Morgunblaðið - 23.11.1947, Page 1
34. árgangur
269. tl)l. — Sunnutlagur 23. nóvember 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Kjarnorkustyrjöld getur þurkuð út munnkynið
■«>
Kvikmyndaleikarar yfirheyrðir í Washington
Eða komið menningunni
á svipað stig og fyrir
þúsund árum
«
Afnám styrjalda eina
leiðin, segir amerískur
vísindamaður
Fyrir nokkrum dögum kom frægur vísindamaður til Hafnar,
Harald C. Urey. Hann ér meðal þeirra manna, sSn fremstir
standa á sviði kjarnorkurannsókna. Hann var sá, sem fann hið
svonefnda „þunga vatn“. Fyrir þá stórmerkilegu uppgötvun fekk
hann Nobelsverðlaun.
Er blaðamenn í Höfn hittu hann að máli, lögðu þeir fyrir
hann ýmsar spurningar, viðvíkjandi sjerfræðigrein hans. En
vísindamaðurinn leysti úr þeim, svo mikla eftirtekt vakti.
Eins og kunnugt er af frjettum hefir nokkrum kvikmyndaleikurum frá Hollywood verið stefnt
til Washington til að bera vitni fyrir þingnefndinni, sem á að rannsaka „óameríska starfsemi“.
Alls voru 79 „stjörnur“ látnar bcra vitni um framkomu kommúnista í Hollyvvood og tilraunir
þéirra til að slæða kommúnistaáróðri inn í kvikmyndir. Eitt af fyrstu vitnunum var Kobert
Montgomery og taldi hann að kommúnistar reyndu eftir mætti að koma áróðri inn í kvik-
myndirnar. Þegar Montgomery yfirgaf þinghúsið varð hann að fá lögregluvernd því aðdáend-
ur hans, aðallega kvenfólk þyrptist að honum eins og sjest hjer á myndinni.
• 4
03,39% útsvara hafa verið
innheimt undanfarin ár
Heídur Iregari innheimla í ár
INNHEIMTA útsvara hjér í bænum hefir gengið sjerstaklega
vel undanfarin ár og það svo, að árin' 1942—1946 að báðum
árum meðtöldum hafa frá 91,32 upp í 94,81% allra útsvara verið
greidd. í skýrslu frá borgarstjóra er’þess hinsvegar getið, að á
þessu ári hafi mnheimtan gengið tregar, en undanfarin ár, þar
sem að um síðustu mánaðarmót var aðeins búið að innheimta
67,58% útsvaranna á móti .70,53% á sama tíma í fyrra og
79,65% á sama tíma 1944.
<a----:-----------------
Veröur að hcrða á
innheimtunni.
Þá segir ennfremur í skýrslp
borgarstjóra um innheimtu út-
svaranna á þessu ári:
„Um mánaðarmót sept.—okt.
var hlutfallstalan alveg sú sama
og árið 1946, svo að segja má,
að nú í okt; hafi innheimtan
dregist aftur úr, svo að veru-
lega muni. Það sem af er nóv.,
hefir hinsvegar innheimst dá-
lítið meira hlutfallslega, nú en
í fyrra, en eigi að síður telja
þeir, sem með innheimtumálin
fara, að fylgja verði eftir inn-
heimtuaðgerðum með tölu-
verðri harðneskju, ef heildar-
ái'angur ársins á ekki að verða
lakari en að undanförnu.“
Innheimtar útsvarseftir-
stöðvrar.
Utsvarsálagning hefir að
jafnaði farið lítið fram úr á-
ætlun, sem bæjarstjórn hefir
gert á hverju ári, en þó að jafn-
aði rúmlega eina miljón krónur.
á ári, eða alls á árunum 1942—
1946 7,9 miljón kr.
Á árunum 1943—1946 hafa
afskrifitr numið 1,8 miljón kr.
en af útsvarseftirstöðvum hafa
verið innheimtar á þessum sömu
árum3,3 milj. kr.
KOMMÚNISTAR
RÓM: — Tilraunir DeGasperis
um að mynda stjórn á breiðari
grundvelli haida áfram.
V.R. ræðir um mat-
málslíma
AÐALFUNDUR afgreiðslu-
mannadeildar V.R. var haldinn
nýlega. Formaður fjelagsins var
kosinn Björgúlfur Sigurðsson,
en meðstjórnendur Sigurður H.
Ólafsson, BöðVar Pjetursson og
Guðm. Gamalíelsson.
Á fundinum var gerð eftir-
farandi ályktun varðandi breyt-
ingu á matmálstíma:
Aðalfundur A. V. R. haldinn
17. nóv. 1947, vill taka fram
eftirfarandi, vegna framkom-
inna óska um breytingu á matar
tíma.
