Morgunblaðið - 18.09.1948, Blaðsíða 1
16 síður
220. tbl. — Laugardagur 18. september 1948.
Prentsmiðja Morgunblaðslnl
MorS sænska friðarvánarins
vekur hrylling og viðbjóð
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
FREGNIN um víg Folke Berna-
dotte hefur að vonum vakið
geysimikla athygli um heim all
an. Fjöldi hcimsþekktra manna
hefur þegar látið í ljós viðbjóð
sinn á verknaðinum, enda þótt
enginn rhafi enn sagt opinber-
lega skoðun sína á því,
hvað. morðið muni hafa í för
með sjer í Palestínu og annars*-
staðar. Hjer fara á eftir skeyti
frá frjettamönnum Reuters í
ýmsum höfuðborgum:
STOKKHÓLMUK: — Þulur
sænska útvarpsins var sýnilega
í mikilli geðshræringu, er hann
tilkynnti lát Bernadotte greifa.
Almenningur á götum úti var
sem þrumu lostinn. Útvarpsdag
skráin er í kvöld helguð Berna-
dotte.
WASHINGTON: Marshall ut-
anríkisráðherra var að snæða
hádegisverð með utanríkisráð-
herra Hoilands, er fregnin um
morðið barst honum. Hann lýsti
morðinu sem „hryllilegum og
sorglegum viðburði". „Öll ver-
öldin mun sakna hans,“ bætti
hann við.
KAUPMANNAHÖFN: — Hans
Hedtoft, forsætisráðherra Dan-
merkur, lýsti í kvöld láti Berna
dotte sem „ógurlegu áfalli“.
HAAG: Willem Dreas, forsætis-
ráðherra Hollands, lýsti yfir
viðbióði sínum á verknaðinum.
Hann kvað fregnina ekki síst
hafa mikil áhrif á sig, er hann
mintist alls þess, sem Berna-
dotte hefð'i þegar gert til að
varðveita friðinn í heiminum.
LONDON: Sir Alan Cunning-
ham, síðasti landstjóri Breta í
Palestínp, kallaði atburðinn
hryllilegan ‘ og viðbjóðslegan.
„Þetta getur á engan hátt haft
gott í för með sjer fyrir Pale-
stínu“, bætti hann við.
Sir Rönald Stoors, fyrver-
andi borgarstjóri í Jerúsalem:
„Bernadotte greifi hefur leyst
óumræðilega erfitt verkefni af
höndum með sjerstakri þolin-
mæði og hugkvæmni. Hann
hefur áunnið sjer fylgi allra
rjettlátra manna, hvorn deilu-
aðilann sem þeir studdu.“
PARÍS: Franska utanríkisráðu
neytið lagði áherslu á, að morð
Bernadotte mundi gera öllum
ljóst, hversu bráðnauðsynlegt
það sje að finna einhverja
lausn á Palestínudeilunni.
CAIRO: í Cairo eru menn al-
mennt þeirrar skoðunar. að
morðið muni hafa mikil áhrif
á framtíð Palestínu. Allir eru
sammála um, að vígið hafi ver-
ið vandlega undirbúið.
Fám Sameinuðu þjóð-
unuu í húliri stöng
I Furis
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
IIIÐ BLAA OG HVÍTA FLAGG SAMEINUÐU ÞJOÐANNA,
sem blakt hefur yfir Palais de Chaillot undanfarna daga,
var í dag dregið í hálfa stöng, strax eftir að frjettst hafði um
morð Bernadotte greifa. Skömmu seinna var boðað til skýndi-
fundar í Óryggisráði, en sá fundur hefst klukkan þrjú eftir
hádegi á morgun (laugardag). Trygve Lie, sem staddur er í
Noregi, hefur ákveðið að halda þegar í stað til Parísar.
Fregnin berst.
Sameinuðu þjóðunum barst
fregnin um morð Bernadotte
skömmu eftir kl. 5. Starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna í París
settu sig þegar í stað í síma-
samband við Lie, en Arkadi
Sobolew, aðstoðar aðalritari
S. Þ., sendi dr. Ralph Bunche,
aðalráðgjafa Bernadotte í Pale
stínu, fyrirmæli um að taka við
stjórn málanna þar í landi. —
Hann símaði og Aage Lund-
(Framh. á 2. síðu)
Bernadotfe
r
Sáttasémjari S.þ. í Palestínu
var myrtur í gær- Hann hef-
ur um langt skeið verið þekkt
ur fyrir friðar- og mannúðar-
starf sitt.
