Morgunblaðið - 24.12.1947, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 24. dcs. 1942
Þegar líður að jólum fara börnin
að hlakka til. Þau hlakka til að
fá jólagjafir og jólatrje og eins
mikið af sælgæti og hjartað þrá-
ir. En að þessu frátöldu eru til-
hiökkunarefni þeirra mismun-
andi eftir því í hvaða landi þau
eiga heima; því hvert land hefur
sína siði, sem eru frábrugðnir
siðum annara landa. Börnin í
Rómaborg hafa alveg sjerstakt til
hlökkunarefni. Þau fá að heim-
sækja Jesúbarnið á jóianóttina.
Jesúbarnið heitir II Bambir.o,
sem orðrjett þýðir „barnið“, en
enginn er þó í vafa um hvað við
er átt með þessu nafni, því jólin
eru ekki aðeins hátíð barnanna,
þau eru fyrst og fremst hátíð
barnsins , sem fæddist í jctu á
jólanóttina. Þess vegna liggur II
Bambino í jötu í öllum kaþólsk-
um kirkjum á hverjum jólum, og
börnin koma hópum saman til
þess að heimsækja hann. Þau
fara þá vanalega úr einni kirkj-
unni í aðra til þess að skoða jöt-
urnar, sem eru mismunandi að
stærð og útbúnaði, þó sjálf jatan
sje eins. Þar liggur Jesúbarnið á
hálmi og María og Jósep krjúpa
á knje sitt hvoru megin og
spenna greipar í bæn. Hirðarnir
eru að koma inn um hellisdyrnar
með lítið lamb með sjer og jóla-
stjarnan íjórnar yfir heliinum. En
þó að svona jötur sjeu í hverri
einustu kirkju í Kómaborg, vita
hörnin þó vel hvert þau eiga að
fara til þess að heimsækja II
Bambino. Hann er í Ara-Coeli-
kirkjunni niðri við Forum Rom-
anum. Hún stendur uppi á Capi-
tolhæðinni og var um langann
aldur skrautlegasta kirkja Róma-
borgar. í einni kapellunni er
ínynd Jesúbarnsins skorin í olíu-
við og fagurlega máluð. Þetta er
II Bambino. Sagt er að munkur í
Franciscusarklaustri í Jerúsalem
hafi skorið styttuna út og þegar
útskurðinum var lokið, varð
hann mjög hryggur, því hann
átti enga málningu til þess að
mála hana. Styttan stóð inni í
klefanum hans á meðan hann fór
til bæna í kirkjunni, en þegar
hann kom aftur var búið að
mála hana, og þóttust aliir vita
að englar myndu hafa gert það,
svo vel var hún máluð. Munkur-
inn lagði síðan af stað til Róma-
borgar með styttuna. A leiðinni
gerði ofviðri og skipinu hvolfdi
rjett hjá Livorno á Ítalíu og
styttan týndist. Munkurinn bjarg
aðist aftur á móti og mikil var
gleði hans þegar styttuna rak að
landi, svo hann gat haldið áfram
með hana til Rómaborgar. Henni
var svo komið fyrir í Ara-Coeli-
hirkjunni og þar stendur hún enn
í dag.
Mörg kraftaverk hafa gerst í
eambandi við þessa styttu og
einkum þótti sjúku fólki gott að
IL BAMBINO -
cJjtir (ju&nírut ^ónóclóttur
fírá jf\eótólal?ha
TS54B «
Jesúbarnið í ,,jötu“ í
ííalskri kirkju.
leita til II Bambino með bæn um
lækningu. Það varð því að vana,
ef einhver lá hættulega veikur í
nágrenninu, að sent var eftir II
Bambino og hann borinn heim til
sjúklingsins og skipti þá vana-
lega um annaðhvort til fulls
bata eða dauða.
Á jólanóttina fyllist Ara-Coeii-
kirkjan af börnum. Þau standa
hlið við hlið og bíða með eftir-
væntingu. Jólamessan er sungin
og börnin syngja með. „Kyrie“,
„Gloria“ og „Agnus Dei“. —
Raddirnar eru glaðar og fagn-
andi, því nú eru jólin og bráðum,
rjett bráðum, fá þau að sjá Jesú-
barnið, sem jólin eru heiguð.
Þegar messunni er lokið verður
dauðaþögn í kirkjunni og öll
börnin halda niðri í sjer andan-
um. Þá er tjaldið dregið til hlið-
ar, sem huldi jötuna og þarna
liggur II Bambino, gleði barn-
anna. Og aftur hefja barnaradd-
irnar sig í skærum söng: Gloria
in exelsis Deo — Dýrð sje Guði
á hæðum.
