Morgunblaðið - 29.07.1948, Síða 12
VEPUBÚTLITIÐ (Faxaflói):
SA-kaldi og síðar gola. —
#oksisí!d við sjávarsíðuna.
177. tbl. — Fimtudagur 29. júlí 1948.
Þrjú hjeraðsmót SjáU-
stœðismanna um
næstu helgi
i Fjöpr m aSra helgi.
TJM næstu helgi verða haldin þrjú hjeraðsmót Sjálfstæðismanna,
á Austfjörðum, i Vestur-Skaftafellssýslu og í Skagafirði. — Um
helgina þar á eftir verða einnig haldin fjögur hjeraðsmót Sjálf-
stæðismanna, í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu (að Ölver) í Vest-
ur-Húnvatnssýslu, í Austur-Skaftafellssýlu og á Akureyri og í
Eyj afjarðar sýslu.
Chiefley í Berlín.
Hjeraðsmót á
Austfjörðum.
Hjeraðsmót á Austfjörðum
verður haldið í Egilsstaðaskógi
sunnudaginn 1. ágúst, en þar
hafa Sjálfstæðismenn komið
upp mjög myndarlegum sam-
komuskála. Er þar mjög.fag-
ur og hentugur samkomustað-
ur. —
A þessu móti mæta þeir
Bjarni Benediktsson, utanrík-
is- og dómsmálaráðherra, og
Jóhann Hafstein, framkvæmd
arstjóri Sjálfstæðisflokksins,
og munu flytja þar ræður.
Þá mun Bragi Hlíðberg, har
mónikusnillingur, skemta með
einleik á harmóniku. Ennfrem-
ur verður söngur og gítarleik-
ur kvenna og önnur skemtiat-
riði. Að lokum verður dansað.
Sjjeð verður um veitingar á
staðnum.
A Iaugardagskvöldið verður
dansleikur haldinn í samkomu-
skálanum í Egilsstaðaskógi.
Hjeraðsmút í Vestur-
Skaftafellssýslu.
Hjeraðsmót í Vestur-Skafta-
fellssýslu verður haldið í Vík
í Mýrdal sunnudaginn 1. ágúst
og hefst kl. 4 síðd. Þar munu
flytja ræður Ólafur Thors, for-
maður Sjálfstæðislfokksins og
Jón Kjartansson, sýslumaður.
Brynjólfur Jóhannesson, leik
ari, mun skemmta með upp-
lestri og Nína Sveinsdóttir,
leikkona, mun syngja gaman-
vísur.
Að lokum verður dansað.
Hjeraðsmót í Skagafirði.
Hjeraðsmót Sjálfstæðis-
manna í Skagafirði verður hald
ið í Varmahlíð n. k. sunnudag,
1, ágúst. Meðal ræðumanna
verða alþingismennirnir Jón
Sígurðsson frá Reynistað og
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Flutt verða ávörp frá ungum
Sjálfstæðismönnum, Gunnari
Helgasyni, formanni Heimdall-
ar, Vilhjálmi Sigurðssyni, for-
manni Fjelags ungra Sjálf-
stæðismanna á Siglufirði, og
Magnúsi Jóiissyni frá Mel, for-
manni Varðar, fjelags ungra
Sjálfstæðismanna á Akureyri.
Ennfremur verða ýmis skemti
atriði, m. a. syngur Ólafur
Magnússon frá Mosfelli.
Að lokum verður dansað.
I sambandi við mót þetta
mun verða haldinn fundur í
Fjórðungssambandi ungra Sjálf
ááæðismanna á Norðurjandi.
Finnbjörn verð-
ur
©I
lendinganna
r
s
London í gærkveldi.
Frá frjettaritara Mbl.
Þorbirni Guðmundssyni
á Olympíuleikunum.
ÍSLENSKU íþróttamönn-
unum, sem búa í Itich-
mond Park, líður ágæt-
lega, þrátt fyrir þann ofsa
hita sem nú gengur yfir
England, Æfingar þeirra
hafa genglð að óskum og
ieg hefi ekki orðið var við
neinn glímuskjálfta þótt
keppnin nálgist óðum.
