Morgunblaðið - 27.11.1947, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.11.1947, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 27. nóv. 1947 Útg.: H.f. Árvakur^ Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. I lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók. Ný verkefni Ferðafjelagsins FERÐAFJELAG ISLANDS á í dag 20 ára afmæli. Þetta fjelag hefur unnið íslensku þjóðinni mikið gagn og afrekað merkilegu starfi á þeim tveimur áratugum, sem það hefur starfað. Það hefur í fyrsta lagi kent henni að þekkja sitt eigið land betur en áður, í senn bygðir þess og óbygðir. Slík kynning er mikils virði. Hún er í raun rjettri grundvöllurinn að sannri ættjarðarás og hollustu við land sitt og þjóð. En jafnhliða því að kynna fólkinu landið hefur Ferðafje- lagið skapað fjelögum sínum, og mörgum öðrum, óteljandi ánægjustundir. Hinar skipulögðu ferðir þess um bygðir landsins og fjall- lendi hafa veitt almenningi kost hollrar og þroskandi skemt- unar. f þeim ferðum hefur íslensk náttúra í ríkum mæli miðlað ferðafólkinu af nægtum fjársjóða sinna, fegurð og tign landslagsins og f jölbreytni hins norðlæga gróðurlendis. Það hefur kynst blómlegum sveitum, heiðalöndum grónum mosa og lyngi, jöklum og eldfjöllum, hverum og l^ugum. Töfra þessa andstæðukenda náttúrufars verður aldrei full- notið. Þessvegna verður landið aldrei fullskoðað, þessvegna sjer ferðalangurinn altaf eitthvað nýtt, hversu margar ferð- ir, sem hann fer um það. Ferðafjelagið hefur í 20 ár kent þjóðinni að kynnast landi sinu. Það mun halda því verki áfram í framtíðinni. En nú bíða þess ný verkefni. Það á að taka forystuna um að kynna fsland öðrum þjóðum, laða hingað erlenda ferðamenn og leiðbeina þeim um landið. Ferðafjelag íslands er áreiðan- lega sá aðili, sem æskilegastur er til þess að vinna þetta starf. 2 öðrum löndum eru það oftast frjáls samtök einstaklinga, sem reka ferðaskrifstofur, sem annast hverskonar fyrir- greiðslu ferðalagá um löndin og milli landa og heimsálfa, sumstaðar með stuðningi ríkisvaldsins. Þannig hlýtur þetta einnig að verða hjer. Við íslendingar gerum okkur það ekki Ijóst ennþá, hversu geysivíðtækt verkefni bíður okkar á þessu sviði. ísland getur orðið, og á að verða, fjölsótt ferðamannaland. Miklar iikur eru til að það geti orðið þjóðinni stór tekjuiind og mikilvæg- ur atvinnuvegur. En til þess að svo megi verða, þarf að gera eitthvað meira en að tala um það. Fyrsta skilyrðið, sem þarf að fullnægja, er fjölgun gistihúsa, ekki aðeins í bæj- unum, heldur og á ýmsum fögrum stöðum í bygðum og ó- bygðum landsins. Ennfremur þarf að skapa aukinn siðmenn- ingarbrag í rekstri slíkra stofnana. En á hann brestur mjög nú. Sjálf ferðalögin um landið og kynningu þess hjer heima og erlendis á svo Ferðaf jelagið að annast. Sumum hættir við að telja kynningu landsins erlendis til fordildar og hjegómaskapar, sem lítið gildi hafi. Þetta er mikill misskilningur, misskilningur, sem trauðla verður vart meðal annara þjóða, hvort sem þær eru litiar eða stórar. Hver einasta siðmentuð þjóð skilur, að það er henni mjög mikilvægt, að aðrar þjóðir kunni sem gleggst skil á landi hennar, menningu og framleiðsluháttum. Ferðalög munu á næstu árum fara mjög í vöxt sökum stór- bættra samgönguskilyrða. Á þau mun ekki verða litið sem luxusflakk, sem æskilegt sje að koma í veg fyrir. Þau munu þvert á móti verða talin meðal áhrifamestu leiða til þess að eyða tortryggni og misskilningi þjéða í milli. Með þeim mun fólkið