Morgunblaðið - 15.11.1947, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 15. nóv. 1947
Útg.: H.f. Árvakur, Rpykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgBarm.1
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Arnl Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands.
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Bölsýni
er ekkert bjargráð
ÞEGAR ráða skal miklum vandamálum til lykta
skiptir það miklu máli að mönnum sjeu allar aðstæður
sem ljósastar. Þjóð, sem á við örðugleika að etja þarf
þannig fyrst og fremst að kunna skil á, af hverju þeir
spretta. Það er fyrsta skilyrðið til þess að geta fundið
lausnarorðið og sigrast á erfiðleikunum.
íslenska þjóðin veit vel af hverju vandkvæði hennar
stafa í dag. Hún sjer þá staðreynd ljóslifandi fyrir sjer
að framleiðslukostnaður hennar er orðinn allt of hár og
afurðir hennar þessvegna ekki samkeppnishæfar á er-
iéndum mörkuðum.
Það liggur líka í augum uppi, að það er ekki hægt að
taka upp baráttu fyrir lagfæringu á þessu sviði án þess
að meginþorri þjóðarinnar taki þátt í henni. Þau fjelaga
samtök fara þessvegna villur vega, sem gera sjer í hug-
arlund að stjettir þeirra eða einstakir starfshópar þurfi
þar hvergi nærri að koma, en geti aðeins bent á annara
herðar til að leggja byrðarnar á. En sá hugsunarháttur
er því miður alltof ríkur með okkar þjóð ennþá. Það við-
urkenna allir hugsandi menn, að nýjar og róttækar leið-
ir í verðlagsmálunum sjeu óumflýjanlegar. En þegar far-
ið er að ræða um þátttöku hinna ýmsu stjetta í væntan-
legum aðgerðum, bendir hvor á annan en burt frá sjálf-
um sjer. Þetta er sá dapurlegi sannleikur.
En þótt ýmiskonar erfiðleikar steðji að, er það þó víst
að bölsýni og vonleysi bjargar engu við. Þess eru áreið-
anlega engin dæmi, að nokkur þjóð hafi sigrast á erfið-
leikum sínum með því að gera ekkert annað til þess en
sð þylja kveinstafi og barlóm. Það er nauðsynlegt að þjóð-
in viti, hvar hún er á vegi stödd í efnahagsmálum sínum.
Sú mynd þarf að vera sem skýrust í hugum fólksins. En
sigurinn verður ekki unninn nema að baráttan sje háð
af þrótti og fullum kjarki og trú á framtíðina.
Við íslendingar höfum heldur enga ástæðu til þess að
vera bölsýnir um framtíð okkar. Við höfum aldrei haft
betra tækifæri til þess en nú, að sýna manndóm okkar.
Við höfum aldrei átt betri og fullkomnari tæki til þess
að vinna með en einmitt nú. Efnahagur almennings í
Jandinu hefur aldrei verið betri og jafnari en nú. í raun
1 jettri er hættan á að atvinnuleysi skapist hjer minni en
nokkru sinni fyrr, ef fólkið vill leggja lið sitt til þess að
efla framleiðslu landsins. Það er hinsvegar hægt að haga
sjer svo heimskulega að hjer verði atvinnuleysi og öng-
þveiti.
Andakílsvirkjunin
ANDAKÍLSÁRFOSSARNIR hafa verið virkjaðir. Tvö
stór þorp, Akranes og Borgarnes og Bændaskólinn á
Hvanneyri fá nú raforku frá aflstöð þeirra.
Þessi nýja aflstöð er nú þriðja stærsta orkuver landsins.
Það framleiðir í dag fimm þúsund hestöfl en möguleikar
eru á að auka vjelaafl þess upp í tólf þúsund hestöfl.
I framtíðinni munu það ekki aðeins verða þorpin og
skólarnir í Borgarfirði, sem fá ljós og hita frá Andakíls-
árfossum, heldur einnig bændabýlin í þessu myndarlega
landbúnaðarhjeraði. Hugsjón þeirrar stefnu sem Jón heit.
Þorláksson markaði í raforkumálunum á Alþingi fyrir
tæpum 20 áium, er að verða að raunveruleika. Er það
allri þjóðinni mikið fagnaðarefni. Raforkan er mikilvæg-
ustu lífsþægindi nútímans. Hún skapar skilyrði margvís-
iegra umbóta, bjartari og fegurri húsakynni, aukins iðn-
; aðar og fulikomnari vinnubragða við fjölmörg störf.
• Þess fleiri hjeruð landsins, sem fá raforkuver, þess
meiri möguleikar fyrir fjölbreytni og jafnvægi í líf og
starf þjóðariiinar.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Síldarspjall.
