Morgunblaðið - 22.08.1947, Síða 7
Þriðjudagur 22. ágúst 1947
MORGVNBLAÐIÐ
7
Skyldu bútur mínir róu í
DAGARNIR liðu og ekki kem
ur skipið! Jeg er farin að
spyrja eins og Árni í Botni:
Skyldu bátar mínir róa í dag?
►— Jeg verð að bíða í þessu
landi þangað til jeg frjetti um
eitthvert skip, einhverstaðar —
og á meðan geng jeg um göt-
urnar og reyni að kynnast þess-
ari undarlegu borg.
Jeg er búin að uppgötva
hvað karlmennirnir gera á með
an konurnar þeirra sitja á veit-
ingahúsi og drekka öl. Þeir
fara inn á annað veitingahús
og spila á spil! Einu sinni sá
jeg þó „pör“, en hvort þau
voru gift eða ógift, veit jeg
ekki. Þau sátu saman við borð
út við glugga, mjög svo alvar-
leg og drógu mismunandi lang-
ar eldspítur hvort úr annars
hendi. Jeg geri ráð fyrir að þau
hafi verið að draga um hvort
þeirra ætti að borga ölið.
Um fjögur leytið eru blöðin
borin út. Það þætti víst heidur
seint í öðrum löndum, en hvað
um það. Það er líka hátíðleg
athöfn, að því er virðist. Mað-
urinn, sem ber blöðin hingað í
götuna og næsta nágrenni, er í
einkennisbúningi. Hann ber
blaðapokann í bandi yfir öxl-
ina og heldur á lúðri í vinstri
hendinni. I hvert sinn sem hann
tekur blað upp úr pokanum
blæs hann einar 3—4 „trillur“
í lúðurinn. Síðan stingur hann
blaðinu hátíðlega inn um póst-
kassaopið á næstu dyrum. Þetta
endurtekur sig við hvert einasta
hús. Jeg er hrædd um að þetta
þætti heldur mikið umstang
heima á íslandi, en þetta er
gamall siður, sem Belgir vilja
ekki leggja niður. Fyrr á öld-
um bljes pósturinn alltaf í lúð-
ur þegar hann ók inn í eitt-
hvert þorp og eins þegar hann
fór!
Þá er líka skrítið að sjá
mjólkursalann. Klukkan hálf-
níu á morgnana heyrist bjöllu-
hringing úti á götunni. Það er
mjólkursalinn. Hann er með dá-
lítinn vagn og hundi beitt fyrir.
Hundurinn situr og hvílir sig á
meðan maðurinn hringir bjöll-
unni og mælir mjclkina handa
húsmóðurinni. Svo skröltir
vagninn aftur yfir steinlagning
una að næstu dyrum. Þetta er
algengt í Sviss og Frakklandi
og eftir því sem jeg best veit,
er það líka siður í Hollandi að
láta hunda draga vagna. Oft
virðast hlössin vera það þung,
að þau sjeu hundunum ofviða,
en þá kemur fyrir að maður-
inn hjálpar til. Jeg kenndi í
brjósti um hundana í Sviss þeg-
ar kaldast var í vetur og þeir
urðu að draga vagnana eftir ísi
lögðum götunum. En þeir eru
sjálfsagt svo vanir þessu að
þeim gerir það ekkert til.
Hjer er alltaf mibið um dýrð-
ir á sunnudagana. Þá eru skrúð
göngur með lúðrablæstri og
trumbuslætti og fólki í þjóð-
búningum. Einu sinni var jeg
svo heppin að sjá skrúðgöngu,
sem var mjög eftirtektarverð.
Fólkið var allt í þjóðbúningum,
eða búningum frá miðöldunum
og skrúðgangan átti að tákna
hinar ýmsu stjettir þjóðfjelags-
ins. Fyrst kom hljómsveit, þá
ungar stúlkur, sem dönsuðu
þjóðdansa, þá komu kaupmenn
(djtir Cju&r. jjlónáclóttur jrá jf^reótlalba
I irnir gangandi reykjandi lang-
I ar pípur. Þá sjómennirnir, en
það voru drengir í sjómanna-
búningi og þeir stóðu um borð
í skipi sem dregið var af tveim
ur hestum. Skipið veltist ó-
þyrmilega, rjett eins og í ólgu-
sjó, svo skipstjórinn varð að
halda sjer dauðahaldi í stjórn-
pallinn, til þess að detta ekki.
