Morgunblaðið - 18.01.1948, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. janúar 19-I-5
í 2
Útflutningur til meginlundsins
hefir stórlegu uukist
Staðreyndirnar hnekkja
þvaðri kommúnista
fylgja hinni ævafornu venju lýð-
EF MARKA ætti skvaldur komm
únista um afurðasöluna, skyldu
rnenn halda, að núverandi ríkis-
etjórn hafi við lítið annað feng-
ist en að eyða mörkuðum á meg-
inlandi Evrópu, sém aflað hafi
verið fyrir forgöngu kommúnista
á meðan þeir voru í ríkisstjórn.
En í stað hinna eyddu markaða
hafi núverandi stjórn keppst við
að beina öllum viðskiptum okk-
ar til Bretlands og Bandaríkj-
anna.
Hagskýrslur hnekkja
icommúnistarógi.
Ennþá liggja ekki fyrir fúlln-
aðarskýrslur um afurðasölu okk-
ar á s.l. ári, en á gamlársdag birt-
•ist hjer í blaðinu fróðleg grein
um viðskiptin við útlönd árið
1947 eftir Helga Bergsson, skrif-
etof ustjóra Verslunarráðs íslands.
í þessari skilmerkiiegu grein
birtir Helgi meðal annars löflu
um útflutning okkar 11 fyrstu
mánuði beggja áranna 1947 og
1946.
í töflu þessari má sjá útflutn-
ing okkar til einstakra landa á
hinu sama tímabili bæði árin. —
Þær tölur, sem þar eru taldar,
segja töluvert aðra sögu en mál-
rófsmenn kommúnista vilja vera
láta.
' Upp á síðkastið hafa rógtung
urnar einkum haldið því fram, að
ríkisstjórnin vilji engin, eða sem
allra minnst, skipti hafa við
Frakkland, Ítalíu og Tjekkósló-
yakíu. Skýrsla Helga Bergssonar
sýnir hinsvegar, að skiptin við öll
þessi lönd hafa mjög aukist á ár-
inu 1947 frá því, sem áður var.
Mikil aukning á útflutningi
til Frakklands.
Um Frakkland segir þannig, að
11 fyrstu mánuði ársins 1946 var
flutt þangað fyrir sem næst
8.750.000 kr. en á sama tíma ári<5
1947 fyrir 12.215.000 kr. Útflutn-
ingurinn frá íslandi til Frakk-
lands á árinu 1947 er því hjer-
umbil 3 'ú miljón króna meiri en
hann var á sama tíma árið 1946.
Ekki benda þessar tölur til þess
að núverandi ríkisstjórn vilji eng
ar vörur selja til Frakklands. —
Harla ólíklegt er, að svo mikil
aukning útflutningsins hafi getað
orðið, ef það væri satt, að stjórn-
in hefði hvað eftir annað neitað
, að selja vörur til Frakklands með
hagkvæmu verði. Er og sannast
eagt, að sú frásögn kommúnista
er uppspuni frá rótum, sem þeim
aldrei hefur tekist að færa nein
rök fyrir. Rakaleysi þeirra í peim
efnum er og mjög að vonum, því
að ef reynt væri að færa einhver
fram, væri þau jafn ósönn og full
yrðingin sjálf.
Ítalíu-útflutning urinn
tfjórfaldaður.
Enn þá lakari verður hlutur
fcommúnista þó, ef athuguð eru
yiðskiptin við Ítalíu. Á fyrstu 11
máuðum 1946 voru þangað flutt-
ar vöþur frá íslandi að andvirði
Kem næst 5.950.000 kr'. Á sama
iímabili árið eftir, þ. e. 1947, nam
útflutningurinn rúmlega 20.800.-
000 kr.
Útflutningurinn tii Ítalíu verð-
ur þannig seinna árið 15 miljón-
um króna hærri en árið áður, þeg
ar Áki Jakobsson taldi sig eiga að
sjá um sölu íslenskra sjávaraf-
urða, þó að ráð þess óhappa-
manns yfir utanríkismálum lands
jns væri sem betur fer minni en
flokksbræður hans vildu vera
láta.
6t ilneyddir segja þeir
aldrei satt.
