Morgunblaðið - 15.11.1947, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.11.1947, Blaðsíða 1
16 síðisr 34. árgangur 261. iM. — Laugardagur 15. nóvember 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f. Bandarískur þingmaður segir kommún- ista vera að hefja allsherjarsókn í Evrópu Spáir byltingartilraun ítalskra kommúnista eftir áramót í GÆR var sett nýtt íslenskt met í hæðarflugi í svifflugu. — Flugniaðurinn, sem heitir Magn- ús Norðdahl, Kirkjuteig 13, komst upp í 14.500 metra hæð og hafði hann ekki súrefnis- grímu. Sviffluga Magnúsar var dreg- in á loft hjer á Reykjavíkur- flugvelli og flogið með hana upp að Sandskeiði. Þar flaug Magn- ús sviíflugunni nokkra stund, en síðar snjeri hann aftur til Rvík- ur og á ffiilli Sandskéiðs og Reykjavíkur setti hann. metið. Þegar flugan fyrst fór að hækka flugið verulega, stje hún um 200 fet á mínútu, alt upp í 14,- 500 fet. Sviffluga þessi er af amerískri gerð, tveggja manna. Fröðir svifflugmenn telja, að Magnús myndi hafa getað náð alt að 20.0000 feta hæð, ef hann hefði verið með súrefnisgrímu. Magnús er fyrir nokkru kominn hingað heim að loknu flugnámi i Bretlandi. Hann bvrjaði korn- ungur að fljúga sviíflugu og er meðlimur í Svifflugfjel. Islands. Frakkar fá pólsk kol París í gær. Í'RANSKA utanríkisráðuneytið tilkynti í dag, að samkomulag hefði náðst um það við Pólland, að Frakkar fengju næstu sex- tán ár 3,,800.000 af pólskum kol um. Kolasendingar þessar koma í stað skaðabótagreiðslna fyrir ýmsar eignir Frakka í Póllandi, sem þjóðnýttar hafa verið. Kolin eru virt á um 60 miljón dollara. — Reuter. Fjölskykla missir eigur sinar í GÆR missti fjölskylda ein hjer í bænum aleigu sína í eldi. Þetta gerðist í gærmorgun rjett fyrir hádegi, að eldur kom upp í skálanum 1—35 og brann all- ur skálinn en hangir þá uppi. I skálanum bjó Guðjón Gísla son með konu sinni og ungu barni þeirra hjóna. Bjargaðist húsmóðirin og barnið nauðug- lega út úr hinum brennandi skála. Þegar slökkviliðið, kom á vett vang, var skálinn orðinn alelda og ekki tókst að bjarga neinu. út af húsgögnum, fötum eða öðru verðmæti. Skálinn brann allur að inn- an áður en tekist.hafði að ráða niðurlögum eldsins. POLSKI bændaleiðtoginn, Stanislav Mikolajczyk, neydd- íst til flýja land vegna ofsókna kommúnista, se:n æíluðu að taka hann af Iífi. Iíjer á myndinni sjest hann ásamt konu sinni, sem bjó í London, en sonur þeirra er í skóla í Oxford. Washington í gærkvöldi. v Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. JOHN DAVIS LODGE lýsti því yfir í utanríkismálaneínd ful’i frúadeildar Bandaríkjaþings í dag, að Rússar gætu lagt undir sig alla Evrópu — þar með talið Spán og Portúgal — ef þeir afrjeðu að beita ódulbúnu valdi, í stað þess að reyna að ná tangarhaldi á álfunni með því að nota kommúnistasamtök hinna ymsu landa, eins og þeir gera nú. Lodge, sem ferðaðist víðs- regár um Evrópu í sumar, er republikani og fulltrúi Connecti7 cutfylkis á Bandaríkjaþingi. lögu Bandaríkjanna Kosningar fyrir 31. mars 1948 Lake Success, N. Y., í gærkvöldi. ALLSHERJaRÞING Sameinuðu þjóðanna samþykti í kvöld þá tillögu Bandaríkjanna, að Sþ. skipi þegar í stað nefnd, sem síðan hafi eftirlit með því, að Kóreu verði veitt algert sjálf- stæði. Rússar og leppríki þeirra tóku ekki þátt í atkvæðagreiðsl unni um málið, en með bandarísku tillögunni greiddu 43 þjóðir atkvæði. Komið í veg fyrir óeirðir í Aþenu, Aþena í gærkvöldi. CONSTANTINE Rendis, gríski öryggismálaráðherrann, hefur tjáð frjettamönr.um, að upplýs- ingar, sem fyrverandi