Morgunblaðið - 03.07.1948, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 03.07.1948, Qupperneq 11
Laugardagur 3. júlí 1948- MORGUNRLAÐIÐ 11 Reynt nð blekkjn þá, sem ráða innlliiiœliiiiii — Fiekis- KJARNINN í þeim boðskap, sem Hermann Jónasson flytur nú lesendum sínum í „Tíman- um“ er sá, að á styrjaldarár- unum hafi þeir, sem innflutn- ingnum rjeðu ,,níðst á sam- vinnufjelögunum“. Þau hafi ekki fengið að flytja inn nema mjög takmarkað af vörum, en ínnfk.'tningnum hafi verið beint til annara innflytjenda, beinlínis í því skyni, rð beir fengju tækifæri til að auðgast erlendis — „leggja bló’skatt á þjóðiná“, eins og H. J. orðar það^ Það þætti víst sæta tíðindum víðast hvar annars staðar en á Islandi, að alþingismaður og fyrverandi forsætisráðherra, formaður eins stærsta þing- flokksins og fjárhagsráðsmað- ur geti látið sjer sæma að hlaupa út um sveitir, stimpla eina stjett manna blóðsugur og svikara, staðhæfa að stærsti þingflokkur landsins hafi ver- ið allur og óskiftur í vitorði með svikurunum, og síðan þar á eftir staðfesta róginn og meira. að segja herða á honum í hverri blaðagreininni á fætur annari. En þessa aðferð Hermanns Jónassonar verður að skoða með hliðsjón af því, hvernig hann er nú staddur í stjórn- málunum. Hann stendur höllum fæti meðal áhrifamannanna í sín- um eigin flokki og hann stend- ur líka höllum fæti meðal flokksmannanna hvar sem er. Hann á á hættu að verða „ut- ang;itta“. En einn helsti keppi- nautur hans, Eysteinn Jónsson, á sæti í þeirri ríkisstjórn, sem H. J. reynir nú að gera erfitt fyrir með skrifum sínum. Ann- ar keppinautur hans,. Vilhjálm Ur Þór, var ráðherra all-lengi á þeim tíma, sem H. J. telur að íreklegustu landráðin hafi átt sjer stað, og er nú forstjóri S. I. S.. sem efast má um, að hafi ástæða til að vera H. J. þakk- látt fyrir sína framgöngu. Með þessari nýju herferð sinni hyggst H. J. að efla að- stöðu sína í flokknum, kveikja bál sundrungar og tortryggni, sem gæti orðið hættulegt því samstarfi, sem nú er um stjórn landsins. Tækist honum þetta, gæti hann ef til vill fengið ýms persónuleg tækifæri, sem hon- um leikur hugur á. Sannleikurinn um S. I. S. H. J. margendurtekur í grein um sínum að á styrjaldarárun- um hafi verið „níðst á sam- vinnufjelögunum". Hið sanna í málinu er þetta: Þegar innflutningur var sem mestur og nær því ótakmark- aður á styrjaldarárunum, má segja að SÍS hefði aðstöðu til að flytja inn algerlega að vikl sinni. A þessum tíma notaði S. í. S. ekki öll leyfi sín. Það hefir meira að segja kom ið fyrir eftir stríðslokin að S. í. S. afhenti sjálft frá sjcr leyfi til þeirra innflytjenda, sem H. J. ber nú landráðasökum. Ástæðan til þessa var sú, að S. í. S. fjekk það af innflutn- ingi, sem það gat torgað. Þeg- ar innflutningurinn var nær því frjáls, sást skýrast hversu eimiie Aðeins iítill hluti af fjelögum K.E.A.erbændur sterk einkaverslunjn er á svell- inu í samkeppni við fyrirtæki eins og S.I.S. Verðið hjá S. í. S. og öðrum. Aðstaða einkaverslananna var svo sterk í samkeppninni við P. í. S. vegna þess, að S. í. S. gat á þessum tíma alls • ekki boðið betri nje ódýrari vöru en einkaverslanirnar. Væri nokkur heil brú í rógi H. J. um að einkaverslanir hafi flutt úr landi á þessum tíma ekki minna en á annað hundr- að miljónir króna, sem