Morgunblaðið - 05.09.1948, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 05.09.1948, Qupperneq 3
Sunnudagur 5 sept. 1948. MORSVISBLAÐI9 n Glæsileg húsakynni lána- stofnunnar elsta atvinnu- vegar þjóðarinnar BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS flutti í gærmorgun í hin nýiu húsakynni sín við Austurstræti 5. Má óhikað fullyrða að þau eru hin glæsilegustu og smekk- legustu, er nokkur opinber stofn- un hjer á landi starfar í. Ber aðalafgreiðslusalur bankans mjög fagran og listrænan svip án þess þó að óhóflegs íburðar gæti þar nokkursstaðar. í tilefni af flutningi bankans í hin nýju húsakynni hafði bankastjórn hans boð inni fyrir ríkisstjórnina, blaðamenn og fleiri gesti kl. 3 í gær. Var gest unum sýnd byggingin og Hilm- ar Stefánsson bankastjóri flutti stutia ræðu um þróun stofnun- arinnar og byggingarasögu hinna nýju húsakynna hennar. Stofnaður 1939 Hann gat þess ’í upphafi að Búnaðarbankinn væri stofnað- ur með lögum frá Alþingi þann 14. júní 1929. En vorið 1930 hefði bankinn í fyrsta sinn opn- að sjerstaka afgreiðslu í skrif- stofuhúsi ríkisins í Arnarhvöli. Árið 1937 hefði bankinn svo flutt í húsið nr. 9 við Austur- stræti og hefði hann því verið þar í tæp 11 ár. En á þeim tíma hefði starfsemi bankans aukist mjög. Þess hefði ekki verið kostur að fá þessi húsa- kynni leigð áfram og hefði bank inn því keypt lóðina Austur- stræti 5 og Hafnarstræti 6 af Háskóla íslands hinn 21. janúar 1944. Mjög bráðlega eftir það hefði verið hafist hahda um und irbúning nýrrar byggingar fyr- ir bankann á þessari lóð. Þann 25. júlí 1945 hófst svo vinna við sjálfa bygginguna og hefði smíði hennar þv'i tekið tæp 3 ár. Ur ræðu Hilmars Stef- ánssonar bankastjóra við opnun hinna nýju húsa- kynna Búnaðarbankans Lýsing hússins Um stærð byggingarinnar og fyrirkomulag fórust bankastjór- anum orð á þessa leið: „Húsið er að stærð 360 fer- metrar og 8135 teningsmetrar. — Það er kjallari, f jórar heilar hæðir, fimmta inndregin og loks rishæð. Bankinn hefur til sinna afnota, kjallarann, fyrstu hæð og aðra hæð að mestu leyti. — í kjallara eru skjalageymslur, geymsluhólfadeild með 100v geymsluhólfum, kaffistofa fyrir starfsfólk bankans, klefar fyrir upphitunarvjelar hússins og snyrtiklefar. Á fyrstu hæð er af ■ greiðslusalur bankans, aðalbók- hald og snyrtiklefar. — Á ann- ari hæð er fundarherbergi bankaráðs, viðtalsherb. banka- stjóra, herbergi fyrir formann bankaráðs, lögfræðing og end- urskoðun. Auk þess biðstofa fyrir viðskiftamenn. Þá eru og á þessari hæð Teiknistofa land- búnaðarins, landnámsstjóri og skrifstofur nýbýlastjórnar. — í rishæð hússins er íbúð húsvarð- ar. Að öðru leyti er húsið alt leigt. Þar á meðal ýmsum opin- berum skrifstofum, svo sem Framleiðsluráði landbúnaðarins, Stjettasambandi bænda, sand- græðslustjóra, tollstjóra, aðal- endurskoðun ríkissjóðs og fl. — Nýja Búnað; Flutt er fyrir all löngu síðan í allt hið leigða af húsinu. Fyrst- ur flutti húsvörður, seint á s.l. ári, og síðan leigjendur hver af öðrum. Vandaður frágangur — veggskreyting. Teikningar af húsinu hefir hr. húsameistari Gunnlaugur Halldórsson gert, og hefir hann haft yfirumsjón og eftirlit með smíði þess, og loks haft hönd í bagga með útvegun á mjög miklu af því, sem til hússins hefir þurft. — Yfirsmiður er hr. Jón Bergsteinsson, múrara- meistari. Utlit, gerð og frágang ur sjálfs hússins, innan sem ut- an, er fyrst og fremst verk þess ara manna. Frá bankans hendi hefir hr. aðalbókari bankans Haukur Þorleifsson, fyrst og fremst verið þessum mönnum til hjálpar og aðstoðar. — Teikn ingar af afgreiðsluborði og hús gögnum, uppi og niðri, hefir hr. húsameistari Skarphjeðinn Jó- hannsson gert eða sjeð um að gerðar væru í Danmörku. Af- greiðsluborð og húsgögn, sem öll eru af vönduðustu gerð, eru smíðuð af mikilli vandvirkni og hagleik hjá hr. húsgagna- smíðameistara Friðrik Þor- steinssyni. — Járnteikningar hefir gert hr. bæjarverkfrðeð- ingur Bolli Thoroddsen. Raf- lagnir hefir teiknaðihr. raf- veitustjóri Valgarð Thörodd- sen. Hitalögn hefir teiknað hr. Gísli Halldórsson, verkfræðing- ur. Hr. Þorlákur Jónsson, raf- virkjameistari hefir sjeð um allar raflagnir og hr. Grímur Bjarnason, pípulagningameist- ar um röralagningar og upp- setningu hreinlætistækja. — Málningu utanhúss og að inn- an á kjallara, fyrstu og aðra hæð hefir hr. málarameistari Jóhann Sigurðsson gert. En inn- anhússmálningu á þremur efri hæðum og rishæð hefir hr. Kjartan Karlsson, málarameist- ari, og fjelagar hans gert. — Frh. á bls. 8. Kosningabaráttan í Bandaríkjunum hefst 6. september Ymsar skýringar á kosningaiyrirkomu- lagi Bandaríkjanna. Eftir SCOTT RANKINE, frjettaritara Reuters. ÞRIÐJUDAGINN 2. nóvem- ber 1948 verður flestum verk- smiðjum, verslunum og veit- ingahúsum lokað um gjörvöll Bandaríkin. Hinsvegar verða ýmsar skóla byggingar og skrifstofuhús op- in frá morgni til kvölds í sjer stökum tilgangi. Þarna mega um 90 miljónir Bandaríkjamanna, sem kosn- ingarjett hafa greiða atkvæði um: 1. Forseta Bandríkjanna. 