Morgunblaðið - 28.08.1948, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 28. ágúst 1948.]
............... —
Tarjanne, sendiherra
Finna, ánægður með
Islandsferð
P. K. TARJANNE, sendihcTra Finna á Islandi hefir dvalið
Ivjer á landi undanfarna daga, en hjelt heimleiðis til Oslo, þar
sem hann er búsettur, með flugvjel í gærmorgun. Morgunblaðið
átti stutt samtal við sendiherrann skömmu áður en hann fór af
iandi burt og spurði hann m.a. hvort korna hans til landsins að
þessu sinni hefði gengið að óskum.
,,Jeg vil gjarna nota þetta
taekifæri, sagði sendiherrann,
til að lýsa gleði minni yfir, að
;jeg fjekk tækifæri til að koma
aftur til íslands, en um leið
vefð jeg að viðurkenna, að það
liryggir mig, að dvöl mín skuli
nú senn á enda. En þótt jeg hafi
ekki tíma til að koma hingað
oft nje dvelja hjer lengi, þá er
það svo, að mig er þegar farið
að hlakka til að koma hingað
aftur i næsta skifti.
Fór til Norðurlandsins.
„Þessi koma mín hefir verið
mjer einstaklega skemmtileg.
Að þessu sinni komst jeg norður
í land og hefi kynnst fegurð
íslands, sem jeg hefi sjeð úr
flugvjel og bíl. Síldveiðiflotan
sa jeg í höfn í Siglufirði og fyr
:ir utan ströndina og síldarsölt-
un á bryggjunum. Jeg hefi skoð
að iðnaðarver og raforkustöðvar
og jeg hefi kynnst mörgum nýj-
um kunningjum og tryggt göm
ul vináttubönd. Hjeðan á jeg
góðar minningar og jeg mun
gæta þeirra vel í hjarta mínu.“
Vaxandi vinátta
Finna og íslendinga.
Mjer til gleði og ánægju hefi
jeg orðið þess vísari, að sam-
bandið milli Finnlands og ís-
lands hefir aukist að mun frá
mánuði til mánaðar og frá degi
'tií dags. Á ýmsan hátt verður
.sambandið innilegra og nánara.
Á sviði menningarmála eykst
samvinnan til gagns fyrir báða
aðila. Vonandi að viðskiptin eigi
■einnig eftir að dafna báðum til
hags. Margir hafa síðustu árin
fengið tækifæri til að kynnast
þvi með heimsóknum, að full-
yrðingar um aukna vináttu milli
þjöðanna eru ekki slagorð ein,
eða þýðingarlausar fullyrðing-
ar. Það hefi jeg sjálfur sjeð með
eigin augum og þessvegna er
það mjer mikil ánægja og heið
ur að vera fulltrúi lands m.'ns
hjá ykkur.
Kveðjur.
Jeg vil biðja blað yðar að
færa íslandi og íslensku þjóð-
inni hjartanlegustu kveðjur frá
Fínnlandi og Finnum með ósk
■«m um gæfu og gengi.
„Og má jeg að lokum geta
þess“, segir Tarjanne sendi-
herra, að í dag hefi jeg haft
þann heiður að afhenda hr.
Bjarna Benediktssyni utanríkis
ráðherra stórkrossinn af hinni
Hvítu Rós Finnlands, sem Finn
landsforseti hefir sæmt hann
fyrir þá vináttu, sem utanríkis-
ráðherrann hefir sýnt landi
voru og fyrir þann mikla þátt,
sem hann hefir átt í bróðurlegri
samvinnu milli Finnlands og ís-
lands.
Og áður en sendiherrann kveð
ur, segir hann innilega: „Við
sjáumst bráðlega aftur.
Tarjanne, sendiherra.
Rússar sðgðu nei
Vín í gærkvöldi.
VEGNA harðrar andstöðu Rússa
fjekkst ekki samþykkt í fjór-
veldaráðinu hjer í Vín í dag fyr-
ir því, að ráðstafanir yrðu gerð-
ar til þess að koma í veg fyrir,
að austurrískum borgurum væri
rænt, að þeim væri haldið í
leynifangelsum og þeir væru
sendir til annarra landa í þrælk
unarvinnu. — Breski yfirhers-
höfðinginn, Alexander Galloway
mælti eindregið með því, að sam
þykkt yrði í f jórveldaráðinu að
gera þessar ráðstafanir. Hann
sagði að það myndi efla trú
austurrískra borgara á rjettar-
fari hernaðaryfkvaldanna og
draga úr óttanum og kvíðanum,
sem ríkti meðal þeirra. — Rúss-
ar harðneituðu að gefa sam-
þykki sitt, og þess vegna varð
að vísa málinu frá. — Reuter.
Eftirlibmenn með
senditæki
Haifa í gær.
EFTIRLITSMENN Samein-
uðu þjóðanna í Palestínu hafa
tekið í notkun lítil senditæki
og komið hefur verið á.fót full-
komnu loftskeytasamb. milli
helstu varðstöðvanna í landinu.
