Morgunblaðið - 11.11.1947, Síða 10
10
MORGllNBLAÐIÐ
___________________—•-1—; t --—
Skömtunin og gj aldeyris-
erliðleikarnir
SÚ skömtun, sem tekin hefir
Ferið upp á ýmsum nauðsynja-
vöfum í því skyni að tryggja
sem jafnasta vörudreyfingu og
spara gjaldeyri, reynir mjög
bæði á neytendur og þá sem
flytja inn vörurnar og selja
þær.
Það er glögt að allur almenn-
ingur verður um skeið að leggja
sig mjög fram um að haga vöru-
kaupum sínum hyggilega og
nýta sem best það sem til er.
Innflytjendur verða að leggja á-
herslu á að kaupa vörur þannig
til landsins að sem mest og sem
best fáist fyrir hinn takmark-
aða gjaldeyri. Þetta er erfitt
hlutverk, eins og nú er málum
háttað í viðskiptum þjóða á
meðal. Innflutningur okkar er
mjög háður því hvar markaður
fæst fyrir útflutningsafurðir
okkar en reynslan hefir sýnt
mjög glögglega að það fer
hvergi nærri ætíð saman að
best sje og hagkvæmast að
kaupa frá þeini löndum, sem
taka við útflutningsafurðum okk
ar. Viðskipti við ýms lönd geta
í framtíðinni færst meira og
meira á þann grundvöll að
verða Vöruskiptaverslun og er
það mikið óhagræði. I fyrsta
lagi er, eins og áður er sagt,
ekki ætíð unt að fá þær vörur,
sem okkur einkum vanhagar
um frá löndum sem kaupa af-
urðir okkar og í öðru lagi ber
við að verðið er með öllu óað-
gengilegt. Það er því margs að
gæta í þessum efnum og kem-
ur nú mikið undir hagsýni og
dugnaði innflytjendanna hversu
vel það takmark næst að spara
gjaldeyri, svo sem talið er
þurfa.
%
Reglur FjárhagsráSs
í 12. grein laganna um fjár-
hagsráð er tekið fram að „reynt
verði, eftir bví sem frekast er
unt að láta þá sitja fyrir inn-
flutningsleyfum, sem best og
hagkvæmust innkaup gera og
sýna fram á að þeir selji vörur
sínar ódýrast í landinu“.
Þegar litið er á það, sem að
ofan er sagt um örðugleika í
innflutningsverslun okkar þar
sem góðir útflutnings markaðir
og möguleikar til jnnflutnings
fara ekki nálægt því altaf sam-
an, verður það nokkuð skilj-
anlegt að ákvæði fiárhagsráðs-
laganna sje ekki orðað á ákveðn
ari hátt en það er. Ef svo er að
jafnvirðiskaup verða almenn
þjóða á milli er ljóst að það eitt
getur orðið til þess að við verð-
um neyddir til að kaupa 'til
landsins vörur á óhagstæðari
hátt en ella mundi, ef gjald-
eyririnn fyrir útfluttu vörurnar
væri frjáls. Slíkt gæti leitt til
þess, að neita yrði innflytjanda,
sem gert getur hagstæð inn-
kaup, um leyfi vegna þess að
við sjeum knúnir til að kaupa
þær vörur sem innflytjandinn
óskar eftir að fá, í löndum, sem"
krefjast þess að við kaupum af
jþeim vörur fyrir það sem við
flytjum út til þeirra. Það tillit,
>sem óhjákvæmilega verður að
, (taka til útflutningsmöguleika
iOkkar, eins og nú er, geta því
Samvinnafjá
innflytjenda
orðið til truflunar á fram-
kvæmd 12. greinar laganna um
fjárhagsráð en meginregla þeirr
ar greinar um skiftingu inn-
flutningsins var tekin upp hjer
að framan.
Það hlýtur ætíð að verða
mjög mik'ið matsatriði hvaða
innkaup sjeu „best og hagkvæm
ust“. Þarf mikla vöruþekkingu
til að dæma um slíkt, svo vel
fari. Verð vörunnar er alls ekki
ætíð öruggasti mælikvarðinn,
'það ódýrasta getur stundum orð
ið dýrast og kannast allur al-
menningur ofurvel við þá stað-
reynd.