2. Varaforseta Bandaríkj- anna. 3. Ríkisstjórn hinna ýmsu ríkja. 4. 435 þingmenn til fulltrúa- deildarin'nar. 5. Þriðja hlutann af 96 full- trúum til öldungadeildarinnar. Þótt 90 miljónir manna sjeu á kjörskrá er varla búist við að meira en 50 eða 60 milljónir, neyti kosningarrjettar síns. Kosningavjel eða kross. Eftir því, sem lögum hvers ríkis er háttað greiða kjósend- ur atkvæði annað hvort með því að ýta á sjerstaka takka á kosningavjelunum, sem síðan telja atkvæðin sjálfkrafa, eða þá, að gamla aðferðin er við- höfð, að krossa við lista sinn, brjóta miðann saman og leggja hann í atkvæðakassann. Mesta athygli vekur auðvit- að forsetakjörið, en kosningin á öldungadeildarþingmönnun- um er fullt eins þýðingarmikil, því að til þess, að stjórn Banda- ríkjanna sje sterk, þarf forset- inn að hafa stuðning meirihluta þingsins. Forsetinn er ekki kosinn bein um kosningum, heldur eru kosn ir svonefndir kjörmenn, viss fjöldi fyrir hvert ríki og síðan kjósa þeir forsetann. Oll framboð kjörmanna er þegar búið að ákveða. Var það gert á hinum ýmsu flokksþing- um í sumar. Frambjóðendur fyrir vínbann og náttúrulækningar. Margir kjörmenn hafa enga von til að ná kosningu, en þeir standa þó sem fulltrúar ein- hverra stefnumála, sem þeim finnst stóru flokkarnir ekki gefa nægan gaum. Sem dæmi má taka Norman Thomas, sem ár eftir ár hefur boðið sig fram fyrir aukna þjóðnýtingu án þess að vera kommúnisti. Einnig eru til frambjóðendur, sem hafa það að aðalmarkmiði að berj- ast fyrir vínbanni og fyrir nátt- úrulækningum. Stærstur af smáflokkunum er nú þriðji flokkurinn, flokk- ur Henry Wallace, en Wallace var varaforseti fyrir Roosevelt frá 1940—1944. Stjórnmálafer- ill hans er í stuttu máli þessi: Hann var fyrst republikani, skipti um skoðup og varð demó- krati, aftur skipti hann um skoðun og myndaði sinn eiginn flokk. Kommúnistaflokkurinn hefur lýst því yfir, að hann styðji Wallace. § Tveir þeir stóru. Aðalbaráttan 2. nóvember, verður samt á milli Thomas E. Dewey, ríkisstjóra New York ríkis, forsetaefnis republikana og Harry S. Truman, núverandi forseta, forsetaefnis demókrata. Vegna kjörmannaskipulags- ins er ekki víst, að sá þeirra nái kosningu, sem mest at- kvæðamagn hefur að baki sjer. Hvert ríki Bandaríkjanna hefur vissan fjölda kjörmanna og sá framboðslistinn sem flest hlýtur atkvæðin hlýtur alla kjörmenn í því ríki. Þannig skiptir til dæmis engu máli, hvort stuðningslisti Dewey, við skulum segja í Illinois fær 51%’ atkvæða eða 90%. Hann fær alla kjörmennina, í þessu til- felli 28. Þessu kjörmanna skipulagi var komið á þegar á 18 öld af semjendum stjórnarskrárinnar. Var það gert til þess að tryggja rjett mannfæstu ríkjanna. Um að gera að vinna aðalríkin. En afleiðing þess verður f raun og veru, að forsetaefnin beita öllum kröftum sínum til að sigra í nokkrum aðalríkjum, svo sem New York með 47 kjör- mönnum, Pennsylvania með 35, Illinois með 28 og Kalifornía og Ohio hvort um sig með 25 kjörmönnum. Bardaginn í þessum ríkjum er alltaf harður og oft má varla á milli sjá, en þó ekki væri nema eitt atkvæði framyfir hinn aðilann, gefur það alla kjörmennina. Lotan byrjar 6. september. Formlega byrjar kosninga- baráttan með verkamannadeg- inum 6. september. Forsetaefnin fara um Banda- ríkin þver og endilöng í einka- járnbrautarlestum. Heimsækja hvert ríki og í fylgdarliði þeirra verða stórir hópar blaðamanna, útvarpsmanna, manna sem skrifa pólitískar ræður, kosn- ingaskipuleggjenda og áróðurs manna. Allir munu eiga heima í járnbrautarlestinni, svo vik- um skiptir, sofa þar, borða, skrifa og starfa. Mikil áreynsla. Litlum ræðupöllum verður komið fyrir við járribrautarlín- una og þar flytja forsetaefnin ræður til bændanna, sem þar hafa safnast saman. En meiri athygli munu vekja ræðurnar, sem fluttar verða í stórum sam- Frh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.