunblaðið
í fyrra, skömmu eftir að hann
kom heim, lýsti Steingrímur til
gangi og fyrirætlunum þessa fje
lagsskapar og flutti síðar út-
varpserindi um sama efni.
Steingrímur lætur vel yfir
gestrisni Skota við fulltrúa á
fundi þessum.
ZO Íslendingar
sæmdir norskum
heiðursmerkjum
í TILEFNI af heimsókn Ólafs
ríkisarfa Norðmanna og full-
trúa Norðmanna á Snorrahá-
tíðinni í júlí s.l., hafa nokkrir
Islendingar verið sæmdir norsk
um heiðursmerkjum í viður-
kennin^arskyni fyrir störf
þeirra í þágu Norðmanna.
Stórkross St. Ólafsorðunnar
voru þessir menn sæmdir:
Bjarni Benediktsson, utanrík-
ismálaráðherra, Ólafur Thors,
fyrverandi forsætisráðherra,
Vilhjálmur Þór, fyrverandi ut-
anríkismálaráðherra og Einar
Jónsson myndhöggvari.
Kommandör með stjörnu af
St. ÓlajJsorðunni: Agnar Kl.
Jónsson, skrifstofustjóri. Kom-
mandör af St. Ólafsorðunni: Sr.
Friðrik Rafnar, vígslubiskup.
Riddari af 1. flokki St. Ólafs-
orðunnar: Pjetur Eggerz sendi-
sveitarritari: Gunnl. Briem,
skrifstofustjóri; Brynjólfur Jó-
hannesson, leikari; frú Marie
Ellingsen (norskur ríkisborg-
ari); Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi og Þorsteinn M.
Jónssoní forseti bæjarstjórnar
á Akureyri.
Þessir menn voru sæmdir
Frelsiskrossi Hákonar VII.:
Guðlaugur Rósinkranz, yfir-
kennari; Skúli Skúlason, rit-
stjóri; Sigurður Sigurðsson, yf-
irlæknir og Snorri Sigfússon,
skólastjóri.
Þessir menn voru sæmdir St.
Ólafsorðunni: Helgi Valtýsson,
rithöfundur og sr. Björn O.
Björnsson.
Ennfremur voru eftirtaldir
menn sæmdir Frelsisorðu Há-
konar VII: Kári Jóhansen,
deildarstjóri á Akureyri; Sig-
urður Oddsson, prentari, Ak-
ureyri og Arthur Guðmunds-
son, deildarstjóri, Akureyri.
Snorra-líkneskið
í Bergen afhjúpað
að vori
ÞAÐ þykir nú sennilegt, að
Snorralíkneskið í Björgvin
verði ekki afhjúpað í haust,
segir í frjett frá utanríkisráðu-
neytinu, eins og ráðgert hafði
verið, heldur í júnímánuði að
vori, og er þá hugmyndin að
bjóða íslendingum og Færey-
ingum til heimsóknar og hátíð-
ar í því tilefni.
Um Snorra-hátíðina.
Af norskum blöðum og blaða
úrklippum, sem hingað hafa
borist, er það ljóst að Snorra-
hátíðin hefir vakið mikla at-
hygli í Noregi og átt mikinn
þátt í að treysta vináttubönd-
in milli íslendinga og Norð-
manna. Meðan á heimsókninni
stóð, birtust daglega fregnir
af henni í öllum blöðum Nor-
egs, en jafnframt tóku blaða-
mennirnir, sem hingað komu,
að senda greinar sínar heim í
flugpósti. í öllum þessum grein
um er látin í ljós mikil hrifn-
ing yfir móttökunum, og lofa
blaðamennirnir gestrisni og
hlýju íslendinga á hvert reipi.
Verkfræðingum ]
sýnd fróðleg mynd
um hemaðarleynd-
UM ÞESSAR mundir er hjeí
staddur forstjóri útflutnings-
deildar stærstu pípuverksmiðju
Bretlands, Stewarts & Lloyds.
Forstjórinn heitir G. A. Cane
og kom hingað til viðræðna við>
umboðsmenn firmans hjer, Eld
ing Trading Company. Mr. Cane
hefur verið á ferð um öll Norður
löndin í þessum erindum firmans
Meðferðis heíur hann kvikmynd
af einu mesta hernaðarleyndar-
máli síðustu heimstyrjaldar.
— Saga uppfyndingarinnar á
„Pluto“, bensín og olíuleiðslunt
um, sem lagðar voru neðan sjáv
ar á einni nóttu yfir Ermasund
er Bandamenn gerðu innrás sína
í Frakkland. Þessar leiðslur
voru sennilega einn veigamesti
þáttur innrásarinnar og sóknar’
innar inn í Þýskaland.
Þessa kvikmynd ætlar Mr.
Cane að sýna í Tjarnarbíó n.k.
laugardag kl. l,15. Hefur Elding
Trading Company boðið þangað
verkfræðingum hins opinbera
og ýmsum öðrum. Verið getur
að myndin verði einnig sýnd al
menningi. Sýningin tekur 45
mín. Þetta er talmynd. Kvik-
myndin sýnir sögu þessarar upp
fyndingar og síðan er leiðslan
var lögð yfir Ermasund.
Um leiðslurnar er það að segja
í stuttu máli, að uppfindinga-
mönnunum tókst að gera stálið
í þeim svo sveigjanlegt að hægt
var að vinda pípurnar upp á
stórt „kefli“, sem gat flotið, síð
an var það nóttina, sem leiðslan
var lögð, að keflin voru sett á
flot en dráttarbátar undu svo
pípurnar ofan af, alveg eins og
tvinna af kefli.
Pípurnar vafðar upp á keflið.
Danir vonasf lil
að fá dollara hjá
Brefum 1
ÁKVÖRÐUN Breta um að
hætta yfirfærslum í dollara kem
ur hart niður á Dönum en Danir
vona að þeim verði haldið áfram
að nokkru leyti hvað viðvíkur
sterlingspundainneign þeirra í
Bretlandi, vegna þess að Bretar
hafa sjálfir hag af að Danir
kaupi fóðurvörur í Bandaríkjun
um. Aftur á móti er talið mjög
vafasamt að Bretland útvegi
Dönum dollara til kaupa á tó-
1 baki, kaffi og bensíni.
| All mikið er nú rætt um það
hjer að minka sölu á landbúnað
arvörum til Englands en selja
hana heldur til landa, sem hafa
á boðstólum sömu vörur og ann
ars yrði að borga með dollurum.