Morgunblaðið - 04.01.1948, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.01.1948, Qupperneq 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: REYKJAVIKURBRJEF cr 3 Norðan gola. - — Rigning eða slydda. bls. 7. II' 1 Jólafriesskemmtun í Sjálfstæðishúsinu ti Það var glatt á hjalla í Sjálfstæðishúsinu í fyrraáag, þcgar Landsmálafjelagið Vörður hjelt jólatrjes- skemmtun fyrir börnin. Ljósmyndari Morgunblaðsins, Ólafur K. Magnússon, tók myndina, þegar Jo- hann Svarfdælingur, sem í þetta sldpti Ijek jólasveininn, var nýkominn í heimsókn. iýir seilar ai uppliæð nm 3Z miij. komnir í umferð hjer í bænunr Seðlaskiptisidðvamar verSa opnar í dag FRÁ og MEÐ deginum í dag ganga allir hinir gömlu seðlar úr gildi og eru þar með taldir fimm og tíu króna seðlar, sem í gildi voru þrjá fyrstu daga seðlainnköllunarinnar. í dag, sunnudag, verða allar peningaskiptistöðvar í Reykjavík opnar frá kl. 10 ár- degis til kl. 4 síðdegis. Frá því að seðlainnköllunin hófst 31. des., hafa nýir seðlar verið settir í umferð hjer í Reykjavík að upphæð því sem næst 32 milljónir króna. ------------------- 108 miljónir í umferl * SAMKVÆMT upplýsingum frá Landsbanka Islands voru seðlar í umferð þann 30. des. fyrir 108 milj. króra. Um ára- mótin 1946 voru seðlar í um- ferð að upphæð 166,6 milj. kr. Þann 1. des. s. 1. ram upphæð seðla í umferð 153,3 milj. Sfyrlí úihlutað Eil íþróflafjelspnita Á FUNDI bæjarráðs, er hald inn var s. 1. föstudag, var rætt um úthlutun á styrk til íþrótta- fjelaganna í bænum, samkvæmt fjárhagsáætlun 1947. Til fjelag- anna veitir bærinn 30 þús. kr. samtals. íþróttabandslag ReyTkjavíkur hafði gert tillögur um hvernig fjárveitingunni skyldi skipt milli hinna 10 íþróttafjelaga, sem styrk fá. Á tjllögur Í.B.R. fjellst bæjarráð, en samkvæmt þeim ber Glímufjelaginu Ár- mann, íþróttafjelagi Reykjavík ur og Knattspyrnufjelagi Reykjavíkur kr. 4,800 hverju um sig. Þrjú þús. kr. styrk feneu: knattspyrnufjelögin Val ur, Fram og Víkingur og Sund- fjelagið Ægir. Tennis- og Badmintonfjel. fjekk 1500 kr. styrk, Ungmennafjel. Reykja- víkur 1350 kr. og íþróttafjelag kvenna 750 kr. flugfjelagiðæflarað faka upp veitinga- sölu SVO sem kunnugt er hefur Flugfjelag íslands selt gos- drykki og allskonar sælgæti í farþegaafgreiðslu fjelagsins á Reykjavíkurflugvelli. Fjelagið hefir lengi haft hug á að taka upp veitingasölu þar, og í því -skyni sótt um veitingaleyfi til bæjaryfirvaldanna. Tók bæjar ráð svo þetta mál fyrir á fundi sínum s. I. föstudag og var sam þykkt að mæla með umsókn Flugfjelagsins. Fyrsti dagur. Þann 31. dps. s.l. er seðla- innköllunin hófst, kom mikill fjöldi fólks á skiftistöðvarnar hjer í bænum. Þann dag voru afgreiddar hjer í bænum 6652 innlausnarbeiðnir, er voru að upphæð samtals tólf miljónir á átta hundruð þúsund. Þpnn dag voru á Akureyri afgreiddar 1715 innlausnar- beiðnir að upphæð 1.890 milj. kr. — Á Selfossi voru afgreidd ar 222 beiðnir að upphæð 390 þúsund krónur og á Eskifirði voru innleystir seðlar fyrir 60 þúsund krónur. Lítið að gera. Engin seðlaskifti fór fram á nýársdag. En að morgni þess 2. jan. hófust skiftin á ný. Þann dag var ekki mikið að gera í seðlaskiftistöðvunum. Voru þá afgreiddar hjer í Reykjavík 5035 innlausnarbeiðnir að upp hæð 10 milj. 550tþúsund krón- ur. í allan gærdag var lítil ös í öllum seðlaskiftistöðvunum, þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir Landsbankans á allan almenn- ing að koma með seðla sína til skiftanna meðan hægt er að beina öllum starfskröftum bankamanna óskiftum að hinu mikla starfi, sem innköllun seðl anna hefir í för með sjer. í gær voru afgreiddar hjer í hinum ýmsu skiptistöðvum í bænum 4281 innlausnarbeiðnir og voru þær samtals að upp- hæð átta miljónir 624 þúsund 570 krónur. í dag. I dag klukkan 4 verður seðlaskiftistöðvunum í barna- skólum bæjarins lokað. Lands- bankinn hefir beðið Morgunbl. að skora á allan almenning, verslanir, fyrirtæki og aðrar stofnanir að koma með hina ó- gildu seðla sína til skifta í dag. A mánudaginn taka allar deildir banka bæjarins íil starfa á ný á venjulegan hátt, en þær hafa undanfarna daga starfa eingöngu við seðlainn- köllunina. Verður þá