Morgunblaðið - 04.01.1948, Síða 6

Morgunblaðið - 04.01.1948, Síða 6
6 MORGIJTSBLAÐIÐ Sunnudagur 4. jan. 1948 Útff.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjalct kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók. Hin fyrirhugaða síld- arverksmiðja ÞEGAR sjeð var, að all-mikil síldveiði yrði hjer í vetur í nóvember s.l., bar Jóhann Hafstein fram í bæjarstjórninni tillögu þess efnis, að bæjarstjóm beitti sjer fyrir því, að hafist yrði handa, sem fyrst um undirbúning undir það, að bætt yrði aðstaða hjer, til hagnýtingar á síidaraflanum. Síðan var nefnd sett á laggirnar, sem hefur haft þetta má! með höndum, og eru þeir í nefndinni frá bænum, Jóhann Hafstein og Ingvar Vilhjálmsson, frá útgerðarráði Reykja- víkurbæjar. Á fulltrúafundi Landssambands íslenskra útvegsmanna, var málið rætt, og þar kosin þriggja manna nefnd, til þess að vinna að undirbúningi sama máls. Nefndir þessar hafa rætt m.a. við hafnarstjórn um málið um staðsetningu á væntanlegri síldarverksmiðju, sem hjer yrði reist o. fl. Nefnd sú, sem setið hefur á rökstólum síðan í nóvember, mun innan skamms skila áliti, til þess að málið komist sem fyrst í hendur þeirra manna, sem eiga að hafa umsjón með, og ábyrgð á, væntanlegum byggingaframkvæmdum. Hefur komið til orða, að verksmiðja sú, sem reist verður, yrði sameign bæjarins, einstakra útgerðarmanna og ríkisins. — Annað hefur og verið nefnt, að þessar framkvæmdir hjer yrðu í höndum stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins, og yrði verksmiðjan hjer rekin sameiginlega með öðrum ríkisverk- smiðjum. Ef einstakir útvegsmenn gerðust hluthafar í hinu væntan- lega fyrirtæki, þá hefur verið talað um, að menn legðu fram ákveðna upphæð fyrir hvern bát, svo sem 15,000 krónur. Með slíkri þátttöku frá eigendum 100 báta, kæmi þar fram- lag, sem næmi kr. 1,500,000. En yrði hjer um nýjan fjelagsskap að ræða í einhverju formi, þá yrði hann að tilnefna menn, til þess að standa fyrir hinum væntanlegu byggingaframkvæmdum. En þegar menn hefðu komið sjer saman um, hvaða aðilar ættu að standa að þessari verksmiðju, þá eru mörg úríausnarefni, sem leysa þarf á skömmum tíma, áður en hægt er að byrja á verkinu. Þ.á.m. ákveða hvar verksmiðjan á að standa. — Hefur verið talað um Effersey í því sambandi, eða þá að verksmiðjan yrði reist einhversstaðar inni við Sund. Þá kem- ur til greina hvernig hægt er að hafa not af Reykjavíkur- höfn fyrir þann bátaflota, sem síldveiðarnar stunda. Manni sýnist, að naumast verði hægt að koma verksmiðju slíkri fyrir á öðrum stað betur en í Effersey. Og enn verður að gera sjer grein fyrir því, og það sem fyrst, hve hyggilegt er, að hafa slíka verksmiðju stóra, og afkastamikla. Hvernig verði hægt að haga byggingafram- kvæmdum þannig, að menn geti gert sjer vonir um, að vinnsla verði hafin í verksmiðjunni á næstu síldarvertíð hjer sunnanlands, sem menn gera sjer vonir um, að geti hafist síðustu mánuði ársins, ef dæma má eftir reynslunni síðustu tvö árin. Gera má ráð fyrir, að útvegun vjela verði all-erfið, þegar svo stuttur tími er til stefnu. En bót er það í máli, að reynsla er fyrir því, að mikinn hluta vjelanna væri hægt að smíða hjer innanlands. Annað mál er svo það, að útgerðarmaður einn hjer á landi mun eiga síldarvinnsluvjelar fyrir verksmiðju, sem get- ur brætt úr 5,000 málum á sólarhring. Og líklegt er að þær vjelar geti komið að notum við síldarvinnslu hjer syðra. Þá hefur það komið til tals, að setja síldarvinnsluvjelar