Miðstöð þessa kerfis er í Haifa,
en þar hefur stórri útvarps-
stöð verið komið fyrir á Kar-
melfjalli. — Reuter.
Chile vill ekki
úrskurð S. Þ.
London í gær.
BANDARfKIN hafa snúið sjer
til Chilestjórnar með fyrir-
spurn um hvort hún vildi fall-
ast á að láta Sameinuðu þjóð-
irnar úrskurða hverjir skuli
fara með umboðsstjórn á Suð-
urheimsskautinu. Chile-búar
hafa svarað þessu neitandi.
—■ Reuter.
Bresku skáiarnir
senda Reykvíking-
um þakkir
BORGARSTJÓRANUM í
Reykjavík hefur borist svo-
hljóðandi brjef frá ensku skát-
unum, sem dvöldu hjer á skáta-
mótinu á dögunum:
,.Kæri herra,
Við vildum mega bera fram
við yður, sem borgarstjóra,
hjartanlegustu þakkir okkar til
íbúa Reykjavíkur fyrir alla þá
frábæru gestrisni, er við urð-
um aðnjótandi hjá þeim meðan
við dvöldum á Islandi.
Mörg okkar bjuggu hjá ís-
lenskum fjölskyldum, þar sem
við kynntumst vel heimilislífi
ykkar, og við snerum heim
hlaðnir allskonar gjöfum.
Á götunum var .fólk einnig
alltaf boðið og búið til þess að
aðstoða okkur á allan hátt, jafn
vel gekk það svo langt, að borga
fyrir okkur leigubíla, til þess
að tryggt væri, að við kæmumst
til þeirra staða, sem við ætl-
uðum okkur.
Við viljum einnig færa yður
þakkir okkar fyrir ferðina að
Álafossi, Reykjalundi og að
hvalveiðastöðinni í Hvalfirði, er
þjer buðuð okkur. Hún var
bæði mjög skemmtileg og lær-
dómsrík.
Mættum við biðja yður að
birta þetta brjef í íslensku blöð
unum og í útvarpinu, þar sem
við viljum gjarnan, -að allir
borgarar Reykjavíkur fái að
vita, hversu þakklátir við erum
ykkur öllum.
Við eigum nú, er við erum
aftur komin heim til Bretlands,
ánægjulegar endurminningar
um hið yndislega land ykkar
og um fólkið, sem byggir það,
og þær endurminningar munu
lifa í hjörtum okkar um mörg
ókomin ár“.
Brjefið er undirritað af for-
ingjum drengja- og stúlkna-
flokkanna, er sóttu Landsmót
skáta.
(Frjettatilkynning frá skrif-
stofu borgarstjórans í Rvík.
Júgósiavar mótmæla
enn
Belgrad í gærkvöldi.
UTANRlKISRÁÐHERRA Júgó
slavíu, Stanoye Simitch, afhenti
í da'g ræðismanni Ungverja í
Beigrad mótmælaorðsendingu,
þar sem mótmælt var and-júgó-
slavneskum áróðri í ungversk-
um blöðum og útvarpi. Ræðis-
maður Rúmeníu fjekk fyrir
nokkru svipaða mótmælaorð-
sendingu frá Júgóslövum.
— Reuter.
Sameining Araba-
herjanna
London í gær.
FORSÆTISRÁÐHERRA Iran
er nú kominn til Cairo til við-
ræðna við Nokrashi Pasha,
egypska forsætisráðherrann.
Munu ráðherrarnir meðal ann-
ars þegar hafa rætt möguleika
á því, að hersveitir Arabaríkj-
anna verði settar undir eina
stjórn.
Eins og skýrt var frá í gær,
hafa herir íran og Transjordan
nú verið sameinaðir. — Reuter.
Meistaramót íslands
í írjálsum íþróttum
hefst í dag
MEISTARAMÓT ÍSLANDS í frjálsum íþróttum hefst á íþrólta-
vellinum hjer i Reykjavík í dag kl. 4 e. h. Þátttakendur í mótintf
eru skráðir rúmlega 60 frá tíu íþróttafjelögum, Reykjavíkurfje-
lögunum Ármanni, ÍR og KR, og eftirtöldum utanbæjarf jelögum 2
FH í Hafnarfirði, Hjeraðssambandi Suður-Þingeyinga. íþrótta-
bandalagi Vestmannaeyja, Frjálsíþróttafjelagi Siglufjaroar, Umf,
Selfoss, Umf. Kjalarness og Skallagrími í Borgarnesi.
