Morgunblaðið - 21.07.1948, Page 1
25 árgangur
170. tbl. — MiSvikudagur 21. júlí 1948.
Prentsmiðja Morgunblaðsiáa
Matvælin kos«asl ekki til Eerlínar.
Hjer sjást vöruflutningabifreiðar, sem voru á leið rneð matvæli til
Berlínar og; sem Bússar stöðvuðu. Maturinn hefur eyðilagst í
vögnumyn 03 mildð verðmæti farið forgörðum.
matvælum
Bragð, sm á að neyða borgarbúa til að
nsta rúsaeska gjaldmiSlHnn.
Berlín í gærkvÖldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÞÝSKA frjettastofan á hernámssvæði Rússa í Berlín sagði frá
því i dag, að Rússar hefðu ákveðið að sjá allri Berlínarborg fyrir
matvælum. Væru nægar birgðir korns á leiðinni til borgarinnar
og innan fárra daga yrði það almenningi til sölu. Gætu íbúar af
hernámssvæðum Vesturveldanna keypt matvæli og flutt þau til
vesturhluta borgarinnar, en eini gjaldmiðillinn, sem tekinn yrði
gildur væri gjaldmiðillinn á hernámssvæði Rússa. í tilkynningu
frjettastofunnar sagði ennfremur, að rússnesku hernámsyfirvöld-
in myndu næstu daga senda 100,000 smálestir af korni til Berlín-
ar og lokið væri undirbúningi undir að 'auka mjólkur og græn-
metisflutningana svo að nægði fyrir alla borgina.
Vesturveldin hætta ekki
loftflutningum.
Þó frjett þessi sje ekki ,stað-
fest af rússnesku hernámsyfir-
völdunum telja ráðamenn Vest
urveldanna, að ekki sje ástæða
til að rengja frásögn frjetta-
stofunnar. Robertson vfirmað-
ur breska hernámsliðsins sagði,
að þessi frjett væri ekk’ þýð-
ingarmikil því að Rússum bæri
skylda til sem hinum hernáms-
veldunum að sjá Rerlínarbúum
fyrir matvælum. Hann sagði
og, að Vesturveldin myndu
halda áfram loftflutningum til
Berlínar þrátt fyrir þetta.
Kænlegt bragð hjá Rússum.
Stjórnmálafrjettaritarar eru
sammála um, að þetta sje poli-
tískt bragð hjá Rússum -'g mjög
kænlegt, því að eftir þetta geta
þqir ef til vill sagt, að loftflutn-
ingar Vesturveldanna sjeu þarf
láusir þar sem að Rússar geti
sjálfir sjeð borginni fyrir mat-
vælum og getur þar verið á-
stæða fyrir þá til að hindra
loftflutningana. Einnig er þetta
beint framhald af kröfu Rússa
um að gjaldmiðillinn af her-
námssvæði þeirra í Þýskalandi
sje einn í gildi í Berlín. Er tal-
ið, að þeir hyggist á þennan
hátt að koma þeim áformum
sínum í framkvæmd.
Tutior-flugvjel fersf
París í gær.
TUDOR-flugvjel, fórst í dag, er
hún ætlaði að lenda á flugvelli
skamt norður af París. Sjónar-
vottar segja, sð flugvjelin hafi
svifið niður yfir flugvöllinn og
alt sýnst í góðu lagi, þegar hún
beygði skyndilega af og hrapaði
til jarðar. Fimm manns fórust.
Utanríkkráðherrarnir fimm
summula í aðalatriðum
--------» _—_____
veila
Bandaríkin fá sæti í
fyrir bro! sín
Cardiff, laugardag
! WINSTON CHURCHILI.
hjelt hjer í gær, að Rretland
yrði að komast úr hinum ógur-
legu erfiðleikum, sem það ætti
nú í.
Bretar yrðu að fallast á, að
Þjóðverjar tækju aftur upp
stöðu sina í fjölskvldu Evrópu-
þjóða. Þjóðverjar yrði; á ný að
fá tækifæri til að nota hæfi-
leika sína, sem væru miklir, á
friðsamlegan hátt. En það yrði
að búa svo um hnútana, að
Þjóðverjar bættu fyrir þær
misgerðir, sem þeir hefðu unn-
ið með hernaðarst.efnu sinm.
-— Reuter.
Sfjórnarkreppan
í Frakklandi
París í gærkveldi.
FUNDIR voru 1 dag haldn-
ir í miðstjórnum allra helstu
stjórnmálaflokka Frakklands,
og var í ráði að sjá hverjir
möguleikar væru á framhaldi
stjórnarsamvinnu þeirra flokka
sem stóðu að stjórn Schumans,
eða hvort mögulegt sje að
mynda nýja stjórn. Foringjar
flokkanna gengu hver fyrir sig
á fund Auriol forseta og skýrðu
honum frá skoðunum flokk- !
anna á stjórnmálaástandinu í
landinu. Mun forsetinn í
fyrstu rannsaka skýrslur stjórn
málamannana, en ekki er talið,
að hann feli neinum stjórnar-
myndun fyrr en í fyrsta lagi
um miðjan dag á morgun.