Er það vissulega furðulegt, að
þeg- • tölurnar tala slíku máli,
skuli kommúnistar æ ofan í æ
hamra á því blygðunarlaust, að
núverandi ríkisstjórn hafi spilt
skiftunum við Ítalíu. Siíkt kémur
þó engum á óvart, sem þekkir til
vi-anubragða kommúnista. Þeir
skrumarans að endurtaka si og æ
sömu ósannindin í þeirri von og
vissu, að altaf verði þó einhverjir
til að trúa því, að ómögulegt sje,
að svona oft sje frá skýrt, ef alt
sje ósatt frá rótum.
Þessi aðferð getur blessast um
stund, en heldur ekki lengur. —
Áður en lýkur hlýtur hún að snú-
ast gegn þeim, sem hana viðhefur
að staðaldri. Menn átta sig á því,
að slíkum er aldrei trúandi með
þeirri afleiðingu, að þó að hann
einhverntíma kynni að segja sátt,
yrði því heldur ekki trúað.
Áki Jakobsson og sálufjelagar
hans þurfa þó ekki að óttast þá
sorglegu afleiðingu, því seint mun
að því koma, að þeir af ráðnum
hug segi satt frá nokkrum hlut.
Vilja heldur ilt en gott.
Úm frásagnir þeirra af Ítalíu-
viðskiptunum kynni þó að mega
leita nokkurrar afsökunar í því,
að ríkisstjórnin hefur heldur kos-
ið að fá vörurnar seldar í frjáls-
um pundum en lítilsverðum lír-
um. Fjármálavisku kommúnista
væri rjett lýst með því, að þeir
kjósi lírurnar frekar en pundin.
Hvað sem um það er, fær þó
engum dulist, að það eru fullkom-
in ósannindi að núverandi ríkis-
stjórn standi á móti skiptum við
Ítalíu, þar sem þau hafa einmitt
fjórfaljiast á þessu eina ári.
Einar tárast
að ástæðulausu
Svipaða sögu er að segja um
útflutninginn til Tjekkóslóvakíu.
Nærri liggur, að Einar Olgeirsson
tárist í hvert sinn sem hann minn
ist á það í ræðu eða riti, að nú-
verandi ríkisstjúrn sje að eyði-
leggja markaðsmöguleikana í því
landi.
Staðreyndirnar eru þar þó L
alt annan veg en krókodílstár út-
sendarans frá Moskva gefa til
kynna. Fyrstu 11 mánuðina 1946
voru til Tjekkóslóvakíu fluttar út
vörur fyrir sem næst 8.250.000
kr. Sama tíma árið eftir, 1947,
nam þessi útflutningur rúmlega
14.150.000 kr. Á þessu ársbili hef-
ur útflutningurinn til Tjekkósló-
vakíu frá íslandi því aukist um
nærri 6 milljónir króna, eða tæp-
lega tvöfaldast frá því, sem var
á árinu áður.
Sjerstök rækt lögð við
Tjekka-viðskifti.
Með því er sagan þó engan veg
inn sögð til fulls, því að eins og
áður hefur verið frá skýrt hjer í
blaðinu, hefur núverandi i-íkis-
stjórn einmitt gert ítarlegar ráð-
stafanir til að auka þessi við-
skipti í framtíðinni.
Nú er í fyrsta skipti verið að
semja, eftir rækilega rannsókn,
heildaráætlun um hve mikið við
getum keypt frá Tjekkóslóvakíu
af okkur nauðsynlegum vörum.
Ef þeirri • rannsókn lyktar með
þeim árangri, sem vonir standa
til, eru horfur á því, að þessi við-
skipti geti mjög verulega aukist
frá því, sem verið hefur, eða a.
m. k. þurfi ekki að standa á okk-
ur um aúkningu þeirra.
Minkandi útflutningur
til Bretlands og Bandaríkjanna.
Ef aftur á móti er litið á útflutn
inginn til Bretlands á þcssu sama
tímabili bæði árin, sjest að 1946
var hann 103.350.000 kr. en seinna
árið 1947 ekki nema rúmlega
89.500.000 kr. Þ. e. a. s. er 14 milj-
ónum minni seinna árið en það
fyrra.