En þótt sú regla, sem sett er
fram í lögunum um fjárhagsráð,
hljóti að verða vandasöm í fram
kvæmd, ætti að mega með góðri
samvinnu innflytjenda og við-
skiftanefndar að halda inn-
flutningsmálunum í sanngjörnu
horfi svo bæði r.eytendur og
seljendur megi una.
Það, sem ehhi ver'Sur
látiS í ashana
Viðleitni hins opinbera til að
spara gjaldeyri einskorðast ekki
við skömmtun nauðsynjavara,
sem svo eru kallaðar. Gjaldeyrir
er sparaður á fjölda mörgum
öðrum sviðum og á það ekki síst
um ef það sem fyrir gjaldeyrir-
inn fæst verður ekki látið í ask-
ana. Skulu hjer aðeins nefnd tvö
atriði til skýringar.
líins og kunnugt er hefur far-
areyrir þeirra, sem til útlanda
fara, verið mjög skorinn- við
nögl á síðustu tímum, í bví
skyni að spara gjaldeyri. Það er
kunnúgt að íslenskir oámsmenn
erlendis eru nú uggandi um
framtíð sína vegna skorts á líf-
eyri við námið. Það er vonandi
að slíkar hömlur þurfi ekki að
standa lengi því íslendingar
þurfa að geta haft sem greið-
asta möguleika til nauðsynlegra
utanferða.
Annað atriði, sem er skylt
því, sem nú hefur verið nefnt,
er að tekið er fyrir innflutning
blaða og bóka frá útlöndum.
Englendingar tóku upp þá regiu
hjá sjer í s.l. septembermánuði
að veita aðeins einstaklingum
leyfi til bókakaupa erlendis frá
og takmörkuð þó. Kvarta menn
þar í landi m'jög yfir þessum
hömlum. „Times“ í London tek-
ur svo til orða að setja eigi
Englendinga aftur fyrir andlegt
járntjald og jafngildi þessar
hömlur á sinn hátt banni ýmsra
einræðisherra á innflutningi
prentað máls, til þeirra landa,
sem þeir ráða.,
Slíkar hömlur koma illa við
fslendinga, ef þær standa lengi,
en ekki skal farið fleiri orðum
-um það mál. En það er augljóst
að því víðtækari og nærgöngulli
sem innflutningshömlur eru, því
ríkari skylda hvílir á þeim, sem
ráða innflutningnum að sjá um
að sá gjaldeyrir, sem sparast
rhagsráðsog
nauðsynleg
vegna óþægilegra hafta sje rjetli
lega notaður. Reynir þar mjög á
skilning Fjárhagsráðs og Við-
skiptanefndar.
Liðinn tími hefur sýnt að sum
ir hafa notfært sjer eftir megni
stjórnmálaafstöðu til að fá ó-
eðlilega mikil tök á ipnflutningi
til landsins og meðferð þess tak-
markaða gjaldeyris, sem til hef-
ur fallið á krepputímum. — Ef
sBkt kæmi fyrir nú mundi allur
almenningur taka því illa og
þykja til lítils barist.
Það þarfæinnig að búa svo um
að öll forrjettindi um meðferð
gjaldeyris sje útilokuð. Það verð
ur að ganga ríkt eftir að öllum
gjaldeyri fyrir útfluttar íslensk
ar vörur sje skilað til íslenskra
banka, en ekki notaður til vöru-
kaupa eftir geðþótta þeirra,
sem hafa hann í höndum. Það
er kunnugt að á haftaárunum
milli 1930 og 1940 söfðu sam-
vinnuverslanirnar all-mikla sjer
stöðu í þessum efnum.
Ætlar „Tíminn“ a'S sherast
iir leih?