Vr.llarstjórn *
hindrar frestun mótsins
Til mála hafði komið að
fresta mótinu þar til n.k. mið-
vikudag og fimmtudag, en þá
verða flestir íþróttamannanna,
sem nú eru á Norðurlöndum,
komnir heim. ÍR hafði farið
fram á þessa frestun. Frjáls-
íþróttasamband íslands og í-
þróttaráð Reykjavíkur höfðu
samþykkt hana og einnig móts-
stjórnin. Þá hafði KRR einnig
samþykkt fyrir sitt leyti að láta
knattspyrnukappleik, sem heyja
á á fimmtudaginn, fara fram
annan dag. ‘ En þegar til kast-
anna kom neitaði vallarstjórnin
að breyta nokkuð til um keppn-
isdaga á vellinum, svo að íbrótta
mennirnir, sem koma heim á
þriðjudaginn, missa af mótinu.
Keppnin í dag
í dag verður keppt í 200 m
hlaupi, kúluvarpi, hástökki, 800
m hlaupi, spjótkasti, þrístökki,
5000 m. hlaupi og 400 m. grinda-
hlaupi.
í 200 m. hlaupi eru 4 keppend
ur, allir úr KR. Baráttan um
meistaratitilinn stendur þar á
milli Ásmundar Bjarnasonar og
Trausta Eyjólfssonar.
Sex keppendur eru í kúluvarpi.
Vilhjálmur Vilmundarson, KR,
hefur mesta sigurmöguleika, en
hættulegasti keppinautur hans
er fjelagi hans Friðrik Guð-
mundsson.
í hástökki eru keppendur 5.
Sigurður Friðfinnsson, FH og
Kolbeinn Kristinsson, Selfossi,
eru líklegastir til sigurs.
1800 m. er er erfitt að spá um
úrslitin. Sennilega verður þó að
alkeppnin á milli Pjeturs Einars
sonar, ÍR, Þórðar Þorgeirsson-
ar KR og Ármenninganna Harð
ar Hafliðasonar og Stefáns
Gunnarssonar.
Keppendur í spjótkasti eru 5.
Jóel Sigurðsson, ÍR, hefur þar
mesta sigurmöguleika. Keppend-
ur eru 5.
Ef Stefán Sörensson, ÍR, geng
ur heill til leiks í þrístökkinu er
hann öruggur með sigur. Þá eru
þar og meðal keppenda drengja
methafinn Guðmundur Árnason
frá Siglufirði, Óli Páll Kristjáns-
son, KR og Þorkell Jóhannesson,
FH. Keppendur eru alls 7.
Aðeins tveir eru skráðir í 5000
m. hlaupið, ÍR-ingarnir Sigur-
gisli Sigurðsson og Örn Eiðsson.
Er sorglegt hve lítil ræktar-
semi er lögð við þá grein.
í 400 m. grindahlaupi er Reyn
ir Sigurðsson, ÍR, líklegastur til
sigurs.
Á sunnudag
Mótið heldur áfram á sunnu-
dag kl. 2 e. h. Verður þá keppii
í 100 m. hlaupi, stangarstökki^
kringlukasti, 400 m. hlaupi, lang
stökki, sleggjukasti, 1500 rn«
hlaupi og 110 m. grindahlaupi,
— Á mánudag verður keppt 1
4x100 m. boðhlaupi og 4x400 m,
boðhlaupi, en á þriðjuöag 1
fimmtarþraut.
DRENGJA-
MEISTARAMÓTIÐ
Einnig hefst Drengjameistaraí
mót íslands á mánudagskvöldi3
kl. 7 e. h. og heldur það áfrarnj
á þriðjudag á sama tima. Þátt-
taka í því er mjög mikil. Kepp-
endur eru 86 frá 14 íþróttafje*
lögum. Undankeppni í 100 m,
hlaupi, kúluvarpi, kringlukasti!
og langstökki fer fram á sunnu-
dag að meistaramótinu loknu,
— Þ4
Viija ekki yfirráð |
ilala
Tripoli í gærkvöldí,
TVEIR stærstu. stjórnmálaf’okld
arnir ’i Tripolitaníu afhentu I
dag sendiherra Bandaríkjanna 3
Tripoli mótmæli gegn. ummæl-
um Dewey, forsetaefnis repu-
blikana, en hann sagði nýleg^
að ítalir skyldu hafa á hendl
umboðsstjórn yfir þeim nýlend-
um, er áður hefðu tilheyrt þeim,
— Reuter,
Dómsuppkvaðningu
fresfað
Nurnberg í gær,
OPINBERLEGA var tilkynnC
hjer í Nurnberg í dag, að dóm-
ur yfir tólf fyrverandi þýskura
hershöfðingjum og einum fiota-
foringja yrði ekki kveðinn uppí
þar til í lok þessa mánaðar. Áð-
ur hafði verið gert ráð fyrir aði
dómurinn yrði kveðinn upp 1
dag. — Reuter.
Heldur að það verði
sríð
Bulawayo í S.-Rodesíu í gær,
FORSÆTISRÁÐHERRA Suðud
Rodesíu sagði í dag í ræðu, a<*
vel gæti verið, að stríð myndl
brjótast út í Evrópu innan mán-
aðar. Var þetta í viðræðum |
þinginu um væntanlegar kosn-
ingar, sem andstæðingar stjórn-
arinnar hafa knúið fram.
— ReutaC,