Alþýðublaðið - 17.06.1920, Síða 3

Alþýðublaðið - 17.06.1920, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 Spakmæli. Þegar vitringurinn heyrir talað um Alþýðublaðið, tekur hann sér alvarlega íyrir hendur að lesa það að staðaldri. Þegar miðlungsmaðurinn heyrir frá því sagt, les hann það um stundarsakir, en tekur síðan að lesa Morgunblaðið. Þegar heimskinginn heyrir um það talað, hlær hann, og þá væri það ekki Alþýðublað, ef hann hlægi ekki. „Lao Tse“. Slysið á Rán. Eins og getið var um í blaðinu i gær, slasaðist maður á togaranum Rán. Hann heitir Tryggvi Valdimarsson, til heimilis á Skólavörðustíg 29 hér í bæ; kvæntur barnámaður og liggur kona hans á sjúkrahúsi. Manninum líður vel, eftir at- vikurn. Áðeins tveir. Sagt er að aðeins tveir menn hafi sótt um skrifstofu- stjórastöðuna hjá Knud Zimsen borgarstjóra. Þess má geta, að staðan er með bezt launuðu stöð- unum á landinu. Ekki er nú eftir- sóknin mikil í það að komast undir handleiðslu þess „gæfa" mannsl Ætlið þér að láta leggja raf- magnsleiðslnr í húsið yðar? Sé svo, þá er yður best að tala við okkur, sem allra fyrst. Helst í dag. H.f. Rafmfél. H i t i & L j ó s Vonarstræti 8. — Sími 830. Verzlunin „Hlíf“ á Hverfisgötu 56 selur: Sólskinssápu, Red Seal- sápu, Sápuduft (ágætar tegundir), Sápuspæni, Taubláma, Þvottaduft (Vi to Willemoes-kraft og Richs- kraft), Soda á 0,25 pr. >/a kg., Ofnsvertu, Fægilög í smádunkum á 0,50, Handsápur, Handáburð (Arnesan glycerin), Götukústar, Gólfskrubbur, Pottaskrubbur, Hand- bursta, Olíu á saumavélar (í glös- um), Teiknibólur (á 0,20 pr. 3 dús.), Þvottaklemmur o. m. fl. Gerið svo vel og lítið inn í búðina eða hringið í síma 50S. í. S. í. I S. í. 17. JÚNI Afmælisdagur Jóns Sigurðssonar forseta verður haldinn hátíðlegur á þann hátt, er hér greinir: Kl. 3 lagt af stað með Iúðrablæstri frá Austurvelli að leiði Jóns Sigurðssonar. Ræða: Herra alþm. Bjarni Jónsson frá Vogi. — Þaðan haldið út á íþróttavöll. KI. 4 héfst leikmót það, er íþróttafélag Reykjavíkur heldur að tilhlutun íþróttasambands Í9lands. Mótið sett. Ræða: Herra framkvæmdarstjóri A. V. Tulinius, formaður í. S. í. Að því loknu hefjast íþróttir í þeirri röð, er hér greinir: 1. 100 metra hlaup. 2. Stangarstökk. 3. Kúluvarp. 4. Kricglukast. Ræða: Herra alþm. Sig. Eggerz, fyrv. ráðherra. 5. Langstökk. 6. Spjótkast (betri hendi). 7. 1500 metra hlaup. Hlé! KI. 8,30 hefst dans, eftir hornablæstri, til kl. 12. Á vellinum verða til afnota: rólur, hringekja o. fl. Fyrsta flokks veitingar, eins og vant er. AV. Mót þetta heldur áfram dagana 18. og 20. júní, og verða að því loknu valdir þeir menn, er landið sendir á olyropisku leikana í Antverpen í sumar. Öilum ágóða af mótinu verður varið til þess, Aðgöngumiðar kosta: kr. 1,50 fyrir fullorðna og 50 aura fyrir börn. Allir út á völl! Framkvæmdarstjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.