sjálft, almenningur í löndunum, fá tækifæri til þess að kynnast og öðlast nýjan skilning á lífsviðhorfum, sem því áð- ur voru lítt kunn. Við Islendingar verðum að búa okkur updir að taka þátt í þessu mikilvæga kynningarstarfi. Við hljótum að gera það af tveimur ástæðum. Við þurfum að kynna land okkar og kynnast öðrum löndum og þjóðum. Við þurfum í öðru lagi að afla okkur gjaldeyristekna með því að gera ísland að ferðamannalandi. -Ferðafjelagi Islands verður ekki óskað annars betra en að það geti lagt drjúgan skerf til þessa starfs. . Til þess er því einnig vel treystandi. uerji 'i álrifar: UR DAGLEGA 24.000.000 mál í einni síldartorfu. MÉNN ÞREYTAST ekki á að bollaleggja um síldina. Hvað er mikil síld í Hvalfirði? — Barnaleg spurning og þó. — j Kunningi minn hefir að gamni j sínu verið að reikna út eina síldartorfu, sem sagt var frá hjer í blaðinu og það eru engar smátölur, sem hann fær út úr dæminu. Síldartorfan, sem m.s. Edda silgdi yfir var talin vera 2000 metra löng 20 metra þykk og 100 metra breið. Hvað væri nú mikið af síld í slíkri torfu? Það yrði um 4 mil- jónir teningsmetrar, segir hinn reiknisfróði vinur minn, eða 24 miliónir mála, éf reiknað er með að 6 síldarmál sjeu i hverj- um teningsmetra. • 1440 miljón kr. í gjaldeyri. OG ÞAR SEM reikningshaus! inn minn er varkár maður vill hann draga 25% frá vegna þess að hann gerir fastlega ráð fyr- ir að talsvert af sjó hafi verið saman við torfuna. Fær hann þá út 18 miljónir síldarmála. — Snotur hrúga það. Og þá er eftir að reikna þetta alt ýt í gjaldeyri, því annars væri lítið gaman að dæminu. 80 krónur eru sagðar fást fyrir hvert síldarmál þegar búið er að vinna það í verksmiðjunum og gera úr lýsi og mjöl. En 18 miljón mál á 80 krónur verða hvorki meira nje minna en 1440 miljónir síldarmála. En verst við þetta dæmi er, að þarna var sýnd veiði en ekki gefin og því ekki hægt að veita leyfi út á torfuna fyrir svo mikið sem einum litlum land- búnaðarjeppa. • Það þurfti 12 lögreglu menn til að verja Tyrone. ÞAÐ VAR heppilegt að hann Tyrone Power varð ekki inn- lyksa hjer bg eilífur augnakarl, því bað er dýrt að hafa slíka gesti. Kiartan Bjarnason varðstjóri á lögreglustöðinni skrifar á þessa leið: ,,Jeg vil leyfa mjer að taka fram eftirfarandi í sambandi við það sem Víkverji segir um lögregluvernd að Hótel Borg á sunnudagskvöldið. Þegar hringt var í lögreglustöðina frá nefndu hóteli og beðið um vernd, var því svarað til að við hefðum ekki lögreglumenn en þess ber að gæta, að við höfðum þá þeg- ar sent fjóra menn að húsinu. Úr því var lögreglan smáauk- in, eftir því sem hægt var, svo að á tímabili voru 12 lögreglu- menn við hótelið“. Ja, haldið þið að það hafi verið læti! • Hrifning. JAMES WHITTAKER heitir breskur maður, búsettur í Lond on. Hann er umboðmaður Áfeng isverslunar ríkisins þar í borg. I styrjöldinni dvaldi hann hjer á landi við einhver störf og varð svo yfir sig hrifinn af landi og lýð, að hann notar hvert einasta tækifæri, sem honum gefst til að segja lönd- um sínum frá hve hjer sje in- dælt og gott að vera. Ef ein- hversstaðar birtist villandi frá- sögn um ísland er Whittaker kominn af stað til þess að mót- mæla og leiðrjetta. Hann hefir nokkrum sinnum sent Morgunblaðinu línu og blaðið hefir birt eftir hann nokkrar greinar, einkum um mál sem varða nýjungar í fisk veiðum og framförum í hagnýt- ingu sjávarafurða. • Afburða hól um Island. ÞESSI MAÐUR, hr. Whit- taker, hefir flutt fyrirlestra LÍFINU um ísland í breska