Morgunblaðið - 15.11.1947, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.11.1947, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 15. nóv. 1947 í: FRANS RO ! skáldsaga eftir hollenska rithöfundinn Piet Bakk- er. Yndisleg bók um eitt mesta vandamál mann- legs lífs: uppeldi barns á algeru vandræðaheimili, og hversu kennara barns- ins, barnadómarinn og aðstoðarmenn hans reyna að vernda það gegn slæm um áhrifum af viðskipt- um barnsins við heimili sitt. Göfgandi og spillandi öfl togast á um barnið og þoká því fram til þroska og lífshamingju eða draga það út í myrkur vonleysis og örvæntingar. ÞAÐ ER fremur sjaldgæfur við- burður, að út komi á voru landi skáldsaga um börn og þroska- feril barna, sem með öruggri vissu má um segja að verulegur ávinningur sje að lesa og endur- lesta. Ein slík bók hefur þó borist í hendur mjer nýlega í íslenskri þýðingu, og því vil jeg ekki láta hjá líða að vekja á henni at- hygli, ef ske kynni að fleiri læsu hana og nytu hennar en ella myndi. Frans Rotta er skáldsaga byggð á sálfræðilegum stað- reyndum. Hún er svo skemmti- leg aflestrar, að jeg er sann- færður um, að hver sem byrjar að lesa hana les hana með á- nægju til enda. Þó munu þeir fagna bókinni mest, sem þykir verulega vœnt um börn og starfa meö bömum. Jeg er líka sann- færður um, að flestir, sem bók- ina lesa, fá aukinn og gleggri skilning en þeir áður höfðu á því, hversu barn hugsar og starf ar og hversu það bregst við erfið um viðfangsefnum. Frans er háður þeim hörðu örlögum að alast upp við hörmu- legustu aðstæður. Sagan lýsir þeim nákvæmlega og þó er frá- sögnin enganveginn ömurleg. Önnur börn koma til sögunnar og hverju þeirra um sig er lýst af skilningi og samúð. —• Þau koma í huga manns hvert með sínum einkennum. Maður kann- ast að vísu við þau öll áður og hefur kynnst þeim hverju um sig, en við lestur sögunnar skil- ur maður þau betur en áður og allt, sem þau segja og gera, verður í einu vetfangi eðlilegt og sjálfsagt. Svona er það satt, svona hlaut þetta að fara. Þeir; sem gjarnir eru að leggja dóma á náunga sinn, mundu ekki fella milda dóma um dreng, sem líktist Frans. En það væri þá líka af þeim ástæð- um einnig, að þeir hirtu ekki um að vita við hvað slíkur dreng ur hefur að stríða. Máske verður Fransi einna best lýst með því að líkja hon- um við villfjurt sem vex í mesta óþverranum í götuskorningi Rotterdamborgar, en hirðulaus- ir fætur vegfarenda slá í hana eða kremja hana með öllum ,Kþunga þess holds, sem fótunum fýlgir. Þessu lík eru kjör hans. t.jEh ef Frans mætir óvænt ná- .kvæmri velvild og skilningi verð ur hann algjörlcga ráðafátt. — Hann býr hjá móður sinni. Hún er framreiðslukona í veitinga- krá, sem slæmt orð fer af. Móð- irin er hörð við Frans og stund- um misþyrmir hún honum og fyrir kemur, að hún lokar hann inni í dimmum kolaklefanum. Eina manneskjan, sem getur laðað Frans til gleði og biíðu er faðir hans. En hann er farmað- ur á flutningaskipum og er mjög sjaldan í ldndi. Hann býr þá heldur ekki heima hjá Fransi, og Frans verður jafnvel fyrir ó- notum og misþyrmingum, ef hann hittir föður sinn. Það er því síst að undra, þó að sálarlíf þessa barns verði nokkuð með öðrum hætti en