Morgunblaðið - 21.08.1948, Qupperneq 12
yEÐURtJTLITIÐ (Faxaflól):
AUSTAN og norð-austan
gola. — Urkomulaust. _____
196. tbl. — Laugardagur 21. ágúst 1948.
&
Minningarafhðfn
ígær
1 CÆR fór fram í Dómkirkjunni
að viðstöddu f jölmenm minning
arathöfn um skipverjá þá, sem
ílrukknuðu af mótorskipinu Ar-
inbirni í slysinu á Húnaflóa 7.
ágúst síðastliðinn. Sjera Garðar
Svavarsson annaðist athöfnina
og jarðsetti þá Bjarna Þorsteins
son og Harald Kjartansson,
báða frá Reykjavík, en athöfn-
in var um leið minningarguðs-
þjónusta um Birgir Guðmunds-
son frá Reykjavík og Guðjón
A tæpum tveim-
ur klst. milli
Bretlands oy
*
Islands
SEXTÁN amerískar þrýsti-
loftsflugvjelar komu við á
Keflavíkurflugvelli í gærdag á
leið sinni vestur um haf. Eru
Sigurjónsson frá Nýjabæ á
Vatnsleysuströnd.
B-mótið héfst í
gærkveldi
B-MÖTIÐ í frjálsum íþróttum
hófst á Iþróttavellinum í gær-
jkveldi. en það er mót fyrir þá,
sem ekki hafa náð 600 stigun>.i
viðkomandi greinum.
Bestum árangri í gærkvöldi
náði Reynir Sigurðsson, IR, í
hástökki. Hann stökk 1,65 m.,
sem gefur 616 stig. Annar besti
árangurinn var 1500 m. hlaup
Inga Þorsteinssonar, KR. Hann
hljóp á 4.32,5 mín., sem gefur
601 stig.
Helstu úrslit urðu annars
þessi:
100 m. hlaup: — 1. Rúnar
Bjarnason, ÍR, 12,3 sek., .2.
Þórir Bergsson, FH, 12,3 sek.,
3. Lúðvík Gissurarson, KR,
12,3 sek. og 4. Ingi Þorsteins-
son, KR, 12,4 sek.
1500 ru. hlaup: — 1. Ingi
Þorsteinsson, KR, 4.32,6 mín.,
2. Ragnar Ingólfsson KR, 4.36,0
mín., 3. Einar H. Einarsson,
KR, 4.38,2 og 4. Garðar Ingj-
aldsson, Á, 4.38,6.
Hástökk: — 1. Reynir Sig
urðsson, ÍR, 1,65 m., 2. Magn
ús Baldvinsson, IR, 1,60 m., 3.
Páll Jónsson, KR, 1,60 m. og 4.
Hihnar Ólafsson, I,R, 1,60 m.
Kringlukast: — 1. Pálí Jóns
son, KR, 35,15 m., 2. Þórður
Sigurðsson, KR, 34,48 m., 3.
Sigurjón Jónsson, Á, 31,42 m.
og 4. Þórhallur Ölafsson, IR,
30,75 m.
Mótið heldur áfram kl. 3 í
dag og verður þá keppt í 400
m. hlaupi, langstökki, spjót-
kasti og kúluvarpi.
Reynt að bæla úr
tébaksskortinum
í Breflandi
London í gær.
STJÓRNARFULLTRÚI sá,
sem fer með tóbakskaup Breta
skýrði frá því í dag, að Bretar
myndu kaupa tóbak í Indlandi
fyrir 10 miljón pund. Auk þess
yrði öll tóbaksuppskeran í
Rhodesiu keypt og mikið tóbak
frá Grikklandi. Þá verður mik-
ið tóbak flutt frá Jamaica.
Um tóbaksskortinn sagði
hann, að ef hver og einn reikti
níu sígarettur í stað hverra tíu,
sem þeir reykfa nú, væri nóg
tóbak til
þetta sömu flugvjelarnar, sem
komu hjer við fyr í sumar er
þær fóru austur ýfir haf. Vjel-
arnar voru 1 klst. og 50 mínptur
frá Stornoway á Hebridseyjum
til Keflavíkur og er það met-
hraði á leiðinni milli Bretlands-
eyja og íslands.
