Morgunblaðið - 24.12.1947, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 24.12.1947, Qupperneq 13
Miðvikudagur 24. des. 1947, MORGVNBLAÐIÐ :i3 Fögurgjöftil Fríkirkjunnar EINS og Reykvíkingum er kunnugt, hafði Frjálslyndi söfnuðurinn afnot af Fríkirkjunni til guðsþjónustuhalds, meðan hann starfaði hjer. En þá er hann hætti störfum á síðastliðnu ári, samþykkti hann að gefa Fríkirkjusöfn uðinum gjöf til minningar um starf- semi sínu í ikrkjunni. Fyrir nokkur- um dögum var gjöfin afhent af fyr- verandi stjórn og presti safnaðarins sr. Jóni Auðuns. Er gjöfin hinar tvær fögru Ijósastikur, sem myndin sýnir, gerðar til þess að standa á kórgólfi kirkjunnar á þar til gerðum súlum. Auk þess fylgdi peningaupphæð, sem varið verður til kaupa á öðrum kirkjugripum. Þessara góðu gjafa hefir þegar ver- ið minnst við guðsþjónustu í Frí- kirkjusöfnuðinum. En safnaðarstjórn vill hjer með flytja alúðar þakkir sin ar öllum þeim er að gjöf þessari stóðu og gáfu hana af góðum hug. F. h. safnaðarstjórnar, SigurZur Halldársson, formaður, Nikulás FriSriksson, ritari. Jól í sumar og sól Þar fá börnin sex vikna jólafrí Eftir Patricic Ross. JÁ, það eru jól í Ástralíu líka, Ástralíu, eyjunni, sem er „neðan á hnettinum“, eins og við segjum. Þessa dagana er þar hásumar. Það má vera að jólin hjá þeim sjeu lík okkar jólum í aðalatriðum, en ef við værum allt í einu komin þangað, þá fyndum við að raunverulega eru þau allt öðru vísi. Snjór er til dæmis alveg óþekt fyrir- brigði á^ jólunum og almenn- ingur í Ástralíu hefur ekki sjeð snjó nema í kvikmyndum. Og aldrei hefir snjórinn skreytt garðinn hans, eins og svo oft kemur fyrir hjerna. Samt sem áður eru jólin þar eins og hjer, mesta hátíð ársins, og þá eru haldnar guðsþjónust- ur. Ef ekki er hægt að komast í kirkju, þá er hlustað á út- varpið og það gera margir í Ástralíu, því að oft er langt til næstu kirkju. Sjóböð og sólskin. í sveitunum í Ástralíu, hafa unglingar það fyrir venju, að hópast saman á aðfangadags- kvöld og ganga milli bæjanna og syngja jólasálma. En í Syd- ney á þessum tíma árs, mund- um við sjá fólkið vera að und- irbúa sig til þess að fara á ströndina og synda í sjónum, fá sjer sólbað, fara í leiki og hitt og þetta. Ströndin hjá Sid- ney er löng og bogamynduð, en ef þig langar til þess að fá þjer pláss í sólbaði, þá er betra fyrir þig að fara snemma, því að þúsundir Sidneybúa hafa það sama í huga. Ástralíubúar gefa jólagjafir eins og við og vikum saman áð- ur en jólin koma eru búðirnar farnar að auglýsa, stundum jafnvel tíu eða tólf vikum áð- ur en jólin byrja, og allar segja þær eins og hjerna: „gerið jóla- kaupin snemma“ Á aðfangadagskvöld hengja flest börn upp sokkana sína, til þess að jólasveinninn láti eitt- hvað í þá. Leyndardómurinn um ferðir jólasveinsins er því meiri þar, sem börnin vita að hann ferðast um í sleða, sem er dreginn af hreindýrum með bjöllur í hornunum. í Ástralíu eins og annarsstaðar eru jólin álitin hátíð barnanna og þar fá þau sex vikna frí úr skólanum. Þar sem sólin skín daglega % hluta ársins, eru fríin stutt yf- irleitt svo börnin hlakka mikið til jólanna. Vinnandi fólk fær þó aðeins tveggja til þriggja daga frí. Þeir, sem vilja hvíl- ast um jólin, sitja venjulega út í garðinum sínum og hlusta á útvarpið. Kvikmyndahús og matsölustaðir eru lokaðir á jóla daginn, en opnað er aftur á ann an í jólum. Lítið um jólatrje. Á hverju aðfangadagskvöldi er ,,Jólasálmar“, eftir Charles Dickens lesið og leikið í út- varpið. Jólatrje eru ekki algeng í Astralíu eins og þau eru á norðurhveli jarðar, enda vaxa þau ekki neinstaðar nálægt svo erfitt yrði um flutninga. En þó eru, sjerstaklega í sveitum, ýmiss önnur trje brúkuð og þá er gjöfunum raðað í kringum þau og síðan útbýtt eins og í Norðurálfu. En á flestum heim ilum brúka menn plöntur í stað jólatrjáa og eru þær aðallega notaðar til þess að skreyta heimilin. Aðaljólamáltíðin í Ástralíu er annað hvort steiktir kalkún- ar eða endur og jólabúðingur í eftirmat. En þetta er dýr mat- ur og því geta ekki allar fjöl- skyldur veitt sjer hann. Þó er á flestum heimilum smápen- ingur falinn í jólabúðingnum og þykir það mikil lukka hjá þeim sem fær hann. ★ I Ástralíu lifa endurminning- arnar um köld jól, snjó og kertaljós, aðeins í huga þeirra, sem hafa ferðast og sjeð það. Og ef maður væri þar núna, á baðströndinni og hitti ókunnan mann með angurværan hugs- andi svip, þrátt fyrir hitann, þá myndi ykkur ef til vill sldljast að hann er að hugsa um jól í Norðurálfu, eins og við þekkj- um þau. Utvarpið um jólin Miðvikudagur 24. desember. (Aðfangadagur). 