aðeins takmarkaður fjöldi fólks, sem annast nauðsynlega afgreiðslu í sambandi við peningaskiftin. Er því heppilegast fyrir alla aðila. sem ekki hafa þegar feng ið seðlum sínum skift. að gera það í dag. Enda er engin ástæða til fyrir fólk að draga peninga- skiftin á langinn, því gömht seðlarnir cru orðnir ógildir til allra viðskifta, nema til að skifta á þeim nýjum seðlum fyrir þá sem ennþá hafa eigi notað innlausnarrjett sinn. Karlsefni kom í gær FYRSTI nýsköpunartogarinn, sem kemur hingað til lands á þessu nýbyrjaða ári, og jafn- framt hinn nítjándi í röðinni, er togarinn Karlsefni frá Reykjavík. Hann kom hingað til Reykjavíkur í gærdag. Karlsefni fór frá Englandi á gamlársdag. Ferðin hefur því gengið vel heim, þótt veður hafi ekki verið sem best. Tog- arinn er smíðaður í skipasmíða- stöð A. Hall í Aberdeen. Eig- andi er h.f. Karlsefni, sem er fyrirtæki Geirs Thorsteinsson- ar útgerðarmanns. Skipstjóri er Halldór Ingi- marsson, fyrsti stýrimaður Magnús Þórðarson og fyrsti vjelstjóri er Magnús Jónsson. Þeir voru allir á gamla Karls- efni, er seldur var til Færeyja. Viðskipfaviðhorf milli Dana og Brela balna K.höfn í gær. Einkaskevti til Mbl. VIÐSKIPTAUMRÆÐUR milli Dana og Breta hefjast aftur á fimmtudaginn. Hafa umræður þessar mjög mikilsverð áhrif á fjárhagsáætlanir dönsku stjórn- arinnar. Verslunarviðræðum við Rúss land, Sv.issland, Belgíu og Sví- þjóð verður frestað þangað til þessum umræðum er lokið. Munu Danir fara fram á hærra verð fyrir srnjör og svínaflesk en við síðustu samninga. Ekki eru þó kröfur þessar ófrávíkj- anlegar ef Bretar fallast á að lækka verð á kolum til Dan- merkur. Vill danska stjórnin heldur lágt innflutningsverð en hátt útflutningsverð. Ensk dollara- hjálp fyrir kaupum á hrávöv- um er þó ófrávíkjanleg Icrafa. Útlit fyrir að samningarnir ná- ist er mun betra ení septcmber síðastliðnum. Húsaleiguvísilalan 146 HÚSALEIGUVÍSITALA fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa ársf hefur verið ákveðin 146 stig. Reyndar hafði vísitalan verið ákveðin áður en lögin um dýr- tíðarráðstafanir komu til fram- kvæmda og var þá reiknáð með 149 stigum. En er dýrtíðarráð- stafanirnar komu til framkv, nú um áramótin, lækkaði þessi vísitala um þrjú stig. Vísitala þriðja ársfjórðungs ársins 1947 var 143 stig. skilar áliti ATVINNUMÁL ANEFND bæj arins, sem skipuð var á fundi bæjarstjórnarinn 4. sept. s. 1. hefur nú skilað mjög ítarlegri skýrslu um starfsemi sína. Það var m. a. hlutverk nefndarinn- ar að kynna sjer horfur í at- vinnumálum bæjarins. I nefndinni áttu sæti Ragnar Lárusson og var hann formað- ur hennar, dr. Björn BiÖT-nsson hagfræðingur, Haraldur Pjeturs son og Zophonias Jónsson. Dr. Björn annaðist framkvæmdir og skýrslugerð fyrir nefndina. Húsnæði fiskmið- stöðvarinnar fullgerl HÚSNÆÐI það er Reykja- víkurbær fjekk til umráða I hinu mikla húsi Fiskiðjuvers ríkisins á Grandagarði, er nú fullgert. Þarna ætlar Reykjavikurbær að reka fyrsta flokks fisksölu miðstöð fyrir Revkjavíkurbæ, og hefur bærinn látið innrjetta húsnæðið. Á fundi bæjarráðs er haldinn var s. 1. föstudag var borgar- stjóra falið, að semja við ráða- menn Fiskiðjuversins um leigu á húsnæðinu. Sjálfkveikja í feiti- menguðum Ivisti Á NÍUNDA tímanum í gær- kvöldi var slökkviliðið hvatt að Nýja Bíó. Lagði mikla reykjarsvælu út úr geymslu- herbergi í kjallara hússins. Þegar að var komið, reyndist vera kviknað í tvisthrúgu. sem lögð hafði verið á blikklok, sem í var feiti og olíuleifar. Eldurinn varð strax slöktur, og komst engin reykjaríykt í sýn- ingarsalinn, en þar stóð yfir sýning. Er líklegt að þarna hafi ver- ið um sjálfkveikju að ræða, en ekki var búið að rannsaka það nánar. Eins og kunnugt er, get ur myndast sjálfkveikja í feiti menguðum tuskum og tvist svo og í máninga- og fernis- klútum. Það er því full ástæða til bess að vara fólk, og ekki síst iðnaðarmenn, við því að geyma slíkt öðruvísi en í lok- uðu blikkíláti þar sem loft kemst ekki að hinu feitimeng- aða efni. 17,000 litir New York. — Bandarískur lækn- ir hefur nýlega frundið, að manns augað getur skynjað meir en 17, 000 mismunandi liti,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.