Morgunblaðið - 09.09.1947, Page 12
12
MORGUMBLAÐltt
Þriðjudagur 9. septr. 1947
fimm mínúlna krossgátan
Lárjett: — 1 þeyta — 6 ekki
lóðrjett — 8 fangamark — 10
pot — 11 kvensnift — 12 hvað
-— 13 titill — 1'4 fyrir útan —
16 falla.
Lóðrjett: — 2 klaki — 3
hella — 4 stafur — 5 landnáms
maður — 7 óliðugt — 9 fóru
— 10 brodd — 14 mælir — 15
skvaidur.
Lausn á seinustu krossgátu:
Lárjett: — 1 bogna — 6 frá
•— 8 na — 10 ar — 11 skemm-
ur — 12 K.Á. — 13 mi — 14
þei — 16 þeysa.
Lóðrjett: — 2 of — 3 Gríms-
ey — 4 ná — 5 enska — 7
errið — 9 aka — 10 aum — 14
Þ.E. — 15 ís.
— Sorgieg sannindi
Framh. af bls. 11
komandi reka á reiðanum af-
skiptalaust, þjóðinni til skamm-
ar og skaða og öðru.m þjóðum
til leiðinda og tjóns má ekki
lengur viðgangast. Þess vegna
verða nú stjórnarvöldin í þessu
landi og aðrir þeir, sem með
framangreind mál fara, að taka
nú til óspilltra roálanna og
hrynda þessu máli í það horf,
að þjóðinni sje að því sem
minnstur hnekkir, efnalega og
álitslega.
Einar Guömundsson.
—Gyðingarnir i Hamborg
Framh. af bls. 1
Landgöngunni mótmælt
„Nefnd frelsaðra Gyðinga“,
sem telur sig standa fyrir 140
þús. Gyðinga, hefur sent mót-
mæli til bresku stjórnarinnar
og Sameinuðu þjóðanna, vegna
meðferðarinnar á fólkinu, sem
hefur verið flutt til Hamborg-
ar.
Telja þeir að Gyðingamir á
skipunum, hafi sætt ómannúð-
legri meðferð.
Vegamáí Vestfirðingafjórðungs
VESTFIRÐIR hafa með bíl-
veginum yíir Þorskaf jarðarheiði
náð langþráðu sambandi við
Reykjavík og aðra landshluta.
Þótt slíkt ferðalag taki nú
minnst 16 klukkustundir frá
ísafirði til Reykjavíkur, er al-
menn ánægja yfir því, að þess
skuli vera kostur. Hefur þessi
leið þegar verið mikið notuð.
Við nánari athugun hlýtur að
verða ljóst, að ferðalagið frá ísa
firði og byggðum Vestfjarða al-
mennt, áleiðis til Reykjavíkur
og annarra landshluta, má gera
miklu greiðari en það er nú. —
Það er í stuttu máli með því, að
samgönguleiðin milli Reykjavík-
ur og þessarra byggðarlaga,
lægi sem beinasta leið, sem næst
flugleið þeirri, sem nú er farin
á fyrrgreindum leiðum.
Breytingar þær, sem þyrfti að
gera til þess að ná þessu marki
eru þessar;
Bílvegur frá Arngerðareyri
yfir Kollafjarðarheiði að Múla
á Skálmarnesi, eða öðrum stað,
sem hentugri þætti.
Frá Múla, flóabátur, með við-
komu í Dagverðareyri, að
Straumi á Skógarströnd.
Frá Straumi (eða öðrum bæ,
ef hentugra þætti), bílvegur yfir
Rauðamelsheiði, áleiðis til Borg-
arnes, eða Akranes, eftir atvik-
um.
Leið þessi (yfir sjó og land),
mun taka frá ísafirði til Reykja
víkur 10 klst (í stað 16 klst. með
núverandi leið). Leið sú er hjer
um ræðir hefur og þá miklu
kosti, að með henni komast af-
skekkt byggðarlög, Múla- og
Gufudalssveitir, svo og Skarðs-
strönd og Fellsströnd í hið á-
kjósanlegasta samband við
Reykjavík, og víðlend ræktunar
hjeruð norðan og sunnan Snæ-
fellsnes komast í beinast sam-
band við Reykjavík. — Sum
þessara byggðarlaga, svo sem
Skógarströnd, eru nú alveg utan
við bílvegasamband.
