Morgunblaðið - 12.10.1947, Síða 1
Sænskri skonnortu
sem á voru 3 íslend-
ingar siglt í strand
Hún var að því komin að sökkva
UM KLUKKAN eitt í gærdag sendi sænska skornortan
Trinite frá Málmey,- út neyðarskeyti. Sagði skipstjórinn mik-
inn leka vera kominn að skipinu og aðeins tímaspursmál væri
kve lengi skipið gæti verið ofansjávar. Botnvörpungurinn Gylfi
og björgunarflugvjel leituðu að bátnum lengi dags í gær en
án árangurs. Voru menn farnir að óttast um afdrif skipsins.
Klukkan að ganga sjö bárust þær frjettir hingað að skipið
væri komið til Þorlákshafnar og væri skipshöfnin heil á húfi.
Meðal skipverja eru þrír Islendingar.
Á leið til Svíþjóðar.
Skonnortan var á leið til Sví-
þjóðar og hafði farið frá Akra-
nesi í fyrrakvöld áleiðis til
Seyðisfjarðar. Skonnortan var
hjer á síldveiðum í sumar og
haust og hafði um 15 til 1600
tunnur síldar innanborðs. Hún
er rúml. 300 smál. að stærð.
Bunduríkin því fyigjundi uð
Pulestínu verði skipt
-«>
prmssss'jnnar
Rak undan veðri og vindi.
Þegar neyðarskeytið var sent
hjelt skipstjórinn sig vera um
20 sjóm. út af Krísuvíkurbjargi.
Var þá mikill leki kominn að
skipinu og sagði skipstjórinn,
að takast mætti að halda vjel
skipsins í gangi til um kl. 3. —
Skipið rak auk þess undan veðr-
inu að Krísuvíkurbjargi, að sögn
hans. Eftir að þetta skeyti barst
tókst ekki að hafa samband við
skipið.
Togari og flugvjcl leita.
Slysavarnafjelagið gerði þeg-
ar ráðstaíánir til þess að fá skip
á næstu grösum til þess að fara
Trinite til aðstoðar. Gylfi var
staddur um það bil tveggja og
hálfs tíma siglingu frá beim
stað, er skipstjórinn á skonnort-
unni gaf upp. Var nú full ferð
sett á vjelar Gylfa og var hann
kominn á vettvang ■ klukkan að
ganga sex.
Einnig hafði tekist að fá björg
unarflugvjel frá Keflavíkurflug
velli til þess að leita að Trinite.
Bæði flugvjelin og Gylfi leituðu
þar til klukkan að verða sjö, en
þá barst sú fregn bingað, að
skonnortan væri komin inn á
Þorlákshöfn, sem er langt fyrir
áustan Krísuvík eins og vitað er.
Islendingarnir.
Morgunblaðið átti tal við Þor-
lákshöfn um kl. 7.30 í gærkvöldi
Þar var staddur inn: einn ís-
lendinganna, Magnús Sigurðs-
son frá ísafírði. Skýrði hann svo
frá að auk hans væru á skipinu
tveir aðrir landar, þeir Rein-
hard Sigurðsson frá Siglufirði
og Bragi Jóhannsson einnig frá
Siglufirði. Alls voru 7 menn á
skonnortunni og voru hitt Norð-
menn, Finni og skipstjórinn sem
er sænskur.
Framh. á bls. 8
SEINNI part dagsins í \
gær bjargaði togarinn i
Drangey breska fiskiskip- ;
inu Stundet Prince frá i
Grimsby, er það ' var í i
nauðum statt út af Garð- i
skaga. i
Drangey, sem var á leið i
út á Hala, fór hinu breska i
skipi þegar til aðstoðar og i
var kominn klukkan að i
ganga 10 í gærkvöldi að i
Studcnt Prince. — Þegar |
Drangey var komin skip- i
inu til hjálpar, kom í Ijós, i
að stýri þess hafði brotrt- i
að. Var nú þegar byrjað á I
að koma vírum milli skip- i
anna og mun það liafa i
gengið sæmilega, því að :
skömmu síðar hafði tekist :
að koma öruggum vírum \
yfir í breska skipið og var í
þá haldið af stað hingað til \
Reykjavíkur. Breska skip- \
ið er milli 80—100 smál. :
að stærð. Áhöfnin er 7 1
—8 menn. — Drangey :
mun vera væntanleg hing- |
að fyrir hádegi í dag. — :
Skipstjórinn á Drangey er :
Lúðvíg Vilhjálmsson.
Fjöldafundir í Rém
Rómaborg í gærkvöldi.
KOMMÚNISTAR og vinstri
armur sósíalista í Rómaborg
undirbúa nú mikla fjoldafundi í
Fregnir um 200,000 manna
arabískan varnarher
NEVV YORK í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HERSHEL JOHNSON, fulltrúi Bandaríkjanna í Palestínu-
r.efnd S. Þ., lýsti því yfir í dag, að bandaríska stjórnin væri
fylgjandi skiptingu Palestínu, eins og stungið hafi verið upp á í
meirihlutaáliti rannsóknarnefndar þeirrar, sém send var til
Palestínu á sínum tíma. Johnson sagði þó ekkert um hver fara
ætti með stjórn í Landinu helga frá þeim tíma, sem S. Þ. kæmu
sjer saman um skiptingu landsins, þar til hún yrði framkvæmd.