15.30—16.30 Miðdegisútvarp. 16.30 Frjetir. 18.00 Aftansöngur í Dómkirkj unni (sjera Jón Auðuns dóm kirkjuprestur). 19.15 Jólakveðjur til skipa á hafi úti. 19.45 Tónleikar: Þættir úr óra- toríinu ,,Messías“ eftir Hánd el plötur). 20.10 Orgelleikur og einsöngut í Dómkirkjunni (Páll ísólfs- son og Guðmunda Elías- dóttir). 20.30 Ávarp (sjera Friðrik Hall grímsson). 20.45 Orgelleikur og einsöngur í Dómkirkjunni: (Páll ísólfs son og Guðmunda Elíasdótt- h). — 21.20 Jólalög (plötur). Fimmtudagur 25. desember. (Jóladagur). 11.00 Messa í Dómkirkjunni herra Sigurgeir biskup Sig- urðsson). 14.00 Dönsk messa í Dómkirkj unni (sjera Bjarni Jónsson vígslubiskup). 15.15— 17.30 Miðdegistónleikar: Messa í h-moll eftir Bach. 18.15 Barnatími í útvarpssal (Þorst. Ö. Stephensen, Al- freð Andrjesson, Barnakór Jóns Isleifssonar, útvarps- hljómsveitin o. fl.) 19.30 Tónleikar: Jólatónverk eftir Corelli og Hándel. 20.00 Frjettir. 20.25 Jólatónleikar útvarps- ins, I.: a) Einsöngur (Elsa Sigfúss). b) Einleikur á píanó (Rögnvaldur Sigurjónsson). 21.10 Jólavaka: Upplestur og tónleikar. 22.00 Jólalög. Föstudagur 26. desember. (Annar jóladagur). 11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera Bjarni Jónsson, vígslu biskup). 12.15— 13.15 Hádegisútvarp. 15.15— 16.25 Miðdegistónleikar: Symfónía í d-moll nr. 9 eft- ir Beethoven. 18.15 Barnatími í útvarpssal (Þorst. Ö Stephensen, Alfreð Andrjesson, Barnakór Jóns ísleifssonar, útvarpshljóm- sveitin o. fl.) 19.30 Tónleikar Conserto grosso eftir Hándel. 20.25 Kórsöngur: Þættir úr há- tíðamessu eftir Sigurð Þórð-| arson (Karlakór Reykjavík- ur syngur; Sig. Þórðarson stjórnar. — Plötur). 20.45 Jólagestir í útvarpssal (Guðmundur Thoroddsen prófessor, Eggert Stefánsson söngvari, Guðrún Jónsddótt- ir frá Prestbakka, Pálmi Hannesson rektor o. fl.) 22.05 Danslög. Laugardagur 27. descmber. 12.10—13.15 Hádegisútvarp. lá.30—16.30 Miðdegisútvarp. 18.25 Veðurfregnir. 19.25 Tónleikar: Samsöngur. 20.00 Frjettir. 20.30 Leikrit: „Galdra-Loftur“ eftir Jóhann Sigurjónsson. Leikendur: Gestur Pálsson, Ingibjörg Steinsdóttir, Bryn- I dís Pjetursdóttir, Þorsteinn, Ö. Stephensen, Lárus Páls- j soq, Róbert Arnfinnsson,, Soffía Guðlaugsdóttir, Har-; aldur Björnsson, Ingibjörg j Stephensen, Friðfinnur Guð-, jónsson, Valdemar Helgason, j Lárus Ingólfsson, Haukur j Óskarsson og Fanney Vil-, helmsdóttir. — Leikstjóri: Haraldur Björnsson. 22.05 Danslög. (jleciilecý jót! Ásgeir G. Gunnlaugsson. Austurstræti 1. X<^$"$^$x$^$x$>$x$x$®xSx$k$x$x$>®x^®x$®x$x$x$®k$x$®x$x$>®x$x$x$>^<$®>^<$®x$>^®>X (jíe&ilecf jól! Matardeildin, Hafnarstrœti 5. Matarbúðin, Laugaveg 42. Kjötbúð Sólvalla, Sólvallagötu 9. Kjötbúðin, Skólavörðustíg 22. K$$X$$$x$®>®>$®>®x$x$>®x$<$®<$®X$®xSx$x$®x®x®x$®x$®®®®>®®®®®®>®®®®®®á CjtekLq jóll Verslunin Selfoss. | $$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$<: (jleÍifecf jóf! Olíuverslun tslands h.f. 4$$$$®X$$$$$$®X$$®®X$®®X$$®®"$®®X$®X$®®®®®$®$$®$®®®®®®I$ (jfeÍifecf jóf! <$> Sœlgœtis- og efnagerSin Freyja h.f. (jfefifecf jóf! B. S. R. (jfefifecf jót! Sverrir Bernhöft h.f. J^$X$X$X$>$K$X$>$X$>$X$X$><$>$X$>$X$X$>$>$X$>$X$X$X$X$>®>$>$X$X$>$X$X$"$K$>$X$$X$X$K$H®>$X$X$><ý| Cjfetitecf jóf! gott og farsælt nýjár! Hótel Þröstur. CjLkLy jól! gott og farsælt komandi ár. Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu. Sjerstaklega þökkum við viðskiftavinum okkar hvað þeir með ljúfmennsku, hafa gert sjer að góðu okkar erfiðu aðstöðu, sem við vonum að geta bætt bráðlega. Sanngirni á báðar hliðar er góður grundvöllur. Verslunin Langholtsveg 174.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.