Morgunblaðið - 23.08.1947, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. ágúst 1947j j
Bisgjöld þjóðminjasofnsins í gær
Tvær miljónir komnar
í bygginguna
RISGJÖLD Þjóðminjasafns-
ins voru haldin í gær í Tjarn-
areafé. Hafði byggingarnefnd-
in boðið þangað öllum þeim,
er til náðist og unnið hafa að
byggingunni fram til þessa —
arkitektum, . verkstjórum og
verkamönnum. Þangað var og
boðið tveim kennslumálaráð-
herrum, er stuft hafa byggingu
þessa, og flutningsmönnum að
þingsályktunartillögu þeirri, er
borin .vaj' fram á Alþingi 16.
júní 1944 um fjárveitingu til
byggingarinnar. Því miður gátu
ekki nær allir verið viðstadd-
ir, er boðið hafði verið.
Formaður byggingarnefndar,
prófessor Alexander Jóhannes-
sop, stýrði hófinu. Bauð hann
gestina velkomna og mælti á
þessa leið:
B Y GGIN G ANEFND Þjóð-
minjasafnsins hefir efnt til
þessarar veislu til þess að
fagna þeim áfánga, að hið veg-
lega hús Þjóðminjasafnsins
hefir nú verið reist.
Var byrjað að grafa fyrir
grunni 1. apríl 1946, en steypu
vinna byrjaði 16. maí. Hefir nú
verið varið til þessarar bygg-
ingar 2 miljónum króna.
Eins og öllum mun ljóst vera,
verður hús þetta eitt af veg-
legustu byggingum þjóðarinn-
ar, er geyma á á ókomnum
öldum sögu hinnar íslensku
þjóðar eins og hún birtist í
forngripum og listaverkum lið
inna alda, er segja frá daglegu
striti, lífsvenjum, trú og sið-
um okkar harðgeru þjóðar, er
hefir orðið að þola áþján, nauð
ir, svartadauða, en hefir háð
sína hörðu baráttu og sigrast
á öllum erfiðleikum, er að
hafa steðjað, þótt margir hafi
fallið í valinn af völdum hung
urs, harðrjettis og hverskonar
hörmunga. Því er saga íslensku
þjóðarinnar á undanförnum
öldum meiri sorgarsaga en orð
fái lýst. ,
En þrátt fyrir allt var sótt
fram og þjóðin varðveitti eðli
sitt og ornaði sjer við eld minn
inganna og afreksverka hinna
fyrstu alda, er listir og vísindi
voru í hávegum höfð og Islend-
ingar sköruðu fram úr öðrum
þjóðum í afrekum andans
verka, í hinum sígildu bók-
mentum, sem ætíð munu verða
hornsteinn íslensks þjóðarmetn
aðar og tilveru.
Þegar þessari byggingu verð
ur lokið, munu hinir dýrmætu
gripir þessa safns verða mik-
ilvægur þáttur í sögu þjóðar-
innar, og minna hana á fortíð
sína og baráttu í sorg og gleði
og hverskonar athafnir og líf
liðinna alda. Án þessarar þekk
ingar mun þjóð v.orri ekki unnt
að ganga fram hina ókunnu
götu framtíðarinnar og lifa og
starfa í þessu landi í samræmi
við eðli sitt og uppruna og það
hlutverk, er þjóð vorri er ætl-
að. —
Þessi hugsjón var öllum ís-
lendingum ljós, er við unnum
stærstá sigurinn í aldagamalli
frelsisbaráttu, er lýðveldi var
stofnsett 17. júní 1944. Að til-
hlutun Blaðamanafjelags Is-
lands og Þjóðhátíðarnefndar
fluttu formenn allra þingflokk
annna 16. júní 1944 eða daginn
fyrir stofnun lýðveldisins, eft-
irfarandi þingályktunartillögu:
„Alþingi ályktar að fela rík
isstjórninni að leggja fyrir af
ríkisfje 3 milj. króna til þess
að reisa hús fyrir Þjóðminja-
safnið og hefjast þegar handa
um undirbúning byggingarinn
ar“. —
Flokksformennirnir, flutn-
ingsmennirnir voru, Ólafur
Thors, Eysteinn Jónsson, Har-
aldur Guðmundsson og Einar
Olgeirsson.
Þessi tillaga var samþykt á
Alþingi 20. júní með öllum
greiddum atkvæðum. Er eng-
inn vafi, að þessari þingsálykt-
un var fagnað af allri þjóð-
inni.
Skömmu síðar skipaði þáver
andi menntamálaráðherra Ein
ar Arnórsson í byggingarnefnd
þá Alexander Jóhannesson,
Matthías Þórðarson og Valtý
Stefánsson. En er ráðherra-
skifti urðu, skipaði Brynjólfur,
Bjarnason menntamálaráð-
herra til viðbótar nefndinni þá
Kristinn Andrjesson og Kristj-
án Eldjárn. Hefir þessi nefnd
starfað óslitið síðustu 3 ár. —
Arkitektar voru ráðnir þeir
Sigurður Guðmundsson og Ei-
ríkur Einarsson, en bygginga-
meistarar þeir Sigurður Jóns-
son múrarameistari og Snorri
Halldórsson trjesmíðameistari.
