Morgunblaðið - 11.09.1947, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 11.09.1947, Qupperneq 5
; Fimmtudagur 11. sept. 1947 MORGVTSBLAÐIÐ 5 — Landsamband íslenskra útvegsmanna — ... kv„Jdir útvegsmanna .- . Ritnefnd L. I. Ú. AFKOMA (JTVEGSllViS OG ÞJÓÐFJELAGSINS Eftir Finnboga Guðmundsson Síldarvertíðin: NÚ ER síldarvertíðin senn að jverða úti, og e rafkoman miklu verri en svartsýnustu menn Ijetu sjer detta í hug. Aflinn orðinn aðeins % hluti þess, er búast mátti við, ef síldargengd hefði orðið í meðal lagi með Jbeim möguleikum, sem voru til að afla og taka á móti til bræðslu og í salt. Gjaldeyris- tekjur þjóðarinnar verða aðeins 70—80 miljónir króna af síld- veiðunum í stað 200—250 milj. króna, ef heppnin hefði verið með. Rekstrartap útvegsmanna á síldarvertíðinni verður um eða yfir 20 miljónir króna, rekstrartap síldarverksmiðja og síldarsaltenda er mikið, og allir, sem við síldveiðarnar vinna á sjó og í landi, hafa að- eins þær lægstu tekjur, sem þeim eru trygðar af atvinnu- rekendum. Útvegsmenn verða nú sem oft áður verst úti. — Þetta er þriðja síldarvertíðin, sem bregst og auk þess hafa út- vegsmenn búið við mjög óhag- stætt afurðaverð, miðað við til- kostnað, síðan 1942 og því .oft- ast tapað og bætt við skuldum áriega. IÞo kvertíð vjelbátaútvegsins : ár: J'"-. 5 hefur verið deilt á út- ve nenn vegna þess, að þeir ge: i kröfu til að ríkið tæki áb 3 á afla þeiira í ár, og mr 'r hafa haldið því fram, að ' lþingi hafi framið hið jnru ' glópstkuverk með fisk- áb“’ '5arlögunum. Adeilan út af ! ,;,sum lögum hefur verið be: gegn útvegsmönnum al- mr‘ en mest er okkur Suður- ner: nönnum kent um þetta. Ad um þessum hefur ekki ve i > svarað'að neinu, og því álí ' 'g rjett, að minnast nokk- ur" ’ r orðum á þessi mál um lei: og jeg læt frá mjer fara fyrirboða um þær kröfur, er v/e ■ útvegsmenn munum nú geia. Kröfur þær, er útvegs- men ngerðu á s.l. hausti, voru þær, að trygt yrði sem lágmarks verð kr. 0.75 pr. kg. af slægð- um þorski með haus og tilsvar- andi á öðrum tegundum, og jafnframt yrði trygt, hð kaup- gjald í landi hækkaði ekki, og vísitalan yrði ekki yfir 300 stig. Alþingi tók ábyrgo á 0.65 pr. kg. af þorski slægðum, með haus og tilsvarandi á öðrum tegundum, og vísitalan hefur verið 310—316 stig á árinu. — Þessar ráðstafanir urðu til þess að mikill hluti vjelbátútvegs- ins var í gangi á síðustu vetr- arvertíð, en taprekstur varð talsverður á flestum bátunum, sem gengu, en nokkur hluti bát anna komst ekki á vertíð fyrir fólkseklu, og fjárskorti fitvegs- manna. Það hefur sem sje sýnt sig, að kröfur útvegsmanna voru síst of miklar og þó þær hefðu verið uppfvltar með öllu hefði samt orðið tap á mörgum bátum og nokkrir ekki komist á stað. Afli þeirra báta, sem gengu, varð sem næst þessu: ca. 25 þús. tonn frystur fisk- ur. ca. ca. 28 þús. tonn salt- fiskur. ca. 3 þús. tonn þorska- lýsi. ca. 6 þús. tonn fiskimjöl. 