Næst komu bændurnir gang-
’andi og á eftir þeim kom blóm
skreyttur vagn með ungum
jstúlkum í hvítum kjólum. Loks
komu iðnaðarmennirnir og öl-
bruggararnir í vagni með geysi
stóra tunnu á milli sín og á eft-
ir þeim komu veitingahúsin og |
verslunarhúsin hoppandi og
dansandi, en þau voru búin til
úr pappa og innan í þeim voru
glaðlifandi stráklingar í græn-
um skósíðum pilsum; þeir hopp
uðu og dönsuðu svo furðulegt
var að sjá. Það var líka kyn-
legt að sjá „Nýlendurnar“, en
það v.ar líka vagn og í honum
sátu „svertingjar" í mislitum
lendaskýlum. Þeir voru nú samt
ekki allir nógu vel málaðir, sum
ir höfðu gleymt að svörtu peys
urnar þeirra náðu ekki alveg
upp að .höku, svo þeir voru
með hvítan hring um hálsinn.
Niðri við Koningin Astrid
Plein er altaf fullt af fólki. Þar
^er líka dýragarðurinn og aðal-
I brautarstöðin, svo allir eiga
þangað eitthvert erindi. A horn
i inu er „bar“ þar sem seldur
er ís og kökur. Geysistór bak-
ari með hvíta húfu stendur við
að baka pönnukökur og ýmis-
legt annað góðgæti. Gluggarn-
ir eru opnir og gluggakisturn-
ar eru búðarborð. Þar er alltaf
þröng mikil svo varla er hægt
að komast framhjá. Sitt hvoru
megin við hornið standa menn,
sem taka „7 mínútna myndir“.
Þeir eru ólíkir öllum götu-
myndasmiðum, sem jeg hefi
sjeð. Þeir segja ekki eitt ein-
asta orð, en standa grafkyrrir
við vjelina sína og bíða átekta.
Jeg man eftir myndasmiðnum
fyrir framan Pjeturskirkjuna í
,Rómaborg. Jeg var í stundar-
fjórðung að reyna að komast í
burtu, svo ákafur var hann og
ákveðinn í að láta mig ekki
sleppa. Hann talaði og talaði á
frönsku, ensku og ítölsku og
fullvissaði mig um að myndin
væri hreinasta fyrirtak. Þó
tókst mjer að lokum að komast
í burtu án þess að kaupa mynd-
ina.
I Brautarstöðin líkist gamalli
höll að utan, en að innan er
hún líkust námugöngum djúpt
í iðrum jarðar. Tollstöðin er
þar langt niðri í undirdjúpUn-
um. Jeg fór þangað til þess að
sækja dótið mitt. Þar var þungt
saggaloft og í fjarska heyrðist
dimmur undirgangur. Það voru
lestirnar, sem komu og fóru.
Það skrölti ömurlega í hjólun-
um á börunum burðarkarlsins,
sem ók dótinu mínu, og jeg var
fegin þegar jeg komst aftur
út' í dagsbirtuna. Það var rjett
eins og að sleppa út úr höllinni
lians Bláskeggs.
J Jeg fór niður að Groote
Markt í dynjandi rigningu til
þess að spyrja um skip. Salvius
Brabo stóð þar ofan á gosbrunn
inum sínum og bar við gráan
himininn. Regnið dundi á hon-
um með þungum gný. Aum-
ingja Brabo! Það hefir ekki ver
ið nein sæluvist fyrir hann að
vera hjer. Hann sem var Róm-
verji, alinn upp við sól og blá-
an himin. Varla er hægt að
hugsa sjer meiri andstæðu
hvað loftslag snertir en Ítalíu
og Belgíu og bó hefir það verið
ennþá átakanlegra fyrir 2000
árum síðan, þvi þá voru bakk-
ar Schelde einn mýrafláki. En
Brabo hefir borið það með karl
mennsku eins og Rómerja var
siður og enn stendur hann óbif
anilegur þrátt fyrir dynjandi
regnið.