Fyrir framan kapelluna er lít-
ill prjedikunarstóll. Hann er ætl-
aður börnunum. Hvert barnið
eftir annað fer upp í prjedikunar
stólinn til þess að ávarpa Jesú-
barnið. Sum eru svo feimin að
þau eiga bágt með að tala. Sum
eru búin að búa sig vel undir en
muna svo ekkert af því sem þau
ætluðu að segja, en segja ef til
vill eitthvað allt annað. Sum eru
fullorðinsleg og halda dálitla
María mey með barnið. (Eftir málverki Filipino Lippi).
ræðu. Jeg heyrði einu sinni frá-
sögn um jólanótt þegar trúboði
frá Afríku kom til Rómaborgar
og fór inn í Ara-Coeli til þess að
heimsækja II Bambino og færa
honum kveðjur svörtu barnanna
í söfnuðinum hans suður í Afr-
íku. Hann hlustaði á börnin og
horfði á II Bambino og hugsaði
alltaf um hve svertingjabörnin
myndu verða glöð ef þau gætu
sjeð og heyrt allt það sem fram
fór. Þá kom lítil stúlka upp í
prjedikunarstólinn og stóð þar
alveg grafkyrr. Hún var í svört-
um kjól og iitla andlitið hennar
var sorgbitið. Börnin í kring
' voru að tala saman og sum þuldu
í hálfum hljóðum það sem þau
ætluðu að segja þegar röðin
kæmi að þeim. En hún lyfti upp
höndinni og þaggaði niður í þeim
og beið róleg þangað til allt varð
kyrrt. Svo fór hún að tala. Og
það var auðfundið að hún hafði
ekki búið sig neitt undir, heldur
talaði hún við Jesúbarnið rjett
eins og henni var eðlilegt að tala.
Elsku Jesúbarn, sagði hún. Jeg
veit að nú eru jólin og þá eiga
allir að vera glaðir. En viltu þá
ekki hugga hana mömmu, því
hún grætur svo oft síðan hann
litli bróðir minn dó. Núna í kvöld
var hún alltaf að gráta og þá varð
jeg líka svo hrygg. Jeg veit að
hann litli bróðir minn er hjá þjer
og að honum er alveg batnað
núna. Hann er sjálfsagt að leika
sjer við englabörnin og er kátur
og glaður. Ó, elsku litla Jesúbarn,
viltu ekki segja henni mömmu
það svo hún hætti að gráta.
gvo gerði litla stúlkan kross-
mark fyrir sjer og fór niður úr
prjedikunarstóinum og hvarf von
bráðar í þröngina. En trúboðinn
gleymdi henni aldrei síðan og
hefur oft sagt litlu svertingja-
börnunum frá henni.
Á þrettándanum koma vitring-
arnir frá Austurlöndum til Betle-
hem til þess að leita hins ný-
fædda koriungs Gyðinga. Þá eru
myndir af þeim settar fyrir
framan jötuna og börnin kannast
strax við þá frá því í fyrra. —
Þannig sjá börnin jólaguðspjallið
fyrir sjer svo þau gleyma því
aldrei. Og þó að þau verði full-
orðin og fari ef til vill eitthvað
langt út í heim, þá vita þau
samt, að þau geta alltaf heimsótt
Jesúbarnið í hverri einustu ka-
þólskri kirkju, því hann liggur
alltaf í jötunni sinni um jólin,
svo við getum farið til hans og
tilbeðið hann eins og hirðarnir í
Betlehem og vitringarnir frá
Austurlöndum.
GuSrún Jónsdóttir
frá Prestsbakka.
8x8>3x$xSxSxíxíxSx$xSxíxSxSx$xSxSxSxSxíxSxíxexe>
Verslunin,
Laugaveg 1.
Ingólfs Apótek.
^<SxS>^<SxSxSxS^xS><s><íxS><s><sx}>^xSx{>^><S><S>^x$^xSxíxSxS>«xSxSxSxSxSx^<s^xSx$x^Sx^>^
ec^ jo
t!
Almennar tryggingar h.f.
X<J^^<8^xS^xSxSxSxSx$x$xS>^xS^xSxíxSx$xSxS^xSxSxSxS>^x$>^xSxíxS><Sx^<^SxS><S> <
Þingholtsstræti 3.
?LkL% jót!
Svanur h.f.
%kte$ jót!
^JJoJújan
leöUecj jot.
Nitíursu'ðuverksmiðjan Bíldudal.
S>4x$x®xSxíxS><íxíx$x$xíx$x$xHxí>^xí><íx$x$.^.1 <$>y<^<í><í>yy<í><í»:xi,yy<$,<5>^><«><í><s>y<í>$xSx}x$^x<x3xíxjxjxs>^xsxtx^>^x$x$>^>^x$x£>