Morgunblaðið - 04.01.1948, Page 1

Morgunblaðið - 04.01.1948, Page 1
35. árgangur 2. tbl. — Sunnudagur 4. janúar 1948. Isafoldarprentsmiðja h.f. Yfirdrotnunarstefna Rússa ógnar Evrópu Hvað eftir annað Ies maður fregnir af því, að Gyðingar reyni að komast á laun til Palestínu. IJinu er sagt sjaldan frá, að þeir komi sem leyfilegir innflytjendur. Myndin hjer að ofan sýnir einn slíkan innflytjendahóp vera að stíga á land í Haifa. Áframhaldandi morð og breimur í Palestínu Enn barisl í Jerúsalem JERÚSALEM í gærkvöldi. Einkaskeyti til MBL. frá Reuter. FJÖLDI MANNS var drepinn í Palestínu í gær, og virðist síst vera að draga úr átökunum þar í landi. 1 Jerúsalem börðust Gyð- ingar og Arabar sem ákafast, og í Gyðingahverfi borgarinnar var kveikt í nokkrum húsum. Þá var og gerð árás á breskan her- flokk, og varð að senda liðsauka á vettvang. Árás á þorp í Norður Palestínu gerðu vopnaðir Gyðingar árás á Araba þorp, með þeim árangri, að einn Arabi var drepinn, en arabisk kona særð. Að árásinni lokinni, fannst lík af ungum Gyðingi skammt frá þorpinu. í Haifa var ráðist á Gyðinga- stúlku og hún skotin til bana. Hefndarvíg Haganah, hinn öflugi leyni- fjelagsskapur Gyðinga, gaf í dag út tilkynningu, þar sem sagt er meðal annars, að fjórir Arabar hafi verið drepnir í nótt. Mun þetta hafa verið í hefnd- arskyni fyrir dráp nokkurra Gyðinga. Ný einkennisföt Breskir hermenn í Palestínu hafa nú fengið nýja, bláa ein- kennisbúninga, en hin brúnu einkennisklæði þeirra þóttu of lík klæðnaði sumra ofbeldis- manna. Smjörskammtur Dana minnkaður Kaupmannahöfn í gær. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. HERT hefur verið á skömmtun í Danmörku, vegna versnandi viðskiptaástands og er nú árs- f jórðungsskammturinn á smjöri lækkaður frá 1750 grömmum niður í 750 grömm. Magarín- skammturinn hefur þó verið hækkaður úr 1500 grömmum upp í 2500. Er smjörskammtur • inn minnkaður til þess að auka útflutnir.g og mun aukningin nema allt að 70 milljónum kr. í erlendum gjaldeyri á ári. Sígar- ettuskammturinn verður þó auk inn og súkkulaði fá þeir, sem ekki reykja. Matarskammturinn verður aukinn handa þeim, sem vinna erfiðsvinnu, til þess að auka vinnuafl. Michael ————— Attlee lýsir ófrelsinu í London í gærkvöldi. SÚ fregn barst hingað frá Bukarest í kvöld, að Michael konungur væri lagður af stað frá Rúmeníu. Ekki er enn með vissu vitað, hvert konungur ætlar, en miklar líkur eru þó taldar fyrir því, að Svissland sje ákvörðunarstaður hans. í fylgd með konungi er Helen móðir hans, auk ýmissa hátt- setfra herforingja. Michael ferðast í einkalest. — Reuter. Austur Evrópu LONDON i gærkvöldi. Einkaskeyti til MBL. frá Reuter. í ÚTVARSRÆÐU, sem Clement Attlee, forsætisráðherra Breta, flutti hjer í kvöld, sakaði hann Rússa um að halda uppi þeirri stefnu í utanríkismálum, sem kynni að verða undanfari nýrrar efnahags- og stjórnarfarslegrar yfirdrottnunar í Evrópu. Það er kaldhæoni örlaganna, hjelt Attlee áfram, að einveldisstjórnir, sem sýna meiri harðneskju, en konungar og keisarar, við að drepa niður alla andstöðu, skuli fela sig undir lýðræðisnafninu. Rúmiega 5000 n! síidar Lcppríkin Breski forsætisráðherrann var jafn berorður um „lýðræðið“ í rússnesku leppríkjunum. í Aust ur Evrópu, sagði hann, hafa kommúnistaflokkarnir sagt skil ið við einstaklingsfrelsishugsjón ina og pólitískt lýðræði. Rangoon í gærkveldi. BURMA lýsti yfir algeru sjálfstæði sínu klukkan 21.50 í kvöld