Morgunblaðið - 13.12.1947, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.12.1947, Qupperneq 16
VEÐURUTLITIÐ: — Faxaflói: SKOTIST til útlanda me3 SUNNAN stinnings kaldi. —■ Skýjað og úrkomulítið. 286. ibl. — Laugarilagur 13. desember 1947 Heklu. — Sjá grein á bls. 9. SíldveiSarnar SEINNI PARTINN í fyrri- nótt náðu nokkru skip góðum köstum í Hvalfirði. í gær var engin veiði, enda veður slæmt. Yfirleitt var afli tregur hjá skipunum og rjeði þar mestu ar nætur. Þeir sem höfðu 23 faðma næíur náðu bestu köst- unum. I gær ætlaði Andvari að sigla hingað til Reykjavíkur með fullfermi, en honum var snúið við, því ekki þótti rjett að sigla með farminn í slíku veðri. Síðastliðinn sólarhring hafa komið hingað nokkur skip með samtals um 3500 mál. — Voru flest þeirra með slatta. I gærkvöldi var byrjað að lesta ,,Banan“. Síðastliðinn sól- arhring fóru áleiðis til Siglu- fjarðar Súðin, Selfoss og Grótta. Þá bárust Morgunblaðinu þær frjettir í gærkvöldi, að „True Knot“ myndi leggja af stað frá Patreksfirði í nótt sem leið, áleiðis'til Siglufjarðar. — Ef veður þætti tvísýnt, ætlaði skipstjórinn að sigla því inn á einhvern fjarðanna til að leita vars. Síid s landnó! í Kleppsvík MENN hjeðan úr bænum hafalagt landnót í Kleppsvík- ina með mjög góðum árangri. Um daginn urðu þeir þó fyr- ir því óhappi, að nótin sprakk undan síldinni. í þessari lögn fengu þeir um 300 tunnur. Tal- ið var að allt að helmingi meira myndi hafa verið áður en nót- in sprakk. Mentaskólanem- cndur ræða skéla- málið NEMENDASAMBAND Menta- skólans, heldur fund á morgun kl. 2 í skólanum. Verður þar rætt um þær tillögur, er fram hafa komið á Alþingi um fram- tíðarstað Mentaskólans. Málshefjandi er próf. Alexand er Jóhannesson formaður sam- bandsins. Mun hann í ræðu sinni leggja fram tillögu, sem niður- stöðu grundvöll að umræðum um málið á þessum fundi. „Hekla" á Kaslrupflugvelli. Eins og blaiíafrjettir hafa boriö með sjer undanfarnu daga, hefur „Hekla“, Skymastervjel Loflleiöa, hafl meir en nóg að gera. Hún er nýkomin frá Rómaborg, og mun nú vera á leið- inni til ISew York og Venezuela. Myndin cr tekin á flugvell- inum í Kastrup. Je@ kynnlist hinu nýja Eslandi ¥i Sefptea - sep sendiherra Svía, S. H. Pouselfe LUCÍUHÁTÍÐ Norræna fjelagsins var haldin í Sjálfstæðishúsinu í gærkvöldi. Var hún mjög fjölmenn og fór hið hátíðlegasta fram. Formaður fjelagsins, Stefán Jóhann Stefánsson forsætisráðherra, setti samkomuna og stjórnaði henni. Bauð hann hinn nýja sendi- herra Svía, S. IT. Pousette og frú hans velkomin en sendiherran flutti síðan ræðu. «------------------------------- Úr ræðu sendiherrans. Sendiherrann hóf mál sitt á því að lýsa ánægju sinni yfir komu sinni hingað til lands og væntanlegri dvöl sinni hjer. Hann kvaðst hafa lesið ýmis- legt um Island þegar á skóla- árum sínum og síðar kynnst sögu þess, sem sjer hefði fund- ist merkileg og sjerstæð. — Ein fyrsta ferð mín út úr höfuðborginni, sagði sendiherr- ann, var til Þingvalla. Sá stað ur hafði mikil áhrif á mig, náttúrufegurð hans, tign og sögylegar minjar. „Hið nýja Island við Sogsíossa“. En austur við Sogsfossa kynntist jeg hinu nýja íslandi, þar sem vatnsaflið hefur verið beislað og myndarlegt orkuver verið reist. Jeg hefi sjeð Heklu gjósandi og dáðst að hinum hrikalega og mikilfenglega krafti hennar og hinum ægi- legu andstæðum íslenks nátt- úrufars. Mj.er er það mikið fagnaðar- efni, að eiga eftir að kynnast þessu landi betur og sjá meira af því: Það er ósk mín og von að mjer auðnist að efla vin- samlega sambúð milli þjóðar minnar og íslensku þjóðarinn- ar. Jeg er Norræna fjelaginu þakklátur fyrir að hafa gefið mjer kost á að vera hjer með- al ykkar og fyrir starf þess í þágu norrænnar samvinnu. Guðlaugur Rósinkrans yfir- kennari, ritari Norræna fjelags ins, þakkaði sendiherranum ræðu hans og vinsamleg um- mæli í garð fjelagsins. Lúðra- sveit Reykjavíkur ljek norræn lög og einnig voru sungnir nor rænir söngvar. Lúcíusöngurinn. En kl. rúmlega 10 gengu Luciurnar, 7 ungar stúlkur hvít klæddar fram á sviðið og sungu Luciusönginn. Báru þær krans logandi kerta á höfði. Að söngn um loknum báru þær gestun- um kaffi. Að lokum var dans- að. — Dreglð í happdrælff Ámtanns á mánudag N ÆSTKOM ANDI mánudag verður dregið í bílahappdrætti Glímufjelagsins Ármanns. Hefur Ármann um mörg ár