Þegar undirbúningi öllum
var að mestu lokið, var fyrir-
huguð stærð hússins aukin og
á ráðherrafundi undir forsæti
Ólafs Thors var fallist á upp-
drætti þá, er nefndin lagði
fram, og um leið heitið 1 milj.
króna til viðbótar, er nefndin
taldi nauðsynlegt að fá til þess
að geta reist þessa byggingu.
Við höfum því enn aðeins notað
rúman helming af fje því, er
Alþingi og ríkisstjórn hefir
heimilað og væntum þess, að
engin töf verði á framhaldi
verksins.
Bygging þessi , hefir verið
nefnd „morgungjög til ís-
lensku þjóðarinnar“ og mun
henni verða fagnað af öllum
Islendingum, er henni er lok
ið. En hún mun einnig vekja
athygli annarra þjóða og eink-
um þeirra, er oss eru skyldast-
ar, og verða talin, vegna fjár-
sjóða þeirra, er hún á að
geyma, meðal merkustu stofn-
ana þjóðarinnar.
Við höfum náð þeim áfanga
í dag, er tryggir það, að þjóð-
minjasafn landsins eignast
glæsilega bygging og samboðna
því hlutverk’i, er því er ætlað.
Byggingarenfnd hefir því efnt
til þessa fagnaðar, til þess að
tjá þakkir sínar öllum þeim, er
stuðlað hafa að framkvæmdum
verksins. Við erum þakkiátir
menntamál§ráðherrunum Ein-
ari Arnórssyni, Brynjólfi
Bjarnasyni og núverandi
menntamálaráðherra Eysteini
Jónssyni, er allir hafa greitt
götu okkar og sýnt mikinn á-
huga í framkvæmd þessa verks.
En einkum þökkum vjer nú í
kvöld öllum verkamönnunum,
er unnið hafa að smíði hússins,
og þá ekki síst meisturunum,
er hafa unnið að daglegum
framkvædum og stjórnað verk
inu, arkitektunum og ýmsum
verkfræ’ðingum, er unnið hafa
að uppdráttum. Látum oss alla
vona, að oss auðnist að leiða
þetta verk til .lykta, er nú er
svo vel á veg komið. En vjer
teljum, að þessu verki geti orð
ið lokið eftir IV2 ár, ef engin
töf verður á framhaldi þess.
Fleiri tóku til máls, en Bryn-
jólfur Jóhannesson skemti gest
um með upplestri. Var sam-
koma þessi hin ánægjuleg
asta.
Frjálsíþróttamenn í R
fara í keppnisferð til
Norðurlanda
Á MORGUN fara hjeðan 13 frjálsíþróttamenn frá íþrótta'
fjelagi Reykjavíkur með „Heklu“ til Norðurlanda, en þeir munu
taka þátt í nokkrum íþróttamótum í Noregi og Svíþjóð.
I
Fyrsta keppnin, sem ÍR-ing-^
arnir munu taka þátt í, verður
á Bislet-vellinum í Oslo. Þar
verður haldið alþjóðamót dag-
ana 27.—29. ágúst og taka m.
a. þátt 1 því amei’ísku frjáls-
íþróttamennirnir, sem nú dvelja
í Evrópu. Síðan verður haldið
til Svíþjóðar og keppt þar á
nokkrum mótum.
í Noregi dvelja ÍR-ingarnir
í boði Norska frjálsíþróttasam-
bandsins, sem enn fremur greið
ir fyrir þá far til Stokkhólms
þar sem Islendingarnir dveljí
boði íþróttafjelagsins „Skuru*
en því fjelagi eiga ÍR-ingarnii
fyrst og fremst að þakka, ac
þeir geta farið í þessa ferð.
Frjálsíþróttamennirnir, serr
fara, eru þessir: Finnbjörr
Þorvaldsson, Gísli Kristjánsson,
Haukur Clausen, Jóel Sigurðs-
son, Kjartan Jóhannsson, Magr
Framh. á bls. 8
Tveir bræður, sem
svívirtu stúlku,
dæmdir
NÝLEGA voru tveir menn dæmdir fyrir að svívirða stúlku<
Annar þeirra var dæmdur í eins árs fangelsi, en hinn 10 mára
aða. Þá var þeim gert að greiða stúlkunni 10.263 krónur i
skaðabætur. 1
Menn þessir eru bræður. AnnL
ar þeirra er Ólafur G. Grímsson
en hinn Óskar Lúðvíg Grímsson.
Hann á heima í skála nr. 3 við
Þóroddsstaði, en Ólafur á heima
á Laugaveg 27. Báðir eru þeir
bílstjórar, en með dómnum voru
þeir sviptir ökuleyfi ævilangt.
