Morgunblaðið - 05.09.1948, Blaðsíða 2
2
MORGUN BLAÐIÐ
Enskt raexmtaíólk víbxiiix oi
rannsóknum á Sólheimajökli
í NÆR tvo mánuði hefur sex
manna flokkur mentafólks frá
Englandi verið við rannsóknir
á Sóiheimajökli. Upphaf þessa
máls er að síðustu tvo áratugi
hafa þeir Jón Eyþórsson og
Steinþór heitinn Sigurðsson
haft með höndum athuganir á
Mýrdalsjökli. Hafði Steinþór
lokíð að gera uppdrátt af há-
jöklinum, en tvö meginverk-
•efni voru eftir, það er að rann-
saka skriðjöklana miklu, sem
út frá Mýrdalsjökli ganga,
Sólheimajökul til suðvesturs
og Kötlujökul til austurs.
Snemma í vor skrifaði menta-
íólk þetta til Jóns Eyþórssonar
og sagði frá því, að'það langaði
að fara til Islands til náttúru-
rannsókna og vildi vita, hvort
það gæti ekki orðið að ein-
hverju' liði íslenskum náttúru-
vísindum. Varð það úr, að þau
skyldu kortleggja og rannsaka
á annan hátt Sólheimajökul.
Komu þau til landsins
snemma í júlímánuði og voru
sex talsins: Tvær stúlkur, Joan
Sutton, sem einkum gerði at-
huganir á krystallamyndun í
ísnum, Mary Mc Donald veður-
íræðingur, og fjórir karlmenn,
Ronald Jarvis grasafræðingur,
Hal Lister jarðfræðingur, Ian
Paterson, sem kynnir sjer hreyf
ingar jökla og Roy Walker,
sem athugaði leirmagn jökul-
vatnsins. Öll unnu þau svo í
sameiningu undir stjórn Jóns
Eyþórssonar að því að kort-
lcggja jökulinn.
Þegar jeg hitti þau fyrir
skömmu barst talið fljótt að
jöltlarannsóknunum.
Jöklar á norðurhveli jarðar
að minka.
— Á síðustu áratugum hafa
allir jöklar á norðurhveli jarð-
'ar verið að minka og rannsókn-
ir á því fyrirbrigði eru mjög
þýðmgarmiklar meðal annars
til skilningsauka á ísöldinni
miklp.
— Hver haldið þið að sje
ástæj’ían til að jöklar færast
samah?
— Það er auðvitað hlýrri
veðrátta. Hjer á íslandi veldur
mestu, að golfstraumurinn er
sterkari, svo hafvindar
koma hlýrri inn yfir landið.
Samanburður á uppdráttum.
— Síðasti uppdráttur af Sól-
heimajökli var gerður 1907 af
danska herforingjaráðinu.
Hann er nú orðinn úreltur, svo
mikifð héfir jökullinn breýst.
Uppdrátturinn og mælingarnar
1907,liafa samt mikla þýðingu.
Meðjsðmanburði við uppdrátt-
:inn, fem við vinnum að nú, má
glögglega sjá hversu jökullinn
hefit; minkað. Og breytingin er
mikil, bæði hafa jökultungurn-
ar dregist saman og jökullinn í
heild þyr.nst og lækkað. Þá eru
ákaflega mikilsverðar mæli-
stikur, sem Jón Eyþórsson
kom.fytir 1930. Með rannsókn-
um á merkjum þessum nú, kem
ur í Ijás, að jökultungan þar
hefir styttst um heilan kíló-
roete;- á 18 árum. — Þann tíma
sern við vorum fyrir austan í
LJÓSM. MBL: ÓL- K. MARNUBSON
Jöklarannsóknarflokkurinn. Standandi talið frá vinstri: Ronald
Jarvis, Ian Paterson, Hal Lister. Sitjandi: Joan Stutton, Mary
McDonald og Roy Walker.
Jökullinn hefur dregist
mikið saman á síðustu
áratugum
1 mældum við styttingu tungunn
I ar í ágústmánuði og nam hún
rúmlega hálfum meter. Þá er
vert að minnast á lónið, sem
sýnt er á korti herforingjaráðs-
ins fyrir vestan skriðjökulinn.
Þetta lón er ekki lengur til, held
ur hefur vatnið sprengt sjer
göng jundir jökultunguna ;og
spýtist þar útundan brúninni
með miklu afli- Þar skammt frá
í Hvítmögu, höfðum við tjald-
búðir um tíma og stöðugt heyrð
ust brestir innan úr göngunum,
líkt og fallbyssuskot. Mun það
vera þegar klakastykki brotna
í göngunum úr veggjum og lofti
og kastast síðan fram með dun-
um og dynkjum. '
Mikið grugg í vatninu.