Flugvjelarnar lentu hjer um
kl. 11,30. Þær tóku hjer elds-
neyti og fór ‘ fyrsti hópurinn
áleiðis til Grænlands kl. 14,30,
en sá fjórði og síðasti kl. 14,57.
Gert var ráð fyrir að flugtím-
inn til Grænlands yrði 1 klst.
og 40 mínútur. Flugvjelarnar
ætluðu að hafa litla viðdvöl á
Grænlandi og halda síðan áfram
til Goosebay í Labrador.
9 fylgdarflugvjelar
í fylgd með þrýstiloftsflug-
vjelunum voru 9 flugvjelar,
sem í voru blaðamenn, vjela-
menn, varhahlutir og vistir. Sjö
fylgdarvjelanna komu við á
Keflavíkurflugvelli til að taka
bensín, en tvær flugu beint til
Grænlands.
Einhvern næstu daga er von
á bresku þrystiloftsflugvjelun-
um, sem eru nú í Grænlandi á
leið sinni frá Ameríku til Eng-
lands.
KR-ingar setja tvö
drengjamel
Á INNANFJELAGSMÓTI,
sem KR og Ármann hjeldu sam
eiginlega um síðustu helgi voru
sett tvö drengjamet.
Sigurður Björnsson, KR,
setti nýtt drengjamet í 110 m.
grindahlaupi, hljóp á 15,9 sek.
Fyrra drengjametið átti Örn
Clausen og var það 16,2 sek.
Ingi Þorsteinsson hljóp einnig
undir því meti (16,1 sek.).
Þá setti Þórður B. Sigurðs-
son drengjamet í sleggjukasti,
kastaði 41,82 m. Fyrra metið
var 41,45 m.
Sokolovsky kemur
til Berlín
Berlín í gærkvöldi.
SOKOLOVSKY marskálkur e’-
væntanlegur seint í kvöld ti'
Btírlínar frá Moskva, þar s"m
hann hefur undanfarið átt við
raður við ráðamennina
Kiemlin. Helstu pólitískir sjhr
fræðingar Rússa í Berlín hafa
þegar verið kallaðir saman á
fund, sem verður haldinn þeg
ar eftir komu marskálksim til
borgarinnar. — Reuter.
Talsverð síldveiði við
Tjörnes og út af
Skagafirði í gær
Cjösm. MSL: ól. k. MAGNÚSSON.
Miklar framkvæmdir liafa verið á Reykjaliindi undanfarin ár. Á
þessari mynd sjest stórbygging, sem verið er að ljúka. Grein um
sjötta þing S.Í.B.S. er á bls. 2.
A
Reykjarlundi
Sjómenn vongóðir um framhaldsveiði
Frá frjettaritara vorum. Siglufirði í gærkvöldi.
í DAG hefur sildveiðin verið með besta móti móti það sem af
er þessu sumri og hafa síldveiðibátar í fyrsta skipti á sumrinu
fengið síld að degi til svo einhverju nemi. í kvöld berast fregnir
um talsvert mikla síld út af Tjörnesi óg út af Skagafirði. Síldar-
leitarflugvjelar sáu fimm torfur suðaustur af Grímsey í kvöld
og voru þar 40 skip að veiðum, en sennilega mest útlendingar.
Mest allt fer í salt. *
Um 10 leytið í gærkvöldi
voru skipin farin að koma inn
til Siglufjarðar og höfðu þau
aflað frá 100 upp í 500 tunnur.
Mörg höfðu þá tilkynnt að þau
væru á leiðinni með síld í salt.
Munu skip koma í nótt með sild
til flestra eða allra söltunar-
stöðva á Norðurlandi. Vitað
vai um afla eftirtaldra skipa,
sem ýmist voru komin inn, eða
voru á leiðinni:
Víðir frá Akranesi 500 tunn-
ur, Vilborg 100, Skíði 250, ís-
björn 300, Finnbjörn 300, Sæ-
hrimnir 300, Jökull 250 og
Stjarna frá Reykjavík 300.
Ægir fann síldina við
Tjörnes.
í dag hefur verið besta veður
fyrir Norðurlandi, logn, en
nokkuð lágskýjað og gátu síld-
arleitar flugvjelar ekki leitað.