Þeir hafa þáðir verið dæmdir
mörgum sinnum fyrir ýmiskon
ar aförot. Sakadómarinn í
Reykjavík kvað dóminn upp yf
ir þeim bræðrum.
Þennan glæp frömdu þeir
bræður að morgni 2. maí sl. Þá
hittust þeir niður hjá bílastöð
inni Hreyfill og var klukkan
langt, gengin átta. Þeir höíðu
verið að aka bílum sínnum alla
nóttina. Þegar þeir koma niður
á stöðvarplássið er þar bíll fyrir.
í honum eru nokkrir farþegar
m.a. ein stúlka. Allt var þetta
fólk drukkið. •
Bjóða að aka hcnni heim.
Þeir bræður áttu tal við far-
þegna í bílnum, en stúlkan fór
út úr honum. Bjóða þeir að aka
henni heim og þáði hún það.
Fór hún nú inn í bíl Óskars, en
Ólafur settist hjá henni. Bað
hún þá að aka sjer að tilteknu
húsi.
Var bílnum ekið inn Hverfis-
götu, en þeir bræður óku ekki
að húsi því er hún bað þá um.
Gerðist stúlkan nú ókyrr og
gerði tilraunir til þess að
stökkva út úr bílnum, en Ólafur
kom í veg fyrir það. Óskar ók
upp að Vatnsgeyminum í Rauð
arárholti en þar höfðu þeir sæta
skipti og settist hann nú hjá
stúlkunni í aftursæti bílsins. Ósk
ar hefur skýrt frá því að hann
hafi verið ákveðinn í að komast
yfir stúlkuna, hvað sem hún
segði. En hún varðist eftir getu
og gat varnað því að hann næði
áformi sínu.
Meðan á þessu stóð hafði Ólaf
ur ekið bílnum upp undir Vatns
endahæð og á afskektan afleggj
ara og stöðvaði bílinn. Hann
gekk út og bróðir hans Óskar
einnig. Stúlkan mun hafa ætlað
út en hrasaði og fjell á gólf bíls
ins. Rjeðist Ólafur þar á stúlk-
una áður en hún gat staðið upp
Er Ólafur hafði framið glæp
sinn tókst stúlkunni að komast
út úr bílnum. Var hún þjökuð
mjög og illa til reika. Bað hún
mennina að aka sjer heim, en
þeir syntu því ekki og óku á
bro_tt. Stúlkan komst svo við ill
an leik á öðrum skónum upp að
Vatnsendahæð en þar voru menn
að vinna er hjálpuðu henni til
að komast til Reykjavíkur.
Þeir bræður voru og með
dómnum sviptir kosningarjetti
og kjörgengi og gert að greiða
allan málskostnað.
DX or L
acjnuó ^Jhorlacmi
hæstar j ettarlögmaður
Frumkvæði
borgarstjóra um
leikvallamálin
FYRIR nokkru var að tilhluí
an borgarstjóra skipuð nefnd til
þess að athuga og gera tillögur
um staðsetningu barnaleikvalla
og dagheimila í Reykjavík.
Formaður nefndar þessarar er
Auður Auðuns b.æjarfulltrúi,
Nefndin hefir undanfarið notið
aðstoðar dansks arkitekts, sem
er sjerfræðingur í þessum mál-
um. Rjeði borgarstjóri hann tií
þess að vinna með nefndinni og
gera tillögur sínar til hennar.
Á bæjarstjórnaríundinum í
fyrradag lýsti borgarstjóri því
yfir aö hann vænti góðs af starfi
nefndarinijgr og aðstoðarmanns
hennar.
Bv, „Bjarni riddari"
væntanlegur m
aðra heigi
NÝSKÖPUNARTOGARI Hafrt
arfjarðar, Bjarni riddari, er
væntanlegur hingað um aðra
helgi.
Togarfnn fór reynsluför síná
s.l. þriðjudag og gekk ferðin að
óskum.
Skipverjar á Bjarna riddará
fóru til Englands með Maí. Ver
ið getur að ferðum þeirra seinki
nokkuð vegna óhappsins er Mai
varð fyrir. Gert var ráð fyrir að
skipverjarnir tækju við skipinu
og sigldu því hingað heim seinni
part næstu viku.
Lárusunum hvar- ;
veina iekið ágæi-
lega á Norðurlandi
Akureyri, föstudag.
LÁRUS PÁLSSON og LÁRUS
Ingólfsson endurtóku kvöld-
skemtun sína í samkomuhúsi
bæjarins í gærkvöldi með leik-
þáttum, gamanvísum og upp-
lestri.
Var mikið fjör á ferðum uppi
á leiksviðinu og þá ekki síður
niðri í salnum hjá áhorfendum
og áheyrendum, er höfðu troð-
fylt húsið. Var listamönnunum
hvað eftir annað fagnað með
dynjandi lófataki. Þeir fjelagar
skemmta á Kristneshæli í dag.
Á leikför þeirra um Norður-
land hefur þeim hvarvetna
verið tekið mjög vel.
—H. ValcL