Munurinn verður þó ennþá
meiri, þegar Bandaríkin eru at-
huguð, því að á þessu tímabili
var 1946 flutt út til Bandaríkj-
anna fyrir liðlega 32.650.000 kr.,
en árið eftir, 1947, aðeins fyrir
tæpar 15.000.000 kr. Þar minkar
útflutningurinn því um meira en
helming, eða rösklega 17 miljónir.
Meiri samdráttur
en góðu hófi gegndi?
Af þessu sjest hversu fjarri
sanni það er, að núverandi ríkis-.
stjórn hafi ekki viljað skipta við
nein lönd önnur en Bretland og
Bandaríkin. Útflutningurinn til
þeirra beggja minkar stórlega á
valdatíma hennar, en eykst að
sama skapi til þeirra lánda, sem
kommúnistar segja, að hún vilji
alls ekki skipta við.
Játað skal, að um það megi
deila, hvort okkur sje hagkvæmt
áð • minka svo skipti okkar við
Bretland og Bandaríkin sem raun
ber vitni um. Kcmur þar margt
til greina og er ekki unt að gera
því nein skil í þessari grein. En
eftir þetta ætti að vera óþarft að
deila um það, hvort núverandi
ríkisstjórn vildi aðeins skipta við
þessi lönd og vinni að því af öll-
um kröftum að eyða eða koma í
veg fyrir eðlileg skipti við aðra.
Láta sjer ekki segjast.
Sagt var, að óþarft ætti að vera
að deila um þetta lengur. Stað-
reyndirnar tala þar sínu ótvíræða
máli. Það skyldi þó enginn halda,
að ekki þurfi hjer eftir sem hing-
að til að deila um þetta. Komm-
únistar láta staðreyndirnar ekk-
ert á sig fá. Menn mega vera þess
vissir, að þeir halda með sömu á-
kefð og áður áfram að endurtaka
ósannindin. Vera kann, að með
því takist £>eim að villa örfáum
sálum sýn 'í bili, en til lengdar
munu þeir það eitt á vinna, að
sannfæra allan landslýð um, að
þeir eru ótrúverðugir menn.
Konur ræia um
læknasborfog
lyfjabúðakyrsföðu
Á FUNDI, sem haldinn var
í Húsmæðrafjelagi Reykjavíkur
12. þ. m. urðu allmiklar um-
r'æður um heilbrigðismál og þá
einkum þá hlið málsins er snýr
að læknunum. Bentu ræðukon-
ur á, að þrátt fyrir mikinn
•læknafjölda í bænum væri oft
erfiðleikum bundið að ná í
lækni, jafnvel þótt um eigin
sjúkrasamlagslækna væri að
ræða. Samkvæmt samningum
þeirra við sjúkrasamlagið bæri
þeim ekki skylda að vitja sjúkl
ings, ef beiðni um það væri
ekki komin fyrir kl. 2 e. h.
Væri það með öllu óverjandi,
því oft bæri veikindi að snögg-
lega að eftir þann tíma dags.
Næturlæknir væri aðeins
emn í borg, sem hefir rúmlega
50 þúsund íbúa. Taldi fundur-
inn, að varla dygði minna en
þrír læknar til næturvörslu að
staðaldri.
Sama kyrstaðan ríkti einnig
í lyfjabúðamálinu, svo til
skammar væri.
Var stjórn fjelagsins falið að
taka þessi mál til rækilegrar
athugunar.
Skýrsla L Í. Ú. frá 15. þ.m.
HJER birtist skýrsla sú er
Landssamband ísl. útvegs-
manna hefur tekið saman um
afla síldveiðiskipanna er stund
að hafa veiðar í Hvalfirði.
Skýrslan er miðuð við 15. jan-
úar s.l.