Húsin við Grootc Markt snúa
göflum út að torginu. Jeg fór
inn í eitt þeirra og inn á skrif-
stofu skipaútgerðarinnar Van
den Broeck. Mjer til undrunar
fannst mjer jeg kannast við hús
ið og skrifstofuna og jafnvel
skriístofustjórann sjálfan, þó
jeg hefði aldrei komið þar áð-
ur. Mjer var vel tekið, en því
miður gat jeg ekki fengið far
með skipi, sem þó átti að fara
til Islands, því það hafði ekki
leyfi til þess að flj’tja farþega
og síst kvenfólk. Jeg fór aftur
út í rigninguna, vonsvikin — og
braut heilann urr. hvað það
væri, sem jeg hefði „kannast
við“ og smám saman áttaði jeg
mig á því. Groote Markt er
nauðalíkt Tyskebryggen í Berg-
en í Noregi. Jeg sá Hansasafn-
ið í Tyskebryggen 1938. Það er
kaupmannshús með verslun á
neðstu hæð og skrifstofum uppi
á lofti. Ollu var nákvæmlega
eins fyrir komið og hjer við
Groote Markt, þó er munurinn
sá, að jeg gat fengið að koma
hingað inn á skrifstofuna um-
svifalaust, en Hansakaupmenn-
irnir leyfðu ekki kvenfólki að
koma inn fyrir sínar dyr. Nema
það hafi verið þessvegna að jeg
fjekk ekki að fara með skip-
inu! —
Göturnar í kringum Groote
Markt eru þröngar og krókótt-
ar. Þar er hver búðin um aðra
þvera með allskonar skrani, sem
kallað er „minjagripir“. Meðal
annars eru þar smástyttur í
ýmsum stærðum af hinum nafn
fræga „Manneken Pis“ í Brux-
elles, >en það er líkneski af
smástrák, sem stendur allsnak-
inn og sprænir út í loftið.
Belgir haida ákaflega mikið
upp á þennan strák. Á hátíðis-
dögum færa þeir hann í her-
foringjabúning með óteljandá
orðum og heiðursmerkjum og
setja þríhyrndan hatt á höfuð-
ið á honum.
Þegar komið er upp að Meir-
torginu er rjett eins og maður
sje kominn í annan heim. Hjer
er „skýskafi“, sá fvrsti sem jeg
hefi sjeð á æfi minni, en hann
er þó ekki nema 26 hæðir. Hjer
er 20. öldin einráð og hjer kem
ur sporvagn, svo jeg get komT
ist heim úr rigningunni og hald
ið áfram að bíða eftir skipi, sem
aldrei kemur.
40 þúsund skátar við
hátíðlega setningu
Friðar-Jamboree
FagnaSarlæii lugþúsunda, er Islendingar
gengu inn á
SJÖTTA ALHEIMSMÖT skóta var sett að Moisson laugar-
daginn 9. ágúst. 40 þúsund skátar voru þá mættir til mótsins
og auk þess um 20 þúsund gestir og áhorfendur. Mótið var sett
að kvöldi til eftir að dimmt var orðið, kyndlar lýstu upp allt
setningarsvæðið, sem kallað er L’ Arena. Við aðra hlið þessa
svæðis, sem er meira en 1000 metra langt, er komið fyrir sæt
um fyrir margar þúsundir manna og fyrir því miðju er upp-
hækkun mikil, sem kölluð er Trihuné, þar gnæfa yfir 5 turnar
sem bera hina 5 fána frá þeim alheimsmótum sem áður hafa
verið háð. Yfir Tribuné liggja tröppur að baki, sem hallandi
brautir niður og inná svæðið, sem þjóðirnar gengu eftir inná
mótið.
Við hina hlið Tribune eru*
fánastangir er bera alla fána og andi mun lifa og vaxa i
þeirra 42. þjóða sem mótið skátahreyfingunni á meðan
sækja og aðal fánastöng móts- j nokkur frjáls hugsun nær að
ins, sem er hvítur turn meira blómgast.