æskilegt væri. Og þannig er því hka farið. í framkomu Frans ber mest á varnarstöðunni. Hann er allt- af á verði gegn hættunni, sem hann álítur að ógni honum hvað anæfa jafnvel frá lögreglu og barnaverndarnefnd. Þessi fram- koma hans líkist háttum rott- unnar, sem flýr í holu sína, en sje ekki undankomu auðið, snýst hún til varnar með djörf- ung og hugrekki. Með þessu nafni kemur hann í skólann. Kennari hans er ungur sál- fræðingur. Hann leitast í fyrstu mest við að kynnast Frans og skilja hann. Þar næst kappkost- ar hann að koma Frans í skiln- ing um að hann vilji litlu Rott- unni, eins og höfundurinn nefn- ir hann, allt gott og aðeins gott og að allt starf hans fyrir Frans miðist við þa<£ Þessi ungi kennari — Bruis — sem sjálfur segir söguna, finnur það köllun sína að vernda og leiða þetta afvegaleidda barn til sigurs og manndóms. — Og jafnvel það erfiða hlutverk virð- ist ætla að heppnast. Frans kastar ham rottunnar meira og meira með hjálp kennarans og skólafjelaga sinna og svo virðist sem það góða í fari hans ætli að sigra. En þá dynur ógæfan á ný yfir þetta litla umkomulausa barn. Lögreglan og barnavernd- arnefnd koma til skjalanna. — Frans hefur hent hræðilegt slys og afleiðingin orðið voðaleg. í sögulokin situr hann í barna fangelsinu einn og umkomulaus. En hann er ekki yfirgefinn. Börnin, skólafjelagar hans, sakna hans og sum taka skelegg málstað hans og kennari Frans og parnadómarmn reyna báðir að finna þá leið, sem belst yrði honum tii farsældar. Þannig skilur höfundurinn við þennan litla,jjgeng, sem orð- ið hefur leiksopþur harðra ör- laga. Framtíð hans er hulin ó- vissu. eins og lífið sjálft. Hingað til hefur lífið tekið hann ómild- um höndum, fátækt og umkomu leysi hafa þjáð hann. Nú á hann þó að minnsta kosti álitlegan vinahóp og Iiann veit um það. Sú vissa hlýtur að færa honum nýja von. Og meðan vonin býr í huga mannsins eru tækifæri til nýrra sigra og hamingju. ★ Piet Bakker er fæddur í Rott- erdam árið 1897. Um nokkurt TTA skeið var hann barnakennari, en 1921 yfirgaf hann kennsluna og gerðist blaðamaður og rit- höfundur. Mesta viðurkenningu hefur hann hlotið fyrir bók sína CISKE DE RAT eða Frans Rotta eins og bókin heitir í 'ís- lensku þýgingunni. Piet Bakker skrifar bækur sínar af velvilja,, mannást og næmum skilningi á mannlegu lífi. Áhugamál hans eru lífsins og framtíðarinnar, í öllu falli þeirrar framtíðar, sem við þrá- um öll. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson þýddi bókina á íslensku og Ragnar Jónsson gaf hana út. Báðir hafa leyst sitt hlutverk með prýði. Þeirra sje heiðurinn og þökkin. Jón Sigurðsson. „íslensí: fyndnf" „íslensk fyndni" XI. Safn- að og skráð hefur Gunnar Sigurðsson frá Selalæk. — ísafoldarprentsmiðja h.f. ÞETTA ER er ellefta hefti „ís- lenskrar fyndni“, 150 skopsagn- ir og vísur, með nokkrum mynd- um. Gunnar frá Selalæk hefur unnið gott verk og þarft, með því að safna þessu saman og gefa út í sómasamlegum bún- ingi. Mætti þakka honum það betur en gert hefur verið. — Þó hefur hann hlotið þá þökk, sem kanski er best allra, að hvergi sjest hefti af „Fyndninni“ nema ljótt og rifið og lesið því nær upp til agna! Og fáum bók- um helst manni jafn illa á