Þó er enn ótalinn stærsti kost-
urinn við þessa leið. Hann er sá,
að hún yrði án efa ein trygg-
asta vetrarleið hjer lendis, og
myndi því á vetrum verða aðal-
leið fyrir Dalina, þegar Bratta-
brekka er teppt, vegna fann-
kyngis.
Þannig mælir allt með því, að
einmitt fyrrgreind leið yrði að-
alsamgönguleiðin fyrir Vest-
firði, miðbik Breiðafjarðar og
uppsveitir Mýrasýslu.
Það verður aðf sjálfsögðu
krafa framtíðarinnar, að þjóð-
vegir landsins verði svo beinir
sem frekast er kostur. — Við
höfum blátt áfram ekki efni á
því, að eyða öllum tímanum og
bílaslitinu sem nú fer í þarflausa
króka. Jafnframt því, að gera
vegina sem beinasta verður það
höfuðatriði, að þeir sjeu árlega,
sem lengst færir, og þannig upp-
fylli í sem ríkustum mæli þær
almennu hagsbætur, sem veg-
irnir eiga að mynda og styðja.
Jeg leyfi mjer að vænta þess,
að alþingismenn Vestfirðinga,
Dalamanna og Snæfellinga,
vinni sameiginlega að þeirri
lausn vegamála Vestfirðinga-
fjórðungs, sem hjer er stungið
upp á, því hún tryggir þessum
hjeruðum beinastar og bestar
samgöngur við Reykjavík, fyrir
fólk, mjólk og aðrar daglegar
neysluvörur.
A. Fr. B.
Á SUNNUDAG hvolfdi stór-
um farþegabíl á Þingvallavegi.
í bílnum voru víst ein þrjú börn
auk bílstjórans. Ekkert þeirra
sakaði.
Slysið var nokkru fyrir utan
Kárastaði. Bíllinn sem er skóla-
bíll Laugarnesskólans, var á leið
austur, er þetta vildi til. Bíll-
inn fór einar þrjár veltur áður
en hann stöðvaðist. Skemdir
urðu nokkrar á bílnum, en þó
ekki meir en svo að hægt var
að aka honum eftir sem áður.
Dregur úr verkföll-
unum
London í gær.
HELDUR hefir dregið úr
verkföllunum í - Suður-Yorks-
hire í Englandi. Eru nú ekki
nema 44 námpr, sem eru við-
riðnar verkföllin og af þeim
eru aðeins 28, sem algjör
vinnustöðvun er við.
Atkvæðagreiðsla fór fram
um það meðal verkamannanna
í Grimethorp, hvort þeir vildu
fallast á hin nýju boð stjórn-
arinnar. Næstum allir greiddu
atkvæði á móti þeim, og held-
ur verkfallið þar því áfram.
Aftur á móti hafa nokkrar
námur, sem voru í samúðar-
verkfalli aftur byrjað vinnu.
— Reuter.
Sfjórnarfundur um
breska úffiufning-
inn
London í gærkvöldi.
ATTLEE, forsætisráðherra,
kom úr sumarleyfi sínu til
London í dag. — Mun hann á
morgun kalla saman stjórnar-
fund, til að ræða tillögur Sir
Stafford Cripps um aukinn út-
flutning.
Útflutningstillögur Cripps
verða birtar opinherlega næst-
komandi föstuciag á fundi tvö
þúsund fulltrúa verkamanna
og atvinnurekenda. — Reuter.
Verða að hjélpa
Grikkjum
New York.
ÞEGAR ALEXANDER land-
stjóri Kanada og fyrrverandi
marskálkur í breska hernum,
kom til New York, sagði hann,
að Ameríku bæri skylda til að
hjálpa Grikkjum, jafnvel þótt
það kostaði styrjöld við Rússa.
Alexander kom til New York
til að vera viðstaddur fund
bandarískra uppgjafahermanna
og var hann að ræða um skoðun
Paul Griffiths um að Bandarík-
in yrðu að styðja Grikkland með
peningum, vopnum og jafnvel
með her.
Alexander sagði: Jafnvel þótt
það kostaði styrjöld við Rúss-
land hefur Ameríka siðferðis-
lega skyldu til þess. Við eigum
að standa stöðugir með vinum
okkar. -— Kemsley.
Vináffusamningiff
Tyrklands og Iraq
Ankara í gær.
TYRKNESKA þingið sam-
þykkti í dag vináttusamning-
inn við Iraq. Þing Iraq hefur
samþykkt hann fyrir nokkru.