HVAR SEM tveir menn eða
íleiri hittast þessa dagana ber
síldina á góma. Það er talað um
aflabrögðin, veðrið og ekki síst
hvort veiðin haldist nú eitt-
hvað frameftir. Og það er talað
um mál og tunnur, verðið í
krónum og dollurum, eða pund
um. Aflahluti og óhemju gróða.
En eins og oft vill verða, þá
vita menn ekkert hvað þeir eru
að tala um.
En ef menn vilja fræðast um
síld þá er örugt ráð að hitta
Svein Benediktsson útgerðar-
mann, sem veit alt, bókstaflega
alt um þenna litla dutlunga-
fulla silfurfisk. Jeg sneri mjer
því til Sveins í gær og bað hann
að leiða pkkur í allan sannleika
um hvað., væri átt við, þegar
talað væri um síldarmál, síldar
tunnur, gjaldeyri fyrir síld,
aflahluta og annað.
Alt að 650 síldar
í máli.
SUNNANSÍLDIN, eins og
hún er kölluð þegar hún veið-
ist hjer er misjafnlega stór.
Það er bæði hafsíld og smásíld
eða millisíld. Að meðaltali er
hafsíldin 350 grömm að þyngd
og 35 sentimetrar að lengd, en
minni síldin er frá 120 til 206
grömm að þyngd og 25—31
sentimeter að lengd. Fitumagn-
ið er svipað í báðum stærðum,
eða frá 15,5 upp í 15,9%.
Það mun láta næri, að V3
þeirrar síldar, sem veiðist á
hvalfirði sje stórsíld, en hitt
smásíld. í hvert síldarmál fara
að meðaltali 650 síldar af
smærri síldinni eingöngu, en
um 380 síldar, ef eingöngu er
um hafsild að ræða.
Ef skip veiddi 1000 mál af
smásíld eingöngu hefði það um
650.000 síldar innanborðs.
•
Mál og tunnur.
í HVERJU SÍLDARMÁLI eru
150 lítrar, eða 135 kg. Hjer er
öll síld mæld og því rjettara að
halda sjer við lítramálið. Ein
síldartunna tekur um 100 lítra
af vatni, en þegar búið er að
salta í tunnu vegur síldin 1
henni frá 95 uppí 115 kíló.
í skipi, sem hefir 1000 mál
af síld innanborðs eru því
150.000 lítrar af síld, eða 135
smálestir.
80—90 kr. í gjald-
eyri á mál.
SÍLDARVEKSMIÐJUR rík-
isins greiða hjer í Reykjavík 32
krónur fyrir síldarmálið, en 50
krónur komið til Siglufjarðar,
þar sem bræðsla fer fram.
I fiskbúðunum hjer í bæn-
um kostar síldin 2 kr. kg. eða
270 krónur málið!
Það fer eftir fitumagni og
öðru hvaða útflutningsverð-
mæti fæst úr hverju síldarmáli
og er því nokkuð misjafnt, en
það mun láta nærri, að hvert ■
síldai'mál gefi af sjer 80—90 \
krónur í gjaldeyri.
Ef enn er reiknað með 1000
mála veiði þá verða það 80—90
þúsund krónur í gjaldeyri. Það
mun láta nærri, að það sem af
er haustvertíð hafi aflast um
.70 þúsund mál síldar, bæði hjer
sunnanlands og fyrir vestan og
er verðmæti síldarinnar í gjald
eyri því til þessa um rúmlega
6 miljónir króna.
Hlutur sjómannsins.
TRÖLLASÖGUR GANGA um
hvað sjómenn beri úr býtum í
einni síldarferð hjer upp í Hval
fjörðinn. Það er.nú svo. Ekki
eru allar ferðir farnar til fjár
og oft fær hásetinn lítið í sinn
hlut. En það er eins og vant er,
að það er talað um hið óvenju-
lega, en þagað er yfir hinu, sem
hversdagslegt er.
En það er rjett, að þegar vel
aflast þá fær hásetinn góðan
hlut. Á stærri síldveiðiskipun-
um, þar sem fjölmenn skips-
höfn er, fær hver háseti í sinn
hlut tæplega 67 aura á mál, en
82 aura á smærri skipum.
Og ef enn* er reiknað með
1000 málum, sem því miður er
það óvenjulega og fæst ekki
nema á stærri skipunum, þeg-
ar vel veiðist, þá fær hver há-
seti í sinn hlut 670 krónur, eða
820, ef um smærri skip er að
ræða.
•
Mörg handtök.
ÞAÐ ER gott að fara í smiðju
til Sveins Benediktssonar til að
fræðast hjá honum um síld, mál
og vog, híru og valútu.