og þessum heftum. Segja má, að ekki sje allt jafn gott í saíni þessu, en fátt er ljelegt og margt prýðilegt. Tek jeg mjer það bessaleyfi, að birta hjer tvær sagnanna: „Jón í Tungufelli í Hreppum var ríkur bóndi. Guðjón frá Hlíð var vinnu- maður hans. Guðjón giftist Valgerði, dótt- ur bónda, en ekki var Jón á- nægður með þær tengdir. Ávallt kallaði hann Guðjón Jón, en ekki sínu rjetta nafni. Jóhann Briem í Hruna, sem var sóknarprestur Jóns, spurði hann eitt sinn um ástæðuna fyrir því að hann kallaði tengda- son sinn Jón, en ekki fullu skírn- arnafni. Jón svaraði: „Mjer var kennt það í mínu ungdæmi að leggja aldrei guðs nafn við hjegóma“. „Nafnarnir Sigurður Heiðdal og Sigurður Berndsen hittust um það leyti, sem hið stórfelda íkveikjumál var á döfinni á síð- astliðnU ári. Þeir voru að ræða um málið og kom saman um að mjög væri einfeldnislega og ógætilega til þess stofnað, þar sem meðal annars svo margir menn voru í vitorði. Loks segir Sigurður Bernd- sen: „Jeg skal segja þjer, nafni, að ef menn ætla að láta kveikja í þá dugir ekki annað en fá til þess stálheiðarlegan mann“. Kristmann Guömundsson. „Endurminningar frú Gyðu Thorlacius" „Endurminningar frú Gyðu Thorlacius“. Sigurjón Jóns- son, læknir, íslenskaði. ísa- foldarprentsmiðja h.f. ÞETTA ER fyrir margra hluta sakir góð bók. I henni eru fróð- legar og verðmætar þjóðlífslýs- ingar frá Austfjörðum, um og eftir aldamótin 1800. Ilún veitir innsýn í sálarlíf merkilegrar konu, og sýnir oss landið og þjóðina frá sjónarmiði velviljaðs útlendings. Lesandinn tekur þátt í ferðalögum á landi og sjó, í þann tíma, sem öruggara var og á allan hátt þægilegrá að koma við í Kaupmannahöfn, þegar fara skildi frá Eskifirði til Eyrarbakka! Síðast en ekki síst kynnist lesandinn frú Gyðu sjálfri, en hún er dönsk kona, eins og þær gerast bestar, vel- viljuð, hjálpfús og hjartagóð, einlæg og elskuleg — og móður- sjúk. En þann kvilla virðist f jör- efnaskortur fásinni umhverf- isins hafa lagt henni til, og cru þess mörg dæmi. Gyða er fædd í Amager 1782. Hún giftist Þórði Thorlacius, ungum lögfræðingi, íslenskum í föðurætt, árið 1801 og fara þau skömmu síðar til íslands, en þar hefur Þórður verið skipaður sýslumaður í Suður-Múlasýslu. Þau setjast að á Eskifirði og síðar flytjast þau að Helgustöð- um, þar skammt frá. Fátæk eru þau, og launin lítil, svo að spart verður á öllu að halda. En frú Gyða er fyrirmyndarhúsmóðir, gerir sjer mat úr öllu, fer meira að segja á grasafjall og venur sig á „íslenskt viðurværi“, sem ekki mun hafa verið beisið. Fún er reynslulítil og dálítið einföld,- en á þó ýms hyggindi er I hag koma. Landið er henni svo fram- andi sem væri hún komin til tunglsins; en frásögn hennar og athugasemdir eru bráðskemmti- legar. Hún lendir í mörgu mis- jöfnu og allt verður það lifandi í endurminningum hennar, t.d. hrakningarnar á austfjarðahá- lendinu og ferðin til Akureyrar, hvorttveggja miklar svaðilíarir. Æfi hennar er oft ill. Þegar hún fæðir annað barn sitt, sendir hún út um allar trissur til þess að fá keypta mjólk á flösku, en fær enga. Verður hún þá að bjargast við sitt venjulega viður væri: „tvíbökur með floti og tevatn með sírópi“. Tekur þetta smámsaman mjög á