þær hefðu lagt ólöglega á vörurnar, hefði skapast svo mikill munur á vöruverði einkaverslananna og S. í. S., að einkaverslunun- um hefði ekki orðið stætt í þeirri samkeppni, þegar inn- flutninguri mátti heita frjáls. Atriði, sem almenningur getur dæmt. Það fyrsta, sem almenningur í landinu hlýtur að reka augun í, er. að hefðu aðrir innflytj- endur en S. í. S. lagt þennan óheyrilega ,,blóðskatt“ á þjóð- ina, sem H. J. talar um með því að hækka vöruverð með svik- samlegum hætti, þá hefði stór- feldur og almennur mismunur hlotið að koma fram á verðinu lijer innanlands í þeim búðum, sem fá vörur frá stórkaupmönn um annarsvegar og hinsvegar hjá S.Í.S. og kaupfjelögunum. En hver kannast við slíkan mun? Hjer er atriði, sem al- menningur getur sjálfur dæmt um. Innflutningurinn að vestan. Allur innflutningur lands- manna frá Bandaríkjunum á árunum frá 1941—1946 að báð- um árunum meðtöldunl nam um 640 miljónum króna samkv. skýrslum Hagstofu íslands. Þá er talinn allur innflutningur- inn bæði það, sem einstakling- ar, stórkaupmenn, samvinnu- fjelög, iðnfyrirtæki og hið op- inbera fluttu inn frá Banda- ríkjunum á þessum árum. Ennfremur er innifalið í töl- um hagstofunnar allur kostn- aður,_ allar tryggingar og öll farmgjöld vegna innflutnings- ins að vestan. Það er glöggt, að ekki er nema takmarkaður hluti af þessum 640 miljónum króna, sem flutt var inn fyrir, inn- kaupsverð vara, sem stórkaup- menn hefðu getað lagt á til að safna af því inneignum er- lendis. Hefðu stórkaupmenn lagt svo á þennan skerf innflutningsins, sem fjell í þeirra hlut, að þeir hefðu af því getað auðgast er- lendis um ekki minna en á annað hundrað miljónir, eins og H. J. staglast á, þá sjá allir hve gífurlega dýrt þeir hefðu orðið að selja hjer innanlands samanborið við hina „heiðar- legu“ verslun S. í. S. Hermann og konumar. H. J. ht-ir líka sjeð að til þess að gera sögu sína trúlegri um ,,blóðskattinn“ og landráð- in, varð hann að nefna einhver dæmi. En þessi dæmi, sem hann tilfærir, bera þess ljósasta vott- inn, hve honum hefir verið erf- itt í því efni. „Konur, sem dvalið höfðu vestanhafs“ ráku sig hjer á hitt og þetta, dýra kjóla, víra- virkishólka fyrir varalit, höf- uðklúta, hringi, fataskraut og kúlupenna, segir H. J. Það má fullyrða, að ekkert af þessum vörum, sem H. J. telur upp, var fluít inn af þeim aðil- um, sem hann ákærir fyrir svik. Hafi þessar vörur verið á boðstólum, á þann hátt, sem H. J. skýrir frá, hafi þær verið fluttar inn af öðrum. H. J. og öllum, sem nokkuð þekkja til, er fullkunnugt um, að á her- námsárunum og síðar, kom tals vert inn í landið af alls konar glingri, einkum fyrir kvenfólk, sem ekki var flutt inn af versl- unarmönnum. Það kom eftir öðrum leiðum. Ef H. J. hefði getað néfnt ein hver sannfærandi dæmi um vöruokur, hefði hann hlotið að benda á eitthvað annað en þetta. Fátækt H. J. um dæmin í þessu efni skýrir vel hvernig mál hans alt er vaxið. Vaníaði S. í. S. gjaldeyri? H. J. má ekki halda, að al- menningur hafi horft blindum augum á innflutning S. í. S. á stríðsárunum. Það var sjáan- legt, að S. í. S. velti sjer í gjald eyri. Það hefði þess vegna get- að keypt nóg af ódýrum vörum til landsins og greitt með því þessari ímynduðu okurverslun annara innflytjenda, sem H. J. talar um, það rothögg, sem