verið eitt af athafnamestu í- þróttaf jelögum landsins, og nú á þessu ári hefur það lagt í mjög fjárfrekar framkvæmdir, um- fram venju, þar sem fjelagið sendi t. d. þrjá íþróttaflokka á íþróttamót í Helsingfors á liðnu sumri, alls 46 menn. Auk þess stóð það fyrir komu sænska handknattleiksflokksins, og varð töluveröur halli á för þeirra. Leggja Ármenningar mikið kapp á sölu miðanna nú um helg ina, því að drætti verður ekki frestað. Roosevelt garður LONDON: — Þegar líkneskið af Roosevelt verður reist í Gros- venor-square görðunum, verða þeir kallaðir Roosevelt garðar. Marshall hvetur til aukins friðarstarfs „Fóiher orðið dauðþreyff á riyrjöldum” LONDON í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. MARSHALL, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, flutti í dag hjer í London fyrstu meiriháttar ræðu sína utan ráðherrafundarins. Skoraði hann á alla menn, að sameinast um trúna á það, að þjóðir heimsins geti lifað saman í sátt og samlyndi. ---------------------$ Tvíi knot- skip Íeiy5 SEINT í gærkveldi frjetti Mor^unblaðið, að samningar hefíu tckist um leigu tveggja Knot-skipa, til síldarflutninga til Sigluíjarðar. Eimskipafjelag Islands vann að samningaumleitunum fyrir ríkisstjórnina. Ekki fylgdi það frjettinni hvaða tvö skip hjer væri um að ræða, en sennilega eru það True Knot og Salmon Knot. Vegna þess hversu frjett þesi barst blaðinu seint, tókst því ekki að fá hana staðfesta, en fullvíst má telja, að hún sje á rökum reist. Sr. Jón Á. Sigurðsson kosinn presfur EINS og skýrt hefur verið frá hjer í blaðinu fór s.l. sunnudag fram prestkosning að Staðar- prestakalli í Grindavík. Talning atkvæða fór fram í fyrradag í skrifstofu biskups. — Kosinn var sr. Jón Árni Sigurðs son prestur að Stað að Reykja- nesi í Barðastrandarprófasts- dæmi og hlaut hann 156 atkv. — Emil Björnsson cand. theol. hlaut 117 atkvæði og sr. Þorst. Björnsson að Þingeyri fjekk 8 atkv. — Einn seðill var ógildur. Samkomu ungre Sjálfsfæðlsmanna r HJERAÐSSAMBAND ungra Sjálfstæðismanna í Árnessýslu, heldur skemmti- og útbreiðslu- samkomu í Selfossbíó í kvöld, klukkan 9,30. Jóhann Hafstein alþm flytur þar ræðu og Vigfús Sigurgeirs- son, sýnir íslenskcr kvikmynd- ir 1 eðlilegum litum m. a. frá Heklugosinu, Pjetur Jónsson, óperusöngvari syngur einsöng, en að síðustu verður svo dans- að.^ Á undan skemtuninni verð- ur fundur í Sambandinu, sem hefst kl. 8. Verða þar rædd ým- iss mál, er varða skipulagsmál og starfsemi þess og svo verður rætt um stjórnmálaviðhorfið. Hjeraðssamband ungra Sjálf- stæðismanna í Árnessýslu, var stofnað 2. nóvemter síðastlið- inn. Voru stofneadur þess þá allmargir úr flestum hreppum sýslunnar, hefir þeim nú fjölg- að mjög og er Sambandið nú orðið fjölmennt og öflugt. Marshall flutti ræðu sína í há- degisverði fjelags Bandaríkja- manna i Bretlandi, og sagði meö al annars: Friðarþrá Alt mannkynið þráir frið og gagnkvæman skilning þjóðanna. —• Það ætti ekki að veitast svo mjög erfitt að ná þessu mark- miði, þegar almenningur um heim allan vonast eftir slíkum árangri. Áróður Fólk er orðið dauðþreytt á styrjöldum. Það hefur andstygð á orðinu einu. Og þó er það enn á ný farið að óttast stríð — svo langt hafa áróðursmennírnir gengið. Sameiginleg átök Marshall sagði í þessu sam- bandi, að nú yrðu allir að leggj- ast á eitt til að sigrast á hrak- spádómum áróðursaflanna, en leggja auk þess fyllstu áherslil á trúna á möguleikana fyrir því, að allar þjóðir heims geti lifað saman í friði. Molotov hafnaði Bevin og Bidault voru við- staddir, er bandaríski utanríkis- ráðherrann flutti ræðu sína, en Molotov afþakkaði boð um að sitja bádegisverðinn og bar fyrir sig annríki í sambandi við fund utanríkisráðherranna. P. cg Ægir gsröu Jafnfefli í GÆR fór fram úrslitaleikur I sundknattleiks meistaramóti keptu. Fóru leikar svo að Ægir- Reykjavíkur. — KR og Ægir ingar sigruðu með 3 gegn 2 mörkum. Liðin þrjú er taka þátt í kepn- inni urðu jöfn að stigum Verður því að keppa enn á ný, til þesg að úrslit megi fást. Dómari var Þorsteinn Hjálm- arsson. Voru menn mjög ósam- mála um dóm hans í leiknum. Leikari sæmdur heiðursmerki OSLO' — Noregskonungur hefur sæmt Sir Ralph Richardson, leik- ara, orðu Olafs helga, fyrir leik hans í hlutverki Pjeturs Gauta eftir Ibsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.