Aðalbjörg 6702
Ágúst Þórarinsson 7079
Akraborg 3564
Álsey 7588
Andey 7138
Andvari RE 7378
Andvari TH 3390
Anglía 3482
Arinbjörn 3386
Ármann 4556
Árnj 12
Ásbjörn Ak 1165
Ásbjörn ÍS 2259
Ásgeir 5231
Ásmundur 3749
Ásúlfur 3068
Atli 519
Auður 3082
Birkir 635
Bjarmi 5180
Bjarnarey 6596
Bjarni Ólafsson og Ólafur
Magnússon 4466
Björgvin 6908
Björn Jónsson 8605
Blakknes 3762
Bragi GK og Fróði 7501
Böðvar 9638
Dagsbrún 440
Dagur 7166
Dóra 3876
Dux 1892
Edda 10247
Eggert Ólafsson 1216
Einar Þveræingur 484
Eldborgin 3572
Eldey 6150
Elsa 3040
Ernir 1785
Fanney 6393
Farsæll 9216
Fell 4516
Fagriklettur 20761
Fiskaklettur 2066
Fram Ak 3107
Fram GK 3388
Freydís 4025
Freyja RE 8554
Freyja GK 268
Friðrik Jónsson 1356
Fylkir AK 3555
Fylkir RE 15
Garðar 3244
Gautur 350
Geir goði & Ingólfur 4816
Grindvíkingur 4429
Grótta 1943
Græðir 1878
Guðbjörg 4810
Guðmundur Kr. 7376
Guðmundur Þorlákur 4141
Guðný 2745
Gunnvör' 2010
Gylfi 5532
Hafbjörg 4354
Hafborg 2287
Hafdís GK 1192
Hafdís ÍS 3481
Hafdís RE 3577
Hafnfirðingur 4616
Hannes Hafstein 3344
Haraldur Þorsteinsson 104
Haukur 2462
Heimaklettur 4646
Heimir 2227
Helga 11388
Helgi 3725
Helgi Helgason 12044
Hólmaborg 3323
Hrcfna 3999
Heimir 911
Hrönn 488
Iluginn I. 3025
Huginn II. 4548
Huginn III. 2930
Hugrún 7350
Hvítá 2196
Illugi 5870
Ingólfur Arnarson 7848
Ingólfur GK 8649
Ingólfur MB 178
ísbjörn 1828
ísleifur 4321
íslendingur 4582
Jón Dan 641
Jón Finnsson 1516
Jón Magnússon 71
Jón Stefánsson 1844
Jón Valgeir 5582
Jón Þorláksson 2393
Jökull 6852 ,
Kári og Erlingur 6391
Kári Sölmundarson 3617
Keflvíkingur 3416
Keilir 9664
Kristján 5759
Kveldúlfur 15
Marz 3209
Már 1550
Morgunstjarnan 1574
Muggur 108
Mummi 2363
Muninn II. 1325
Nanna 2613
Narfi 5157
Njörður 3409
Ólivette 1507
Reykjaröst og Hilmir 7403
Reynir 1755
Richard 4958
Rifsnes 15816
Siöfn 1201
Sidon 4555
Siglunes 7600
Sigríður 1591
Sigrún 5296
Sigurður 4206
Sigurfari AK 12895
Sigurfari BA 359
Síldin 9414
Skeggi 1239
Skíði 2334 ]
Skjöldur 2683
Skógarfoss 3460
Skrúður 2233 S
Slr.ipnir 6129
Stefnir 2593 i
Steinunn gamla og
Stjarna 4456
Súlan 4518
Svanur AK 7644
Svanur RE 4375
Sveinn Guðmundsson 9707
Sverrir 1346
Sæbjörn 6
Sædís 1369 i
Særún 1987
Sævar 4388 -
Sæfell 1490
Trausti & Vísir 10087
Valur 5752
Victoría 9159
Víðir3524
Víðir SU 6971
Víkingur 2719
Vilborg 5987
Von TH 1364 ]
Von VE 7611
Vöggur 3444
Vörður 1654
Þorgeir goði 5850
Þorsteinn AK 4509
Þorsteinn EA 6740
Þorsteinn RE 4198
Samtals 688.276 í
Ráðleg! að kynna !
sjer mállð
FORYSTUGREIN í Alþýðu-
blaðinu í gær um rannsóknir á
hitaveilunni og vatninu er skrif
uð aí manni, sem hefir ekki, eft
ir því sem fram kemur í grein-
inni, lesið eða skilið skýrslu þá
um málið, sem borgarstjóri las
upp á síðasta bæjarstjórnar-
fundi og birst hefur hjer í blað-
inu.
Ef ritstjórn blaðsins hugsar
sjer að ræða málið frekar að
sinni, þá væri ráðlegt fyrir þann
sem ætlar sjer að annast fram-
halds umræður að kynna sjer
þau gögn sem fyrir liggja, í
stað þess að koma fram í unjræð
um slíkum, eins og álfur út úr
hól.