slíkri starfsemi hefði dugað til fulls og alls. Dettur nokkr- um í hug, að S. í. S. hefði lagt slíka áherslu á innflutning bíla og allskonar rafmagnstækja, fyrst og fremst fyrir kaup- staðabúa, sem frægt er orðið, ef bað hefði skort gjaldeyri til að Hytja inn í landið góðar og ódýrar neyzluvörur eins og H. J. segir. Hermann Jónasson hefir nú lagt upp í einhverja þá eitruð- ustu herferð, sem þekkt er í stjórnmálum okkar, og er þá langt til jafnað. Mönnum dett- ur helst í hug til samanburðar, þegar Framsóknarmenn og fje- lagar þeirra æltuðu að leggja útgerðina að velli á árunum fyrir styrjöldina með ekki ó- svipaðri aðferð. Hermantt Jón- asson hefir nú lagt upp.í þessa för, en það er ósjeð hver ferða- lokin verða. KARACHÞ — Þegar flóttamönn- um frá Intilandi var nýlega leyft að stunda farþegaflutning með þríhjól um mótmæltu bifreiðastjórar í borginni þvi, með þvi að aka í bíla fylkingu eftir aðalgötunni. ÞRÁTT fyrir vornæ-ðinginn og kuldann, sem verið hefir framán af sumrinu og dregið hefir úr vexti og viðhaldi gróð- urs í náttúrunnar ríki, eru samt jurtir og blóm að teygja fram höfuðin og eru þvi við- búin að breiða út faðminn móti hverjum sólargeisla, er af náð kemur ofan að. Þessi gróandi í jurtaríkinu á vorin minnir mann alltaf á vaxtar og þroska ár æskunnar. Frjóangar trjáa og plantna, kollar blómanna og ilmur minn ir ósjálfrátt á unglinga og börn, er standa með opin augu og eyru til þess að taka á móti hverskonar áhrifum, er um- hverfið veitir þeim. Og eins cg jurtin þarf mjúkan, hlýjan jarðveg og glöggskygnt auga, er fylgist með vexti hennar og ver hana villigróðri, eins þarf barnið mildan. hlýjan anda, er skilur það og hjálpar því til að ná bví marki, er hugur þess cg hæfileikar stefna að. Reykjavík er að verða sýning anna bær. Hver sýningin rek- ur aðra í Listamannaskálan- um og skólarnir sem nú hafa lokið vetrarstörfum sínum, halda sýningar á vinnu nem- andapna. Var þar um auð- ugan garð að gresja, og margt athyglisvert. Sýningar þessar varpa Ijósi yfir, hvar við stönd um og hvert við stefnum. Mönnum er smámsaman að skiljast það, að efnisval og form, línur og litir ráða miklu, og sje hugvit, handlægni og vandvirkni með í leiknum, sprettur oft upp undra fagur kvistur. — Jeg hefi. beimsótt flestar skólasýningarnar í vor, og minnist jeg þar fyrst sýn- inga Húsmæðraskólans og Kvennaskólans. Dáist jeg að dugnaði þeim, er kemur fram í handavinnu nemendanna, sjer staklega þegar samfara eljunni er smekkvísi og vandvirkni, Það veitir öryggi og trú á bjarta framtið, að til er fjöldi ungra kvenna, er hafa ánægju af því að sitja — dag eftir dag — við sauma sina, prjóna eða vefnað, þrátt fyrir glaum og gleðileiki nútímans, er toga og seiða til sín unga fólkið. Að þær kjósa að sjá árangur af námi sínu, er veitt hefir þeim hina sönnu gleði, vinnugleðina, skaparagleðina, sem er allri gleði æðri,. Þarna hafa þær sjeð hvern hlutinn af öðrum koma í ljós, þær finna, að þess- ir hlutir verða förunautar þeirra út í lifið og eiga eftir að minna á góðar stundir skóla- anna, sem fara nú að hefja verunnar. Nemendurnir finna, að þessa muni hafa þær skapað með. hug og hönd og þeir eru eins og hluti af þeim sjálfum. Sjerstaklega á þetta við, ef nemandinn er þess mégnugur að hugsa sjálfur út gerð hans, og