Finnbjörn hcfur ckki
verið vel góður í hnjenu
síðustu dagana, en hann
er þó ekki það slæmur að
hann þurfi að hætta við
þátttöku í þeim íþrótta-
greinum, sem hann upp-
haflega átti að taka þátt í.
Hann tók í dag þátt í æf-
ingu með fánaberum hinna
ýmsu þjóða á Wembley,
en sem kunnugt er á Finn
björn að bera fánann fyr-
ir íslenska flokknum við
setningarathöfnina á morg
Joseph Chiefley forsætisráðherra Ástralíu hefur verið á ferðalagi (
í Englandi m. a. til að ræða fólksflutninga frá Bretlancti til Ástra-
líu. Hann brá sjer til Berlínar á dögunum og sjest hjer á myndinni
(til vinstri) ásamt breskum og áströlskum liðsforingjum.
Bjarni Bjarnason
bæjarfóget! á Siglu-
DÓMSMÁI, ARÁÐUNEYTIÐ
hefir veitt Bjarna Bjarnasyni
fulltrúa borgardómara í Reykja
vík, bæjarfógetaembættið á
Siglufirði, en embætti þetta er
veitt frá 1. ágúst n.k. að telja.
Þann 20. þ. m. var umsókn-
arfrestur um embættið útrunn-
inn. Umsækjendur voru sjö fyr
ir utan Bjarna Bjarnason, og
eru þeir þessir: Bárður Jakobs-
son fulltrúi borgarfógeta, Eirík
ur Pálsson bæjarstjóri, Hafnar-
firði, Hannes Guðmundsson
fulltrúi bæjarfógetans á Siglu-
firðí, Kristján Jónsson fulltrúi
bæjarfógetans á Isafirði, Sig-
urður M. Helgason fulltrúi
bæjarfógeta á Akureyri, Unn-
steinn Beck fulltrúi borgardóm
ara og Þórólfur Ólafsson skrif-
stofustjóri ríkisskattanefndar.
sjer upp flotkví
lyrlr 1600 smálesla
| skip
, NÝSTOFNAÐ færeyskt hluta-
fjelag hefur fyrir skömmu síð-
an keypt flotkví af breska flot-
anum. Hún verður í lok þessa
már.aðar dregin til Færeyja og
^lagt á Kollafirðinum. Flotkvíin
getur lyft skipum er vega alt
1 að ca. 1600 tonn, segir í Ber-
lingske Aftenavis.
í sama blaði stendur 22. þ.m.:
Ný ski'paviðgerðastöö í Fœr-
eyjum. — A. Hpumöller verk-
fræðingur og forstjóri hjá Bur-
mester & Wain hefur heimsótt
Færeyjar til að rannsaka mögu-
leikana á að reisa togaravið-
gerðarstöð í hinni stóru fiski-
höfn Tveraa á Suderö.
í viðtali við færeysk blöð seg-
ir forstjórinn, að það sje ein-
göngu vegna frumkvæðis fær-
eyinga að þessar athuganir sjeu
gerðar. B. & W.’s segja að áhugi
á málinu sje eingöngu tæknilegs
eðlis, „þar sem við skoðum þá
tæknilegu aðstoð, er við veitum,
sem góðvilja fyrir þau verslunar
sambönd, er við sem vjelafram-
leiðendur höfum við Færeyjar."
Forstjórinn bætir því við, að
Færeyjar að hans dómi þarfnist
nýtísku stálskipaviðgerðarstöðv-
ar, og hinn tæknilega stuðning
til þess sje Burmeister & Wain
fúst til að veita.
flugskýii
Korður-Evrópu
Á NÆSTUNNI verður tekið í
notkun á Bromma-flugvelli við
Stokkhólm stærsta flugskýli í
Norður-Evrópu. 1 þessu flug-
skýli er hægt að húsa í einu
10 flugvjelar af gerðinni DC—6
(endurbætt skymastergerð) eða
4 Boeing risaflugvjelar.
Gólf skýlisins er 9,300 fer-
metrar. Segja sænsk blöð, að
aðeins eitt annað flugskýli í Ev-
rópu sje stærra. Flugskýlið er
150 metrar á breidd, 14 metra
hátt og 60 metra langt. Skýlið
er bygt úr stáli og svo að segja
alt rafsoðið á samskeytum. —
Sviar hafa í hyggju að byggja
fleiri flugskýli af þessari gerð.