— Þarna fyrir framan er áin
gruggug og Roy Walker gerði
nokkrar mælingar á leirinni-
haldi vatnsins. Oftast var það
15 mgr. en oft upp í 20 mgr.
í einum líter. Leirinn er mjög
fínn og hefur þarna alveg sam-
lagast vatninu. Framar á sand-
inum, þar sem fljótið er straum
minna sest hann tif botns og
myndar smátt og smátt eýrar
og eyjar, sem breyta framrás
fljótsins.
— Settuð þið ekki upp merki
á jöklinum, sem kom að gagni
fyrir rannsóknir í framtíðinni?
Hal Lister, jarðfræðingur-
inn, verður fyrir svörum: Jú,
við settum upp merki, bæði
neðst og efst í jöklinum. Auk
þess fengum við æfingu í að
rannsaka árleg viðbótarlög,
með því að grafa holur í jökul-
breiðuna. Þá má sjá eins og
árshringi í ísnum.
Hekluaskan hefur fokið burt.
— Fannst þá ekki lag af
Hekluösku í ísnum.
— Nei, það fundum við ekki
í ísbreiðunni. Virtist svo sem
ösku fundum við niðri í djúpum
sprungum, þar sem vindurinn
hefur ekki náð til hennar. Eðli-
legt er, að askan hafi fokið
burt, það fund.um við best, því
að oft hvesti hranalega þarna
uppi. Það má sjá mörg verks-
ummerki vindanna á jöklinum.
Hann hefur barið fönnina sam-
an í gára og rofið í hana marg-
vislegar kynjamyndaðar rákir.
Sprungurnar illar yfirferðar.
— Er jökullinn þá ekki illur
yfirferðar?
— Það er misjafnt. Sums
staðar, einkum á hájöklinum er
sljett og greiðfært. Verri er
skriðjökullinn sjálfur og brún-
irnar. Þar eru það jökulsprung-
urnar, sem eru illar yfirferðar,
þar sem jökulbreiðan brotnar
í sundur á fjallsbrúninni. —
Og það er vert að minnast á
það, að í einni slíkri sprungu,
nokkuð innarlega á jöklinum
lagði heita gufu upp. Það bend-
ir til þess, að þar undir sjeu
hverir.
Hverasvæði undir jöklinum.
— Haldið þið þá, að hvera-
svæði sje undir jöklinum?
— Það er vafalaust og til þess
bendir ólyktin af Fúlalæk. Þá
er athugunarvert, að vatniö sem
lcemur undan jöklinum er ef til
vi!l ekki allt komið frá bráðn-
um ís, heldur getur nolckur hluti
þess, að vísu ekki nema lítið,
eins vel verið komið upp úr jörð-
inni. Slíkur jarðhiti hlýtur og
að valda meiri jökulbráðnun en
veðráttan gefur tilefni til.
Gróðurinn vinnur á.
— Er landið næst jöklinum
ekki gróðurlaust?
— Nú verður fyrir' svörum
grasafræðingurinn Ronald Jar-
vis. — Ekki svo mjög lítill gróð-
ur, segir hann. Einkurn veitti
askan hr.fi fokið burt. En Heklu ! Frh. á bls. 8.
Sunnudagur 5. sept. 1948. '
©rseti Isknds opnar
sýningnna
/
NORRÆNA listsýningin var opnuð kl. 2 e. h. í gær í Listamanna-
skálanum að viðstöddu miklu fjölmenni. — Formaður Bandalags!
íslenslcra listamanna, Jón Þorleifsson, tók fyrstur til máls.
Ræða hans var svohljóðandi:
Herra forseti!
Fulltrúar Norðurlanda og
aðrir gestir!
í nafni Fjelags islenskra
myndistarmanna leyfi jeg mjer
að bjóða ykkur öll velkomin, til
að vera viðstödd þegar forseti
íslands, herra Sveinn Björns-
son, opnar þessa sýningu Nor-
ræna listbandalagsins — sem
ísland er einnig aðilji að, ásamt
hinum 4 Norðurlöndum.
En þar sem húsrúm er lítið
ákváðum við að íslenskir lista-
menn yrðu ekki með á þessari
sýningu, svo við gætum sjeð
því meira frá hinum fjórum
löndunum. Málverkin verða til
sýnis til 19. september og svo
opnar önnur sýning 23. s. m. af
höggmyndum og svartlist og
henni lýkur 10. október.
Norrænu fulltrúunum, sem
hjer eru mættir þeim Erik
Struckmann, Henning Peter-
sen, frá Danmörku, William
Lönnberg frá Finnlandi, Axel
Revold frá Noregi og Lasse
Johnson frá Svíþjóð þakka jeg
hjartanlega fyrir þeirra mikla
starf jvið að safna myndunum
í heimalöndunum og koma
þeim fyrir í sýningarhúsinu og
vona jeg að þessi ágæta sýn-
ing verði öllum til ánægju. Og
það líði ekki alltof langur tími,
þar til við getum aftur tekið á
móti listsýningu frá bræðra-
þjóðunum.
