Morgunblaðið - 16.11.1948, Síða 8

Morgunblaðið - 16.11.1948, Síða 8
6 MURGUnBLAÐlb Þriðjudagur 16. nóv. 1948. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavflc. '■ Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla. Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. I lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Hver undirbýr styrjöld? NOKKIJR BRJEF hafa farið á milli einræðisstjórnarinnar í Moskvu og Titos, út af óhlýðni hins júgóslavneska mar- ckálks við Josef nafna sinn í Kreml. Á emum stað í brjefum þessum minnir Stalin júgóslav- neska marskálkinn á, að hann megi þakka rússneskum her- afla það, að hann komst nokkurntíma til valda í landi sínu. Brjefritarinn nefnir í því sambandi, hvernig á því stóð, að kommúnistar komust ekki til valda líka í ítalíu og Frakk- landi. „Því miður“, segir í brjefinu, „gátu herir Sovjetríkj- anna ekld veitt flokksbræðrunum í Frakklandi og ítalíu samskonar stuðning". Einræðisherrann, sem þetta segir í ávítunarbrjefum sín- um til Titos hefir, sem kunnugt er, látið það boð út ganga, lil allra fylgismanna sinna og flugumanna víðsvegar um iönd, að þeir skuli í ræðu og riti berja það blákalt fram, að Moskvustjórnin sje hinn eini sanni friðarvinur í heiminum. Eftir þessu á það að vera í þjónustu friðarhugsjónarinnar, áð Moskvastjórnin hefir lagt undir sig hverja þjóðina af ann- ári í austanverðri álfunni, hefir sent flugumenn sína lengra vestur á bóginn, til þess að svíkja enn fleiri þjóðir, eins og Tjekkóslóvaka, unair hið rússneska ok. Og þáð sje í þjón- ustu friðarins, að sú hin sama stjórn hefir gert þrálátar til- raunir til þess að svelta í hel mikinn hluta af íbúum Berlínarborgar. En þesskonar áróður er dálítið einkennilegúr, þegar tekið er tillit til framkomu Moskvustjórnarinnar í alþjóðamálum og herbúnaðar þjóðanna eins og hann er einmitt nú. Á því þingi, sem nú stendur yfir, hjá Sameinuðu þjóðun- um( hafa fulltrúar Rússa notað neitunarvald sitt með meiri þrákelkni en nokkru sinni fyrr. Þeir neituðu að nokkurt eftirlit fengi að vera með herbúnaði þjóða. Heimtuðu, að andstæðingarnir afvopnuðust ennþá meira en þeir hafa gert. En þegar minnst var á alþjóðaeftirlit með hervæðingu, þá höfðu þeir ekki annað fram að færa, en neitun við frekari umræðum. Þeii neituðu eftirliti með kjarnorkunni. Heimtuðu að allir, sem ættu kjarnorkuvopn eyðilögðu þau, nema þeir sjálfir Á sama tíma, sem þeir dylgjuðu með það, að kjarnorku- vopn væri í þeirra höndum, ekki síður en annara. Og þeir hafa neitað með hörku að nokkur lausn fengist í Berlínar- deilunni, þó að vitað sje, að einmitt í sambandi við umsátur þeirra um Berlín, er mesta sprengiefni alþjóðamála í dag Þaðan stafar mesta ófriðaihættan. Þeir einir stórveldanna halda því gersamlega leyndu, hve margt manna þeir hafi undir vopnum. En giskað er á, að það sjeu aldrei minna en 5—6 miljónir manna. Vitað er og alkunnugt, að Frakkar t. d. eru þannig undir ófrið búnir, að þeir hafa afvopnað her sinn að mestu. Enda samþyktu þeir í ófriðarlokm síðustu, að láta hervarnir sitja á hakanum, en einbeina afli sínu að endurreisn atvinnuveg- anna. Bretar hafa verið að afvopna her sinn, og draga úr her- styrk sínum allan tímann, síðan ófriðnum lauk. Þangað til rjett fyrir skömmu, er Bprlínardeilan var komin í hnút, að þeir hættu að fækka hermönnum sínum. Þetta er styrjald- arundirbúningur í Vestur Evrópu, eða hitt þó heldur. Og svo gala kommúnistar, bæði heimakommúnistarnir og hinir, sem starfa fyrir Moskvavaldið út um löndin, að allar þjóðir álfunnar fyrir vestan Járntjald, sjeu í óðaönn að undirbúa stríð gegn Rússum, og óski einkis frekar, en það brjótist út sem fyrst(!) Sennilega þá, áð.ur en þjóðir þessar hafa nokkra heri að heitið geti. Það er kannski skiljanlegt, að rússnesku blöðin sjeu látin flytja slíkar fregnir, vegna þess að þau eru gefin út í lok- uðu