Meiri mafvælafram-
feiðsia í Afríku
London í gær.
STRACHEY matvælaráðherra
Breta sagði frá því I dag, að
matvælaskorturinn í heiminum
krefðist þess, að Bretar reyndu
til hins ýtrasta að auka matvæla
framleiðsluna í nýlendum sín-
um. Hann sagði að matvæla-
ráðuneytið breska áformaði
mikla aukningu á ýmsum fæðu-
tegundum í Nigeriu og fyrsta
sporið í áttina væri að bæta járn
brautarkerfið í landinu.
— Reuter.
,,San Michele'
á arabisku
ÞRÁTT fyrir ófriðlegt ástand í
hinum nálægari Austurlöndum
hefur verið ákveðið að gefa út
bók Dr. Axels Munthe, „Bókin
um San Michaele“ á arabisku og
mun hún koma út I haust.
Þessi bók hins sænska læknis
hefur þegar verið þýdd á rúm-
lega 40 tungumál og hefur jafn-
an orðið metsölubók, þar sem
hún hefur verið gefin út. Höf-
undurinn er nú 91 árs og býr í
Konungshöllinni í Stokkhólmi,
sem gestur Gustavs Svíakon-
ungs. Hann fær stöðugt tilboð
í kvikmyndarjett að bókum hans
en hann hefur jafnan hafnað
öllum slíkum tilboðum.
Brelar ætla að al
nema skóskömtun
London í gær.
WILSON verslunarmálaráð-
herra Breta skýrði blaðamönn-
um frá því í dag, að ákveðið
hefði verið að afnema alla
skömtun á skófatnaði í Bret-
landi frá og með 1. september.
Einnig verður Ijett á skömtun
á vefnaðarvörum, svo að ekki
þarf nema 20 vefnaðarvörumiða
fyrir alfatnaði karla í stað 24
áður. Reuter.
SAMTAL við Hedtoft for-
sætisráðherra Dana. — Bls, 5.
Veiðin brást
Siglufjörður í gærkveldi.
ÞÆR VONIR sem sjómenn
höfðu gert sjer um veiði í
Hrútafirði og Miðfirði s. 1. nótt
brugðust mjög. Síldin var uppi
fram til kl. um 2 um nóttina.
Flotinn kastaði allur og fjöldi
skipa tvisvar til þrisvar sinn-
um en allt kom fyrir ekki. —•
Stærstu köstin voru um 100
mála köst.
Það var ekki rauðáta, sem
kom síldinni til að vaða, held-
ur glæráta, en hún er nokkuð
stærri en rauðáta. Sá hængur
er á glerátunni, að hún fer
miklu hraðar yfir er hún kem-
ur að yfirborðinu og því verða
síldartorfurnar svo dreyfðar
strax við yfirborðið, að lítið
fæst úr köstunum.
í fyrrinótt voru nokkur skip
í síld á Grímseyj arsundi, fengu
bau mest 250 mála köst. Einn-
ig fengu tvö skipa á Skaga-
firði síld og austur við Langa-
nes fjekk eitt skip svo stórt
kast að nótin sprakk og náð-
ust aðeins um 70 mál.
í dag hefur ekkert frjettst
til síldar. Veður er þó mjög
sæmilegt. Sjómenn vona, að
um lágnætti í nótt muni síld-
in koma upp. — Guðjón.
HerflufniRgar til
■- I
Malakkaskaga
Singapore í gærkvöldi.
TILKYNNT var í Singapore
í dag, að herflutningar yrðu
bráðlega auknir til Malakka-
skaga. Er meðal annars í ráði
að flytja hermenn þangað frá
Hongkong.
Her- og lögregla stjórnar-
valdanna á Malakkaskaga hafa
tvo undanfarna sólarhringa
haldið uppi aðgerðum gegn
skæruliðum bæði á landi og úr
lofti. Meðal manna þeirra, sem
handteknir hafa verið, eru átta
sem lögreglan hafði lýst eftir,
og þar af einn, sem grunaður
er um morð.
Skæruliðar kommúnista rjeð
ust í dag á lögreglustöð í Jo-
horeríki, en urðu að hörfa til
baka eftir hálfrar klukku-
stundar bardaga. — Reuter.