Blaðið ,,Tíminn“ er ekki á-
nægt með þá leið, sem valin hef-
ur verið um skiptingu innflutn-
ingsins og komin er fram í lög-
unum um Fjárhagsráð Blaðið
hefur nær daglega birt bardaga-
greinar, þar sem krafist er að
skömmtunarseðlar verði látnir
gilda sem gjaldeyrisleyfi. — Sú
hugsun, sem liggur bak við þessi
skrif blafftins er, að með slíku
fyrirkomulagi muni samvinnu-
fjelögin fá aukin tök á innflutn-
ingsversluninni vegna góðrar að
stöðu kaupfjelaga til að ná til
sín megninu af skömmtunarmið-
um fjelagsmanna sinna, sem
annars er vitað að hafa skipt
bæði við kaupmenn og kaupfje-
lög. — Þannig á að stofna til
kapphlaups um seðlana milli
verslana. Slík óhæfa má ekki ná
fram að ganga.
„Tíminn“ ætti að hætta þeirri
iðju sinni að reyna að gera skipt
ingu innflutningsins að æsinga-
máli og sverta tilteknar stjettir
í augum samborgaranna. Blaðið
ætti jieldur að beita áhrifum
sínum í þá átt, að um þessi mál
geti ríkt friður og það mega þeir
vita, sem rita „Tímann“ að ekki
verður þagað við dylgjum þeirra
og svívirðingum, ef svo verður
áfram haldið eins og verið hef-
ur.
Nú blasa við stjórnarflokkun-
um örðug vandamál, sem kalla
á samheldni, sem flestra, ef þau
eiga að leysast vel. „Tíminn“
ætti ekki að skerast úr leik og
það því síður, sem fulltrúar þess
flokks á Alþingi, sem blaðið
telst málgagn fyrir, munu ekki
vilja láta sitt eftir liggja þegar
kemur að því að ráða fram úr
vandræðunum.
BEST AÐ AlíGLYSA
1 MORGUmLAÐim
Þriðjudagur 11. nóv. 1947
UNGLINGA
vantar til að bera út Morgunblaðið í eftir-
talin hverfi:
ASalsíræti Hiðbæ
Njálsgöfu
Við^sendum blöðin heim til barnanna.
Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600.
$
■ «>
Tilkynning frá
^felaai ~3óíenólra ^knrekencla
Fjárhagsráð hefur falið fjelagi voru að senda öllum
verksmiðjum á landinu skýrslueyðublöð til útfyllingar.
1 skýrslum þessum á að láta Fjárhagsráði í tje ýmsar
upplýsingar um hráefnaþörf fyrirtækjanna o. fl og geta
þau fyrirtæki, sem eigi veita þessar upplýsingar, ekki
vænst þess, að fá innflutnings- og gjaldeyrisleyfi til
framleiðslu sinnar.
Þe’ir verksmiðjuoigendur, sem ekki hafa enn fengið
skýrsluformin í hendur, eru beðnir að gera þegar við-
vart til skrifstofu vorrar.
Jafnframt skal vakin athygli allra skýrslugefenda
á því, að frestur til að skila skjuslunum hefur verið
framlengdur til 20. þ.m.
FJELAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA
Laugaveg 10. Simi 5730.
SOLUBUÐ
á besta stað i einu nýja og stærsta hverfi bæjarins til
leigu. Þeir, sem geta borgað' háa upphæð fyrirfram.
sitja fyrir leigu. Tilboð auðkennt „Hlíð — 566“, send-
ist afgr. Mbl.
Lítið Einbýlishús
Vil kaupa litið einbýlishús, eða góðan sumarbústað.
Helst í Kópavogi eða Fossvogi. Uppl. í síma 4304.
<***»♦♦♦♦♦»♦♦
Reglusamur bílstjóri
® er hefir margra ára bifreiðastjórn að baki sjer. og er
mjög vel kunnugur í bænum og úthvérfum hans, óskar
eftir að komast að hjá öruggu fyrirtæki við keyrslu á
góðum bíl. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir sunnu-
daginn 16. nóv. merkt: „Framtíð“.
3ja herbergja íbúð
til sölu.
Nánari upplýsingar gefur
Mál flutningsskri fsto fa
EINARS B. GUÐMUNDSSONAR og
GUÐLAUGS ÞORLÁKSSONAR
Austurstræti 7. Símar 2002 og 3202.