eftir breskum tíma. Hef- ur Burma þar með sagt sig úr breska heimsveldinu, en það er fyrsta landið, sem það gerir síð an 1776. Thakin Nu forsætisráðherra, mun mynda nýja stjórn þeffar ■'ftir að Bretar eru með öllu farnir frá Burma, en þangað streymir nú fjöldi tiginna gesta til að vera viðstaddir hátíða- höldin, sem hefjast eiga á morg- un. Rangoon, sem varð fyrir tals- 'ærðum skemmdum í styrjöld- inni, er nú öll fánum skreytt. —Reuter. NOKKURT fjör færðist yfir síldveiðarnar í gær. Lítil veiði var í Hvalfirði, en hjer á Rauð arárvíkinni og á sundinu milli Laugarness og Viðeyjar voru í gær að veiðum milli 20 og 30 skip. Afli var mjög sæmilegur hjá sumum þessara skipa, en svo minni hjá öðrum. í gær bárust hingað til Reykjavíkur um 5.200 mál síld ar, með níu skipum. Hæst þeirra voru með 800 mál, en það voru Ásgeir og Anglía og Ingólfur Arnarson, Edda var með 750 mál, Grindvíkingur 850, Stjarnan með 700, Þor- steinn 650, Bjarmi 150 og Kári Sölmundarson' með 400 mál. Verið er að lesta þýska tog- ara með síld svo og flutninga- skipin Hel og Snæfell, sem flytja síld norður. Yfirþjóðin Um Rússland sagði Attlee meðal annars eftirfarandi, til viðbótar því, sem skýrt er frá hjer að ofan: Saga Sovjetríkjanna nægir til að vara okkur við því, að án pólitísks frelsis- getur sameign- arstefnan fljótlega farið út í öfgar og leitt til nýrra tegunda kúgunar og órjettlætis. Um hinn rússneska kommún- isma hafði forsætisráðherrann það að segja, að hann virtist vera að verða að nýrri heims- veldishugsjón, enda stafaði öðr um Evrópuþjóðum mikil hætta af þessu. I Hlutverk Breta í lok ræðu sinnar ljet Attlee þá skoðun í ljós, að það væri hlutverk bresku þjóðarinnar að sigrast á þessum öfgastefnum og ganga á undan um myndun þjóðskipulags, þar .sem allir nytu fyllsta stjórnmálalegs og efnahagslegs sjálfstæðis. Bidaul! þakkar Bandaríkjalánið GEORGE BIDAULT utan- ríkismálaráðherra Fjrakklands sagði í dag um bráðabirgðaað- stoð Bandaríkjanna, að án hjálp ar þessarar myndi Frakkland ekki hafa getað framleitt nóg til að sjá sjálfu sjer farborða. Kvað hann hjálp þessa ekki ein ungis hafa bjargað Frakklandi heldur einnig öðrum löndum í Evrópu. Það fje sem Frakkar hafa fengið af láninu hefur þeg ar bjargað framleiðslu okkar. —Reuter. Skoftið úr fallbyssum ú Konitza Skæruliðar enn í hæðunum kringum borgina AÞENA í gærkvöldi. Einkaskeyti til MBL. frá Reuter. TILKYNNT var hjer í Aþenu í kvöld, að skæruliðasveitir hjeldu uppi ákafri skothríð á Konitza, en þeim hefur enn ekki tekist að taka borgina, þrátt fyrir látlausar tilraunir. Hafa skæruliðarnir komið byssum sínum fyrir í hæðunum fyrir norðan og vestan borgina. Hersveitir stjórnarinnar fá stöðugt liðsauka, og gera nú hverja tilraunina á fætur ann- ari til að flæma uppreisnar- menn úr hæðunum. Barist um brú Þá hafa og borist fregnir af því, að skæruliðar vopnaðir þungum vjelbyssum og sprengjuvörpum reyni nú að koma -í veg fyrir það, að stjórn- arhersveitum takist að koma bráðabirgðabrú yfir fljótið Rocs en yfir það þarf að fara til að koma vistum og hergögnum til hersveitanna í Konitza. Hefur skæruliðum tekist þetta til þessa. 35 falla í Kalkútfa Kalkútta í gær. TIL bardaga kom milli lög- reglunnar og hersins hjer í gær, og fjellu 35 menn. Ekki er kunn ugt um ástæðuna fyrir þessum átökum, nema að múgur mikill afnaðist á aðalgötunum og varð lögreglan að skjóta á hópinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.