— Reuter.
Sjahinn af Persíu
kemur fi! London
London í gær.
SJAHINN af Persíu er í heim-
sókn í Bretlandi 1 boði Breta-
konungs. Kom hann í dag með
Yorkflugvjel frá Malta, en þar
kom hann við á leiðinni frá
Persíu. — Reuter.
Árás á Brefa í Kairo
Kaíró í gær.
ARÁS var gerð í gær á nokkra
Breta, sem voru staddir í Ka-
iro. Var kastað sprengju á þá,
þar sem þeir voru á ferð á göt-
um borgarinnar. Breski sendi-
herrann í Egyptalandi hefur
krafist ráðstafana til að slíkt
komi ekki oftar fyrir. —Reuter
ráði Vestur Evrópu-
ríkjanna
Yilja við?®ður við Rússa um
Berlínarmálin,
Haag í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
TVÖ aðalviðfangsefnin á fundi utanríkisráðherranna fimm í
Haag voru Berlínarvandamálið og varnarbandalag Vestur Evrópu
rikjanna. Voru þessi mál rædd í sjerstakri undirnefnd, sem allir
utanríkisráðherrarnir áttu sæti í. Málin voru rædd á breiðum
grundvelli og að viðræðunum loknum voru ráðherrarnir sam-
mála í meginatriðum. í Berlínarvandamálinu leggur fundurinn
til, að reynt verði að ná samkomulagi við Rússa og á öðrum
íorsendum en Vesturveldin komu sjer saman um í mótmælaorð-
sendingunum til Rússa. Um varnarbandalagið lýsir fundurinn því
yfir, að viðkomandi þjóðir muni gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að gera ákvarðanir Brússel samþykktarinnar frá mars
síðastliðnum að veruleika.
Bsttiagar á Mal-
ahkashaga
Singapore í gær.
HALDIÐ er áfram hernaðarað-
gerðum gegn ofbeldisflokkum
kommúnista á Malakkaskaga,
en þeir hafa á mörgum stöðum
búið um sig inni í þjettum frum
skógum, þar sem mjög erfitt er
að komast að þeim með heriið.
Þegar svo stendur á eru Spit-
fire flugvjelar vopnaðar eld-
flugum sendar á vettvang, og
í dag tókst þeim að kveikja í
einni aðalbækistöð ofbeldis-
mannanna skammt frá Kuala
Lumpur. Bardagar urðu milli
herliðs og flokka ofbeldis-
manna skammt frá Kelantan.
—Reuter.
Undirbúningur að
Olympíuleikunum
London í gær.
UNDIRBÚNINGUR að Olym-
píuleikjunum í London er nú
að verða sýnilegur á götum
borgarinnar. í dag var unnið
að því að reisa flaggstengur um
hverfis Piceadillytorgið í borg-
inni. — Reuter.
Viljið hjer tala við
lir. Smith?
LONDON. — Eftir nýútkomnum
skýrslum eru 1,600,000 marns í Bret
landi, sem bera ættarnafnið Smitli.
Þykir þetta hreinustu vandræði, og
margir eru með þvi, að nafnið verði
útilokað og skipað, að þetta fólk tald
upp annað ættarnafn.
Vilja viðræður við
Rússa.
Fundurinn leggur til, að
reynt verði að komast að sam-
komulagi við Rússa um Berlín-
armálin og að þess verði ekki
krafist fyrirfram, að samgöngu-
leiðin til borgarinnar verði opn
uð, heldur verði málið rætt við
Rússa frá öllum hliðum.
Áður en þessi skoðun fund-
arins getur komið til fram-
kvæmda, þurfa Bandaríkin að
samþykkja hana.
Bandaríkin fá sæti í
lierráði V.-Evrópu.
Um varnarbandalag Vestur-
Evróouríkjanna vísaði fundur-
inn til Brússel samþykktarinn-
ar milli þessara fimm ríkja um
sameiginlegar hervarnir, en
nauðsynlegt er að gera ýmsar
uppástungur úr þeirri samþykt
að veruleika og hafa bandalag-
ið milli ríkjanna serri nánast.
Myndað verður sameiginlegt
herráð þessarra fimm ríkja og
verður Bandarikjunum og
Kanada þar að auki boðið sæti
í ráðinu. Þar sem ekki er um
að ræða varnarbandalag við ’
Bandaríkin, gefur seta þeirra í
sameiginlegu herráð bestu fá-
anlegu tryggingu fyrir, að þau
muni ekki sitja hjá ef Vestur-
Evrópu þjóðirnar verða fyrir
árás.
Skömmtun afljett í Svisslandi.
Zúrich. — Hætt verður á
næstunni að skammta mjöl,
hríserjón og feitmeti í Sviss-
landi. en þetta voru síðustu vör
urnar sem ekki voru seldar
frjálst þar í landi.