landi, þar sem almenningur fær ekki að sjá önnur blöð en stjórnarblöðin, er flytja þesskonar þvætting dag eftir dag En allmikið er það óskiljanlegra, að kommúnistar í Vest- ur Eviópu, þar sem prentfrelsi ríkir, skuli geta fengið sig til að flytja aðrar eins fjarstæður og þessar. Og heimta svo jafnframt, að nokkur lifandi maður taki mark á því, sem þeir eru látnir segja, þvert gegn betri vitund. \Jiiuerji óLri^ar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Reykjavík vorra daga GAMLIR Reykvíkingar, sem koma heim eftir margra ára dvöl erlendis, hafa allir orð á því hvaS borgin hafi breyst. Framfarirnar verið stórstígar og meiri, en nokkurn gat dreymt um fyrir 30—40 árum. Við, sém eru hjer fædd og uppalin höfum ekki tekið eins eftir breytingunum, sem hafa orðið smátt og smátt, en þó býst jeg við, að það komi að hverjum einasta Reykvíking, þótt hann hafi alið hjer allan sinn aldur, að undrast yfir breytingunum og þeim stakka- skiftum, sem orðið hafa á bæn um og bæjarlífinu síðustu árin. -* • Þegar allir þektust MIÐALÐRA Reykvíkingur, sem kemur inn í veitingahús, kvikmyridahús, eða á aðrar samkomur og lítur í kringum sig, tekur eftir því, að hann þekkir sárafá andlit. í uppvexti hans þekti hann svo að segja hvern mann á mannamótum með nafni og var málkunnugur flestum. Á götunum heilsuðust flestir, því allir þektust. En nú er hægt að ganga lengi á aðal- götum bæjarins, án bess, að maður kannist við eitt einasta andlit. • Hver ratar um Rcykjavík? EF Reykvíkingur hefði verið spurður að því fyrir 15—20 ár- um hvort hann rataði um bæ- inn, hefði hann vafalaust talið slíka spurningu móðgun við sig. En í dag eru það tiltölulega fáir borgarbúar, sem rata um borgina, eða geta fyrirvara- laust sagt hvar í bænum þessi gatan er, eða hin. Silfurteigar og Gullteigar, Neðstasund og Efstasund voru þá ekki til, nje tugir annara gatna, stræta og sunda. Þá var aðeins eitt skjól, Kaplaskjólið, en nú eru skjól- in orðin það mörg, að érfitt er að muna öll nöfnin, hvað þá röðina á þeim þarna vestur frá. • Sjálfsagðir hlutir. REYKVÍKINGAR, sem þetta lesa, kunna að segja, að alt sjeu þetta sjálfsagðir hlutir, sem fleiri viti, en þegi þó. En það skaðar ekki að ryfja það upp fyrir sjer, að Reykja- vík vorra daga hefir tekið mikl um stakkaskiftum og er orðin borg með rúmlega 50 þúsund íbúa. Rúmlega þriðjungur lands- manna býr hjer á litlum bletti Það er sagt, að eftir höfðinu dansi limirnir. Reykjavík er ,,höfuð“ landsins. Mörgum þyk ir það vera orðið full stórt höf- uð á ekki stærri búk. En það er annað mál. Strákarnir láta illa enn ÞAÐ VAR hjerna um kvöld- ið, að við fórum tveir gamlir Reykvíkingar í Trípolibíó. — Þar var sýnd það, sem ungl- ingarnir kalla nú „hasarmynd“ og þeir höfðu fjölment. Okkur fanst nóg um ærsl ungling- anna og troðning. Og fyrst kom okkur saman um, að ekki hefði þetta verið svona slæmt í okk- ar ungdæmi. En eftir á að hyggja, þá var það síst betra í Fjalakettinum, eða í Nýja Bíó meðan það var í Hótel íslands. Þá var troðist, ærslast og eldra fólkið hefir án efa verið jafn hneykslað á okk ar framkomu og við vorum þarna í Trípoli. — Það var sann arlega ekki altaf farið eftir ströngustu kurteisisreglum, þegar verið var að sýna „Liber- ty“-myndirnar og kaflamynd- irnar. Það var „hasar“ þeirra tíma. Einn óánægður „EKKERT SKIL jeg í þjer, að vera að hæla skautasvell- inu“, sagði kunningi minn við mig á dögunum í frostkaflan- um. „í gær fór jeg niður á Tjörn af því að þú varst búinn að hæla svellinu, en varð fyrir vonbrigðum. Svellið var þakið ryki og eng inn hafði tekið sjer fyrir hend- ur, að hreinsa svellið og halda því við. En það þarf að gera dag lega í frostum, ef að gagni á að koma. Jeg sá það í blaði, að bæjarráð hefði verið falið, .að sjá um svellið. Sjer er nú hver endemis yitleysan. Eins manns verk ,,ÞAÐ er trúlegt“, hjelt mað urinn áfram, „að