pólitísk ir íangar hafi gefið stjórnar- völdunum, hafi komið í veg fyrir það, að tii óeirða kæmi í Aþenu í dag. Kvað Constan- tine kommúnista hafa verið búna að ur.dirbúa kröfugöngu 5.000 manna, og ætlunin hafa verið að ganga til þinghailar- innar. Fangarnir fyrrverandi, sem vöruðu við áætlunum kommún- ista, fengú sakaruppgjöf fyrir nokkru síðan. — Reuter. LONDON: —• Breska stjórnin hef ur ákveðið að ckylda til vinnu þá 500.000 til 750.000 manns, sem á- ætlað er að slæpist í Bretlandi. Kosningar næsta ár. Samkvæmt tillögu Banda- ríkjanna er ætlast til þess, að kosningar verði haldnar í Kó- reu ekki síðar en 31. mars ’48. Verði að því loknu mynduð stjórn í landinu, en sú stjórn ráði yfir öllum herafla lands- manna. Þá er og til þess ætl- ast, að Rússar og Bandaríkja- menn flytji her sinn frá Kóreu eins skjótt og mögulegt er, eft- ir að lögmæt stjórn hefur verið sett á laggirnar. Rússnesk tillaga feld. Tillaga Rússa um að allur her þeirra og Bandaríkjamanna yrði fluttur burt fyrir áramót, var feld með 34 atkvæðum gegn sjö. Fulltrúar 1G þjóða sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Ukraina neitar þátttöku. J I nefnd þeirri, sem nú verð- Framh. á bls. 11. Níu Bretardrepnirí Pales- tínu á 24 klukkustundum Jerúsalem í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. MJOG mikii ólga var meðal breskra hermanna og lögreglu- manna í Palestinu í kvöld, í sambandi við morð tveggja ungra hermanna í Tei Aviv og tveggja lögregluþjóna í Jerúsalcm. — Mun óaldarflokkur Sterns þarna hafa verið að verki, en alls hafa nú níu Bretar verið drepnir í Palestínu á 24 klukkustund- um, þar af fjórir óbreyttir borgarar. Á ofangreindu tímabili særð ust auk þess 32 Bretar j árás- um, og í kvöld voru fimm þeirra enn ekki úr hættu. Yfirvöldin í Palestínu skjlrðu ffjettamönnum frá því í dag, að þau óttuðust frekari ofbeld- isverk. Hefur öllum óbreyttum breskum borgurum í Jerúsalem verið ráðlagt að fara ekki út fyrir öryggissvæði sín í borg- inni, auk þess sem hermönnum hefur verið skipað að fara ekki um færri en fjórir saman. Þrjár aðferðir. Lodge kvaðst vera þeirrar skoðunar, að kommúnistar hefðu þegar undirbúið allsherj arsókn, þar sem þeir væru reiðu búnir til aS beita einni af þrem- ur aðferðum til að knjefella Ev rópu. Aðferðir þessar væru: 1) „Lýðræðislegar“ aðfarir; 2) að stoð og byltingar kommúnista- flokkanna í hverju einstöku landi; og 3) bein styrjöld. — Mintist Lodge á atburðina í Neapel og Marseilles í þessu sambandi, og benti á þá sem dæmi um það, hvernig Rússar notfærðu sjer aðstöðu fylgis- manna sinna í Evrópu. Spáir bylfÍRgu. Þingmaðurinn tjáði utanrík- ismálanefndinni einnig, að er- lend aðstoð nægði ekki ein til að koma í veg fyrir það, að kom múnistum tækist að koma á- formum sínum í framkvæmd. Spáði hann því, að kommúnist- ar í Italíu mundu í mars gera tilraun til að ná með valdi stjórnartaumunum í sínar hendur. Tækist þeim þetta, bætti hann við, mundi Grikk- land einnig verða kommúnism- anum að bráð — og jafnvel einnig Tyrkland og löndin fyr- ir botni Miðjarðarhafs. Hann hjelt því og fram, að komm- únistaflokkurinn væri nú svo öflugur í Italíu, að hann mundi á þrem dögum geta brotið á bak aftur alla andstöðu lög- reglunnar. Fyrir kosningar. Jeg er þess fullviss, lauk Lodge loks máli sínu, að bylt- ingatilraun ítalskra kommún- ista verður gerð í mars, eftir að allur bandarískur her er haldinn á brott og aðeins rjett áður en hinar fyrirhuguðu kosn ingar eiga að fara fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.