heilsu hennar, ásamt hinu breytta loftslagi, og síðari árin er hún orðin svo móðursjúk, að nærri fer sturlun á stundum. Vetx-ar- ríkið og myrkrið í hinu fagra en — í hennar augum -— einnig ægilega landi leikur taugar hennar hart og sífeldar barn- eignir fara með heilsuna. Þrátt fyrir það reynir hún að hjálpa bágstöddum, sem nóg er af, og láta gott af sjer leiða eftir mætti. Og vel liggja henni orð til íslendinga, — sem eru henni þó misjafnlega góðir: „En þeir eiga hrós skilið, blessaðir karl- arnir fyrir það, hve hugvitsamir þeir urðu, er í nauðirnar rak: þeir spunnu línur úr togi, öngl- ana smíðuðu þeir sjálfir, og þeir báru lýsi á bátana í tjöru stað“. Þá er sagan um valdaferil Jörundar hundadagakonungs vel og skemtilega sögð, þótt eitt- hvað sje þar krítað liðugtk Síðustu tvö árin þeirra hjóna á íslandi var Þórður sýslumað- ur í Árnessýslu. En svo lauk þrautatíma frú Gyðu og komst hún loks heim til „det yndige Land“ -— og var sjö vikur 1 hafi á leið til Danmerkur. — Varð hún að skilja tvö börn sín eítir á íslandi, annað fótbrotið! -—- En, þrátt fyrir allt má vel lesa milli línanna í endurminningun- um, að dvölin á íslandi hefur verið orðin að hinu mikla æfin- týri í lífi frúarinnar, um það leyti sem hún tók að rita minnis blöð sín. Og gott var að hún skyldi gera það, blessuð gamla konan, því fyrir bragðið höfum við eignast þessa prýðilegu bók, sem hver maður er bættari að að lesa. , Þýðing Sigurjóns Jónssonar, læknis, er ágæt og allur frá- gangur bókarinnar hinn besti. Kristmann Guömundsson. „Msnon Lescauf' ..Manon Lescaut.“. Eftir L’Abbé Prévost D’ExiIes. Bókasafn Helgafells. LISTAMANNAÞING II. — eða Bókasafn Helgafells, sem það heitir öðru nafni, hefur far ið vel af stað. Fyrsta bókin var hin fræga æfisaga Mústafa Kemal yg númer tvö ,.Sagan af Manon Lescaut og riddaranum Des Grieux“, í þýðingu Guð- brandar Jónssonar prófessors. Bók þessi hefur verið þekkt og lesin um allan hinn mennt- að heim um nálega tveggja alda skeið, og ættu það að vera nægileg meðmæli með henni. Hún er hin eina af fimmtíu skáldsögum höfundarins, sem staðist hefur „tímans tönn“, hinar eru að fullu gleymdar. Raunar er hún hluti úr stærra verki: „Endurminningum aðals manns“, en þó fullkomlega sjálfstæð. Þetta er mjög svo spennandi og læsileg saga, á sina visu, og ekki vantar í hana æfintýraleg fyrirbæri, miklar ástríður og heitar ástir! Enda hafði höfundur hennar úr nógu slíku að moða, því líf hans var svo viðburðaríkt og óvenjulegt, sem frekast mátti verða. Hann geklc í reglu Jesú- ita 16 ára gamall, en „skorti köllunina“, eins og komist er að orði í formála ísl. þýð. Strauk hann úr klaustrinu og ljet skrá sig í herinn, en fór úr honum og aftur í Jesúíta- regluna! Flúði hann þó enn úr klaustri sínu og gekk að nýju í herinn; var nú hermaður í fjögur ár og mjög frábitinn öllu sem líktist munkalífi! Að þessum fjórum árum liðnum fór Prévost enn í klaustur, að þessu sinni hjá Benidiktsmunk um, „til þess að gleyma hjá þeim logandi ástarbruna.“ En ekki toldi hann þar lengi. Fór svo jafnan, að hann var veikur fyrir freistingum heimsins, en alla æfi stundaði hann þó guðræknina öðrum Framh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.