10 þús. tonn hrogn. samtals að yerðmæti til útflutnings ca. 126 milj. króna. Jeg fæ ekki sjeð, að þjóðin væri betur á vegi stödd nú, ef vjelbátaflotinn hefði ekki ver- ið í gangi í vetur, þvert á móti værum við betur settir, ef kröf- ur okkar hefðu verið teknar til greina að fullu, og enn fleiri bátar komist á veiðar, og væri þá meira til af útflutningsvör- um til í landinu i:ú til->gjald- eyrisöflunar. Þeir menn, sem deilt hafa á okkur fyrir að knýja fram ríkisábyrgð á fram leiðslu vjelbátaútvegsins, hafa ekki komið með neinar raun- hæfar tillögur aðrar, er leitt gætu til þess, að útvegurinn væri í fullum gangi. Þeir hafa að vísu minst á, að dýrtíðin og framleiðslukostnaðurinn þyrfti að lækka, en þeir hafa ekki komið með neinar ákveðnar íil- lögur um hvernig það skuli framkvæmt. Jeg hefi ekki gögn í hönd- unum til þess að gera mjer grejn fyrir, hve mikið tap út- vegsmanna á þorskvertíðinni hefur orðið, en mjer þætti ekki ósennilegt, að það muni vera ca. 10 milj. króna. Hefur þá tap útvegsmanna á árinu orðið samtals ca. 30 miij. króna. — Útvegsmenn munu nú gera þá kröfu, að tapi þessu verði jafn- að á þjóðina í heild, en þeir ekki látnir bera það einir, og er það fyrst og fremst vegna þess, að þeir eru ekki færir um það, og svo er það full sann girniskrafa, þar sem tap þetta er fyrst og fremst vegna þess, að þjóðin hefir'tekið af útvegs- mönnum sem þessu nemur meira en þeir öfluðu. Nú reynir á samtök útvegs- manna' meir en nokkru sinni fyr, og verða þeir að beita þeim til þess að knýja fram þá kröfu, að tapinu í ár verði dreift á alla þjóðina, að þær ieiðrjettingar verði gerðar, að heilbrigður starfsgrundvöllur fáist fyrir framleiðendur útflutningsfram leiðslunnar, sem er lykiliinn að gj aldeeyrisöf luninni. G j aldcyrismálin: Það hefur verið minnst á, að nauðsynlegt sje að taka gjald- eyrislán í Bandaríkjunum, og það jafnvel rökstutt með þeirri firru, að það sje nauðsynlegt til þess að kaupmerm þurfi ekki að draga saman rekstur sinn. Jeg vil ekki láta hjá líða að láta koma fram þá skoðun mína og flestra útvegsmanna, að slík ráðstöfun væri algerlega óverj andi nema því aðeins, að það væri nauðsynlegt til þess að forða þjóðinni frá hungri. Ef tekið er lán, verða men nað gera sjer grein fyrir, hvernig hægt muni að greiða það aftur, og ef við þurfum nú á dollara- láni að halda, get jeg ekki sjeð, hvenær við verðum aflögufærir og ef Bankaríkjamenn þurfa ekkert að kaupa af okkur nú, þegar þeir þurfa að hjálpa flest um þjóðum heims, get jeg ekki sjeð, að þeir þurfi þess frekar, þegar þær þjóðir, sem nú taka lán hjá þeim fara að greiða þær aftur, en dollara getum við vit- anlega ekki eignast nema fyrir vörur, er við kunnum að geta selt í dollurum. Við þeim erfið- leikum, sem nú hafa skapast, er ekki til neitt annað ráð, en að gera ráðstafani- til þess að öll okkar fiskiskip sjeu í full- um notum við fiskveiðar. Til þess að það megi verða, verður að finna möguleika til þess að skapa heilbrigðan starfsgrund- völl fyrir útgerðin? sem er, að þeim sje trygt það verð fyrir afurðir sínar, sem þeim er nauð synlegt, miðað við þann útgerð arkostnað sem er, eða að lækka útgerðarkostnaðinn. svo að hægt sje að afla fyrir það verð, sem fæst á erlendum markaði. Eitt verða menn að gera sjer ljóst, og það er, að þetta er ekki hægt, án þess að það