í skip, svo hægt verði að flytja þær landsfjórðunganna á milli, þangað, sem vjelanna er þörf á hverjum tíma. En sjá yrði fyrir útbúnaði til geymslu, bæði á síldinni óunninni og eins af afurðunum, i landi, þar sem búist er við, ao slikt síldar- bræðsluskip verð' starfrækt. En það geíur auga leið, að mikils er um vert, að hraða undirbúning ssa verks, sem mest, án þess þó að, að nokkru verði hrapað að lítt athuguðu máli. verji ÚR DAGLEGA LÍFINU Þrengslin í sarakomuhúsunum. ÞRENGSLIN í samkomuhús um bæjarins, einkum á dans- leikjum er óhæfa, sem kippa verður í lag hið fyrsta og áð- ur en af hlýst slys. Það þarf ekki mikið út af að bera í yfirfullu samkomuhúsi. þar sem útgöngudyr eru fáar, og stundum aðeins einar og þröng ar, til þess að ofsahræðsla grípi um sig meðal mannfjöldans. Því miður eru mörg dæmi til þess erlendis. Og það er ekki einungis slysahættan, sem þarf að hugsa um. heldur og óþægindin, sem af því stafa fyrir menn er kaupa sig inn á skemtanir, þar sem ekki er hægt að þver- fóta. • Ung stúlka segir frá. UNG stúlka segir í brjefi frá reynslu sinni af dansleik hjer í bænum núna um jólin. Hún segir m. a.: ,,Jeg fór á ball hjer í bæn- um _á annan í jólum. og það var ljóta „geimið“. Næstum allir voru blindfullir og hegð- unin auðvitað eftir því. Svo var bað margt um manninn, að jeg er viss um að ekki er þrengra í síldartunnu. Dans- inn varð því ekki annað en mismunandi krafmikil olnboga skot og troðningur á tám ná- ungans. Eins og nærri má geta, voru ekki til borð handa öll- um þessum fjölda, ekki einu sinni sæti. Aðgöngumiðinn að dansleik þessum kostaði kr. 25.00“. • Verra en hjá sauðkindinni. BRJEFRITARI lýkur tilskrif sínu með eftirfarandi samlík- ingu: „Mig minnir, að í fjárhús- um sje aldrei haft þrengra en svo að allar kindurnar komist að garðanum í einu, og þýkir ekki og hefir sennilega aldrei þótt nema sjálfsagt. En hjer í höfuðborg Islands á 20. öldinni er fólki boðið verri skilyrði á mannamótum, en sauðkind- inni í sínum húsakynnum. Svo læt jeg útrætt um þennan sam jöfnuð, hann skýrir sig sjálf- ur. En jeg vil ekki láta þetta óátalið. þó að búast megi við, að bessu verði lítill gaumur gefinn, ef að vanda lætur“. • Vantar ákvæði. ÞAÐ, SEM vantar í þessum efnum eru ákvæði í lögreglu- samþykt bæjarins, sem mæla svo Þ7rir, að húsnæði, sem not að er til samkomuhalda sje mælt upp og síðan ákveðið eft ir föstum öryggisreglum, hve margir megi vera þar saman- komnir í einu. Slíkar reglur eru víða til er lendis og þykja nauðsynlegar. Er þá venja, að festa upp aug- lýsingu í samkomusölum. þar sem þess er getið, hve marga salurinn rúmi, en lögreglan hefir eftirlit með því við og við að farið sje eftir reglum þessum í einu og öllu. • Rjóminn sem hvarf. HÚSMÆÐUR ÞESSA bæjar urðu ekki lítið hissa í fyrra- dag er alt í einu var farið að úthluta 2 desilítrum af rjóma í mjólkurbúðunum. Það var sæÞpeti, sem fæstar þeirra höfðu sjeð síðan fyrir jól, sem margar hefðu viljað gefa vel fyrir að eiga í og með hátíða- matnum. En það er svo undar- legt, að um stórhátíðar er eins og kýrnar hætti að mjólka, því rjóminn hverfur alveg af mark aðnum. Ljótar hugsanir vakna hjá mörgum, sem ekki fá neinn rjómadropa um, að hann muni hafa seitlað í skál vináttu, kunningsskapar og klíkuskap- ar. Því það er nú svo, að sum heimili virðast altaf komast undir einhvern rjómaleka. Þetta er ekki ásökun, held- ur frásögn af því hvernig marg ir hugsa. Og lái þeim hver sem vill. • ílvaðan kom rjóminn? ÞAÐ ER nú t. d. rjóminn, sem kom í mjólkurbúðirnar að morgni 2. janúar. Það má segja að hann hafi komið eins og fjandinn úr sauðarlegg. Öku- færi hafði hríðversnað á þjóð- vegunum og samgöngubann víða um sveitir er liggja að Reykjavík eftir hríðina um jólin. En hátíðin er ekki fyr um garð gengin, en farið er að skamta rjóma á ný. Það væri betra minna og jafnara. Samvinna björgunarsveita. FRÁSAGNIR dagblaðanna af brunanum í Kirkjustræti daginn fyrir gamlársdag bera með sjer, að slysni henti slökkvilið bæjarins er dælur biluðu og liðið var vatnslaust um tíma. Ástæðan virðist vera sú, að slökkviliðið hefir ekki yfir að ráða nægjanlega góð- um þúsakynnum til að geyma tæki sín. Vjelar slökkviliðsbíl- anna voru kaldar og erfitt að koma þeim í gang. Þarf ekki að efa, að reynt verður að kippa þessu í lag við fyrstu hentugleika. En hitt er ekki eins skiljan- legt hvernig á því stóð að slökkvilið bæjarins fjekk ekki sjer til aðstoðar tæki og menn slökkviliðsins frá Reykjavíkur flugvelli. Að minsta kosti hefði veriji hægt að biðja um aðstoð þess til vara. Þegar slyS ber að höndum, er siálfsagt að allir. sem geta leggi fram aðstoð sína, enda er það líka fúslega veitt í öll- um tilfellum. :j MEDAL ANNARA ORÐA .... . ■ ■■ « I Eftir G. J. A. m m m - —— - - - « .. m.«& Er Palestfnudeilan óleysanleg FALLHLIFAHERMENN svífa til iarðar í Palestínu .... Þús undir Gyðinga reyna að kom- ast á laun til landsins .... Fimmtán hundruð Gyðingar umkringdir í Jerúsalem .... Lögregluþjónar drepnir á götu í Tel Aviv .... Þannig hljóða frjettirnar þessa dagana frá Landinu helga, og við lestur þeirra er engu líkara en ný heimsstyrjöld sje hafinn, svo mikill er ákafinn og grimdin og áróðurinn. Bretar eru þarna milli steins og sleggju. Forystumenn beggja deiluaðila gera kröfu til lands ins heils og óskipts, og hvor- [ ugir sýna þess nokkur merki, að þeir vilji slaka til. • • FRAMTÍÐIN Verður þessi deila í raun og veru nokkurntíma leyst? Ýms- ir eru orðnir þeirrar skoðun- ar að svo sje ekki. Þeir benda á öfgarnar, sem jafnan hafa verið þessu máli samfara. Fyrir deiluaðilum hafa jafnan verið menn, sem með framkomu sinni allri hafa gert friðsamlega lausn máls- ins því nær óhugsanlega. Flest ir eru þetta ævintýramenn, einna áþekkastir skuggalegu mönnunum. sem við lesum um i reyfurunum. e • PASHA Azzan Pasha, aðalritari Ar- ababandalagsins, er hjer gott dæmi. Þessi prúðbúni maður, sem um þessar mundir situr á fundum með mönnum eins og Muftanum yfir .Terúsalem. var urn langt skeið skæruliði, sem barðist gegn Bretum og Frökkum í Norður Afríku, leyndist í eyðimörkunum þar, ferðaðist um á úlfalda og gerði ásamt fjelögum sínum, skyndi árásir á hermennina. sem þá voru höfuðóvinirnir. Þessi ár- in klæddist Pasha Arabaföt- um og gekk berfættur. Vinur hans. Muftinn yfir Jerúsalem, er önnur ævintýra- persóna. Hann hefur hvað eft- ir annað æst til ófriðar við Breta, verið landflótta í fjöl- mörg ár og varð þekktur á stríðsárunum fyrir vináttu við Hitler. Myndirnar af foringj- anum og honum hafa verið birtar í heimsblöðunum og reynst sterkt vopn í höndum Gyðinga. • • GYÐINGAJÍ Leiðtogar Gyðinga eru einn ig hálfgerðar reyfarapersón- ur. Starf þeirra hefur verið þannig, að þeir hafa að mestu orðið að vinna á laun, og marg ir hverjir hafa þeir verið land lausir. Foringi Gyðingaráðsins> Moseh Shertok, sem hjer birt- ist mynd af að þessu sinni, er einn þessara manna. F'rh á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.