En að þessu sinni spurði jeg
hann ekki um hitt, hve mörg
handtök eru við hvert síldar-
mál, áður en það er orðið að
dollar innstæðu í amerískum
banka. En þau handtök eru
nokkuð mörg og væri fróðlegt
síðar að minnast á það.
En það sem er fyrir mestu
eins og er, er að gott veiðiveður
haldist og að síldin haldi sig í
sundunum eitthvað fram eftir
vetri.
í fyrra tóku menn ekki eftir
sildinni hjer fyr en í byrjun
desember og hún var hjer fram
í marsmánuð. Megi svo verða
enn. Þá mun rætast úr mörgum
erfiðleikum fyrir okkar litlu og
gjaldeyrissnauðu þjóð.
i Leiðiogar kommúnisfa í Vesfur-Evrópu,
í Vestur-Evrópu eru fimm
menn, sem stundum eru kall-
aðir hinir „fimm stóru“ meðal
rauðliða þessa hluta álfunnar.
Að minsta kosti þriggja þeirra
er sjaldan getið í frjettum, en
álitið er, að áhrif þeirra innan
kommúnistasamtakanna sjeu
mikil. Þessir rauðliðar eru:
Maurice Thorez byrjaði starfs
feril sinn 1 Frakklandi sem
námumaður. Komst til valda 1
kommúnistaflokknum franska,
en strauk úr hernum eftir inn-
rás Þjóðverja 1 Frakkland, og
dvaldist í Moskva til 1944.
Hann var sviftur borgararjett-
indum 1940 ,en er nú á ný orð-
inn valdamesti maður franskra
kommúnista. Það er hann, sem
þessa dagana leggur á ráðin um
verkföllin og upplausnina í
Frakklandi, en einn af ötulustu
samstarfsmönnum hans er
Jacques Duclos. Áhrif Duclos
í kommúnistasamtökunum eru
sögð vera geysivíðtæk. Haldið
er fram að áhrifa hans gæti
víðsvegar um heim, enda álitið
að hann standi framarlega í al-
þjóðasamtökunum, sem komm-
únistar nú kalla „upplýsinga-
skrifstofu“ og magna á Rússa-
vini allra þjóða til að vinna
sem ötullegast að útbreiðslu
austræna ,,lýðræðisins“. Mælt
er að Duclos hafi komið mjög
við sögu, er bandarískir kompi-
únistar skiftu um forystu 1945.
Palmire Togliatti er leiðtogi
ítalskra kommúnista. Hann
ritar áróðursgreinar sínar und-
ir dulnefninu Ercole Ercoli.
Togliatti hefir, eins og fleiri
góðir kommúnistaleiðtogar,
lengi búið í Moskva og notið
þar kenslu og þjálfunar rúss-
nesku öreigaleiðtoganna.
Wilhelm Pieck hefir um 50
ára skeið staðið framarlega í
flokki þýskra kommúnista.
Fregnir herma, að hann sje nú
heldur að stillast, enda mun
hann hafa kynst starfsaðferð-
um einræðisherrarjna meðan
Hitlersklíkan fór með völd í
landi hans.
William Gallacher er leiðtogi
breskra rauðliða. Hann fylgdi
upprunalega jafnaðarmönnum
að málum, en bauð sig fram til
Thorez var 1940 sviftur borg-
ararjettindum
neðri málstofunnar 1935 og var
lengi ,vel eini kommúnistinn
sem sæti átti í breska þinginu.
Hljótt hefir verið um Gallacher
að undanförnu, enda eru bresk-
ir kommúnistar svo fáliðaðir,
að áhrifa þeirra gætir lítið sem
ekkert.
• •
Fara dult.
Þarna eru þeir þá — hinir
fimm stóru meðal rauðliða Vest
ur-Evrópu. Yfirleitt er minna
vitað um þá en aðra þekkta
stjórnmálamenn, og enginn ut-
an innsta hrings kommúnista-
sambandsins veit yfirleitt,
hversu víðtæk áhrif þeirra eru.
Um eitt efast þó enginn: Að
þeir hafi náið samband við
ráðamennina í Moskva, og að
verkfallsaldan, sem nú virðist
fara sívaxandi í Evrópu, eigi að
miklu leyti rót sína að rekja til
þeirra og pndirmanna þeirra.
Sáffmáii Ceylon 09
Brdlands
London í gærkvöidi.
í DAG var birtur hjer í London
samningur, sem Ceylon og Bj et-
land hafa gert með sjer. Telur
breska stjórnin að þetta sje
fyrsta sporið í áttina til þess, að
jCeylon taki ábyrga stöðu innan
breska heimsveldisins.
—• Reuter.