mynstur, þegar um útsaum, útprjón og útvefnað er að ræða. Oftast er það mynstrið, sem mestum heilabrotum veldur — oft eru það línurnar, er ráða miklu um það, hvort hluturinn fær á sig listablæ eða ekki. Það er því augljóst mál, að mjög er áríðandi,, að handa- vinnuskólar nútímans og fram- tíðarinnar leggi stund á frjálsa mynsturteikning meðal nem- anda sinna með leiðbeinandi gagnrýni kennara, er fær er í grein sinni. Svning Handíðaskólans á vinnu væntanlegra kennava við verknámsdeildir unglingaskól- störf sín ,samkvæmt nýja skóla kerfinu, var mjög í'róðleg og at- hyglisverð. Vinn ubækurnar sýndu, að kennaraefnin fara ekki tómhent upp að kennara- borðinu, þegar þar að kemur. Jeg vil leyfa mjer a'ð víkja nokkrum orðum aö' unga íólk- inu og þá sjerstak'lega að bless- uðum börnunum, cr sitja á skólabekkjunum vetur eftir vetur við nám sitt. Oft er því fleygt fram og jafnvel rætt í blöðum og á mannamótum, að æskan okkar sje á glapstigum, óknvttir fari í vöxt, kæruleys- ið sje of almennt og nærnleik- inn fyrir því sanna og í’jetta orðinn afvegaleiddur. Því mið- xir er eitthvað til í þessu, og eru til þess ýmsar craakir, svo sem breytt hugarfar, breyttar heimilisaðstæður, er valdið hafa losi og sundrung í þjóðfjelag- inu. Heimilið er og mun ler.gst af verða aðal uppeldisstöðin, að minsta kosti fram til skóla- skylduáranna. Fyrstu 5-—-7 árin er sá tími barnsævinnar, sem næmastur er fyrir áhrifum um- hverfisins. Mótun skapgerðar fer þá fram og hún ræður miklu í lífi hvers cinstaklings. Það eru ekki allir jafnfærir til þess að vekja til Lífsins hæfi- leika barnanna og beina þeim í rjetta átt. Það eru ekki allir færir um að standa á verði „hvar scm lítið lautarblóm langar til að gróa“. I bessu sambandi tek jeg hjer upp litinn kafla úr bókinni Lýðmentun eftir Gu'ðmund Finnbogason. „Ekkert á sjer dýpri rætur í manneðlinu, meðan það er ó- spillt, en starfsfýsnin. Þetta má sjá á börnunum, þau eru sí- iðandi af starfslöngun, vilja alltalhafa eitthvað fyi ij’ stafni, búa eitthvað til, skapa eitthvað. Þessa starfslöngun rná ekki bæla niður eða láta dofn.a fyr- ir hirðuleysi, heldur verður í tíma að beina henni í rjetta átt, venja börnin á að vinna rneð athygli og umhugsun að ákveðnu marki, og æfa skyn- færi beirra, hug og hön.I i sam- einingu. Oss er ekki ætlað að halda að oss höndum, heldur að nota hendurnar til þess að umskapa með þeim heiminni, fegra hann og fullkomna. En mönnunum hefir oftar en skyldi gleymst þetta. Skólarnir hafa löngum látið sjer annara um p\ fylla huga æskulýðsins með allskonar fróðleikshrafli en að kenna honum rið nota hendurnar til að koma hug- myndunum í framkvæmd“. Þessi kafli var skrifaður fyr- 5r 45 árum, eða ár.ið 1903, cg er hann enn í gildi. Sá cr þó num- urinn, að nú starfa barnagarð- ar, og má þar minna á barna- borgirnar okkar .hjer í höfuð- staðnum, sem æfa skynnæmi og fingrafimi. Þá hefir og skóla iðnaður rutt sjer til rúms og teikninám aukist að miklum mun Sýningar barnaskólanna í vor og barnadeild Handíðaskól ans gerðu mörgurn glatt í geði. Eru bær fyrirheit um frjálsa, lifandi æsku. íslenska þjóðin þarf ekki að örvænta um æsku lan.isins, sje henni beint á rjettar brautir og hún varin villigróðri. Júní 1948. Laufey Vilhjálmsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.