Vekur þetta talsverða athygli, þar sem vitað er, að stjórnmála-
menn um heim allan hafa af þessu miklar áhyggjur, og þá eink-
um þar sem Bretar hafa lýst því yfir, að þeir muni ekki einir
taka að sjer að koma ákvörðun Sameinuðu þjóðanna í fram-
kvæmd.
Búið er að gefa út leyfisbrjef
þeirra Elizabeth Englandsprins-
essu og Philips Mountbatten,
sem ætlað að gifta sig' 20. nóv.
n. k. Sjest skjalið hjer á mynd-
inni.
Rekur ósannindi kommúnista
lil baka.
PRAG: — Steinhart sendiherra
Bandaríkjanna hjer, hefur mót-
mælt þeim ummælum eins af blöð-
um kommúnista, að flugvjelar
Bandaríkjanna hafi kastað sprengj
um á verksmiðjur í Tjekkóslóvak-
íu, til að „lama iðnað landsins",
eins og blaðið kemst að orði, þegar
Þjóðverjar voru á undanhaldi í
Tjekkóslóvakíu.
Ekkert samkomulag um aust-
urrísku: friðarsamningana
Kröfur Rússa þykja of harðar
Vínarborg í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FJÓRVELDANEFNDIN, sem gera átti tillögur um friðar-
samninga við Austurríki, lauk störfum hjer i Vínarborg í dag.
Hefur enginn árangur náðst af störfum nefndarinnar, og hefur
hún þó setið á rökstólum í þvínær fimm mánuði. Nefndarfull-
trúarnir hafa þó komið sjer saman um, að senda utanríkisráð-
herrum fjórveldanna skýrslu, er þeir koma saman í London
23. nóvember næstkomandi.
Bevin mun vera því meðmælt^
ur, að friðarsamningarnir við
Austurríki verði eitt af því
fyrsta, sem tekið verði á dag-
skrá utanríkisrá ðherra f undar •
ins.
Kröfur ílússa.
Það sem valdið hefur fjór-
veldanefndinni i Vínarborg
sambandi við hinar væntanlegu hvað mestum erfiðlcikym, er af
bæjarstjórnarkosningar. Mun J staða sú, sem Rússar hafa tek
fundum þessum aðallega beint. jð til eigna Þjóðverja i Austur-
gegn stjórn De Gasperis.
Allmikil ólga er í Rómaborg
í dag, vegna óeirða, er þar urðu
riki. Krefjast þcir fjölda verk-
smiðja óg vjela í skaðabæfur,
en fulltrúar Breta, Bandaríkja
í gær. Urðu þær í sambandi við manna og Frakka hafa ekki get
f jöldafund, sem sumir segja að j að fallist á þetta og telja Rússa
fasistar hafi beitt sje>' fyrir. ganga of langt.
Ekki þýskar eignir.
Breski fulltrúinn hefur með
al annars bent á að margt af
því, sem Rússar vilja telja til
þýskra eigna, hpfi verið tekið
með valdi af Austurríkismönn
um, er nasistar innlimuðu
landið.
Nýr banki slojnaöur
JERUSALEM: — Nýr arabiskur
Landbúnaðarbanki hefur verið
stofnaður af sjö Arabaríkjum. ■—•
Þcssi banki á að liafa það hlutverk
að hjálpa Áröbum að kaupa land í
Palestínu.
Breytingar.
Johnson tók þó fram, að
Bandaríkjastjórn væri þeirrar
skoðunar, að nokkrar landfræði
legar breytingar yrði að gera
á meirihlutaáliti rannsóknar-
nefndarinnar um skiftingu. Tók •
hann það sem dæmi, að stjórn
sín liti svo á, að Jaffa ætti að
falla í hlut Araba, þar sem íbú-
ar þeirrar borgar væru lang-
flestir arabiskir.
Arabar reiðir.
Ymsir af leiðtogum Araba
hafa þegar svarað Johnson, og
taka sumir þeirra svo djúpt í
árinni, að þeir segja, að með
þessu hafi bandaríska þjóðin
áunnið sjer hatur allra Araba.
Tjáði Azzam Pasha, aðalritari
Arababandalagsins, frjetta-
mönnum í kvöld, að ef nokkur
þjóð tæki að sjer að fram-
kvæma skiftingu Palestínu með
valdi, mundu Arabar hvergi
hika, en verjast öllum árásum.
Mikill her.
Fregnir hafa heyrst um það,
að fimm Arabaríki hafi nú kom
ið sjer saman um, hversu mikið
lið þau muni leggja fram, ef
Bretar halda frá Palestínu og
útlit er fyrir að skiptingin verði
að raunveruleika. Segja fregnir,
að hjer sje um 200,000 hermenn
að ræða frá Irak, Egyptalandi,
Sýrlandi, Lebanon og Transjor-
dan.
Fulltrúi Indlands.
Frú Pandit, fulltrúi Inlands í
Palestínunefnd, talaði áður en
Hershel Johnson hafði lýst yfir
afstöðu Bandaríkjanna. Lagði
hún áherslu á, að enginn mætti
skilja orð sín svo, að Indverjar
hefðu ekki fylstu samúð með
Gyðingum, en þó litu Indverjar
svo á, að skipting Palestínu væri
ekki rjett Iausn þessa deilumáls.
Framh. á hls. 8