En það var varðskipið Ægir,
sem fann síldina út af Tjörnesi
og tilkynnti bátunum. Dreif
þegar að mikið af skipum þang-
að síðari hluta dags og fóru aAir
í báta.
4—5 þús. tunnur saltaðar.
í dag hafa verið saltaðar 4—5
þúsund tunnur hjer á Siglufirði
og eitthváð í öðrum söltunar-
stöðvum.
í gær voru saltaðar í Siglu-
firði 1941 tunna, en söltun hafði
fyr verið áætluð í gær 1000 tn.
Annarsstaðar á landinu nam
söltun í gær um 1000 tunnum.
Sama og engin sild hefur bor-
ist í bræðslu.
Sjómenn vonbetri.
Eftir þessa veiðihrotu eru sjó
menn nú miklu bjartsýnni en
áður um að veiðin fari að glæð-
ast og þykir einkum góðs viti,
að síldin skuli hafa komið upp
í dag og veiðst, en það hefur
ekki fyr í sumar veiðst neifi síld
að ráði nema að kvöldi eða
nóttu.
Ætlaði að komast
undan með því
að synda
MAÐUR sem bilaður er á geðs
mununum, ætlaði að komást
undan lögreglunni, eftir að
hafa gert uppistand, með því
að synda út á Rauðarárvík.
Þetta gerðist í fyrradag í
porti Landssmiðjunnar. Mað-
ur þessi hafði undanfarið dval
ið í sveit, en hönum tókst að
strjúka þaðan. 1 porti Lands-
smiðjunnar gerði maðurinn
uppistand og^var kallað á lög
regluna, sem kom innan stund
ar. Maðurinn lagði þá á flótta
og fór niður í fjöru og hóf
mikla grjóthríð að lögreglu-
mönnunum en þeim tókst að
bera af sjer grjótið og þokuðu
sjer nær manninum. þá tók
hinn bilaði maður til þess ráðs
að leggja til sunds út á Rauðar
árvíkina. Voru þá gerðar ráð-
stafanir til að ná í bát, en synti
maðurinn þá aftur til lands og
tók lögreglan hann þá.
JIREIN um sænska konim-
únista er á bls. 7.
Stofnþingi Berkla- ]
varnarsambands
Norðurlanda lokið
STOFNFUNDI Berkla-
varnarsambands' Norðurlanda
lauk í fyrradag og var þá geng
ið endanlega frá stofnun áam-
bandsins, stjórn þess kosin og
lög þess samþykkt. — Formað
ur Sambandsins er Svíinn Sig-
frid Johansson.
Berklavarnarsamband Norð
urlands mun vera fyrsta nor-
ræna sambandið, sem stofnað
er hjer á landi og því merkúr
þáttur í íjelagsmálasögu lands-
ins.
Lög sambandsins eru all ítar
leg og verður hjer ekki farið
út í að rekja einstaka liði
þeirra. — En höfuð tilgangur
þess er að koma á fót sam-
vinnu varðandi fyrirkomulag
berklavarnarmálefna hinna ein
stöku deilda á Norðurlöndum,
auk þess að bæta lífskjör og
aðstöðu meðlima sinna í lífs-
baráttunni.
í stjórn sambandsins eiga
sæti tveir fulltrúar frá hverju
landi og eiga þeir sæti í stjórn
inni, er berklavarnarsambönd-
in á hinum Norðurlöndunum
sendu hingað á stofnþingið. —•
Fulltrúar íslands eru þeir Þórð
úr Benediktsson og Ásberg Jó-
hannesson.
Á þinginu var lagt til að
næsta þing kæmi í júlímánuði
næsta ár í Stokkhólmi.
Fulltrúarnir sátu í gærkveldi
hátíðaveislu Sambands ís-
lenskra berklasjúklinga, en í
dag fara þeir heim flugleiðis.
Róttækar ráðstafanir
í Burma
BURMANSKA stjórnin er nú
að grípa til hinna róttækustu að
gerða gtígn ofbeldisflokkum
kommúnista í landinu. Var til-
kynnt í dag, að hjeðan í frá
myndu flugvjelar stjórnarinnar
vægðarlaust kasta sprengjum
og skjóta af vjelbyssum á það
landsvæði, sem ofbeldisflokk-
arnir hefðu á sínu valdi.