Yfirmaður hersveit-
anna í Transjordan
GRUB PASHA, yfirmaður
hersveitanna í Transjordan,
fór í dag flugleiðis frá London,
til þess að taka við skyldu-
störfum sínum á ný. — Reuter.
Tilræðismennirnir
tnldir tilheyrn Stern-
ónldarflokki Gyðinga
;
1
Franskur höfuðsmaður fjell einnig fyrir
kúlum morðingjanna, en þeir
komusf undan
Jerúsalem í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FOLKE BERNADOTTE greifi var í dag skotinn til bana í
Jerúsalem. Tilræðismenn hans, sem voru f jórir, komust und-
an, en Andre Serot höfuðsmaður, einn af aðstoðarmönnum
Bernadotte, fjell einnig fyrir kúlum þeirra. Fyrsta fregnin
af árásinni baifst frá John MacDonald aðalræðismanni Banda-
ríkjanna í Jerúsalem, til utanríkisráðuneytisins í Washing-
ton. Hún var á þessa leið: „Mjer þvkir leitt að þurfa að til-
kynna, að Bernadotte greifi og Serot höfuðsmaður voru
drepnir hjer kl. 17 eftir Palestínutíma. Talið er að morðingj-
arnir sjeu meðlimir Stern-óaldarflokksins.“ — Lík hinna
myrtu liggja nú uppi í einu af sjúkrahúsum Gyðinga í Jerú-
salem.
Níu ríki greiða íslandi
7,5 milj. kr. fyrir
veitta flugþjónustu
jeppa.
Samkvæmt frásögn banda-
ríska ræðismannsins, skeði of-
angreindur atburður skömmu
eftir að Bernadotte og föru-
neyti hans hafði ekið inn í eitt
af hverfum þeim, sem Gyðing-
ar ráða yfir í Jerúsalem. Bílar
Bernadotte voru skammt komn-
ir, er jeppabifreið ók skyndi-
lega í veg fyrir þá og nam stað-
ar á miðjum veginum.
Framvegis fáum við auk þess greifi
82,5 prst. ai flugþjénustukostnaði
Tveir frömdu verknaðinn.
í jeppanum voru fjórir menn.
Tveir þeirra stigu út úr jepp-
Framh. á bls. 12.
SAMNINGUR um þátttöku annc. ’a ríkja í greiðslu á flugþjón-
ustukostnaði íslands hefur nú verii undirritaður. -— Samkvæmt
samningnum fær Island 7,5 milj. kr. fyrir tímabilið frá miðju
ári 1946 til 1. janúar 1949. Auk þess 82,5% af heildarkostnaði
flugþjónustu'nnar eftir l. jan. 1949.
Utanríkisráðuneytið. birti Ú
gærkveldi frjettadálk um samn
ing þennan og er hann svo-
hljóðandi:
Formaður flugráðs
undirritar samninginn.
Svo sem áður hefur verið frá
skýrt í blöðum og útvarpi hef-
ur um langt skeið verið að því
unnið, að ísland fengi greidd-
an kostnað við þjónustu sína í
þágu flugmála á Norður-At-
lantshafi og hefur formaður
flugráðs, Agnar Kofoed-Han-
sen, nú undirritað samning um
mál þetta fyrir íslands hönd í
Montreal. Hinn 26. júní s. 1.
Framh. á bls. 2.
Bresk vörusýning
opnuðí Kaup-
mannahöfn
London í gærkveldi.
STÆRSTA breska vörusýn-
ingin, sem haldin hefur verið
utan Bretlands, verður opnuð í
Kaupmannahöfn á morgun
(laugardag). Friðrik Danakon-
ungur verður viðstaddur opn-
un sýningarinnar, ásamt hertog
anum af Glaucester, sem verð-
Ur fulltt'úi Bretakonungs.
—Reuter.
-Ábis.2-
Stutt lýsing á æfi-
ferli Bernadotte
greifa, þar sem sjer-
stök áhersla er lögð
á friðarstarf hans í
Palestínu, er á bls.
2. Greinin er eftir
Dan Campell frjetia
ritara Reuters, sem
þekti Bernadotte og
f-erðaðist með hon-
um til Palestínu og
víðar. — Morgun-
blaðinu barst þessi
Reutersgrein í gær-
kvöldi.