bæjarráðs- menn hafi í nógu að snúast, þótt þeir sjeu ekki að sópa svellið á Tjörninni, eða þótt þeim sje ekki uppálagt, að standa þar með vatnsslöngu og sprauta á ísinn. „Það er ekki nema eins manns verk, að hugsa um, að svellið sje gott. Við gerðum þetta strákarnir sjálfir í gamla daga, enda var þá tilgangslaust, að leita til bæjarráðs, eða ríkis stjórnar með slíka smámuni“. • Rjett athugað ÞESSI NÁUNGI, sem þannig talaði, veit vafalaust vel, að það var ekki ætlun bæjarstjórn ar, að bæjarráðsmenn gæfu sig í það sjálfir, að sópa skautasvell á Reykjavíkurtjörn. En hitt mun vera rjett, að þeim var falið, að sjá um þetta. Og hitt er alveg rjett athug- að, að það er ekki nema eins hanns verk, að sjá um að skauta svellið sje í lagi þegar frost ganga. Vafalaust mun bæjarráð gera þá ráðstöfun, ef það er ekki þegar búið að því. I MEÐAL ANNARA ORÐA . . . „Afvopnunartillögur" Rússa STJORNMALANEFND alls- herjarþ. í París byrjaði í síð- astliðinni viku að ræða að nýju tillögu þá, sem Rússar hafa bor ið fram á þinginu um afvopnun stórveldanna. Ætlast Rússar til þess, að herstyrkur þeirra verði minkaður um einn þriðja, án tillits til þess, hversu mikill hann er í 'dag. Leppríkin rúss- nesku hafa, eins og vænta mátti, stutt tillögu þessa af alefli, en aðrar meðlimaþjóðir S. Þ. eru henni varla fylgjandi, eða að minsta kosti má búast við því, að margar þeirra sitji hjá þeg- ar lokaatkvæðagreiðslan um hana fer fram. • • ÁRÓÐUR Raunin er sú, að tillagan er fyrst og fremst fram komin í áróðurs og blekkingarskyni. — Rússar hafa í dag mun stærri her en nokkur önnur þjóð, að Kínverjum þó ef til vill undan skyldum. Herafli Rússa er öfl- ugri en allra Vesturveldanna samanlagðra. Þeir hafa um fjórar miljónir manna undir vopnum, auk geysiöflugs vopn- aðs lögregluliðs. Við þetta bæt ist svo það, að leppríki þeirra munu tif samans hafa um tveggja miljón manna her, sem auðvitað lýtur algerum yfir- ráðum kommúnista og þar með Moskvumanna. • • STÆRSTI HERINN Nú ætlast Rússar til þess, að her allra stórveldanna verði minkaður um einn þriðja. Her- afli Rússlands yrði þá væntan lega á pappírnum um 1.330.000 manns, eða jafnvel stærri en breski herinn er í dag. Rúss- neski' herinn yrði eftir sem áð- ur stærri en her Vesturveld- anna, auk þess sem valdhafarn ir í Moskvu mundu ráða yfir 2.000.000 manna her í leppríkj unum austan járntjaldsins og lögregluher, sem áreiðanlega skiptir miljónum. ' • • FJÖLGUN HERMANNA Fulltrúar Vesturveldanna í stjórnmálanefnd vöktu athygli á þessu, er nefndin ræddi rúss nesku afvopnunartillöguna í síðastliðinni yiku. Og þeir komu með margar athyglisverðar upp lýsingar máli sínu til sönnun ar. McNeil (Bretland) sýndi þannig fram á það, að rúss- neskí. herinn hefir verið stækk i aður síðan um síðastliðin ára I mót. Tölurnar, sem McNeil gaf um herafla Rússa, eru á þessa leið: 1945 .......... 7.000.000 menn 1945 .......... 5.000.000 menn 1947 ......... 3.960.000 menn 1948 ......... 4.000.000 menn Rússar hafa þannig aukið her sinn, á sama tíma sem Vestur- veldin hafa lagt megin áherslu á að brottskrá menn úr her- þjónustu. Tillaga Rússa um að minka herafla stórveldanna um einn þriðja verður varla samþykkt á allsherjaþinginu. Hún er of barnaleg til þess að villa mönn um sýn. Rússland er einræðis- ríki og einræðisríki hafa ætíð og munu ætíð leggja meginá- herslu á að hafa stærri og öfl- ugri heri en öflugustu lýðræðis þjóðirnar. Tillaga Moskvu- manna um afvopnun er aðeins einn liður í áróðursstarfsemi þeirri, sem þeir hafa rekið á allsherjarþinginu í París. Og hún mun hljóta sömu örlög og aðrar áróðurstillögur þeirra á þinginu: fylgi leppríkjanna og andstöðu lýðræðisþjóðanna. Ontario — J. J. Donnelly, sem vaf forseti efri deildar kanadiska þings- ins og þingmaður um 35 ára skeið, ljset 20. október.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.