en 50 metra hár. Að ræðunni lokinni var líf
Þjóðirnar gengu inn á svæð- ' og starf Baden Powells hyllt
ið í stafrófsröð og vorum við ákaflega. Því næst tók til máls
næstir á eftir Indverjum, en
þeirra skátar voru um 700 tals-
ins. Við gengum upp á Tri-
buné í tveimur níföldum röð-
um og staðnæmdumst á pöllun-
um beggja vegna við miðturn-
inn. — Það var áhrifarík stund
fyrir okkur, sem orð fá ekki
innanríkisráðherra Frakklands
og lýsti ánægju sinni yfir því
að Frakklandi skyldi hlotnast
sá heiður að taka á móti svo
góðum gestum frá svo mörgum
löndum. Þá tók til máls aðal
mótstjóri Jamboree, Van Effen-
terre og lýsti hann hið 6. Jam-
lýst, þegar hið mikla mannhaf boree opnað. Lustu skátarnir
blasti við okkur, og ljóskastar-(þá upp Jamboree-hrópinu og
ar og hundruð allskonar mynda í tendruðu kyndlana, sem áður
hafði verið útbýtt, en þeir voru
allir tendraðir frá 5 vögnum,
sem óku inn mitt svæðið og
báru merki hinna fyrri móta.
A skammri stundu varð allt
svæðið að iðandi ljóshafi, sem
leystist sundur smátt og smátt,
því nú hjelt hver heim til sinna
búða. Allar götur frá L’Arena
urðu eins og ljóselfur, sem lið-
uðust inn í skóginn og myrkrið.
vjela beindust að oltkur — há
talararnir tilkynntu að þetta
væri ísland •— ísland gengur
inn á svæðið.
Fánarnir lyftust og við geng
um syngjandi inn á svæðið.
Fagnaðarópin frá þúsundunum
flæddu á móti okkur og nafn
Islands var hrópað á öllum hin
um framandi málum sem þarna
voru töluð. Raðir okkar fjellu
saman í 18. falda röð og við Syngjandi og fagnandi hjeldu
gengum undir vaxandi fagnað- blysfararnir hver til .síns heima
arópum á þann stað sem okk- °S tendruðu nýjan Jamboree-
ur var ætlaður í Alsírhjeraðs- eld- Jamboree, þetta dásamlega
búðum. Innganga þjóðanna íók æfintýr, var hafið! Heima i
meira en klukkutíma, þar til °kkar litla íslandi lýstu Hekla
setningarathöfnin hófst, með °S Geysir við hliðið. Við skild-
því að skátahöfðingi Frakk- ' um a svæðinu við fánastöngina
lands, General Lafont, flutti lúðurinn hljómaði kyrrð á
ávarp, og lýsti tilgangi þessa íslandl- Við hurfum þöglir og
móts og þýðingu þess til þess Þreyttir til tjaldanna og öllum
að fullnægja óskum og vonum var 3jóst að við vorum
alls mannkyns um frið og þlngað komnir til að reynast
j bræðralag. Hann bauð skáta íslandi vel og jeg veit að eng-
[ frá öjlum löndum veraldar vel- 1 lnn bregst þegar skyldan kallar.
komna til Frakklands og bað j Helgi S.
þá nota tímann vel til að hnýta)
vina og bræðrabönd, sem mættu
verða til þess að halda mann- j
: kyninu frá nýju flóði styrjalda
og mannvonsku.
Eftir að ræða skátahöfðingj- | Á FUNDI bæjarráðs er hald
j ans hafði verið þýdd á ensku inn var s.l. mánudag, voru til
■lefnd ræSií veil-
ingaleyfi
J og Frakkland beðið lifa, með
voldugu hrópi, þá hófst hátíð-
, legasta stund setningarinnar.
Það var flutt af plötu ræða
! Baclen Powells, sem hann hjelt
við setningu síðasta Jamboree
í Hollandi fyrir nákvæmlega
10 árum síðán. Djúp og algjör
þögn rikti vfir þeim þúsuhd -
, um sem þarna voru, svo ekk-
I ert truflaði rödd hins • aldna,
115na mannvinar. Rödd hans
umræðu reglur þær er seftar
verða fyrir bæjarstjórn til að
fara eftir yið veitingu meðmæla
til að fá veitingaleyfi.
Samþykkt var, að biðja Mat-/
sveina- og veitingaþjónaf jelag ís
lands, Veitingaþjónafjel. Reykja
víkur og Sámbatid veitinga- Ög
gistihúsaeigenda, að tilgreina
hvert einn mann í nefnd, til á-
samt fulltrúa bæjarráðs að gcara-
tillögur í þessum efnum.