skerði kjör flestra eða allra þjóðfjelagsþegnanna í bili, því orsök þess hvernig komið er, er sú að þjóðin notar meira en afl- ast, enda hefir hún búið við betri lífskjör, en nokkur önnur þjóð í Evrópu, nú um nokkurt skeið. Ríkisstjórnin verður að gera bráðabirgðaráðstafnir nú þegar til þess að útvegurinn verði rekinn með mestu afköstum þessa fjóra mánuði sem eftir er af árinu. Getur það aukið gjaldeyristekjurnar mjög mik- ið, sennilega allt að 100 milj. króna, umfram það, sem verð- ur, ef allt er fast, svo sem nú er. En auk þess er fyrirsjáan- legur beituskortur í vetur, ef ekki fara nú þegar miklu'fleiri bátar á reknetaveiðar en orðið er og reknetasíldina er einnig hægt að salta, og frysta, til út- flutnings. Ef eðlilegt ástand væri í landinu mundu um 150 —200 bátar stunda reknetaveið ar fyrir Norðurlandi og í Faxa- flóa, en nú munu aðeins 30— 40 bátar stunda þessar veiðar. Astæðan fyrir þessu er sú, að verðið er ekki nógu hátt á síld- inni miðað við tilkostnað, og sjómenn hafa ekki íengist á bát ana, þó þeir hafi kr. 1891.00 kauptryggingu á mánuði. Allir bátar sem ekki eiga reknet, ættu að fiska þorsk með línu og í botnvörpu. Samkomulag þarf að nást. Það er mjög þýðingarmikið, að samkomulag sem flestra stjetta náist um þær lagfræing- ar, sem gerðar verða, þar sem annars er hætt við, að til al- varlegra árekstra komi, og verk föll valdi stöðvunum, er verða til stórtjóns fyrir alla og auka á erfiðleikana. Það er því nauð- synlegt, að nú þegar verði full- trúar atvinnustjettanna boðað- ir til fundahalda ásamt fulltrú um ríkisvaldsins, til þess að reyna að finna leið eða leiðir til úrbóta á þeim grundvelli, að sem flestir geti sætt sig við eftir ástæðum. Jeg vil því gera þá tillögu til ríkisstjórnarinnar að hú nbjóði þessum aðilum að tilnefna fulltrúa í nefnd, til þess að reyna að finna sam- komulagsgrundvöll um þessi mál. Landssamband ísl. útvegs- manna fái 2 fultlrúa, Alþýðu- samband íslands 2. Farmanna- og fiskimannasamband íslands 2 og Búnaðarfjelag íslands 2, en ríkísstjórnin skipi einn mann, er verði formaður nefnd arinnar. Þessari nefnd sje fal- ið að reyna að finna samkomu- lagsgrundvöll um leiðrjettingar til þess að fiskveiðarnar komist á heilbrigðan grundvöll fyrir næsta ár 1948, eða aðeins um eitt ár í senn, en það tel jeg líklegra til árangurs, en ef ætti að hafa fleiri ár í huga. Hugs- anlegt er þó, að sá grundvöllur sem fyndist, gæti orðið til fram búðar t. d. að því yrði þannig fyrir komið, að kaupgjald og verð innlendrar neysluvöru breytist eftir magni og verði útflutningsafurða ekkar. Ef þessir aðilar, sem hafa fulltrúa í þessari nefnd, koma sjer saman, verður Álþingi og ríkisstjórn að sjá um fram- kvæmd á samkomulaginu. Ef hinsvegar þessir aðilar geta ekki komið sjer saman, verður Alþingi Samf að finna meiri hluta um eitthvert samkomu- lag, sem verður þess valdandi að útgerðin sje reiknuð með full um krafti. Nokkrar hugleiðingar um hag- kerfi þjóðfjelagsins. Margir þeir, sem voru á móti fiskábirgðarlögunum, færa þau rök fyrir því, að þau leiði til aukins sósíalisma og ríkisrekstr ar og má þetta vei vera. Þessum