útvarpið og stuðlað að því að sjónvarpað var efni um ísland frá BBC. Og nú hefir hann ritað grein í nóvember hefti breska íima- ritisins „Vogue“, sem tekur öllu öðru hóli fram, sem sagt hefir verið um okkur á erlendum vettvangi. Það hefði ekki verið hægt að gera þetta betur. Það er mikils virði að eiga slíka vini erlend- is. íslendingar eru sjálfir svo áhugalausir fyrir því hvað sagt er og skrifað um þá erlendis, að beim dettur ekki í hug að koma neinu á franxfæri. Við gerum ekki nema að bretta upp á trýnið þegar illa er skrifað um okkur. • Góð barnaskemmtun. ÞAÐ MÁ GETA nærri hvort yngstu borgararnir verða ekki ánægðir á sunnudaginn kemur. Nú hefir Helgafellsútgáfan gert þeim svo hátt undir höfði, að hafa sjerstaka bókmentakynn- ingu fyrir börn og þar verður lesið fyrir börnin ævintýri og sögur úr „Jólabókinni“. Það hefir lengi verið yfir því kvartað, að ekkert væri gert til að skemta börnunum í þessum bæ. en þarna fá þau ábyggilega það sem þau vilja. • Verkefni fyrir stál- þráðinn. ÞAÐ ER EKKI líklegt, að þessi einstaka barnaskemtun verði endurtekin, þar sem Helga fell hefir meira á prjónunum fyrir jólin. En hjer er ágætt verkefni fyrir stálþráðinn fræga. Það er að sjá að barna- tími útvarpsins sje altaf í hraki með efni. Útvarpið gerði því sjálfu sjer cg börnunum greiða með því að fá leyfi Helgafells til að taka skemíúnina upp á stálþráð og útvarpa henni í barnatíma. MEÐAL ANNARA ÖRÐA ,7. . • - - - | EftirG.J.A. !— ---------- -----— Þrælaveiðar í Kasmit Ofbeldismenn í Kasmir stela konum Sikha og Hindúa og gera þær að ambáttum. HINAR furðulegustu sögur um mannrán og þrælamarkaði berast nú í sambandi við átökin í Kasmir. Skýra frjettamenn frá því, að algengt sje, að kyn- þættir þeir sem aðallega hafa beitt sjer fyrir ofbeldisaðgerð- um í furstadæminu, ræni kon- um og dætrum Hindúa og Sikha og jafnvel Múhameðstrúar- manna einnig, þótt þeir sjeu trúbræður þeirra. • • Stela kvenfólkinu. Einn af mönnum Kemsley- frjettastofunnar er nýkominn úr ferðalagi um óeirðasvæðin. Skýrir hann frá því, að’ Hind- úar hafi á einum stað sagt sjer að árásarmennirnir hefðu safn- að öllu kvenfólki þeirra saman á einum ,,þrælamarkaði“. Þær elstu fengu að fara frjálsar. Þeim hraustlegu var smalað í einn hóp, en árásarmenn fluttu þær þvínæst til heimkynna sinna, þar sem þeir höfðu í ) hyggju að nota þær til vinnu á ökrum sínum og þjónustu í húsum. Þær fríðustu voru hafð ar sjer —r- þær áttu að fara í kvennabúrin. Vel skipulagt. Áx-ásar-kynflokkarnir gengu svo langt, að þeir notuðu lang- Kasmirbúar sögðu Nehru ljótar sögur ferðabifreiðar til að flytja kven fólk og ránsfeng til heimahjer aða sinna. Stei'kur hervörður var hafður um bifreiðarnar, en alt bað, sem ofbeldismennirnir ekki gátu flutt með sjer. bi'endu þeir eða eyðilögðu á annan hátt. • • Nehru á óeirðar- svæðinu. Kemsley-frjettamaðurinn skýrir lítillega frá því, hvað íbúar borgarinnar Baramula í Kasmir sögðu Pandit Nehru, forsætisráðherra Indlands, er hann kom þangað. ’ • • Ráðast jafnt á alla. í fyrstu rjeðust ofbeldis- mennirnir aðeins á heimili Hindúa og Sikha, en á þriðja degi árásarinnar var engu leng ur gerður nckkur greinarmun- ur á hinum ýmsu þjóðflokkum. því leði ekki á löngu þar til grimmd og ofbeldisverk inn- rásarmannanna (en þeir eru Múhameðstrúar) hafði orsakað það, að jafnvel kynbræður þeirra í Kasmir voru orðnir þeim mjög óvinveittir og lýstu sig algerlega andvíga því, að Frh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.