1. Til þess að slík breyting
geti komið til mála þarf að sam-
ræma opnunartíma sölubúða
þannig að hvergi sje opnað fyrr
en kl. 9 og þá lokað kl. 5 ef úr
breytingunni verður. Matartími
verði þá % klst. á dag.
2. Fundurinn lítur svo á, að
allsherjar atkvæðagreiðsla inn-
an fjelagsins nái ekki tilgangi
sínum vegna mismunandi vinnu
skilyrða hinna ýmsu meðlima
fjelagsins, álítur fundurinn því
rjettara að fram fari atkvæða-
greiðsla innan hverrar sjerdeild-
ar.
Umræður um þá framkomnu
ósk um breytingu á matartíma,
urðu mjög fjörugar og virtust
fundarmenn yfirleitt mjög and-
vígir slíkri breytingu.
Kjarnorkan til gagns?
Prófessor Urey sagði m. a. að
á næstu 10 árum myndi það
koma í ljós, hvort hægt væri að
beisla kjarnorkuna, svo að hún
yrði notuð. í hinu praktiska lífi.
Það er með kjarnorkuna eins og
aðrar miklar uppgötvanir, r.agði
hann; svo sem flugið, gufuvjel-
ina og rafmagnið, að nokkur
tími verður að líða, frá því upp
götvanirnar eru gerðar, þangað
til það kemur í ljós, að hversu
miklu gagn þær geta orðið.
Hjer verður um það að ræða,
hvort kjarnörkan getur keppt
við aðrar orkulindir manna.
En það er mjer aukaatriði,
hjelt hann áfram, hvort kjarn-
orkan getur komið mannkyn-
inu að notum, eftir skemri eða
lengri tíma. Aðalatriðið er það,
að kjarnorkusprengjan verði
aldrei oftar notuð í hernaði. —
Komi það fyrir, er engin á-
stæða til að kæra sig um mál-
efni friðarins stundinni lengur.
Því svo gereyðandi getur kjarn
orkustyrjöldin orðið.
Kjarhorku rannsóknir hafa
gefið mannkyningu mikla og
merkilega þekkingu, sem getur
komið að miklum notum, ef
mannkynið lifir það, að geta
notfært sjer hana.
Getur útrýmt öllu lífi.
I fyrstu heimsstyrjöldinni voru
skemdirnar af völdum ófriðar-
ins miklar, bæði í Frakklandi
og í Belgíu. En ekki meiri en
svo, að hægt var að lagfæra
þær. Eftir aðra heimsstyrjöld-
ina eru svæði í Þýskalandi,
Englandi og Japan, sem eru
svo eydd, að það mun taka öld
að endurreisa þau. Mannkynið
hefir komist upp á að reka vjel-
ræna styrjöld.
Ef þriðja eyðileggingin ætti
sjer stað, þá yrði eyðileggingin
af hennar völdum ótrúlega
margsinnis meiri, en hún var
í síðustu styrjöld.
Jeg er kjarnorkurannsóknun
um svo kunnur, og verksmiðj-
unum sem starfræktar eru
vestra, til framleiðslu þeirra,
að jeg get gert mjer þetta í hug
arlund.
Mannkynið hefir aðeins unt
eina leið að velja. Að forðast
styrjöld.
í hinni svo nefndu Einstein-
nefnd, höfum við reynt að gera
mönnum þetta skiljanlegt:
Fimm staðreyndir:
Tjónið af kjarnorkusprengj-
um er ófyrirsjáanlegt.
Hægt er að framleiða mikið
af kjarnorkusprengjum, og það
fyrir tiltölulega lítið fje, þetta
tvær miljónir dollara sprengj-
una.
Engin vörn er til, gegn kjarn-
orkusprengjum, og mun tæp-
lega nokkuð slíkt finnast.
Allar þjóðir geta lært að
ge’ra kjarnorkusprengju.
Hægt verður að gera stærri
og áhrifameiri kjarnorku-
sprengjur en þegar hafa verið
gerðar.
Að þess uathuguðu höfum við
reynt að gera mönnum skilj-
anlegt, að mannkynið verður að
koma upp einskonar alheims-
stjórn og skapa með því öryggi,
svo styrjaldir komi ekki til
greina.
Takist þetta ekki, get jeg
ekki sjeð, að hin svo nefnda
menning okkar eigi sjer neina
framtíð. Það kann að vera áð
einhverjar mannhræður lifi
þriðju heimsstyrjöldina af. En
mikil svæði jarðarinnar irmnu
Framh. af bls. 9