Loks þakka jeg forseta ís-
lands, herra Sveini Björnssyni,
fyrir þann mikla heiður sem
Norræna listbandalaginu er
sýndur með því að hann opnar
þessa fyrstu sýningu þess hjer
á landi.
Þá tók til máls forseti íslands
hr. Sveinn Björnsson og mælti
á þessa leið:
— Reykvikingum og öðrum
íslendingum gefst sjaldan tæki-
færi til að sjá myndlist annara
þjóða. Það er mjer því sjer-
stakt ánægjuefni, að opna þá
sýningu, sem hjer er að hefjast.
Jeg þykist vita, að sýning þessi
er vel undirbúin og hjer gefist
almenningi því kostur á, að sjá
nokkrar góðar myndir frá
frændþjóðum okkar Hjer fáum
við sjerstakt tækifæri til að
gera samanburð á list þeirra og
okkar.
Síðan beindi hann nokkrum
orðum til hinna erlendu full-
trúa og þakkaði þeim undir-
búningsstarf þeirra. Ennfremur
sagði hann: Sýning þess, sem
hjer verður haldin er vottur
um lífsþrótt þann, sem er í
samvinnu Norðurlandaþjóð-
anna. Liðin eru þrjú ár síðan
styrjöldinni lauk, og sú sam-
vinna gat hafist að nýju. En
þetta er þriðja sameiginlega
listsýningin, sem norrænu þjóð
irnar halda.
Þetta er mjer og sjerstakt
ánægjuefni. Því það er mín
persónulega skoðun, að nor-
ræn samvinna eigi mikið hlut-
verk að vinna og við íslend-
ingar eigum eftir fremsta
megni að taka þátt í henni. Að
svo mæltu lýsti hann sýning-
una opnaða.
Er forsetinn hafið lokið máli
sínu mælti Erik Struckmann
nokkur orð.
Hann þakkaði fyrir höndl
samstarfsmanna sinna þær á-
gætu viðtökur, sem þeir hefðu
fengið síðan þeir komu hingað,
og hinn góða stuðning, sem
þeir hefðu notið, við undirbún-
ing sýningarinnar.
Frá þeirra sjónarmiði, sagði
hann, er það helsti ágallinn á
sýningu þessari, að íslenskir
listamenn skyldu ekki hafa get:
að tekio þátt í henni. En hann
vonaðist eftir, að þátttaka ís-
lenskra listamanna gæti orðið
sem mest á næstu sýningu Nor-
ræna listabandalagsins, sem
ráðgerð er í maí næstk. í Kaup-
mannahöfn.
Ninninprguðs!i|ónusSa
að Nöðruvölbm
SlÐASTLIÐINN sunnudag
var haldin fjölsó 1: iiátíðarguðs
þjónusta í Möðruvallakirltju S
Hörgárdal og minnst aldaraf-
mælis fyrsta organista kirkj-
unnar, Ólafs l'ryggva Jónsson
ar bónda i DagverSartungu, eix
’nann ljek fy ’st á orgelið í kirkj
unni haustið '876.
Synir Clafs, Ólafur bóndi i
Dagverðartungu og Jón Ólafs-
son bifreiðacftirlitsmaður I
Reykjavík, færðu kirkjunm að
gjöf 6 þús. krónur við þetta
tækifæri til minningar um foÖ
ur sinn og sonarson hans, Gísls
Ólafsson, sem einnig var orgaig
isti í kirkjunni. Hdnn Ijest fjil
ir tveimur áru:n.
Skal fje þetta lagt í sjóð etf
verði notaður til eflingar kirkjn
söng og beri nafnið „Minningad
sjóður Möðruvallaklausturs-
kirkju“. — H. Vald.
Ofbeldisfiokkar slífa
sfmalínur
RITSÍMASAMBANDTD mill?
Kuala Lumpúr og norðurhjer-
aða Malakkaskaga hefur rofn-
að. Er talið, að ofbeldisflokkar1,
kommúnista á skaganum haff
slitið ritsímalínurnar.
Nú eru þeir kærðir fyrlr
föðurlandssvik.
PRAG — Tjekkneska stjórnini
hefur lýst því yfir, að VladimaP
Krajina og Prokop Dritina munjj
verða dregnir fyrir rjett fyrip
föourlandssvik. Krajina var íi
styrjaldarárunum yfirmaður ancl
stöðuhreyfingarinnar gegn nasisii
um, en Dritina er fyrverandj
dómsmálaráðlierra og góðvinuxj
Benes, fyrverandi forseta. j