Morgunblaðið - 27.02.1948, Side 12

Morgunblaðið - 27.02.1948, Side 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói: Stinningskaldi sunnan. Rigning með köflum. DAGLEGA LIFIÐ I FINN- LANDI. — Sjá grein á bls. 7. 51. tbl. — Föstudagur 27. l'erbúar 1948. Frá hmdí norræna Tónskáldaráðsins Á myndinni frá vinstri til hægri: Ranta (Finnland) Riisager (Danmörk), Beck (Noregur), Egge (Nor- egur), Wirén (Svíþjóð), Liljefors (Svíþjóð), Jón L iís. 1R -ingar hafa sett 43 Islandsmet á 2 árum áxel Konráðsson kosinn form. fjeiagsins AÐALFUNDUR íþróttafjelags Reykjavíkur var haldinn s.l. mið- vikudagskvöld. Formaður f jelagsins gaf skýrslu um störf þess s.l. ár og gat þeirra íþróttaafreka, sem fjelagsmenn unnu á árinu, en þau eru meiri en nokkru sinni áður. Er í því sambandi nóg að minnast utanfarar" frjálsíþróttamanna Í.R., sem ekki einungis kastaði ljóma á nafn fjelagsins, heldur ekki síður nafn Isíands. Fjelagsmenn settu alls 20 ís-^ íslenskur fulHrúi á lónskáldaþingi landsmet s.l. ár, 19 í frjálsum íþróttum og eitt í sundi. Árið 1946 settu ÍR-ingar 23 íslands- met og hafa því sett yfir 40 met á tveimur árum, sem er eins- dæmi um eitt íþróttafjelag. Þá hefur fjelagið ráðið sjerstakan framkvæmdastjóra, þar sem starfsemin er orðin svo víðtæk, að það reyndist nauðsynlegt. Formaður fjelagsins, Sigur- páll Jónsson, baðst eindregið undan endurkosningu, en í hans stað var kosinn Axel Konráðs- son. Aðrir í stjórn voru kosnir: Eyja Þórðardóttir, Gísli Krist- jánsson, Friðjón Ástráðsson. Ingólfur Steinsson, Jón Björns- son, Örn Eiðsson, Sigurður Magnússon og Þorbjörn Guð- mundsson, en til vara Magnús Baldvinsson og Sigurður Sigurðs son. Stjórn húsbyggingarsjóðs var öll endurkosin, en hana skipa: Þorsteinn Sch. Thorsteinsson, Gunnar Einarsson, Magnús Þor- gilsson, Haraldur Jóhannesson og Ingólfur B. Guðmundsson. í rekstrarnefnd Kolviðarhóls voru kosnír: Sigurður Sigurðs- son, Ragnar Þorsteinsson, Grím ur Sveinsson, Gretar Árnason og Hjalti Sigurbjörnsson. Endurskoðendur voru kosnir Gunnar Einarsson og' Ben. G. Waage. Suður-Kóreu Lake Success í gær. LITLA allsherjarþingið sam- þykti í dag þá ályktun Banda- ríkjanna, að láta fara fram kosn ingar í Suður-Kóreu, með 31 at- kvæði gegn tveimur, en 11 sátu hjá. Gegn ályktuninni greiddu atkvæði fulltrúar Ástralíu og Kanada. Meðal þeirra, sem sátu hjá, voru fulltrúar Venezuela, Svíþjóðar, Noregs og Egypta- lands. Bandáríkin báru fram tillögu snemma í þessari viku, þess efnis, að almennar þing- kosningar yrðu haldnar í Kór- eu þegar í stað, þrátt fyrir and- stöðu Rússa. — Reuter. NORRÆNA TÖNSKÁLDARÁÐiÐ hjelt. fund í Osló 21.—22. þ.m. og ræddi nýja höfundalöggjöf fyir Norðuriönd og undirbúning tónlista- viku, sem ráðið gengst fyrir í Osló á hausti komanda. Island er nú í fyrsta sinni aðili í ráðinu, þar sem menn töidu að þátttaka Islands í J3ernarsambandinu va’ri skilyrði íyr ir uþptöku i ráðið. Jón Leifs sat fund inn fyrir hönd TónskáldafjeJags ís- lahds og var samþykkt einróma að á va’ntanlegu tónlistarmóti skyldi lielga íslenskri tónlist jafnmikinn tíma og sama aðbúnað og tónlist hinna landanna. Tónskáldafjelögin kjósa sjálf verkin, sein flytja skal, en á næsta fundi ráðsins í byrjun maí næstkomandi verður heildardagskrá- iil endanlega samþykkt. Filharmoni hljómsveitin í Osló flytur þrjá tón- leika, en auk þess verða lialdnir hljómleikar stofutónlistar og kirkiu- tónlistar. — Ráðið gerði ýmsar áiykt anir, er snerta rjettindamél tónskálda — Hugmynd TónskáldafjeJagsins um útvarpsstöð fyrir UNESCO á íslandi vakti athygli, og voru'menn sammála um, að TJNESCO ætti mikla framtið fyrir sj§r. Danski fulltrúinn skýrði frá starf- semi „Det Danske Selskab11, það hefir hálfa miljón króna af rikisfje árlega til umráða, til að kynna danska mermingu erlendis. Sænski fulltrú- inn skýrði frá hliðstæðri stofnun Svíþjóð, sem starfar á sama hátt og hefir eina milljón sænskra króna ár- lega til umráða. Af