mönnum vil jeg benda á það, að ef þeir vilja losna við að fá meiri höft á at- hafnasviði einstaklinga, fjelaga og stjetta, er nauðsynlegt að gefa gjaldeyrisverslunina alger lega frjálsa og afnema öll við- skiftahöf og láta frjálst fram- boð og eftirspurn rráða verði allra hluta. Ef þetta fyrirkomu lag væri hjer nú, værum við útvegsmenn ekki í vandræð- um. Við gætum þá selt dollar- ana fyrir kr. 18—20.00 í staðinn fyrir kr. 6.50, eins og okkur er skamtað fyrir þá nú, samkv. gjaldeyrislögunum. Við erum nú skuldbundnir til þess að afhenda allan gjald- eyririnn, sem við fáum fyrir afurðir okkar fyrir þetta skamt aða lága verð, alveg án tillits til, hvað hægt væri að selja hann á frjálsum markaði. Og þessar skömtuðu kr. 6.50 fáum við jafnmargar fyrir hvern doll ara enn, þó þessar krónur hafi verið gerðar verðminni með hverju árinu sem líður, vegna taumlausrar samkepni allra stjetta um að krefjast fleiri og fleiri króna fyrir þjónust.u sína. Og sjálf ríkisvaldið hefur tekið þátt í kapphlaupinu og eru nú ríkistekjurnar orðnar hátt á 3. hundrað miljóna, og hrekkur þó ekki til fyrir útgjöldunum. En það er ekki nóg, að við sjeum skuldbundnir til þess að skila öllum gjaldeyrinum á þessu lága verði, heldur virðist svo, sem þeir aðilar, sem hafa rjett til að kaupa gjaldeyrinn, hafi engar skyldur um að kaupa hann. Að minsta kosti hefur þetta orðið svo í framkvæmd, að bankarnir hafa neitað að kaupa gjaldeyri ýmsra bjóð, og það þá helst þeirra, sem kaupa Vilja afurðir okkar og hcfum við þá orðið að selja hann við lægra verði en skráð er t. d. lírur fyr ir 20—25% lægra, eða því verði er innflytjendur vildu skammta okkur í hvert sinn ojfvar okk- ur ekki bætt þetta upp með því að greiða okkur hærra verð fyr ir annan gjaldeyri fvo sem doll ara. Ekki hafa útvegsmenn fengið að hafa nein áhrif á, hvernig með gjaldevririnn hef- ur verið farið fram að þessu, enda hafa þeir verið rjettlausari en nokkrir aðrar um að fá gjald eyris- og innflutningsleyfi. Eins og að framan segir, hef ur verið hjer um ófrjálst. skipu- lag að ræða að verulegu leyti, en þó hafa þeir, sem bundið hafa gjldeyrisverslunina o. fl., ekki þorað að gera þær ráðstaf- anir, sem nauðsynlegar eru til þess að samræmi haldist, þegar slíkt er gert, en það er að lög- ákveða kaupgjald allt og verð á lífsnauðsynjum, og því er nú komið sem komið er. Ef gjald- eyrisverslunin er bundin, svo sem verið hefur, er nauðsyn- legt að binda um leið kaup^jald allt í landinu og verðlag á lífs- nauðsynjum. Fyrir því munum við útvegs menn krefjast þess, að við fáum gjaldeyrisverslunina algerlega frjálsa og öll viðskiftahöft af- numin, eða að ríkið taki ábyrgð á föstu verði á framleiðsluvör- um okkar í eitt ár í senn, og sje þá einnig trygt, að framleiðslu- kostnaður sje í samræmi við á- byrgðarverðið. Annað hvort af þessu verður að vera fyrir hendi til þess að heilbrigðUr starfsgrundvöllur skapist fyrir útveginn, en þó getur komið til greina,' ýms millistig úr hvoru tveggja t. d., að útvegsmenn fái veruleg- an hluta gjaldeyrisins frjálsan, Frh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.