Stjórnarfulltrúar fóru vináttu
orðum um Iraq og sögðu, að
þessar tvær þjóðir ættu jafn-
an að vera bundnar vináttu-
böndum.
RÁÐHERRA HVERFUR.
BERLÍN: — Álitið er, að
Rudolf Paul, sem hvarf fyrir
fjórum dögum síðan og var
ráðherra í einu fylkjanna á
hernámssvæði Rússa, hafi flú-
ið inn á bresk-bandaríska her-
námssvæðið undan rússnesku
yfirvöldunum.
Borgarrilari sjer um
lóöaúthlufun og fjár-
fesfingarieyD
SVO sem kunnugt er hefur
Reykjavíkurbær og Fjárhags-
ráð ákveðið, að tilnefna einn
mann hvert, er leggja skuli
grundvöll að samstarfi Fjár-
hagsráðs og bæjarráðs, að því
er tekur til lóðaúthlutunar og
f j árf estingarleyf a.
Á fundi bæjarráðs á föstu-
dag var samþykkt að tilnefna
Tómas Jónsson, borgarritara,
af hálfu bæjanns.
Ný bók
ÞAÐ er sannarlega vonum
seinna að hin stórmerka bók
Piet Bakkers, sem í hinni nýju
íslensku útgáfu kallast „Frans
Rotta“, kemur út hjer á landi,
enda þótt all-mikið hafi borist
hingað af dönsku útgáfunni.
V. S. Vilhj., rithíöfundur, mun
hafa bent útgefanda á þessa
bók, en tveir merkir uppeldis-
fræðingar höfðn þá einnig á-
kveðið að þýða bókina fyrir ís-
lenska lesendur.
Þetta er í raun og veru upp-
eldisfræðileg skáldsagá, sem
fjallar um olnbogabarnið og
viðhorf þess og afstöðu til um-
hverfisins, en samtímis við-
brögð hinna fullorðnu gagn-
vart brekum þess. Það mun á-
reiðanlega sjaldgæft að svo vel
takist að skapa samtímis frá-
bærnilega skemmtileg og auð-
lesið skáldverk og bók, sem er
beinlínis skóli fyrir unga og
gamla. Bókin er að sjálfsögðu
ekki ætluð börnum, heldur full
orðnum, en reynslan hefur
samt orðið að hún er einnig
mjög hugnæmt lestrarefni fyr-
ir unglinga, þar sem mikill
hluti hennar gerist í skólum og
yfirleitt meðal barna.
Það er mjög vel farið að
Helgafell hefur ráðist í að geía
þessa bók út í ódýrri litgáfu.
— Me5a3 annara erSa
Framh. af bls. 6
framtíðinni á nýr þáttur að
hefjast í sögu þessarar stóru
eyju. Það er farið að reisa þar
stór þorp og stærri og stærri
skikum er breytt í frjósamar
ekrur, þar sem ræktað er
gúmmí, kaffi eða te. Með tím-
anum verður þetta landssvæði
ef til vill grundvöllurinn undir
ástralskri velgengnisöld. -
all right, now,„ MAve
'IOUR RODú HANDVÍ 60
QUIETLY.hNOT AW0RD -
EHiFTY'LL LEAD! H£ .
KN0W£ WHERE THE ]
, CAR 16- PARKED! J
At THI5 IN6TANT,
r VEAHI LEFT T G00DÍ V
THE M010Z RUNNIN6,/TH05E £TARTER£
JLJ6T IN CA6E! / /VIAKE A LOT
OF NOISE ON V
a guiet
NI6HT..LET'$ /
MMWfiBIHpgTAV ÖOi J
f HEREWE60!»j
* LEYTE, WITH0UT
LANDIN6 BARQES*
ÍJERQEANT WEAVER
W0ULD LIK'E
Rí , THl£! í
r oh-oh! phil's. “
> $iqnal! h-houp!
. "H" FOR H00DLUMÍ
—Q0T THE OLD
WÉEPIN' WEAP0N J
- L0ADED — 1
Inc . VX'oiid nglits rcscrvcd
Kalli: Jæja, verið þið tilbúnir með byssurnar! — hvar bíllinn er. Förum nú. — Á sama augnabliki Bing og Tuck búa sig undir atlöguna.
Farið þið hljóðlega. Shifty, þú ferð fyrstur, þú veist gefur Phil merki um að byrja árásina á bófana. —