þvi fje kemur hálf milljón úr ríkissjóði, en útflytj endur leggja fram hálfa milljón á móti, af því að þeir telja útbreiðslu sænskrar menningar erlendis fela sjer áhrifamikla auglýsingú fyrir sölu sænskra afurða. Norsku fulltrú arnir töldu heppilegast, að gagnkvæm menningarkynni milli þjóða yrði skipulögð i ríkum mæli hjá UNESCO i^amaLjáfp SLameinu fa j)jóL 'anna: TóSf skemmtanir verða hjer í bænum á fjár- söfnunardaginn 29. febrúar Dagsins vefSnr minnsf um land ali! Á SUNNUDAGINN kemur, 29. febrúar, fer fram í öllum með- limalöndum Sameinuðu þjóðanna fjársöfnun til Barnahjálpar stofnunarinnar. Hjer á landi fara fram skemtanir, sem allur á- góði af rennur óskiptur til þessa mannúðarstarfs. Hjer í Rvík >erða tólf skemtanir, sem milli 5000 og 6000 manns getur sótt. B'örnin 'í/'~ og Tónlistarskólanemendur Börnin í barnskólum bæjarins annast flestar skemmtanirnar, og aðstoða nemendur úr Tón- listarskólanum við hverja þeirra Fræðslufundur IIEIMDALLUR heldur fræðslufund í Sjálfstæðis- húsinu í kvöld kl. 8,30. Gunnar Helgason, crind reki, flytur fyrirlestur um Kommúnismann. Keimdellingar, fjölmenn ið og mætið stundvíslega. 12 skemtanir ' 1 þeim samkomuhúsum, sem tvær skemtanir fara fram, verð ur sú fyrri-kl. 1.30, en hin síð- ari klukkan 3. í þessum sam- komuhúsum verða tvær skemt- anir: Gamla Bíó, Tjarnarbíó, Austurbæjarbíó og í Skátaheim- ilinu. Þar verður skátaskemtun kl. 1,30 og um kvöldið aðaldans- leikur Skátaf jelaganna og renn- ur allur ágóði af dansleiknum til Barnahjálparinnar. í Trípólí j verður ein -skemtun, sömuleiðis J í Góðtemplarahúsinu. Þá skemt- un annast barnastúkan Æskan. j— Þá verður ein kvikmynda- sýning í Nýja Bíó og þá hefur Leikfjelagið sýningu á æfintýri. Skólastjórar skólanna og kenn arar munu sjá um þær skemt- anir, er barnaskólabörnin og Tónlistarskólanemendurnir ann- ast. í öðrum tilfellum stjórnir viðkomandi f jelaga og samtaka. Ffamkvæmdanefnd Barna- hjálpar S. þ. skýrði blaðamönn- um frá þessum skemtunum í sambandi við fjársöfnunardag- inn á fundi er hún boðaði þá á í gær. Aðgöngumiðasalan og einstök framlög Aðgöngumiðasalan að skemt- ununum verður með öðru sniði en verið hefur, er svo margar skemtanir fara fram. Miðasal- an verður í Listamannaskálan- um og þar verða sem sje seldir miðar að öllum skemtununum, og hefst sala þeirra kl. 9 árdeg- is á sunnudag. Þar verður og tekið á móti sjerstökum framlögum barn- anna, ef þau skyldu vilja gefa peningagjafir sjálf, umfram verð miðans, sem er 5 kr. fyrir börn og fuílorðna. Engin fjár- sqfnun fer fram í barnaskólum bæjarins. Kvæði dagsins* Freysteinn Gunnarsson skóla- stjóri hefur ort kvæði í tilefni dagsins og verður það lesið upp sem ávarpsorð í upphafi allra skemtananna. í Hafnarfirði í Hafnarfirði verða skemtan- ir í Bæjarbíó og Hafnafjarðar- bíó. Nemendur barnaskólans og Flensborgarskólans annast þess- ar skemtanir. . Um skemtanir út um land er ekki kunnugt um, en fræðslu- málastjórinn héfur falið kenn- urUm um land alt að minnast dagsins á viðeigandi hátt. barna eru hungruð Washington. í ÚTVARPSRÆÐU, sem Marshall utanríkisráðherra flutti s. 1. þriðjudagskvöld, ræddi hann hina miklu nauð- syn þess, að barnasöfnun Sam- einuðu þjóðanna tækist sem best. Talaði ráðherrann í því sambandi um það, að sú skylda hvíldi á herðum alls heimsins að bjárga börnunum, sem orð- ið hefðu fvrir barðinu á styrj- öldinni. Marshall vakti athygli á því, að í dag væru hundruð miljóna barna, sem ekki fengju það mikið áð borða að þau gætu vaxið á eðlilegan hátt. Miljónir barna cru svo sjúk, sagði hann, að framtíð þeirra er orðin heims vandamál. Þessar staðreyndir krefjast þess, íið gripið verði í taumana. BreSar fara frá Pakisfan Karachi í gærkvöldí. SÍÐUSTU bresku hersveitirnar fóru frá Pakistan í dag. Lögðu þær upp frá Karachi, þar sem Jinnali landstjóri var viðstadd- ur hersýningu þeirra. — Reuter^ • \ X

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.